Morgunblaðið - 13.10.1987, Side 35

Morgunblaðið - 13.10.1987, Side 35
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 13. OKTÓBER 1987 35 ILEIT AÐ HÆFUSTU ARKITEKTUM ÍSLENDINGA 1990 mun Tromsobær og Samband norskrar híbýlakynningar gangast fyrir BÚSETA f NORÐRI, alþjóð- legri híbýlasýningu meö húsakost við hæfí veðurfars sem höfuðvið- fangsefni. Til þátttöku í þessari framkvæmd er leitað eftir hæfasta samstarfshópi íslenskra arkitekta/ skipulagsfræðinga. Sýningin er sjálfstæð fram- Verkefnið felur sér skipulagn- ingu, með hliðsjón af öðrum verk- þáttum, með þátttöku alhliða samstarfshópa frá öllum Norður- löndunum. Áætlanageröinni er skipt niður í eftirfarandi áfanga: Nóvember 1987-janúar 1988: Skipulagsgerð fyrir allt svæöið, samhæft verkefni, með matsgerð lið fyrir lið. Febrúar-april 1988: Samkeppni um híbýli og barna á hluta svæðisins. heimili/„sel' Skipulagsgerð fyrir afganginn af svæðinu; verð/framkvæmdasam- keppni; afmörkuö verkefni. Starfshópurinn, sem fyrir valinu verður, mun verða aðnjótandi nokk- urrar þóknunar fyrir þátttöku í fyrsta áfanga auk greiðslu ferða- og dvalarkostnaður vegna úttektar- funda í Tromso. Að minnsta kosti einn aðili starfshópsins verður að hafa eitthvert Norðurlandamálanna á valdi sínu, auk íslensku. , Starfshópar sem kynnu að hafa áhuga þurfa að tilkynna þátttöku sína fyrir 19. október 1987. Nánari upplýsingar um fram- kvæmdina standa til boða um síma : Tromsobæjar 90 47 83 85 000, inn- anhússsimi 708, eða bréflega: ; BO I NORD, Tromso 1990, Post- ! boks 160, 9001 Tromsa, Norge. — fS k • - . — * m MfíE/ Reuter Tíbetar mótmæla yfirgangi Kínveija Tíbetar víða um veröld hafa að undanförnu mótmælt yfir- gangi Kínverja í heimal- andinu, bæði . innrás kommúnista fyrir 37 árum, sem og harkalegum aðgerð- um þeirra í Lhasa á dögunum. Þá brutust út óeirðir skömmu fyrir afmæli innrásarinnar. Um helgina létu tíbeskir út- lagar í París til sín taka og fóru í mótmælagöngu að kínverska sendiráðinu. Einn þeirra hélt þessu veggspjaldi á -lofti þar sem sjá má kínverskan hermann skjóta á Tíbetbúa. Fyrirsögnin „Byltingarmaður?“ er: arorkuflokkinn og Flokk móður og bams líka í framboði. Og kjósendum í Genf gefst kostur á að kjósa Hass- flokkinn. Svissneskar konur hafa haft kosningarétt í 16 ár og nú eru 24 konur á þingi. Þjóðþingið skiptist í efri- og neðrideild. Allar kantónurnar eiga tvo þingmenn í efrideild en íbúa- fjöldi ræður hlutfalli þeirra í neðri- deild. Það er löggjafarþing en er háð þjóðaratkvæðagreiðsluákvæði stjórnarskrárinnar. Sjálfræði kant- ónanna á mörgum sviðum dregur einnig úr mikilvægi þingsins. Áhugi almennings á því sem fer fram í Bem er því mjög takmarkaður og fáir þekkja óbreytta þingmenn ann- arra kantóna. Enda er það ekki oft sem erfiðleikar sem snerta þjóðina alla steðja að. Umhverfismál eru undantekning. Þjóðarbúskapurinn er rekinn með gróða, efnahagslífi landsins vegnar vel, bót hefur verið ráðin á flóttamannavandanum og enginn þorir lengur að tala upphátt um byggingu kjamorkuvera. Eftir standa deilur um vegakerfið, lög- skipaðan eftirlaunaaldur og fjárút- lát til varnarmála. Um helmingur kjósenda hefur ekki nægilegan áhuga á þessum málefnum til að hafa fyrir því að fara á kjörstað. Þeir henda umslaginu með kjörseðl- inum beint í ruslið ásamt öllum kosningaáróðrinum sem er borinn í hús þessa dagana. Vestur-Þýskaland: Afganistan: Kaupa vopn af skæruliðum sem hætta að berjast Islamabad, Reuter. STJÓRNVÖLD í Afganistan buð- ust á laugardag til að kaupa öll vopn, þar með taldar banda- riskar Stinger-flaugar, af þeim skæruliðum sem hættu bardög- um. Útvarpið í Kabúl sagði að hernum, leyniþjónustunni og inn- anríkisráðuneytinu hefðu verið veitt leyfi til að ganga frá kaup- um á vopnum af einstaklingum og hópum sem legðu niður vopn. Kabúl-útvarpið sagði að tilskipun þessi væri liður í friðarumleitunum stjómarinnar sem ákvörðun hefði verið tekin um innan stjórnarinnar fyrr á árinu. Miðuðu þessar aðgerð- ir að því að binda enda á níu ára styijöld við skæruliða, sem styrktir em af Vesturlöndum. Sagði í frétt útvarpsins að margir þeirra skæm- liða sem þegar hefðu lagt niður vopn hefðu keypt þau fyrir eigið fé og væm í mikilli þörf fyrir peninga er þeir hættu að beijast, því hefði verið gripið til þess að bjóða þeim að kaupa af þeim vopnin. Ekki er vitað hversu margir skæmliðar hafa gengið að friðartil- boði Kabúl-stjómarinnar til þessa. Skæmliðar sem hafa aðsetur í Pak- istan og íran hafa hunsað tilboðið. Leiðtogi Afgana, Najibullah, hefur sagt að yflr 70.000 flóttamenn hefðu snúið heim og að 30.000 skæmliðar hafí þegar lagt niður vopn. Hraðakstur rakinn til kyn- lífsvanda Bonn, Reuter. JURGEN Warnke, samgöngu- málaráðherra Vestur-Þýska- lands, sagði á fimmtudag að Vestur-Þjóðveijar, sem keyrðu of hratt, ættu oft og tíðum við kynlífsvanda að stríða. Skoraði hann á ökumenn að aka á hófleg- um hraða þótt ekki væru hraða- takmarkanir á hraðbrautum landsins. „Ófullnægja í kynlífí leiðir oft- lega til hraðaksturs," hafði þing- fréttaþjónustan í Bonn eftir Warnke. Lét ráðherrann þessi orð falla á fundi með nefnd, sem hefur tillögur um að setja hraðatakmörk á hraðbrautum til umfjöllunar. Jafnaðarmenn, sem em í stjóm- arandstöðu, kváðust telja að hraðakstur mætti oftar en ekki rekja til getuleysis. Warnke kvaðst sammála, en bætti við að ráðuneyti sitt hefði ekki bolmagn til að kosta læknismeðferð umræddra ökuníð- inga.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.