Morgunblaðið - 02.04.1987, Blaðsíða 29
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 2. APRÍL 1987
29
Gjörningaveður,for-
dæðuskapur, — eða hvað?
eftir Kjartan Ragnars
Tómas Guðmundsson skáld og
Sverrir Kristjánsson sagnfræðingur
grófu upp margvíslegan fróðleik,
fornan og nýjan, og skráðu á bækur
sem komu út öðru hverju á síðari
árum.
Þættir þeirra félaga voru þekki-
lega úr garði gerðir, enda málfar
með ágætum, svo sem vænta mátti;
auk þess voru sagnir af ýmsum
toga, margar fróðlegar og heillandi,
einkum ævisögur merkra manna
sem settu svip á samtíð sína.
En með þáttum þessum slæddust
því miður nokkrar sagnir sem máttu
kyrrar liggja, — um ógæfufólk sem
brotið hafði leikreglur samfélagsins
og ratað í þungar raunir.
Tómas rifjaði t.d. upp harmsögu
sem gerðist á Langanesi skömmu
fyrir síðustu aldamót, og var þá enn
í minni elstu manna. En nóg var
ekki að gert, og nú hefur kunnur
rithöfundur gefið út bók um þennan
sama atburð; lætur hann raunar
ekki staðar numið á þeim vett-
vangi, heldur bætir hann við sögu
sína annarri voveiflegri harmsögu
sem gerðist um svipað leyti og í
sömu sýslu. Og enn er vegið í sama
knérunn, enda þótt við hæfi að
semja leikrit um harmsögu konunn-
ar á Langanesi og útvarpa því
landslýð til afþreyingar. — Var og
óspart mælt fyrir iðju þessari á veg-
um fjölmiðla.
I fræðum þessum er hvergi dreg-
ið af, öðru nær, — atburðimir eru
raktir af nákvæmni og frásögn auk
þess drýgð með æsilegum þjóð-
sagnablæ, svo sem jafnan vill verða
þegar váleg tíðindi fljúga um héröð.
— Því er engu skeytt að þessi kona
á marga niðja á lífi, bamaböm og
börn þeirra. Dóttir hennar, fædd
1888, andaðist fyrir örfáum ámm;
hún átti mörg böm sem em flest á
lífi.
Svipuðu máli gegnir um hina
harmsöguna sem áður var getið; enn
em á lífi náin ættmenni ógæfu-
manns sem átti þar hlut að máli.
Þótt mál þessi séu á engan hátt
skyld mér, þá þekki ég sumt af
þessu fólki og hef orðið þess var
að því sárnar þetta athæfí gagnvart
nánum ættingjum, látnum.
Saga þjóðarinnar geymir ýmis-
legt annað og geðþekkara sem
rithöfundar mættu brjóta til mergj-
ar, fremur en að velta sér, samtíð
sinni og framtíð upp úr ógæfu lát-
Kjartan Ragnars
„Hví mega umkomulaus
olnbogabörn lífs og dauða
ekki hvíla í friði, og niðjar
þeirra og náin ættmenni
lifa lífi sínu án áreitni?“
inna manna sem ólu aldur sinn við
miskunnarlaust harðrétti er mark-
aði lífsbaráttu genginna kynslóða.
Hví mega umkomulaus olnboga-
böm lífs og dauða ekki hvíla í friði,
og niðjar þeirra og náin ættmenni
lifa lífi sínu án áreitni?
Höfundur er hæstaréttarlögmað-
ur og fyrrverandi sendifulltrúi.
MALLORKA
ÞAÐ BORGAR SIG AÐ VELJA
.KLASSA'
HÓTEL
Mll BJÓÐA UPP Á BETRIAÐBIÍNAÐ
Atlantik býður viðskiptavinum sinum upp á bestu gistiaðstöðu sem hægt er að fá
á Mallorka. Það eru íbúðahótelin góðkunnu í Royal-hótelhringnum. Hótelin eru
vel staðsett og bjóða gestum sínum góðan aðbúnað og fullkomna aðstöðu, svo
sem sundlaugar, sólbekki, bari, matsali og fleira sem gera þessi hótel svo sérstök,
en hvert þeirra hefur sín persónulegu einkenni og sérstöðu. Spyrjið þá sem gist
hafa hótelin, þeir vita hvað við tölum um.
ATLANTIK, VILL ÞÉR VEL
Ferðaskrifstofa. Iðnaðarhúsinu. Hallveigarstig 1 símar 28388 og 28580
íslenskar Brrruður!
- því það er stutt
úr bökunarofnunum okkar
á borðíð tíl þín.