Morgunblaðið - 23.05.1987, Qupperneq 71
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 23. MAÍ 1987
71
• Rudi Völler skoraði sigur-
markið gegn Stuttgart.
Tveir knattspyrnulandsleikir á þriðjudaginn:
Ólympíuliðið mætir Hollandi
og unglingaliðið Belgíu
Ólympíulandsleiknum sjónvarpað beint í ríkissjónvarpinu
ÍSLENSKA ÓlympíulandsliAið í
knattspyrnu mætir því hollenska
á þriðjudaginn í undankeppni
Ólympíuleikanna. Leikurinn fer
fram á Laugardalsvelli. Tvœr
breytingar hafa verið gerðar á
landsliðshópnum sem fórtil Ítalíu
á dögunum, báðar vegna
meiðsla: Loftur Ólafsson KR og
Ólafur Þórðarson ÍA eru báðir
Stuttgart missir
af Evrópusæti
ÁSGEIR Sigurvinsson og fólagar
í Stuttgart ná ekki sæti í Evr-
ópukeppninni næsta vetur eftir
tap, 0:1, gegn Werder Bremen á
útivelli í þýsku 1. deildinni í knatt-
spyrnu í gærkvöldi.
Bremen-liðið sótti nær látlaust
í fyrri hálfleiknum en skoraði þó
aðeins einu sinni. Það var marka-
kóngurinn Rudi Völler sem skoraði
á 17. mín. Hann skallaði í netið
eftir hornspyrnu. Leikmenn Stuttg-
art komu ákveðnir til leiks eftir hlé
og fengu nokkur ágætis færi í
seinni hálfleik. Þeim tókst þó ekki
að skora og þar fór vonin um Evr-
ópusæti næsta keppnistímabil.
Tveir aðrir leikir fóru fram í gær-
kvöldi, Dortmund vann Kaisers-
lautern á útivelli, 3:2, og var þetta
fimmti útileikur Dortmund í röð án
taps. Liðið komst í 3:0 en heima-
menn minnkuðu muninn. Þá gerðu
Leverkusen og Blau Weiss Berlin
jafntefli í Leverkusen, 2:2.
meiddir en f þeirra stað koma í
hópinn Heimir Guðmundsson frá
ÍA og Valur Valsson úr Vai.
íslenski hópurinn er þannig
skipaður:
Markverðir eru Friðrik Friðriks-
son, Fram og Guðmundur Hreið-
arsson, Val. Aðrir leikmenn:
Guðmundur Torfason, Beveren,
Guðmundur Steinsson, Kickers
Offenbach, Halldór Áskelsson,
Þór, Ingvar Guðmundsson, Val,
Guðni Bergsson,. Val, Ágúst Már
Jónsson, KR, Vaíur Valsson, Val,
Viðar Þorkelsson, Fram, Þorsteinn
Þorsteinsson, Fram, Ormarr Ör-
lygsson, Fram, Kristján Jónsson
Fram, Pétur Árnþórsson, Fram,
Njáll Eiðsson, Val og Heimir Guð-
mundsson, ÍA.
Sigfried Held, landsliösþjálfari,
sagði á blaðamannafundi í gær er
hópurinn var tilkynntur að Ijóst
væri að leikurinn gegn Hollending-
um yrði erfiður, en hann vildi engu
spá. „Ég vona bara að þetta verði
góður leikur," sagði hann. Hann
sagðist hafa séð hollenska liðið
leika gegn Austur-Þjóðverjum á
síðastliðnu hausti í þessarri keppni
en miklar breytingar hefðu verið
gerðar á hollenska liðinu síðan þá
Áfall fyrir meistara Tusem Essen:
Tveir landsliðs-
menn fóru frá
félaginu í gær
TUSEM Essen, vestur-þýsku
meistararnir í handknattleik, urðu
fyrir miklu áfalli f gær, er þrír leik-
menn liðsins, þar af tveir af
lykilmönnum þess, ákváðu að
yfirgefa það. „Þetta er mikið
áfall. Nú er það langt liðið að það
verður mjög erfitt að ná f leik-
menn fyrir næsta keppnistfma-
bil,“ sagði Jóhann Ingi
Gunnarsson, þjálfari Essen, f
samtali við Morgunblaðið f gær-
kvöldi. Alfreð Gfslason leikur með
liðinu sem kunnugt er.
