Morgunblaðið - 23.05.1987, Side 21

Morgunblaðið - 23.05.1987, Side 21
MÖRGUNBLAÐIÐ, LAt/GÁRDAGUR ‘23.’ MÁÍ1987 að leitast við að þrengja sér dýpra inn í kviku málverksins, kanna innri lífæðar þess, en ennþá virðist hann iðulega standa of stutt við — hætta, þegar leikurinn stendur sem hæst og byija á nýrri mynd. En hann á það einnig til að ofvinna þær, svo sem kemur fram í stærstu myndinni á sýningunni, en í henni er margt prýðilega vel gert, sem ekki hefur sést frá hendi Einars áður og þá einkum í neðri hluta myndarinnar. Sá framsláttur er alþekktur og skýrir margt, að þegar maður er þess fullviss, að mynd sé fullgerð, að henni sé endanlega lokið, sé loks tími kominn til að byija á henni. En Picasso svaraði þessum framslætti með því að segja, að góð mynd sé aldrei fullgerð, menn yrðu að geta spáð í hana og að hún ætti að lifa sínu eigin lífi — það væru bara vondir málarar, sem fullgerðu myndir ... Hver og einn verður þannig að þróa með sér tilfinningu fyrir því, hvenær hann telur tíma kominn til að hætta, en hann má einungis ekki loka fyrir rökræðuna um málverkið sem slíkt. A stundum gengur hluturinn upp, og málarinn leggur frá sér pentskúfinn á réttu augnabliki, svo sem í myndunum „Að tjaldabaki" (11), „Ævintýri" (15), „Ótti“ (16), „Fallinn engill" (37) og „Við Lagarfljót" (52). í þessum myndum eru miklar andstæður frá dökkum og í ljósan litaskala, sem sýnir breiddina í vinnubrögðum listamannsins og þá einnig, hvað myndefni snertir. Firringin og spennan er hvar- vetna nálæg í myndum Einars og hefur verið gegnumgangandi í list hans frá upphafi, og óneitanlega gerir hann sínar bestu myndir, þegar hér er allt á suðupunkti. En hér þurfa hlutimir að koma óhikað og umbúðalaust til skila svo sem í myndinni „Ótti“, en ekki stöðugt skjóta upp kollinum einhvers stað- ar í myndheildinni og á stundum án merkjanlegs tilefnis og raska heildaráhrifunum frekar en að bæta þau og styrkja. Annað dæmi um mynd, þegar allt gengur upp, er „Við Lagar- fljót" þar sem hvíti liturinn er firna sterkur og lifandi fyrir samspil hjálitanna — eiginlega er þetta gott skólabókardæmi í litafræði. Þessi sýning er mikilvægur áfangi í listferli Einars Hákonar- sonar og hér eru ýmis teikn á lofti um stærri afrek í náinni framtíð, enda er listamaðurinn á besta þroskaaldri myndlistarmanns. Bænadagur þjóðkirkjunnar á sunnudag: Beðið fyrir heimil- inu og fjölskyldunni HINN árlegi bænadagur þjóðkirkjunnar verður á sunnudaginn kem- ur, 24. maí, sem er fimmti sunnudagur eftir páska. Sá dagur hefur um árabil verið sérstaklega helgaður ákveðnu bænarefni, sem sam- einast er um við guðsþjónustu í kirkjum landsins. I ár hefur biskup valið bænarefnið Heimilið og fjölskyldan. í bréfi sínu til presta og safnaða varðandi bænadaginn, segir hann m.a.: „í umræðu sem átt hefur sér stað að undanförnu um ýmis vanda- mál þjóðfélags okkar, hefur komið í ljós, hve staða heimilisins er þýð- ingarmikil og vandinn sá að geta búið sem best að íslenskum heimil- um og velferð þeirra. Heimilið er homsteinn þjóðfé- lagsins, grunneining, sem til er orðin langt á undan allri annarri þjóðfélagsskipan. „Frá upphafi sköpunar gjörði Guð þau karl og konu. Fyrir því skal maður yfirgefa föður sinn og móður og bindast konu sinni og þau tvö skulu verða einn maður.