Morgunblaðið - 23.05.1987, Page 43
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 23. MAÍ 1987
43
okkar og horfum í bál og á báru
sem látlaust lemur ströndina.
Selatangar er gamall útróðrar-
staður á ströndinni milli ísólfsskála
og Krísuvíkur. í Ferðabók Eggerts
og Bjama er hann talinn vel fallinn
til sjósóknar þótt ströndin sé klett-
ótt og lending ill sakir brima. Mun
hér átt við að skammt hafí verið á
góð mið frá Selatöngum.
Talið er að útræði hafi lagst nið-
ur á Selatöngum um 1880 en
selveiði verið stunduð þaðan nokkru
lengur. Enn í dag má sjá þess minj-
ar að þar hafa verið verbúðir
margar. Hleðslur búða og fisk-
byrgja standa uppi býsna heillegar.
Þær hafa verið friðlýstar. í hraun-
inu í nágrenni minjanna eru
skemmtilegar hraunmyndanir sem
gleðja hug og auga þeirra er jarð-
fræði gefa gaum. Ekki má gleyma
því, að draugurinn Tanga-Tómas
hefur löngum sést á Selatöngum
en harla er ólíklegt að hans verði
þar vart í sumarbirtunni.
Við höldum sömu leið til baka
því við ætlum að hitta garpana, sem
fóru Skógfellaveginn. Við stöðvum
þó bifreiðina við Festarfjallið rétt
austan við Grindavík. Þeir, sem
vilja,_ ganga á fjallið. Gangan er
létt. í Festarfjallinu eru hæstu sjáv-
arhamrar á Reykjanesi, um 190
m. Af fjallinu er ágætt útsýni vest-
ur yfír Grindavík og austur um
strönd.
Njótum hollrar útiveru.
— Höskuldur Jónsson
Flest fjallagrös hafa fúmarprótó-
setrar-sýru sem gerir þau römm á
bragðið. Einnig er í þeim prótólie-
hesterin-sýra, sem er virk gegn
mörgum gram-jákvæðum bakterí-
um, þ. á m. berklabakteríum. Hinn
ljósgulgrái litur ýmissa fléttna
(maríugrös, hreindýramosi, tröllak-
ræða) stafar af usninsýru, sem
notuð hefur verið í útvortis lyf gegn
bakteríum. Nokkur fleiri efni virk
gegn bakteríum hafa fundist í flétt-
um.
Fléttur eru oft ríkar af litarefn-
um, eða efnum sem auðvelt er ac
breyta í litarefni. Fléttur voru áður
víða notaðar til að lita klæði. Úr
þeim má fá margvíslega liti eftir
meðferð, oft allt aðra liti en þær
sýna sjálfar. Ýmis efni, sem í þeim
eru, breytast þá í litarefni við
ákveðna meðhöndlun. í veggjaskóf-
inni er rauðgult parietín, sem verður
blóðrautt ef lútur verkar á það.
Veggjaskóf vex oft í stórum breið-
um og litar björg þar sem áburðar
gætir frá fugli. Litunarskófín var
áður notuð til litunar hér á landi,
og eins fjallagrösin. Margar aðrar
tegundir fléttna má einnig nota til
litunar, t.d. geitaskófír og hinar
hvítu tegundir af ættkvíslinni Pert-
usaría. Fléttulitir þola sumir illa ljós
en þóttu veija flíkur nokkuð fyrir
möl.
Fléttur eru þekktar fyrir að vera
mjög viðkvæmar fyrir loftmengun.
Þær taka auðveldlega upp bæði
brennisteinssýrling og flúor, og
safna þessum efnum sér til ólífis.
Þær eru víða notaðar sem mæli-
kvarði á mengun andrúmsloftsins,
þar sem afleiðingar hennar sjást
fyrr á fléttum og mosum en á öðr-
um plöntum.
AUÐBREKKU 11
FATMAÐUR
5KÓR
bösAmöld
LEIKFÖMQ
Jogginggallar
Sumarjakkar
Qallabuxur
Vinnuskyrtur
hærbuxur
Sokkar
frá
frá
á
á
frá
frá
kr.
kr.
kr.
kr.
kr.
kr.
490
1.190
850
390
20
45
Tréklossar
Sportskór
Kvenskór
frá kr. 150
frá kr. 290
frá kr. 490
Glös frá kr. 79
Vaskaföt frá kr 33
Kjúklingastandur á kr. 170
5etubílar
Mótorhjól
Trukkur
á kr. 1.192
á kr. 360
á kr. 215
VtSA
Opið virKa daga frá 12 til 18.00.
Laugardaga frá 10 til 16.00.
i
blómaskreytingatil
Tii harnin*.
Þessa helgi útskníasl^ ^^^Garöahse
y^u^na
Gróðurhúsinu
<>ir0®wiwa©it«i
Áskriftarsíminn er 83033
(Frá NVSV.)