Morgunblaðið - 23.05.1987, Síða 6
6
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 23. MAÍ 1987
ÚTVARP / SJÓNVARP
Létt verk
Jón Viðar Jónsson leiklistarstjóri
Ríkisútvarpsins er tekinn til við
sína fyrri iðju að leikstýra án þess
að hafa hlotið til þess starfa tilskylda
menntun og leikaramir er léku nú í
fímmtudagsleikritinu undir hans
stjórn þau Margrét Helga, Amar og
Róbert létu sér vel líka. Em leikarar
gersneyddir stéttarvitund og heil-
brigðum metnaði? Það væri gaman
að sjá'til flugumferðarstjóra ef flug-
freyja tæki uppá því að setjast við
stjómtækin í flugstjómartuminum.
Nóg um það. Fimmtudagsleikritinu
er Jón stýrði var lýst svo í dagskrár-
kynningu: Leikritið Sunnudagsbam
eftir Odd Bjömsson hlaut 3. verðlaun
í leikritasamkeppni RÚV 1986. í
umsögn dómnefndar segir: „Sunnu-
dagsbam segir okkur frá tilviljunar-
kenndu móti fullorðinna manneskja.
Það verður árekstur milli heilbrigðrar
kvenlegarar væntingar annars vegar
og lítillækkunarþarfar skipbrots-
manns úr lífsólgusjónum hins vegar.
Kannski ekki hugþekkt viðfangsefni
— en lífíð er ekki alltaf hugþekkt
og því á þetta mót, hvaðan sér í
myrkheim sálna, sinn rétt og er vert
síns lofs.“
DómsorÖin
Sannarlega eru dómsorðin myrk,
dularfull og næsta óskiljanleg og
ætti kannski að verðlauna þá er sátu
í dómnefndinni sérstaklega fýrir
skáldleg tilþrif því satt að segja
fannst mér verk Odds Bjömssonar
ekki mjög innblásið þrátt fyrir að
Oddur hafi mjög góð tök á leikrænum
texta og grunnhugmynd verksins
hafí verið frumleg en er áhorfandinn
bjóst við að hinar ástþyrstu mann-
eskjur stykkju í eina sæng — þau
Margrét Helga og Amar — þá hljóp
karlinn á dyr og mætti skömmu síðar
hjá sálusorgaranum er Róbert Am-
fmnsson lék. Og hér kom einmitt
brotalömin í verki Odds, sú mikla
eftirvænting er fylgdi lýsingu sálu-
sorgarans á hinum ógæfusama
skipbrotsmanni er rauk á dyr þá
fraukan hafði opnað svefnherbergis-
dymar. Satt að segja bjóst ég við
morði en ekki heldur ómerkilegum
klámfundi skipbrotsmannsins og
fraukunnar er endaði með því að
kappinn hljóp á dyr líkt og gerist
stundum þá nýfráskildir menn hitta
þroskaðar konur við skál.
Rifjum upp umsögn dómnefndar-
innan „Það verður árekstur milli
heilbrigðrar kvenlegrar væntingar
annars vegar og lítillækkunarþarfar
skipbrotsmanns úr lífsólgusjónum
hins vegar. Kannski ekki hugþekkt
viðfangsefni — en lífíð er ekki alltaf
hugþekkt og því á þetta mót, hvaðan
sér í myrkheim sálna, sinn rétt og
er vert síns lofs.“ Það er vissulega
rétt athugað hjá dómnefndarmönn-
um að ekki er hægt að ætlast til
þess að leikskáldin beini aðeins sjón-
um að ... hugþekkum viðfangsefn-
um ... en er þá ekki líka hægt að
kreflast þess að skáldin lyftist ögn
á vængjum skáldfáksins til móts við
hinn almenna áheyranda er hefír
máski ekki sama áhuga og leikskáld-
iðá... skítakarakterum? Dómnefnd-
armenn virðast ekki á sama máli og
telja greinilega mikilvægt að verð-
launa verk er lýsa oní ormagryfjuna.