“ (Mark. 10:6.) í boðskap kristinnar trúar er lagður grundvöllur að öryggi og vernd heimilislífsins. I hinu nána samfélagi fjölskyldunnar er þörfin svo brýn fyrir kærleika sem mildar, agar og fyrirgefur eins og nauðsyn ber til í hinum ólíku tilvikum lífsins. Kristin trú minnir bæði á hin andlegu og efnislegu gæði, sem hvert heimili hefur þörf fyrir. Þegar Lúther útskýrir bænarefnið „Gef oss í dag vort daglegt brauð", nefn- ir hann t.d. fæði, klæði, hús, jarðnæði, fjármuni, trúrækið heim- ilisfólk, trúa yfirmenn, góða land- stjórn, góða veðráttu, frið, heilbrigði, siðsemi, heiður, góða vini og nágranna. Bænarefnið er því víðtækt og yfirgripsmikið. í dag em heimilin opin fyrir hvers konar áhrifum og því veltur á miklu, að þau.áhrif séu jákvæð og uppbyggjandi, til að skapa heimilinu öryggi og vernd. Reynslan er oft önnur. Á öld fjöl- miðla hefur eitt líf áhrif á annað svo vítt sem veröldin nær. Maðurinn er að svo miklu leyti andsvar við þeim áhrifum, sem hann verður fyrir í umhverfi sínu. Það er hugs- unarhátturinn og viðhorf til lífsins sem þarf að breytast. Biðjum þess að svo verði. Biðjum með hveiju heimili og fyrir hverri ijölskyldu um bænheyrslu, sem lýs- ir sér í orðum Meistarans: „í dag hefur hjálpræði hlotnast húsi þessu ...“. (Lúk. 19.9.)“ 21 Söngf ör Tónlistar- skóla Rangæinga: Sungið fyrir 2.000 manns í Charlotte FRAMHALDSKÓR Tónlistarskóla Rangæinga, sem þessa dagana er í söngför í borginni Charlotte í Norður-Karólínufylki í Banda- ríkjunum, hefur haldið nokkrar tónleika og sungið á ýmsum stöð- um í borginni. Um 2 þúsund manns hafa sótt tónleikana, og hafa und- irtektir verið góðar, að sögn Sveins Elíassonar, fararstjóra. Kórinn er skipaður fjórtán ung- mennum á aldrinum 15 til 21 árs undir stjóm Sigríðar Sigurðardóttur. Hann hefur haldið fema tónleika í Charlotte, tekið þátt í tveimur guðs- þjónustum, sungið á öldrunarheimili og í þremur framhaldsskólum. Að- sókn hefur verið góð, svo og undir- tektir, áð sögn Sveins. Fjallað var um heimsókn kórsins í útvarpi síðast- liðinn þriðjudag, þar sem rætt var við tvo úr hópnum og kórinn söng. Ferð kórsins lýkur nú um helgina. „Litli skátadag- urinn“ í Öskjuhlíð BANDALAG íslenskra skáta gengst fyrir hátíðahöldum í Oskjuhlíð á morgun, sunnudaginn 24. maí. Dagurinn ber yfirskriftina „Litli skátadagurinn" og er ætlað- ur skátum á aldrinum 7 til 10 ára. Margt verður sér til gamans gert og má þar meðal annars nefna þrautabraut, metasvæði, íþrótta- keppni, varðeld, útieldun og söngur. Dagskráin hefst kl. 11.00 og er áætlað að henni ljúki kl. 17.00. Kl. 15.30 hefst varðeldur með söng og skemmtiatriðum. Til sölu árgerð 1978. Skipti, skuldabréf. Upplýsingar á bílasölunni Start, sími 687848. Blaóburóarfólk óskast! VESTURBÆR Aragata MERKI UM GÓÐAN ÚTBÚNAÐ Fást í nœstu sportvöruverslun. Einkaumboð I. Guðmundsson & Co hf Símar: 91-11999 - 24020 VARANLEGT ÞAKEFNI KYNNING VERKFRÆÐINGAR - ARKITEKTAR - TÆKNIFR. - VERKTAKAR Laugardaginn 23. maí kl. 16.00-18.00 mun sérfræðingur frá SIKA kynna SIKAPLAN PVC þakdúk í nýjum húsa- kynnum okkar í Vesturvör 9, Kópavogi. LÉTTAR VEITINGAR. Vinsamlega tilkynnið þátttöku í síma 641488. HAMRAR SF.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.