Það voru þeir Thomas Springel
og Dirk Rauin, sem báðir voru í
byrjunarliði Essen í vetur, og Arne
Epper, varamarkvörður, sem fóru.
Springel var, að sögn Jóhanns
Inga, besta örvhenta skyttan í
þýsku 1. deildinni í vetur, og Rauin
var línumaður liðsins. Báðir eru
þeir vestur-þýskir landsliðsmenn.
Þess má til gamans geta að báðir
ákváðu þeir að ganga til liðs við
2. deildarliðið Wanne-Eickel, en
Bjarni Guðmundsson leikur einmitt
með því liði.
Ástæða þess að framantaldir
leikmenn ákváðu að yfirgefa Essen
er, að sögn Jóhanns Inga, að þrátt
fyrir að Essen sé eitt best stæða
félagið í Þýskalandi og nýorðinn
meistari, hafi þeim boðist betri
launakjör annars staðar svo og var
þeim tryggð góð atvinna i langan
tíma, en handknattleiksmenn í
Þýskalandi eru áhugamenn að
nafninu til; þeir vinna meö hand-
boltanum.
Opið öldunga-
mót í golfi
ÞORGEIR & Ellert, opna öldunga-
mótið í golfi fyrir 50 ára og eldri,
verður haldið sunnudaginn 24. maí
nk. af Golfklúbbnum Leyni á Akra-
nesi. Leikinn veröur 18 holu
höggleikur af rauðum teigum. Byrj-
að verður að ræsa út kl. 11.30.
Morgunblaðsliðið -1. umferð
Morgunblaðlð mun f sumar velja lið hverrar umferðar 1. deildarkeppninnar í knattspyrnu eins og
tfðkast hefur undanfarin keppnistfmabil. í fyrsta Morgunblaðsliði þessa árs eru þrír Þórsarar frá
Akureyri sem unnu íslandsmeistara Fram f Laugardalnum, tveir úr liðum ÍA, KR og ÍBK og þá er í
liðinu einn Framari og einn Völsungur. 14 mörk voru skoruð f 1. umferðinni, þar af sex á Húsavík
(Völsungur-ÍBK 2:4) og fjögur f Laugardal (Fram-Þór 1:3). Eitt mark var skorað bæði í Hafnarfirði og
á Akureyri (FH-ÍA 0:1 og KA-KR 0:1) og tvö mörk í Garðinum (Vfðir-Valur 1:1).Birkir Kristinsson
Birkir Kristinsson
(ÍA)
Ágúst Már Jónsson
(KR)
Júlfus Tryggvason
(Þór)
Einar Arason
(Þór)
Heimir Guðmundsson
(ÍA)
Janus Guðlaugsson
(Fram)
Andri Marteinsson
(KR)
Peter Farrell
(ÍBK)
Kristján Olgeirsson
(Völsungi)
Gunnar Oddsson
(ÍBK)
Kristján Kristjánsson
(Þór)
og því vissi hann ekki mikið um
það.
Hollendingar töpuðu í haust 0:1
fyrir Austur-Þjóðverjum og gerðu
síðan jafntefli, 1:1, f Portúgal. ís-
lendingar hafa aðeins lokið einum
leik í keppninni, töpuðu 0:2 á Ítalíu
fyrir skemmstu.
Margir leikmanna hollenska
liðsins nú eru þekktir atvinnumenn
í heimalandi sínu, þar á meðal þrír
frá Ajax, sem varð Evrópumeistari
bikarhafa á dögunum; markvörður-
inn Stanley Menzo, Rob Witschge
og Aron Winter. Þá má nefna að
í hópnum er leikmaður að nafni
Gerald Vanenburg - en íslendingar
muna ef til vill eftir honum vegna
þess að hann gaf út lag á plötu
fyrir fáeinum árum og í íþróttaþátt-
um ríkissjónvarpssins sýndi hahn
oft listir sínar - ótrúlega tækni - á
meðan lagið var leikið!
