Morgunblaðið - 02.04.1987, Síða 71
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 2. APRÍL 1987
71
Þessir hringdu ..
Hugsa ekki um
okkarhag
Flensborgari hringdi:
Kennaramir sögðu í upphafi
verkfallsins að þeir myndu ekki
auka kennslu eftir verkfallið eins
og þeir gerðu eftir síðasta verk-
fall. Þetta sýnir þá virkilega í réttu
ljósi. Þeir þykjast hugsa um okkar
hag en fara síðan svona með okk-
ur. Það er ríkið sem ákveður
kauptaxta þeirra — ekki nemend-
ur. Þeir nota okkur sem vopn.
Eigum við sem nemendur að
styðja svona menn? Að mínu mati
nei. Þeir hugsa ekki um okkar
hag og af hverju ættum við þá
að hugsa um þeirra hag.
Skrýtin frétta-
mennska
Vinnufélagar á Landsspítalan-
um hringdu:
Er ekki eitthvað athugarvert
við fréttamennsku okkar Islend-
inga? Á meðan þjóðin stendur
frammi fyrir þeim vanda að þús-
undir bama og unglinga komast
ekki áfram í námi sínu vegna
kennaraverkfalls og sjúkrahús-
starfsemi er hálflömuð vegna
kjaradeilna þá em fjölmiðlar fullir
frétta af peningamálum Alberts
og heimkomu Helenar. Væri ekki
nær að gera brýnni vandamálum
betri skil?
Kunnum ekki að meta
þessa framkomu
H.J. hringdi:
Ég er alveg hissa á Albert
Guðmundssyni ef hann lætur sér
detta í hug að fara í framboð fyr-
ir Sjálfstæðisflokkinn þar sem
hann og hans fólk linnir ekki lát-
um við að úthúða flokknum og
forystumönnum hans. Við al-
mennir sjálfstæðismenn kunnum
ekki að meta þess konar fram-
komu af manni sem vill leiða
flokkin í kosningum. Hann og
dóttir hans ættu að gæta tungu
sinnar betur. Og hvemig er með
hinn sk. hulduher? Er það sjálf-
stæðisfólk? Því var lýst yfir af
mönnum þar á bæ að um 3000
manns hefðu ekki kosið flokkinn
þá vegna óánægju svo þetta virð-
ist vera heldur óstöðugt fylgi fyrir
Sjálfstæðisflokkinn.
Tapaði gullarmbandi
Guðrún hringdi:
Ég tapaði gullarmbandi sl.
sunnudag einhversstaðar á leið-
inni frá Hótel Sögu upp á Baldurs-
götu, þaðan niður á Umferðarmið-
stöð og svo með Heijólfi til
Vestmannaeyja. Finnandi vinsam-
legast hafí samband í síma 26823
eða 98-1679.
Ingvi Hrafn frekar
leiðinlegur
3169-4917 hringdi:
Mér finnst Ingvi Hrafn vera
frekar leiðinlegur fréttamaður.
Hann bæði stamar og talar
ógreinilega.
Þekkjum ekki fólkið
Sveinn Sveinsson og fjölskylda,
Miðbraut 11 hringdu:
Við höfum fengið jólakveðjúr
síðasliðin þijú jól frá fjölskyldu
sem við áttum okkur ekki á hver
er. Fyrst kom mynd af lítilli stúlku
u.þ.b. tveggja ára, sem því miður
er týnd, og var tekin í stofu á
heimili. Undir jólakvejuna skrifa
Betsý, Halli, Randí, Elías og Guð-
björg. Við vitum ekki hvar þetta
fólk á heima en póststimpillinn á
umslaginu er Reykjavík. Síminn
okkar er 97-3165 og ef fólkið vill
hringja þá mundi allt skýrast. Það
er óvenjulegt að fá ár eftir ár
kveðju og vita ekki hvaðan hún
kemur. Þar af leiðandi ekkert svar
frá okkur.
Það sem höfðingjarnir
hafast að
M.H. hringdi:
Mikið hefur gengið á hjá fjöl-
miðlamönnum vegna hins sk.
Albertsmáls. Sjónvarpsdagskráin
fór úr skorðum kvöld nokkurt
þegar Albert sat fyrir svörum.
