Morgunblaðið - 23.05.1987, Blaðsíða 27
27
ur- og frystihús reist 1947. Á fyrsta
Fjórðungsþingi Austfirðinga, sem
haldið var á Seyðisfirði 1943, var
samin ítarleg greinargerð um stofn-
un kauptúns á Héraði og send
ríkisstjórninni. Einnig var skorað á
ríkisstjórnina að kaupa hæfilegt
land til afnota fyrir þorpsbúa. Þess-
ari málaleitan var vel tekið af
þáverandi félagsmálaráðherra,
Birni Þórðarsyni, sem fól Skipu-
lagsnefnd ríkisins að fjalla um það
á þann hátt sem farið var fram á.
Á árinu 1944 brann læknisbústað-
urinn á Brekku í Fljótsdal, jafn-
framt hafði verið læknislaust um
alllangt skeið á Hjaltastað á þessum
tíma. Þetta ár var því ákveðið að
sameina læknishéruðin á Fljótsdals-
héraði í Egilsstaðalæknishérað og
skyldi læknabústað og sjúkrahúsi
valinn staður á miðju Fljótsdals-
héraði nálægt Lagarfljótsbrú, en
hún var vígð haustið 1905 og þá
strax ljóst að við hana yrðu vega-
mót.
Á þeim árum sem undirbúningur
að stofnun kauptúnsins fór fram
var þegar byijað að myndast hér
þorp. Sjúkrahús var reist 1944.
Búvélaverkstæði Steinþórs Eiríks-
sonar tók til starfa 1945 og
Kaupfélag Héraðsbúa reisti versl-
unarhús 1946 og slátur- og frysti-
hús 1947. Einstaklingar hófust líka
fljótt handa við byggingu íbúðar-
húsa, einkum starfsmenn ofantal-
inna fyrirtækja og iðnaðarmenn.
Fyrsta íbúðarhúsið í Egilsstaða-
kauptúni byggði Osvald Nielsen
smiður árið 1944. Síðan þá hefur
Egilsstaðakauptún vaxið með
undraverðum hraða og fólksfjölgun
verið ótrúlega ör eins og sést á eftir-
farandi tölum um íbúafjölda.
Árið 1947 eru íbúar 110.
Árið 1950 eru íbúar 140.
Árið 1960 eru íbúar 280.
Árið 1970 eru íbúar 718.
Árið 1980 eru íbúar 1.133.
Árið 1986 eru íbúar 1.323.
Björn Sveinsson frá Eyvindará.
Hann átti sæti í fyrstu hrepps-
nefnd Egilsstaða.
Verklegar framkvæmdir tóku
líka sinn tíma. Þegar ákveðið var
að hér skyldi kauptúnið rísa var hér
ekki neitt til neins og allt varð að
byggja frá grunni. í upphafi kost-
aði ríkissjóður hluta af þessum
framkvæmdum eins og lögin gerðu
ráð fyrir og fjármagn var fyrir
hendi. Þetta var einkum á sviði
gatnakerfis og lagna um elsta hluta
þorpsins. Þá óraði engan fyrir jafn
örri uppbyggingu hér og raun hefur
orðið á. í upphafi voru menn að
tala um lítið sveitaþorp og sam-
vinnubúskap. Þá sáu menn ekki
fyrir þá miklu fjölgun atvinnutæki-
færa sem orðið hafa í þjónustu-
greinum allskonar, sagði Björn
Sveinsson að lokum.
— Björn
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 23. MAÍ1987
...___________ •
MIÐ-EVROPA Ertu með?
Flug, bdl, sumarhús!
Viltu njóta lífsins
við fagurt vatn í friðsælu fjallaþorpi þaðan sem stutt er í
stórborgarmenninguna?
Ertu kannski einn þeirra fjallhressu sem alltaf þurfa
að glíma við ný og stærri fjöll og endalaust þurfa að kanna
eitthvað nýtt / gamalt?
Dreymir þig e.t.v. um að drífa þig á seglbretta-
námskeið og skora svo á íslandsmeistarann þegar heim
kemur eða liggja á vel völdum vatnsbakka, grilla þig í
sólinni og taka þátt í keppninni „Hver er brúnastur"?
Ertu sælkerinn sem þýðir ekki að bjóða nema það
besta í mat og drykk?
Þá eru Biersdorf í Þýskalandi, Walchsee
eða Zell am See í Austurríki staðir fyrir þig
Þú getur haft bílaleigubíl til umráða og ekið hvert sem þú
vilt eða tekið þátt í skipulögðum skoðunar-
ferðum með okkar traustu og reyndu fararstjórum.
FLUGLEIDIR
__fyrir þíg__
Viltu fara þínar eigin leiðir?
Sértu einn þeirra ferðavönu eða þeirra sem geta
ekki hugsað sér að ferðast eftir fyrirfram gefinni áætlun er
það að sjálfsögðu engin spurning hvað þú gerir. Þú hlýtur
að velja flug og bfl. Spumingin er bara: Hvar viltu byrja?
í Lux, Frankfurt, París eða Salzburg? Það er auðvitað þitt
mál en staðreyndin er sú að bílaleigubflarnir í Lux em þeir
ódýmstu í Mið-Evrópu.
Leiðsögumappan og Mið-Evrópu
bæklingurinn Flug, bíll og sumarhús
em komin. Komdu við á söluskrifstofum okkar eða
ferðaskrifstofunum, fáðu þér eintak og lestu þér til um
sumardvalarstaðina okkar í Mið-Evrópu. Dragðu fram
gamla landakortið, ræddu málin við Qölskylduna í ró og
næði og hringdu svo í okkur.
LUXEMBORG:
Hug+bfll í 2 vikur frá kr. 11.903 á tnann. SUPER-APEX verð.
Miðað við 2 fullorðna og 2 böm, 2ja—11 ára, og bfl í B-flokki.
WALCHSEE:
Elug±JLbúð.á llgerhQf .í .2 vikur frá kr. ,18.260* á mann.
Flogið til Salzburg.
ZELL AM SEE:
Hug+íbúð í Hagleitner í 2 vikur frá kr. 18.395* Hogið til Salzburg.
BIERSDORF:
Hug+íbúð í 2 vikur frá kr. 13.321* á mann. Hogið til Luxemborgar.
•Medaltalsverd á mann miðad við 2 fullorðna og 2 böm, 2ja—11 ára.
Nánari upplýsingar veita söluskrifstofur Flugleiða, umboðsmenn
um allt land og ferðaskrifstofumar.
FLUGLEIÐIR
Söluskrifstofur Flugleiða: Lækjargötu 2, Hótel Esju og Álfabakka 10. Upplýsingasími 25 100