Undirritaður hefír persónulega afar
takmarkaðan áhuga á karakterum á
borð við kallinn er Amar lék og varð
þvi fyrir vonbrigðum með hinn ann-
ars fagmannlega leiktexta.
Sjálfstýring?
Einsog áður sagði fóru þau Mar-
grét Helga, Amar og Róbert með
aðalhlutverkin en svo þjálfaðir eru
þessir leikarar orðnir í útvarpsleik
að það hvarflaði að mér að sennilega
væri bara réttast að láta tæknimenn-
ina setja þá í ... sjálfstýringu ...
svona einsog þotumar í það minnsta
í hinum léttvægari verkum. Hvað
segir leikstjóra- og leikarafélagið um
þessa hugmynd?
Ólafur M.
Jóhannesson
Ríkissj ónvarpið:
Ævintýri í Austurlöndum
Ævintýri í Austurlönd-
um, áströlsk sjónvarps-
mynd, er á dagskrá
sjónvarps í kvöld.
■■■ Ævintýri í Aust-
OO 55 urlöndum, ný
áströlsk sjón-
varpsmynd, er á dagskrá
sjónvarps í kvöld. Myndin
fjallar um blaðamann sem
fer ásamt konu sinni í leið-
angur til að kynna sér
verkalýðsbaráttu í ónefndu
Asíuríki. Á vegi þeirra
verður fyrrum elskhugi
eiginkonunnar, dálítið
skuggalegur kráareigandi.
Hann reynist þeim þó vel
þegar erfíðleikar steðja að.
æ * wir<
Ekki virðist þessi ungi maður mjög hættulegur.
Stöð 2:
Hættuspíl
■■■■ Hættuspil, ný
O O 40 áströlsk kvik-
mynd með Svet
Kovich, Allan Cassel og
Anna Jemisson, er á dag-
skrá Stöðvar 2 í kvöld.
Myndin fjallar um mann
sem tekur sér unga ást-
konu. Sonur hans, sem er
á svipuðum aldri og stúlk-
an, verður gagntekinn
þeirri hugsun að komst upp
á milli þeirra og neytir allra
bragða. Myndin er bönnuð
bömum.
UTVARP
©
LAUGARDAGUR
23. maí
6.45 Veðurfregnir. Bæn.
7.00 Fréttir.
7.03 „Góðan dag, góðir
hlustendur". Pétur Péturs-
son sér um þáttinn. Fréttir
eru sagðar kl. 8.00, þá lesin
dagskrá og veðurfregnir
sagðar kl. 8.15. Að þeim
loknum er lesið úr forustu-
greinum dagblaöanna en
síðan heldur Pétur Péturs-
son áfram að kynna
morgunlögin. Fréttir á
ensku sagöar kl. 8.30.
9.00 Fréttir. Tilkynningar.
Tónleikar.
9.15 í garðinum með Haf-
steini Hafliðasyni. (Endur-
tekinn þáttur frá miöviku-
degi).
9.30 I morgunmund. Þáttur
fyrir börn í tali og tónum.
Umsjón: Heiödís Norðfjörð.
(Frá Akureyri).
10.00 Fréttir. Tilkynningar.
10.10 Veðurfregnir.
10.25 Óskalög sjúkíinga.
Helga Þ. Stephensen kynn-
ir. Tilkynningar.
11.00 Vísindaþátturinn.
Umsjón: Stefán Jökulsson.
11.40 Næst á dagskrá.
Stlklaö á stóru í dagskrá
útvarps um helgina og
næstu viku. Umsjón: Trausti
Þór Sverrisson.
12.00 Hér og nú.
Fréttir og fréttaþáttur í viku-
lokin i umsjá fréttamanna
útvarps.
12.45 Veðurfregnir.
12.49 Hér og nú, framhald.
13.00 Tilkynningar. Dagskrá.
Tónleikar.
14.00 Sinna.
Þáttur um listirog menning-
armál. Umsjón: Þorgeir
Ólafsson.
15.00 Tónspegill.
Þáttur um tónlist og tón-
menntir á líöandi stund.
Umsjón: Magnús Einarsson
og Ólafur Þórðarson.