Leikurinn hefst kl. 18.00 á
þriðjudaginn og veröur hann sýnd-
ur í beinni útsendingu í ríkissjón-
varpinu. Forsala aðgöngumiða
verður á Laugardalsvelli á mánu-
dag og þriðjudag frá kl. 12.00 til
18.00 báða dagana. Miðaverð
verður: 500 krónur í stúku, 350 í
stæði og 150 krónur kostar fyrir
börn.
Klukkan 16.00 hefst leikur (s-
lands og Belgíu í Evrópukeppni
unglingalandsliða (U-18 ára) á
Stjörnuvelli í Garðabæ. ísland hef-
ur lokið einum leik í þeirri keppni,
gerði 1:1 -jafntefli við Danmörku á
útivelli í vor og því er búist við
miklu af liðinu. Þess má geta að
Belgar og Danir geröu jafntefli 1:1
í jafntefli. íslenski landsliöshópur-
inn er þannig: markverðir eru Karl
Jónsson Þrótti og Kjartan Guð-
mundsson Þór Akureyri. Aðrir
leikmenn: Rúnar Kristinsson KR^
Þormóður Egilsson KR, Bjarni Ben-
ediktsson Stjörnunni, Valdimar
Kristófersson Stjörnunni, Helgi
Björgvinsson Fram, Hólmsteinn
Jónsson Fram, Árni Þór Árnason
Þór Akureyri, Gunnlaugur Einars-
son Val, Steinar Adolfsson Val,
Egill örn Einarsson Þrótti R., Leifur
Hafsteinsson Tý, Ólafur Viggósson
Þrótti Nesk., Haraldur Ingólfsson
ÍA og Þórarinn Ólafsson Grindavík.
Þjálfari er Lárus Loftsson.
Körfubolti:
Belgar unnu
ÍSLENDINGAR léku í gær gegn
Belgum á fjögurra landa mótl f
körfuknattlelk f Englandi og töp-
uðu með tfu stigum, 63:73.
„Belgarnir eru mjög sterkir. Tveir
þeirra eru stærri en ívar Webster
og þeir tóku á okkur af miklum
krafti í byrjun. Við vorum sextán
stigum í hálfleik, 25:41, en unnum
svo seinni hálfleikinn," sagði Einar
Bollason landsliðsþjálfari í samtali
við Morgunblaðið í gærkvöldi.
Þorgrimur Þráinsson
fyrirliði meistar-
flokksVals.
SœvarJónsson
vamarmaður.
lanRoss
þjátfari meistara-
flokksVals.
Guðmundur Hreið-
arsson
markvörður.
SKOLIVALS
Fyrir stelpur og stráka á aldrinum 5 til 12
ára
Farið verðuryfiröll undirstöðuatriði í
knattspyrnu, leiktækni og spilaæfingum.
Leiðbeinandi er Sigurbergur Sigsteinsson
og Njáll Eiðsson.
Boðið verður upp á fjölbreytta dagskrá,
videosýningar og farið í knattþrautir.
Leikmenn og þjálfari meistaraflokks Vals
koma í heimsókn, ræða við nemendur og
veita viðurkenningar fyrir góðan árangur
í KNATTÞRAUTUM VALS.
Kenntverður ítveim hópum, yngri nem-
endum frá kl. 9-12 og eldri nemendum frá
kl. 13-16.
ÞÁTTTÖKKUGJALD ER KR. 1.200
Hvert námskeið stendur í tvær vikur.
1. námskeið 1. júní -12. júní
2. námskeið 15. júní - 26. júní
3. námskeið 29. júní -10. júlí
4. námskeið 13. júlí - 24. júlí
Þátttaka tilkynnist í síma 611757 milli
kl. 10 og 12 og í síma 11134 kl. 14-19
Nk
Guðni Bergsson
vamarmaður.
t' \WKKK >
Njáll Eiðsson Sigurfoergur Sig-
miðvallarieikmaður. steinsson
iþróttakennari. Knattspymudeild Vais.