Morgunblaðið - 13.10.1987, Síða 45
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 13. OKTÓBER 1987
45
i
Ferðafélag íslands
merkir nýja gönguleið
eftir Tómas
Einarsson
'ActÍ'.N
Allt frá stofnun Ferðafélags ís-
lands hefur það verið eitt af
aðalmarkmiðum þess að kynna
landið, náttúru þess og sögu þjóð-
arinnar. Með skipulögðum ferðum,
útgáfu á landslýsingum og ýmiss
konar fræðslu hefur verið unnið
að þessum markmiðum. Auk þess
hafa félagið og deildir þess staðið
fyrir byggingu sæluhúsa á mörg-
um fegurstu og vinsælustu ferða-
mannastöðunum í óbyggðum. Þar
geta ferðamenn og aðrir átt ör-
uggt skjól og dvalið í lengri eða
skemmri tíma. Nú eru alls 27
sæluhús í eigu þessara aðila viðs-
vegar um landið og geta samtímis
gist í þeim um 850 manns. Er
ekki að efa að þar hafa margir
vegfarendur, hrakir og hráðir,
fengið öruggt skjól eftir volk og
harðræði á löngu ferðalagi.
Þegar fyrstu sæluhúsin voru
reist ferðuðust menn svo til ein-
vörðungu um óbyggðimar á
hestum. Síðan komu bílar til sög-
unnar. Allt þetta skapaði aukna
umferð um hálendið. Ferðafélagið
tók fullan þátt í þessum breyttu
ferðavenjum og greiddi fyrir þeim
á allan hátt. Þá komu sæluhúsin,
sem reist höfðu verið á hálendinu,
að góðum notum og svo er enn.
En með aukinni og betri tækni,
betri vegum og þar af leiðandi
skemmri tíma sem eytt er í ferðir
milli staða hefur notkun sæluhús-
anna hlutfallslega minnkað frá því
sem var fyrir örfáum árum. En á
sama tíma hefur fjöldi fótgang-
andi ferðamanna í óbyggðum
aukist að mun. Þetta fólk ber á
bakinu tjöld og annan útbúnað til
nokkurra daga dvalar fjarri
mannabyggðum. Með þeim hætti
hefur ferðamennskan færst inn á
nýtt svið. Fólkið sækist eftir að
komast á þá staði, sem ekki eru
færir ökutækjum. Þá þarf oft að
Hópnum var skipt í þijá flokka. Sá fyrsti merkti leiðina frá akvegin-
um við Innriskúta áleiðis að Þverbrekknamúla. Hinir tveir héldu að
Fúlukvísl. Annar þeirra merkti leiðina frá brúnni að sæluhúsi, en
hinn fór frá brúnni til móts við þá sem komu frá vegi. Mcð þessum
hætti gekk verkið bæði fijótt og vel og var lokið stuttu eftir hádegi.
fara yfír mikil og straumhörð
vantsföll, klífa brött og þokusæl
fjallaskörð eða fara heilar dagleið-
ir um flatt og kennileitasnautt
land. Þessar aðstæður geta oft
valdið erfíðleikum, ekki síst óvönu
fólki, sem hefur litla eða enga
reynslu í ferðalögum við slíkar
aðstæður.
Hin síðari ár hefur það verið
eitt af stærri viðfangsefnum fé-
lagsins að búa í haginn fyrir þessa
ferðamenn, einkum með smíði
lítilla brúa, smíði göngubrúa yfír
stærri vatnsföll og merkingu
gönguleiða.
Ifyst var tekin fyrir leiðin milli
Landmannalauga og Þórsmerkur.
í lok síðasta áratugar hafði félag-
ið byggt á þeirri leið þijú lítil
sæluhús, öll fyrir fé úr eigin sjóð-
ujn, þannig staðsett að þægilegt
væri fyrir sæmilega göngufært
fólk að fara á milli þeirra á nokkr-
um klukkustundum. Leiðin var
síðan öll merkt með tréstikum
þannig að á auðri jörð að sumar-
lagi ætti hver sem er að geta
gengið hana án þess að eiga á
Hér er Valdimar að ganga frá síðustu stikunni. Þar með var verk-
inu lokið.
