Morgunblaðið - 02.04.1987, Qupperneq 20
20
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 2. APRÍL 1987
Hættuástand
framundan?
eftir Birgi ísl.
Gunnarsson
Stjómmálaþróun á íslandi hef-
ur orðið önnur hér en víða annars
staðar í kring um okkur. Á Norð-
urlöndum t.d. hafa myndast
öflugir flokkar á vinstri væng
stjómmálanna undir merkjum
sósíaldemókrata, en hin borgara-
legu öfl hafa sundrast í marga
smærri flokka. í öðmm ríkjum
t.d. Ítalíu hafa stjómmálin ein-
kennst af mörgum flokkum sem
hafa átt erfítt með að vinna sam-
an, stjómarskipti em tíð og
pólitísk ringulreið ríkjandi í
landinu.
Borgaraöflin hafa
verið sameinuð
Á íslandi hafa hin borgaralegu
öfl verið sameinuð í einum flokki,
Sjálfstæðisflokknum, en á vinstri
vængnum hefur verið klofningur.
Vinstri flokkamir hafa átt erfítt
með að vinna saman. Svokallaðar
vinstri stjómir hafa verið glund-
roðastjómir. Þær hafa aldrei náð
neinum tökum á efnahagsmálum
og alltaf skilið við efnahagslíf
landsins í kaldakoli.
Nú em nýjar blikur á lofti í
íslenskum stjórnmálum. Stjóm-
málaflokkunum er að fjölga. Til
skamms tíma var vitað um 8
stjómmálaflokka sem myndu
bjóða fram í þessum kosningum.
Þá stóð annarsvegar Sjálfstæðis-
flokkurinn og hinsvegar 7 flokkar
og flokksbrot á vinstri væng
stjómmálanna. Nú hafa þau
tíðindi gerst að enn einn flokkur
hefur bæst í hópinn, Borgara-
flokkurinn undir stjóm Alberts
Guðmundssonar og Helenu Al-
bertsdóttur.
Kjölfestan í íslenskum
stjórnmálum
Með þeirri flokksstofnun er
reynt að kljúfa hin borgaralegu
öfl í landinu. Ef það tækist myndu
skapast hér ný og áður óþekkt
pólitísk viðhorf. Það hefur verið
sögulegt hlutverk Sjálfstæðis-
flokksins að vera kjölfestan í
íslenskum stjómmálum. Flokkur-
inn hefur hvað eftir annað þurft
að taka til hendi eftir óstjóm-
artímabil annarra, oft þurft að
grípa til óvinsælla og sársauka-
fullra læknisaðgerða og oftast náð
að koma skútunni aftur á réttan
„Nú er stefnt aö því
að brjóta niður þessa
kjölfestu í íslensku
stjórnmálalífi sem
Sj álf stæðisf lokkurinn
er. Stór hætta er á því
að ekki verði hægt að
mynda ríkisstjórn
nema með samstarf i
þriggja eða fjögurra
flokka. Slíkar stjórnir
er erf itt að mynda,
þær eru ótraustar,
reynsla okkar Islend-
inga af þeim er slæm
og aðrar þjóðir hafa
liðið stórlega fyrir
slíkt pólitískt ástand.“
kjöl. Sjálfstæðisflokkurinn hefur
þannig verið afl festu og ábyrgðar
í íslensku þjóðlífí.
Tökum sem dæmi pólitískt
ástand árið 1983. í lok síðasta
Birgir ísl. Gunnarsson
kjörtímabils var ástandið alvar-
legt. Verðbólgan var meiri en
nokkm sinni fyrr í sögunni, kaup-
máttur launa var á hraðri niður-
leið, hmn blasti við í atvinnuiífínu,
viðskiptahalli var mikill og lán-
straust þjóðarinnar var í hættu.
Hægt var að tala um upplausnar-
ástand.
Meiri stöðugleiki
en áður
Eftir kosningamar var staðan
þannig að ekki var hægt að mynda
ríkisstjóm án þátttöku Sjálfstæð-
isflokksins. Framsóknarflokkur-
inn var reiðubúinn að takast á við
þessa erfíðleika með Sjálfstæðis-
flokknum. Núverandi ríkisstjóm
var mynduð og nú er meiri stöðug-
leiki í íslensku efnahagslífi en
þekkst hefur í langan tíma.
Nú er stefnt að því að bijóta
niður þessa kjölfestu í íslensku
stjómmálalífi sem Sjálfstæðis-
flokkurinn er. Stór hætta er á því
að ekki verði hægt að mynda ríkis-
stjóm nema með samstarfi
þriggjá eða ijögurra flokka. Slíkar
stjómir er erfítt að mynda, þær
em ótraustar, reynsla okkar ís-
lendinga af þeim er slæm og aðrar
þjóðir hafa liðið stórlega fyrir slíkt
pólitískt ástand.
Hættuástand
Ef svo fer fram sem horfir er
ekkert líklegra en að ísland sé
að sigla inn í þetta hættulega
stjómmálaástand. Vinstri menn
fagna auðvitað þessari þróun.
Þeirra draumur hefur alltaf verið
að Sjálfstæðisflokkurinn klofni og
hægt verði að setja hin sundur-
þykku borgaralegu öfl tii hliðar
eins og tókst áratugum saman á
Norðurlöndum.
Þessa alvarlegu stöðu verða
íslenskir kjósendur að athuga
gaumgæfílega fyrir þessar kosn-
ingar. Vilja menn kasta sér út í
óvissuna? Vilja menn bijóta niður
áratuga samstöðu borgaralegra
afla á Islandi og gefa vinstri öflun-
um tækifæri til að deila og
drottna? Um þetta em þessar
kosningar famar að snúast. Svar
kjósenda hlýtur að vera að fylkja
sér um Sjálfstæðisflokkinn.
Höfundur skipar 2. sæti á fram-
boðslista Sjálfstæðisflokksias í
Reykja víkurkjördæmi.
MAXIS FRÁ SMIÐJUVEGI
Hönnun: Pétur Lúthersson
innanhússarkitekt FHÍ.
L , *' • ,
BfelfSttfeí
HARRODS
fÍSÉ't&SÍ
- ;
Dýnu - 191 cm x 100 cm A
stærðir: 191 cm x 90 cm B
200 cm x 90 cm C
Breidd: 95 cm
Hæð: 101 cm
Breidd: 95 cm
Hæð: 101 cm
Breidd: 95 cm
Hæð: 70 cm
Breidd: 51 cm
Hæð: 59 cm
Maxis húsgögnin hafa
slegiö í gegn beggja
vegna Atlantshafsins.
Maxis fást á Smiöjuvegi
og í stórversluninni
Harrods í London, sem
gerir ströngustu kröfur
um gæði og útlit.
Sömu kröfur gerir
ungt fólk á íslandi.
Maxis fæst hjá:
Axis Smiðjuvegi 9, Kópavogi.
Harrods Kníghtsbridge, London.
Continental Imports, 3901 Main st.
Philadelphia USA.
AXIS
Smiðjuvegi 9, Kópavogi,
sími (91)43500