Morgunblaðið - 23.05.1987, Blaðsíða 17
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 23. MAÍ 1987
17
Þórbergur Þórðarson trúði á
framhaldslíf og hvers kyns dulræn
fyrirbrigði eins og kunnugt er. Það
geri ég eiginlega ekki núorðið, þó
margt varla einleikið hafi fyrir mig
borið í seinni tíð. Sérfræðingar
mínir á öðrum heimi fullyrða að ég
standi í sambandi við astralplanið,
en ég slæ sífellt þann vamagla að
ég sé kannski bara brjálaður. Nema
hvort tveggja sé. Hvað um það.
Einn góðviðrisdaginn á þorra, er
ég gekk framhjá Bergshúsi á leið
heim til mín, kom sjálfur Þórbergur
allt í einu í gegn og sagði formála-
laust: „Farðu og skoðaðu Bergs-
hús“; Og í sömu svipan var eins
og mér væri feykt af heljarafli eins
og segir í alvöru draugasögum að
dyrum hússins. Ég athugaði neðri
hæðina og sá að ekki var það gott.
Hér réði bissness ríkjum. „Skoðaðu
líka Baðstofuna", skipaði Þórberg-
ur. Ég fékk leyfi til að fara upp á
loft. Og þarna var þá Baðstofan í
heilu lagi svo heyra mátti — greini-
lega — nið aldanna, skóhljóð
tímans, hjartslátt dáinna daga og
hvað þetta heitir allt saman sem
þeir heyra nú aldrei sem eru í biss-
ness. „Þarna sérðu“, sagði Þórberg-
ur, sigri hrósandi: „Skrifaðu nú
góða grein og hvattu til að Bergs-
hús verði varðveitt og ekki rifið“.
„Æ, góði láttu ekki alltaf svona,"
svaraði ég. „Ég veit að þú ert löngu
dauður." „Þar skjátlast þér góði,“
sagði Þórbergur stríðnislega. „Ytra
hylkið er að vísu orðið að moldu
en innra hylkið sem ég skrifaði
bækumar með lifir og deyr aldrei.
Og hróður minn vex með hveiju
ári og hverri öld.“ í þeim töluðum
orðum rofnaði sambandið við astral-
planið. En það var ekki laust við
að ég yrði hissa. Og ég er svo hjá-
trúarfullur á mínu lága plani, að
ég þori ekki fyrir mitt litla líf að
láta þessa áskomn meistarans sem
vind um eyru þjóta, mjög minnugur
þess hvernig fer fyrir slíkum peyj-
um í þjóðsögunum. Og ég efast alls
ekki um afdrif þeirra er lifa á svo
upphöfnu plani að láta sér ekki
segjast þrátt fyrir allt og forherðast
í að eyða Bergshúsi.
Niðurrifsöflin verður
að kveða niður
Jæja. Þá hef ég gert hreint fyrir
mínum dymm og fer senn að ljúka
máli mínu. Ég biðst afsökunar ef
hér em einhveijar missagnir. En
ýmislegt sem her hefur verið rætt
á ekki aðeins við um Bergshús held-
ur öll gömlu góðu húsin sem stendur
til að uppræta í miðbænum á næst-
unni. Einu sinni var meiningin að
afmá Torfuna, Gijótaþorpið, Hegn-
ingarhúsið og jafnvel húsin í
Tjarnargötu. Hefðu þeir glæpir ver-
ið framdir hefðu illvirkjarnir aldrei
fengið uppreisn æru fyrir dómstól
sögunnar. Og það er fullkomlega
víst að þeir sem ábyrgir verða fyrir
tortímingu húsa eins og Aðalstræti
7 og 16, Austurstræti 8 og 20,
Hafnarstræti 21, Lækjargötu 4, 6a,
6b og 8, Kirkjustræti 8—10, Hótel
Vík og gamla kvennaskólans við
Austurvöll þurfa engar áhyggjur
að hafa af orðstír sínum í framtíð-
inni. Hann mun aldrei deyja. Hvað
er að þessum mönnum? Skilja þeir
engin menningarleg rök? Þeir stæra
sig af því að þessar fyrirætlanir
hafi verið vel kynntar almenningi.
Það má rétt vera. Þetta og þetta
og þetta héma ætlum við að rífa
hvort sem ykkur líkar betur eða
verr kæru samborgarar, segja þess-
ir niðurrifsmenn á bak við teikni-
borðin. Ibúamir fá engu að ráða
og eru ekki um neitt spurðir. Ef
þetta er ekki valdahroki þá veit ég
ekki hvað er valdahroki. Hveijir
ráða þessari borg? Eru það ein-
hveijir laufdalagosar sem eiga
peninga eins og skít en engan innri
kúltúr? Eða eru það þeir sem em
hér fæddir og uppaldir og hafa
haft þessi gömlu hús fyrir augunum
frá því þeir muna eftir sér? Reyk-
víkingar og aðrir eiga ekki að láta
bjóða sér þetta. Torfunni var bjarg-
að með almannasamtökum og
baráttu og er nú fegursti blettur
miðbæjarins. Björgun þessara húsa
er nú mál málanna fyrir þjóðina,
því Reykjavík er höfuðborg allra
landsmanna. Það stríð verður blátt
áfram að vinnast ef búandi á að
vera áfram í gömlu og góðu borg-
inni við sundin.
Matareitrunin í
Búðardal:
Ekki hafa
allir komið
til vinnu
ATVINNULÍF er að komast r
eðlilegt horf í Búðardal eftir
matareitrunina sem þar kom
upp hjá fjölda fólks eftir pá-
skana. Að sögn Ólafs Sveinsson-
ar, kaupfélagsstjóra hjá
Kaupfélagi Hvammsfjarðar, eru
flestir þeir sem veiktust orðnir
rólfærir, en nokkrir af þeim sem
unnu við matvælavinnslu hjá
kaupfélaginu hafa enn ekki
fengið að snúa til fyrri starfa.
Olafur er einn af þeim sem veikt-
ist. Hann sagði að margir væru
enn slappir, þó tæpur mánuður
væri frá því þeir veiktust. Hann
sagði að matareitrunin hefði valdið
fyrirtækjum og einstaklingum á
staðnum miklu tjóni. Sem dæmi
nefndi hann að aukakostnaður
kaupfélagsins skipti hundruðum
þúsunda. Málið gengi svo langt að
ferðamenn virtust hræddir við að
kaupa sér pylsur í söluskála á
staðnum.
Höfundur er ríthöfundur.
Fallegar i gatóirn
Þessa helgi leggjum við sérstaka
áhersiu áfjölaerar garðplontur.
Mælum meöt.d. Prímul^um,
Hiartasteinbrjóti.Fjaöume^Ku
Gullhnappi, Fingurbjargarblomi,
Alpaf ítli og fleiri tegundum.
Eigumætíöfyrirliggjandi
garðáburð og mosaeyoi.
Komiö í Blómaval.
Skoöið plöntuúrvaliö
viö góðar aðstæður.
Fáið góð ráð hjá fagfolki.
Lífrænn áburöur
í blómabeð,
matjurtagarðaog
ágrasflatir.
Tilbuinn
garðáburöur
í 5,10 og 50 kg.
pokum.
Mosaeyöir
(1,5 kg á37,5 m2)-
Fagleg þekking, - fegleg Þiónusta
K
Blómum
inZtlora VÍÓa VeröW
Gróðurhúsinu
við Sigtún: Símar 36770-686340