16.00 Fréttir. Tilkynningar.
Dagskrá.
16.16 Veðurfregnir.
16.20 Barnaútvarpið.
17.00 Frá erlendum útvarps-
stöðvum. Flytjendur: Bar-
bara Hendricks, Ralf
Gothoni, Rudolf Buchibind-
er, Birgitte Fassbaender og
Fílharmoníusveitin í Berlín;
Erich Leinsdorf stjórnar.
a. Fimm sönglög eftirt Wolf-
gang Amadeus Mozart.
. b. Píanósónata í h-moll op.
58 eftir Frédéric Chopin.
c. Ljóð förusveinsins eftir
Gustav Mahler.
18.00 Tónleikar. Tilkynningar.
18.45 Veðurfregnir. Dagskrá
kvöldsins.
19.00 Kvöldfreftir.
19.30 Tilkynningar. Tónleikar.
20.00 Harmoníkuþáttur. Um-
SJÓNVARP
LAUGARDAGUR
23. maí
16.30 Iþróttir
Umsjónarmaður Bjarni Fel-
ixson.
18.00 Garðrækt
Fjórði þáttur. Norskur
myndaflokkur I tíu þáttum.
Þýðandi Jón O. Edwald.
(Nordvision — Norska sjón-
varpiö.)
18.30 Leyndardómur gull-
borganna
(Mysterious Cities of Gold)
Annar þáttur. Teiknimynda-
flokkur um þrjú börn og
félaga þeirra I leit aö gull-
borg I Suöur-Ameríku á
tímum landvinninga Spán-
verja þar I álfu. Þýðandi
Sigurgeír Steingrímsson.
19.00 Ævintýri frá ýmsum
löndum. (Storybook Inter-
national.) Sögumaður Helga
Jónsdóttir. Þýðandi Jóhanna
Jóhannsdóttir.
19.25 Fréttaágrip á táknmáli
19.30 Smellir
20.00 Fréttir og veður
20.35 Lottó
20.40 Fyrirmyndarfaöir (The
Cosby Show) — 18. þáttur.
Bandarískur gamanmynda-
flokkur með Bill Cosby I
titilhlutverki. Þýðandi Guðni
Kolbeinssón.
21.10 Innlendur þáttur
21.45 Eric Clapton og félagar
Frá hljómleikum Eric Clapt-
ons, Phil Collins og fleiri
félaga í Birmingham í fyrra-
sumar. Á efnisskránni eru
m.a. Layla, Sunshine of
Your Love og fleiri lög sem
hljómsveitin Cream gerði
fræg á sínum tíma.
22.50 Ævintýri í Austurlöndum
(Far East)
Ný, áströlsk sjónvarps-
mynd. Leikstjóri John
Duigan. Aðalhlutverk: Bryan
Brown, Helen Morse og
John Bell. Blaðamaður fer
ásamt konu sinni í leiöangur
til að kynna sér verkalýös-
baráttu í ónefndu Asíuriki.
Þar verður á vegi þeirra fyrr-
um ástmaður eiginkonunn-
ar, vafasamur kráareigandi,
sem reynist þó drengur
góður þegar í harðbakkann
slær. ÞýðandiTraustiJúlíus-
son.
00.30 Dagskrárlok.
0
STÖÐ2
LAUGARDAGUR
23. maí
§ 09.00 Kum, Kum. Teikni-
mynd.
§ 09.25 Jógi björn. Teikni-
mynd.
§ 09.50 Ógnvaldurinn Lúsi
(Lucie).
Leikin barnamynd.
§ 10.15 Villi spæta. Teikni-
mynd.
§11.00 Þrumufuglarnir.
Teiknimynd.
§ 11.30 Fimmtán ára (Fifteen).
í þessum þáttum fara ungl-
ingar með öll hlutverk.
12.00 Hlé.
§ 16.00 Ættarveldið (Dynasty)
Alexis leggur sig alla fram
til þess að ná ástum Blakes
á ný.
§ 16.45 Myndrokk.
§17.00 Biladella (Automania).