Á þessu svæði er fádæma sqjóþungt. Brú var byggð yfir Fúlukvisl
árið 1982. Veturinn eftir sligaðist hún af snjóþyngslum. Haustið
1985 var smíðuð önnur brú yfir ána á sama stað. Er hún miklu
vandaðri og sterkari en sú fyrri og stendur á mun hærri stöplum.
hættu að villast. Ennfremur
byggði félagið tvær göngubrýr,
einnig fyrir eigin reikning, aðra
yfír Syðri-Emstruá og hina yfír
Kaldaklofskvísl. Með þessum
hætti hefur félagið stuðlað að úti-
veru fjölda manns og kynnt þeim
þetta stórkostlega göngu- og úti-
vistarsvæði. Án þessa framtaks
væri þessi hluti landsins flestum
algjörlega óþekktur.
Eftir að Ferðafélag íslands
hafði lokið við þær framkvæmdir
sem getið er hér að framan sneri
það sér að næsta verkefni, en það
var leiðin á milli Hvitámess og
Hveravalla á Kili.
Undan Langjökli að austan fell-
ur áin Fúlakvísl. Hún rennur í
Hvítárvatn. Mikið vatn er í ánni
að sumarlagi. Því hefur svæðið
milli hennar og Langjökuls verið
mjög fáförult, en þar er að fínna
marga áhugaverða og fagra staði,
s.s. Hrútfell, Leggjabijót, Karls-
drátt og Fróðárdal, auk margra
annarra. Árið 1980 var smíðað 20
manna hús sem flutt var vestur
yfír Fúlukvísl og sett niður
skammt frá ánni undir Þver-
brekknamúla, en hann liggur í
suðaustur frá Hrútfelli. Tveimur
árum síðar var byggð göngubrú á
Fúlukvísl skammt frá húsinu og
þar með opnaðist greið leið fyrir
þá sem vildu skoða þetta svæði
og einnig þá sem ætluðu í hús
Jöklarannsóknafélagsins við Fjall-
kirlcju í Langjökli.
Þótt búið væri að byggja hús
og smíða brú var samt eitt eftir:
að merkja gönguleið að brúnni og
þaðan að húsinu.
Ferðafélagið á marga ósérhlífna
velunnara sem telja ekki eftir sé
að eyða tíma og jafnvel fé til að
vinna því sem mest gagn. Einn
þeirra er Valdimar G. Valdimar-
son, en hann þekkja flestir er
stunda ferðalög að einhveiju ráði
um óbyggðir. Valdimar tók að sér
að merkja leiðina. Hafði hann sam-
band við nokkra kunningja sína
sem voru fúsir að slást í för með
honum og vinna þetta verk. Stik-
umar voru síðan málaðar og
glitmerktar á nokkrum kvöld-
stundum. Er því var lokið var
ekkert að vanbúnaði.
Föstudagskvöldið 25. septem-
ber sl. var svo lagt af stað áleiðis
að Hvítámesi við Kjalveg, en þar
átti að gista. Farið var á 6 bílum,
en þátttakendur vom alls 17.
Daginn eftir var verkið unnið
og gist næstu nótt í húsinu við
Þverbrekknamúla. Á sunnudaginn
var gengið frá húsinu undir vetur-
inn og komið heim um kvöldið.
Meðfylgjandi myndir vom tekn-
ar í þessari ferð og segja þær
meira en nokkur orð.
Að veqju var gott að gista i gamla sæluhúsinu við Hvitárvatn. Menn
voru árla á fótum og eftir veqjuleg morgunstörf var „lagt í'ann“.
Snemma á þessari öld var Kjalvegur varðaður. Þessi myndarlega
varða, ein af mörgum, hefur staðið óhögguð í nærri 7 áratugi og
ekki sjáanlegt að á því verði breyting. Hún er skammt frá brúnni.
HSfundur er kenuari.
MMJULMMÆ* MM JtJkAUM.MMXJtl « Mm..|í||M||||i|n|||H.,...-,-..
Sæluhúsið undir Þverbrekknamúla stendur um það bil 1 km fyrir
vestan brúna. Er það til mikils öryggis einkum fyrir þá sem ferðast
um Kjöl að vetrarlagi.