Morgunblaðið - 23.05.1987, Blaðsíða 57

Morgunblaðið - 23.05.1987, Blaðsíða 57
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 23. MAÍ 1987 57 Kristbjörg Svein- björnsdóttir — Kveðja Mér fínnst ég verða að taka mér penna í hönd og minnast nokkrum orðum, vinkonu minnar, Kristbjarg- ar Sveinbjörnsdóttur fyrrverandi húsfreyju á Högnastöðum í Hruna- mannahreppi. Hún andaðist á heimili sínu í Reykjavík aðfaranótt 16. maí síðastliðinn. Hún verður jarðsett í dag, í heimabyggð sinni, að Hruna í Hrunamannahreppi við hliðina á manni sínum, Guðmundi Guðmundssyni bónda. Guðmundur andaðist fyrir allmörgum árum, langt fyrir aldur fram, úr sjúkdómi sem ekki tókst að lækna, þótt flutt- ur hann væri til færustu sérfræð- inga erlendis og allt reynt til þess að afla honum bata. Nokkru eftir andlát Guðmundar brá Kristbjörg búi og lét af hendi jörð sína Högnastaði. Flestar dætur hennar voru þá fluttar að heiman og búnar að stofna sín eigin heim- ili, eða á leiðinni að gera það. Eftir að Kristbjörg brá búi á Högnastöðum, hélt hún heimili í Reykjavík með Halldóru yngstu dóttur sinni, en Halldóra var þá við nám í Hússtjómarkennaraskóla Is- lands. Eftir að Halldóra giftist Böðvari Inga Ingimundarsyni og þau reistu sér hús á Laugarvatni, fluttist Kristbjörg til þeirra og bjó hjá þeim í nokkur ár. Vegna heilsubrests fluttist Krist- björg frá Laugarvatni til Reykjavík- ur. Það var ráðstöfun til þess að hún gæti verið sem næst bestu fá- anlegu læknishjálp. Hún var um tíma rúmliggjandi vegna kölkunar í mjöðmum og lá á Grensásdeild- inni. Þangað kom ég til hennar. Kristbjörg var mikið þjáð en þó æðrulaus en ákveðin í því að kom- ast aftur á fætur, enda tókst henni það. Meira að segja eftir meðferðina á Grensásdeildinni brá hún sér óstudd til Noregs til að heimsækja vinafólk sitt þar. Mín fyrstu kynni af Kristbjörgu hófust þegar við kennaramir við Hússtjórnarskóla Suðurlands vor- um beðnar um að keyra um Ámessýslu til þess að safna saman munum, gerðum af nemendum skólans. Munimir fóm á hand- menntasýningu sem haldin var á Selfossi. Ingibjörg dóttir Krist- bjargar hafði þá veturinn áður en sýningin var haldin verið nemandi við Hússtjórnarskólann og erindið heim að Högnastöðum var að fá lánaða handavinnu Ingibjargar til að láta á sýninguna. Ég hafði ekki komið áður að Högnastöðum. Upp á háum hól stóð bærinn umkringdur grænum brekk- um, sem virkuðu sem umgjörð um lítið en snoturt íbúðarhús. Staður- inn kom mér ekki ókunnuglega fyrir sjónir því við systkinin höfðum af sérstökum ástæðum valið málverk af þessum bæ eftir Höskuld listmál- ara í Hveragerði til að gefa einum bróður okkar í afmælisgjöf. Kvöldið sem við keyrðum heim að Högnastöðum var líkt því sem við keyrðum beint inn í málverk Höskuldar, svo fagrir voru litirnir og hlýlegir. Við húsdymar á Högnastöðum mættu okkur mjúkleg handtök hús- bændanna, Kristbjargar og Guðmundar og hjá þeim og dætrum þeirra sem heima voru nutum við mikillar gestrisni. Eftir að Kristbjörg kom að Laug- arvatni jukust kynni okkar, enda ein af dætrum hennar náinn sam- starfsmaður minn um áraraðir. Kristbjörg var traust og vinföst kona. Hún var bundin Hruna- mannahreppnum sterkum böndum og fólkinu þar. Ég kynntist því best í orlofunum í Hússtjómarskól- anum. Þá kom hún ævinlega í heimsókn, til að heilsa upp á vinkon- umar sínar úr Hrunamannahreppn- um og tók þær gjarnan með sér heim á heimili Halldóru dóttur sinnar, til að geta spjallað í næði við^þær. Ég held að Kristbjörg hafi lítið eða ekkert fundið til einmanaleika eins og títt er með fólk á hennar reki nú til dags. Þegar hún flutti í bæinn tók hún á leigu litla og snotra íbúð hjá vinkonu sinni á