Ný bresk þáttaröð i léttum
dúr sem greinir frá sögu
bílsins. Á vesturlöndum líta
menn á það sem sjálfsagð-
an hlut að allur þorri manna
hafi einkabíl til umráða. En
í raun eru það aðeins 7%
jaröarbúa sem njóta þeirra
forréttinda. I þessum þætti
er athyglinni beint að bíla-
kosti þriðja heimsins.
r 17.30 NBA-körfuboltinn.
Umsjónarmaður er Heimir
Karlsson.
19.05 Koalabjörnin Snari.
Teiknimynd.
19.30 Fréttir.
20.00 Undirheimar Miami
(Miami Vice).
Bandarískur framhaldsþátt-
ur með Don Johnson og
Philip Michael Thomson í
aðalhlutverkum.
i 20.50 Fletch (Fletch).
Bandarisk spennumynd í
gamansömum dúr frá 1985
með Chevy Chase i aöal-
hlutverki. Blaðamaður
ræðst til starfa sem leigu-
morðingi, í því skyni að
verða sér úti um góða sögu,
og er auöjöfur nokkur skot-
mark hans. Hann bregður
sér í hin ótrúlegustu gervi
og flettir um leið ofan af
spilltum viðskiptamönnum
og eiturlyfjasölum úr röðum
lögreglunnar. Leikstjóri:
Michael Rithchie.
i 22.26 Bráðum kemur betri
tið. (We'll meet again).
Breskur framhaldsmynda-
flokkur með Susannah York
og Michael J. Shannon í
aöalhlutverkum.
i 23.16 Buffalo Bill.
Bandarískur gamanþáttur
með Dabney Coleman og
Joanna Cassidy í aðalhlut-
verkum. Hinn óviðjafnanlegi
Bill Bittinger tekur á móti
gestum í sjónvarpssal.
i 23.40 Hættuspil (Dark
Room).
Ný áströlsk kvikmynd með
Svet Kovich, Allan Cassel
og Anna Jemisson. Mögnuð
spennumynd um mann
nokkurn sem tekur sér unga
ástkonu. Sonur hans, sem
er á svipuöum aldri og stúlk-
an, verður gagntekinn þeirri
hugsun að koma upp á milli
þeirra og beitir til þess öllum
ráðum. Leikstjóri: Paul
Harmon. Myndin er bönnuó
bömum.
i 01.15 Myndrokk.
03.00 Dagskrárlok.
sjón: Högni Jónsson.
20.30 Úr heimi þjóðsagnanna.
Annar þáttur af tiu: „Stúlk-
urnar ganga sunnan með
sjó". Umsjón: Anna Einars-
dóttir og Sólveig Halldórs-
dóttir. Lesari með þeim:
Arnar Jónsson. Knútur R.
Magnússon og Siguröur
Einarsson völdu tónlistina.
(Áður útvarpað í október
1985).
21.00 Islenskir einsöngvarar.
Sigríður Ella Magnúsdóttiri
syngur lög eftir íslensk tón-
skáld. Ólafur Vignir Alberts-
son leikur með á pianó.
21.20 Á réttri hillu. Umsjón:
Örn Ingi. (Frá Akureyri).
22.00 Fréttir. Dagskrá morg-
undagsins. Orð kvöldsins.
22.15 Veðurfregnir.
22.20
23.00 Danslög.
24.00 Fréttir.
00.05 Miönæturtónleikar. Um-
sjón: Jón Örn Marinósson.
01.00 Dagskrárlok. Næturút-
varp á samtengdum rásum
til morguns.
éb
LAUGARDAGUR
23. maí
1.00 Næturútvarp. Skúli
Helqason stendur vaktina.
6.00 í bitiö. Erla B. Skúladótt-
ir kynnir notalega tónlist í
morgunsárið.
9.03 Tíu dropar. Helgi Már
Barðason kynnir dægurlög
af ýmsu tagi og upp úr kl.
10.00 drekka gestir hans
morgunkaffið hlustendum til
samlætis.
11.00 Lukkupotturinn. Bjarni
Dagur Jónsson sér um þátt-
inn.
