Morgunblaðið - 23.05.1987, Síða 12

Morgunblaðið - 23.05.1987, Síða 12
vf' 12 MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 23. MAÍ 1987 __ • ^ Feöwðardrottnins: Islands SyTTTT KTJJÍNAR tíu spm kprmn til é * kvöld. Á Galakvnldi'i Rrcndwnv STULKURNAR tiu, sem keppa til úrslita um titlinn FegurÖardrottning íslands 1987, verÖa kynntar í veitingahúsinu Broadway föstudagskvöldiö 5.júní. ViÖþaÖ tcekifœri mun dómnefnd, skipuÖ blaÖaljósmyndurum, tilnefna bestu Ijósmyndafyrirsœtuna og stúlkurnar sjálfar velja úrsínum hópi vinsœlustu stúlkuna. BáÖarþessar drottningar verÖa krýndar um miÖnœtti þetta “1987^ ^5 kvöld. A Galakvöldi í Broadway, mánudaginn 8.júní, á annan dag hvítasunnu, veröa svo krýndar FegurÖardrottning íslands 1987 og FegurÖardrottning Reykjavíkur 1987, sem valdar verÖa af sérstaklega skipaÖri dómnefnd. Hérkynnir MorgunblaðiÖ fimm stúlknanna, sem taka þátt í úrslitakeppninni. Hinar fimm verÖa kynntar í MorgunblaÖinu á morgun, sunnudag. HVER ÞEIRRA VERÐUR FYRIR VALINU? UOSMYNDIR: ÁRNI SÆBERG, EMILÍA BJÖRG BJÖRNSDÓTTIR OG RAGNAR AXELSSON. Amm Margrét Jónsdóttír Anna Margrét Jónsdóttir er nítján ára Reykjavíkurmær, fædd 13. maí 1966. Hún starfar nú sem flugfreyja hjá Flugleiðum en hafði áður verið þrjú ár í bóknámsdeild Fjölbrautaskólans í Breiðholti. Anna Margrét hefur einnig starfað með Módel ’79 í fjögur ár og var kjörin ungfrú Hollywood árið 1984. Hún segir að sér líki sýningarstörfin vel, en geti þó ekki hugsað sér að leggja þau fyrir sig. Um framtíðina segist hún alls óákveðin nema hvað hún vill ferðast og hefur til þess ágætt tækifæri í flugfreyjustarfinu. Anna Margrét hefur lagt stund á líkamsrækt um nokkurt skeið og vill halda því áfram. Foreldrar hennar eru þau Jón Kristófersson og Marín Samúelsdóttir. Anna Margrét er 174 cm á hæð. Bergrós Kjartansdóttir Bergrós Kjartansdóttir er nítján ára borin og bamfædd á ísafirði 3. mars 1968. Bergrós var kjörin ungfrú ísafjörður og stundar nú nám við Menntaskólann á ísafirði á hagfræðibraut. Hún stundar skíði eins og flestir ísfirðingar og hefur unnið með skólanum í skíðaskálanum. Bergrós segir framtíðaráform frekar óljós, en hefur þó ákveðið að taka sér ársfrí frá námi, að loknu stúdentsprófi. Auk skíðanna hefur Bergrós æft dans og saumar flest sín föt sjálf. Foreldrar hennar eru þau Kjartan Sigmundsson og María Hallgrímsdóttir. Bergrós er 170cmáhæð.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.