Nönnugötu 7 og mun hafa haft mikið og náið samb'and við hana. Dætur Kristbjargar og þeirra fjöl- skyldur skiptust á um að létta henni stundirnar, sóttu hana í bæinn og hjá þeim dvaldi hún sorgar- og gleðistundum. Ommubörnunum hennar þótti líka gaman að heim- sækja ömmu í bænum og fá að gista hjá henni, sem var Kristbjörgu mikið gleðiefni. # Fyrir stuttu var ég í fermingar- veislu hjá einni af dætmm Krist- bjargar. Kristbjörg var þar mætt hress og glöð að vanda og handtak hennar hlýtt og innilegt eins og fyrst þegar ég heimsótti hana að Högnastöðum. Ekki gat mig órað fyrir því þá, að fermingarveislan væri eiginlega hinsta kveðjustund Kristbjargar meðal fjölskyldu henn- ar og vina. Merkiskonan Kristbjörg Svein- bjömsdóttir hefur gengið sína lífsbraut á enda. Það hefur lítið farið fyrir henni á lífsbrautinni, en samt skilur hún eftir djúp spor virð- ingar og þakklætis i hugum okkar samferðafólksins. Ég sendi öllum ástvinum hennar innilegustu sam- úðarkveðjur og bið Guð að blessa allar minningar um hana. Jensina Halldórsdóttir María Guðmunds- dóttir - Minning Fædd 25. mars 1890 Dáin 9. maí 1987 María Guðmundsdóttir húsfreyja frá Lækjarbug lést í Borgarspítala 9. mai sl. Hún fæddist á Saurum í Hraun- hreppi 25. mars 1890. Foreldrar hennar voru Guðmundur Benedikts- son frá Hjörsey og seinni kona hans, Kristín Pétursdóttir. Guðmundur eignaðist 19 böm, 10 með fyrri konu sinni, Sigríði, og 9 með þeirri seinni, Kristínu. Sjö af þeim, al- systkinum Maríu, náðu háum aldri, og var María yngst. Þau vom, Sigríður, bjó í Álftartungukoti, Sig- mundur bóndi í Fíflholtum, Guðrún, húsfreyja á Mel, (hún varð rúmra hundrað ára), Þorkell, bóndi á Álftá, Magðalena, húsfreyja í Reykjavík, Þórður, húsasmiður í Borgamesi, María, húsfreyja í Lækjarbug. Allt þetta fólk er fætt á síðari hluta nítjándu aldar, það var hraustbyggt fólk til sálar og líkama, og bar Hótel Saga Sími 12013 Blóm og skreytingar við öll tœkifœri æviárin og ellina vel allt til hins síðasta. Guðmundur Benediktsson flutti frá Saurum skömmu eftir aldamót- in, að Álftá í sömu sveit, þar sem sonur hans, Þorkell, tók við búi og bjó þar síðan full 60 ár rausnarbúi, eins og þeir vita sem til þekkja. Þar átti og María heima framan af ævi, uns hún giftist árið 1915, Sveinbimi Sveinssyni, en mann sinn missti hún eftir skamma sambúð, og flutti þá aftur að Álftá, ásamt nýfæddri dóttur þeirra, Sigríði Sveinbjömsdóttur, síðar hjúkmnar- konu í Borgarspítala. 1921 flutti svo María að Lækjarbug með dóttur sinni, þar sem hún átti heimilisfesti síðan, til Guðjóns Þórarinssonar sem þar bjó ekkjumaður með þijú böm. Var hún sambýliskona og húsfreyja hans í 60 ár, þar til hann lést 1970, en heimilisfang sitt hafði hún alltaf í Lækjarbug til dauða- dags. Þar tók hún að sér að styðja og styrkja uppeldi jjögurra bama, þótt hún ætti ekki nema eitt sjálf. Kveðja þau nú með þakklátum huga þessa konu. Á yngri ámm var María með glæsilegri konum, fríð á vöxt og mjög vel verki farin. Þau einkenni bar hún nokkuð vel fram á elliár. Alla tíð var hún óhlutdeilin og orð- vör, en traust. Síðustu misserin var hún í umsjá dóttur sinnar hjúkmnarkonunnar, sem annaðist hana af sérstakri umhyggju og nærgætni meðan líkamskraftar hennar þurm smátt og smátt. Skyldulið og góðir vinir þakka fyrir það. Langri ævi fylgja oftast örlög lítilla steina sem lotið hafa kröfum straumkastsins í fjöruborðinu, öld- unnar sem vakir þar nætur og daga, allar stundir, þeir em núnir og fág- aðir af fangbrögðunum í fjörunni þegar á líður tímann. Orðlaus saga liggur að baki hvers og eins. Segir þar fátt af einum. Valtýr Guðjónsson t Alúðarþakkir fyrir auðsýnda samúð og vinarhug við