Fréttaljósmyndari var laminn af
þessum fyrrverandi ráðherra svo
hann hlaut slæm meiðsl. Sami
fyrrverandi ráðherra er sakaður
um svik og siðleysi í peningamál-
um. Hann varði málstað sinn og
sagði að slíkt væri „almennar við-
skiptavenjur" og hulduherinn fær
varla vatni haldið af aðdáun. Þor-
steinn ráðherra og aðrir stjómar-
herrar tala um að skattsvik og
svoleiðis sé siðleysi. Þeir segja að
siðgæði sé nauðsyn. En ýmsir
afkomendur víkinganna lýsa frati
á siðgæðisboðskap Þorsteins og
félaga. Til dæmis sagði skörung-
leg kona í Morgunblaðinu að hún
væri á móti nýju siðgæði enda
væru Albert og fjölskylda hans
vinir hennar.
Til er gamalt máltæki sem
hljóðar svona: „Það sem höfðin-
gjamir hafast að hinir ætla að sér
leyfist það“.
Barnauppeldi og
nornaseiðir
Jóna Sigurðardóttir hringdi:
Bjamey Ólafsdóttir skrifar
grein í Velvakanda sl. sunnudag
þar sem hun talar m.a. um að
ekki eigi að níða niður fólk. Ég
vil því beina þeirri spumingu til
hennar hvað hún sé að gera þeg-
ar hún nefnir Ólaf Ragnar
Grímsson sem dæmi í greininni?
Er hún ekki að að tala þama nið-
randi um þessa persónu? Hún vill
ekki láta níða niður fólk og á þá
ekki að gera það sjálf í sömu
greininni. Einnig talar hún um
nomaseið og bamauppeldi í sömu
andránni. Þó margt misjafn megi
segja um uppeldi fólks á bömum
sínum þá held ég nú að það sé
hæpið að fara að blanda einhveij-
um nomaseiðum inn í umræðuna.
Á að kjósa um hunda-
haldið?
Skúli Helgason, prentari
hringdi:
Þegar Davíð á sínum tíma kom
því í gegn ásamt öðrum að leyft
var takmarkað hundahald í
Reykjavík, þá mest í þeim til-
gangi að manni virtist að bjarga
hundatfk frá bráðum bana, sem
þáverandi forseti borgarstjómar
átti, man ég ekki betur en að
skýrt og skorinort hafí verið lof-
að, að við næstu borgarstjómar-
kosningar yrði kosið um
hundahald í Reykjavík. Við þetta
var ekki staðið, hefur sennilega
gleymst eins og mörg önnur kosn-
ingaloforð. Er ekki ætlunin að
efna þetta loforð um leið og núver-
andi alþingiskosningar fara fram?
Sérstaklega með tilliti til þess að
hundahald var leyft gegn vilja
meirihluta borgarbúa.
Tók frakka í misgrip-
um
Guðrún hringdi:
Bóndi minn hefur tekið ein-
hversstaðar frakka í misgripum
og skilið sinn eftir. Það getur
verið að það hafi verið svartir
hanskar í frakkanum. Ef einhver
kannast við málið er hann beðinn
um að hafa samband i síma
33164.
Ekkert
er auðveldara en að finna fermingar-
gjöfina í ár því það er svefnsófi í
frískum “stæl“ litum.
Mllo-sófinn
Stærð 150 sm á breidd, þægilegt sæti og notalegt
rúm.
Verð kr. 18.850.- Útborgun 5.000.- Rest á 6 mán.
Litir: Blár/svartur og rauður svartur.
i
r-t '53
Pax-sófinn
er 190 sm á lengd og 160 sm breiður útsleginn. Pax
er þægilegur að sitja í með 2 pullum.
Verð kr. 29.980.- Útborgun 6.980.- Rest á 8 mán.
Litir: Ijósgrátt, Ijósbrúnt, Ijósblátt.
Aphrodite-sófinn
er reglulegur stálsófi sem kostar kr. 27.680.-
Útborgun kr. 6.000.- Rest á 7 mán.
ViA bjóAum yAur stœrstu húsgagnaútstillingu landsins.
Geysilegt úrval á hagstœAu verAi með góAum afborgun
arkjörum.
ViA tökum greiAslukortin sem útborgun og staAgreiAslu.
húsgagna4iöllín
REYIUAVlK