12.45 Listapopp í umsjá
Gunnars Salvarssonar.
(Þátturinn verður endurtek-
inn aðfaranótt þriðjudags kl.
2.00.)
14.00 Poppgátan. Gunnlaug-
ur Ingvi Sigfússon og
Jónatan Garðarsson stýra
spurningaþætti um dægur-
tónlist. (Þátturinn verður
endurtekinn nk. þriðjudags-
kvöld kl. 21.00.)
15.00 Við rásmarkið. Þáttur
um tónlist, íþróttir og sitt-
hvað fleira í umsjá Sigurðar
Sverrissonar og íþrótta-
fréttamannanna Ingólfs
Hannessonar og Samúels
Arnar Erlingssonar.
17.00 Savanna, Ríó og hin
tríóin. Svavar Gests rekur
sögu íslenskra söngflokka i
tali og tónum.
18.00 Tilbrigði. Þáttur í umsjá
Hönnu G. Sigurðardóttur.
(Þátturinn verður endurtek-
inn aðfaranótt miövikudags
kl. 2.00.)
19.00 Kvöldfréttir.
19.30 Með sínu lagi. Umsjón:
Guðrún Gunnarsdóttir.
20.00 Rokkbomsan. Þorsteinn
G. Gunnarsson.
21.00 Á mörkunum. — Sverrir
Páll Erlendsson. (Frá Akur-
eyri.)
22.05 Snúningur. Vignir
Sveinsson kynnir gömul og
ný dægurlög.
00.05 Næturútvarp. Skúli
Helgason stendur vaktina
til morguns.
Fréttir kl. 7.00, 8.00, 9.00,
10.00, 12.00, 16.00, 19.00,
22.00 og 24.00.
/ SVÆÐISÚTVARP
AKUREYRI
18.00—19.00 Svæðisútvarp
fyrir Akureyri og nágrenni —
FM 96,5.
Um að gera. Þáttur fyrir
unglinga og skólafólk.
LAUGARDAGUR
23. maí
08.00—12.00 Valdís Gunnars-
dóttir. Valdís leikur tónlist
úr ýmsum áttum, litur á það
sem framundan er hér og
þar um helgina og tekur á
móti gestum. Fréttir kl.
08.00 og 10.00.
12.00-12.10 Fréttir
12.10—16.00 Ásgeir Tómas-
son á léttum laugardegi.
Öll gömlu uppáhaldslögin á
sínumstað. Fréttirkl. 14.00.
15.00—17.00 Vinsældalisti
Bylgjunnar. Jón Gústafsson
leikur 40 vinsælustu lög vik-
unnar. Fréttir kl. 16.00.
17.00—19.00 Laugardags-
popp
á Bylgjunni með Þorsteini
Ásgeirssyni. Fréttir kl.
18.00.
19.00-21.00 Rósa Guð-
bjartsdóttir litur á atburði
siðustu daga, leikur tónlist
og spjallar við gesti. Fréttir
kl. 19.00.
21.00-23.00 Anna Þorláks-
dóttir i laugardagsskapi.
Anna trekkir upp fyrir helg-
ina.
23.00—04.00 Jón Gústafsson,
nátthrafn Bylgjunnar heldur
uppi helgarstuöinu.
04.00—08.00 Næturdagskrá
Bylgjunnar. Haraldur Gísla-
son leikur tónlist fyrir þá
sem fara seint í háttinn og
hina sem fara snemma á
fætur.
LAUGARDAGUR
23. maí
13.00 Skref í rétta átt. Stjórn-
endur: Magnús Jónsson,
Þorvaldur Daníelsson og
Ragnar Schram.
14.30 Tónlistarþáttur. ( um
sjón Hákonar Muller.
16.00 Á beinni braut. Ungl-
ingaþáttur. Stjórnendur:
Gunnar Ragnarsson og
Sæmundur Bjarklind.
17.00 Hlé.
22.00 Vegurinn til lífsins: Tón
listarþáttur með lestri úr
Ritningunni.
24.00 Dagskrárlok.