Morgunblaðið - 23.05.1987, Page 13

Morgunblaðið - 23.05.1987, Page 13
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 23. MAÍ 1987 13 Bijnhildur Gunnarsdóttir Brynhildur Gunnarsdóttir er rétt orðin tvítug, fædd 4.júníl967oger fædd og uppalin í Hafnarfirði. Hún stundar nú nám á menntabraut í Kvennaskólanum og líkar vel. Eftir keppnina ráðgerir Brynhildur að fara vestur til Bandaríkjanna til unnusta síns og freista gæfunnar. Hún hefur áður starfað í Bandaríkjunum í sextán mánuði sem au-pair stúlka. Brynhildur segist ekki hafa áhuga á fyrirsætustörfum en hins vegar standa hestamennska og útivera henni nær, því hún hefur átt hest í nokkur ár og verið mikið í sveit. Foreldrar Brynhildar eru þau Gunnar Karlsson og Hildur Hilmarsdóttir. Brynhildur er 169 cm á hæð. Fjóla Grétarsdóttir Fjóla Grétarsdóttir er fædd 19. mars 1968 og er frá Reykjum í Ölfusi. Hún var kjörin ungfrú Suðurland og stundar nú nám í Menntaskólanum við Hamrahlíð á náttúrufræðibraut, en útskrifast næsta vor. Hún býr hjá afa sínum og ömmu í Reykjavík, en mun starfa á Hótel Örk í sumar. Fjóla segist einna helst stefna á að starfa sem íþróttakennari, enda eru íþróttir mikið áhugamál hjá henni. Hún stundar sund á sumrin, skíði á vetumar og hestamennskan á hug hennar allt árið. Allt starf sem snýr að því að vinna með fólk vekur áhuga hennar, en fyrirsætustarf segir hún allt eins geta komið til greina um stuttan tíma. Foreldrar hennar eru Grétar J. Unnsteinsson og Guðrún Guðmundsdóttir. Fjólaer 174 cm á hæð. Hildur Guðmundsdóttir Hildur Guðmundsdóttir er nítján ára Seltirningur, fædd 6. september 1968. Hún stundar nú nám við Fjölbrautaskólann í Breiðholti á viðskiptasviði og vinnur með skólanum hjá Tennis- og badmintonfélagi Reykjavíkur. Hildur tók þátt í Elite-keppninni 1985 og fór til Parísar þar sem hún reyndi fyrir sér í fyrirsætustörfum. Hún segist vera óákveðin með framtíðina, en langar til að klára skólann og fara síðan til útlanda í tungumálanám. Helstu áhugamál hennar eru ferðalög, enda hefur hún búið víðsvegar um heiminn, m.a. í Indlandi, Singapore og Bangladesh. Hún segist einnig hafa áhuga á að reyna frekar fýrir sér í fyrirsætustarfinu. Foreldrar Hildar em þau Guðmundur Jóhannsson og Sigrún Jóhannsdóttir. Hildur er 174 cm á hæð.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.