andlát og útför eiginmanns mins, fósturföður, tengdaföður, afa og langafa, ÓLA S. HALLGRÍMSSONAR, Stórholti 24, Guðrún Ólafsdóttir Ólafur Lárusson, Hulda Lárusdóttir, Stefán Jónasson, barnabörn og barnabarnabörn. t Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð og hlýhug við andlát og útför eiginmanns míns, föður, fósturföður, tengdaföður, afa og langafa, ÓLAFS INGIBERSSONAR bifreiðastjóra, Miðtúni 1, Keflavik. Sérstakar þakkir sendum við læknum og hjúkrunarfólki Landspítalans. Marta Eiríksdóttir, Ingiber M. Ólafsson, Eiríkur G. Ólafsson, Stefán Ólafsson, Sverrir Ólafsson, Hulda Ólafsdóttir, Jóhann E. Ólafsson, Albert Ólafsson, Reynir J. Ólafsson, Hjördís Ólafsdóttir, Ólafur Már Ólafsson, Sveinn Ólafsson, barnabörn og barnabarnabörn. Auður Brynjólfsdóttir, Hrafnhildur Gunnarsdóttir, Herdís Hjörleifsdóttir, Hrönn Albertsdóttir, Sverrir Guðmundsson, Guðrún Þ. Einarsdóttir, Eygló Sörensen, Helga Ragnarsdóttir, Sigurður E. B. Karlsson, Sædís Guðmundsdóttir, Svanhvft Tryggvadóttir, t Þökkum auðsýnda samúö og hlýhug við andlát og útför HALLDÓRS JÓNSSONAR frá Jarðbrú, Birkilundi 11, Akureyri. Sérstakar þakkir til lækna og annars starfsliðs Fjórðungssjúkra- hússins á Akureyri. Lifið heil. Ingibjörg F. Helgadóttir, Rannveig Sigurðardóttir, Atli Rúnar Halldórsson, Guðrún Helgadóttir, Jón Baldvin Halldórsson, Svanhildur Arnadóttir, Helgi Már Halldórsson, Regína Rögnvaldsdóttir, Oskar Þór Halldórsson, Jóhann Ólafur Halldórsson, Inga Dóra Halldórsdóttir, Andri Már Helgason, Elva Benediktsdóttir, Þórir Jónsson og fjölskylda. t Innilegar þakkir fyrir auösýnda samúð og hlýhug við andlát og útför eiginkonu minnar, móður, tengdamóður og ömmu, SIGRÍÐAR JÚNÍU JÚNÍUSDÓTTUR, Skólavegi 36, Ve8tmannaeyjum. Jóhann Eysteinsson, Selma Jóhannsdóttir, Gunnar Jónsson, Elfn Bjarney Jóhannsdóttir, Svavar Sigmundsson, Ástráður Magnússon og barnabörn. t Alúöarþakkir fyrir auðsýnda samúð og vinarhug við andlát og útför eiginmanns míns, föður okkar, tengdaföður og afa, FINNBOGA EYJÓLFSSONAR bifreiðastjóra. Rannveig Pótursdóttir, Guðmundur Finnbogason, Erla Olgeirsdóttir, Ásdfs Finnbogadóttir, Þór Oddgeirsson, Bragi Finnbogason, Guðbjörg Sngólfsdóttir, Jakobína Finnbogadóttir, Þórir Kr. Þórðarson og barnabörn. t Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð og hlýhug við andlát og útför eiginmanns míns, föður okkar, tengdaföður og afa, ÓSKARS JÓSEFSSONAR, Faxabraut 10, Keflavík. Ólafía Guðmundsdóttir, Sólveig Oskarsdóttir, Júlfus Guðmundsson, Sigrfður Óskarsdóttir, Bragi Finnsson, T rausti Óskarsson, Jónas Óskarsson, Jóhanna Long, og barnabörn. Morgunblaðið tekur afmælis- og minningargreinar til birting- ar endurgjaldslaust. Tekið er við greinum á ritstjórn blaðsins á 2. hæð í Aðalstræti 6, Reykjavik og á skrifstofu blaðsins í Hafn- arstræti 85, Akureyri. Athygli skal á því vakin, að greinar verða að berast með góðum fyrirvara. Þannig verður grein, sem birtast á í miðvikudagsblaði að berast síðdegis á mánudegi og hliðstætt er með greinar aðra daga. í minningargreinum skal hinn látni ekki ávarpaður. Ekki eru tek- in til birtingar frumort ljóð um hinn látna. Leyfilegt er að birta ljóð eftir þekkt skáld, 1—3 erindi og skal þá höfundar getið. Sama gildir ef sálmur er birtur. Meginregla er sú, að minningargreinar birtist undir fullu nafni höfundar. Við birtingu afmælisgreina gildir sú regla, að aðeins eru birtar greinar um fólk sem er 70 ára eða eldra. Hins vegar eru birtar af- mælisfréttir með mynd í dagbók um fólk sem er 50 ára eða eldra. Mikil áhersla er á það lögð að handrit séu vel frá gengin, vélrituð og með góðu línubili.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.