Morgunblaðið - 15.12.1988, Side 40
40
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 15. DESEMBER 1988
Irland:
Neita að framselja
Bretum föður Ryan
Milliríkjadeila í uppsiglingu milli landanna
Dyflinni. Reuter.
ÍRSK stjórnvöld höfnuðu á þríðjudag beiðni breskra stjórnvalda um
framsal irska prestsins Patricks Ryans sem Bretar gruna að sé félagi
í írska lýðveldishemum (IRA). í 16 síðna yfirlýsingu írskra stjóm-
valda um málið segir meðal annars að hverfandi likur séu á þvi að
mál föður Ryans fái réttláta meðferð fyrir dómstólum i Bretlandi
í kjölfar óréttmætrar umfjöllunar breskra fjölmiðla og yfirlýsinga
breskra þingmanna.
Margaret Thatcher, forsætisráð-
herra Bretlands, lét svo um mælt
Nýja Sjáland:
Lange rek-
ur fjár-
málaráð-
herrann
Wellington. Reuter.
DAVID Lange, forsætisráð-
herra Nýja Sjálands, vék
Roger Douglas Qármálaráð-
herra úr embætti i gær
vegna ágreinings um það hve
hratt skuli vinna að umbótum
i efnahagslífinu.
„Agreiningurinn var kominn
á það stig, að hann var að slíta
sundur stjómina og sjálfa þjóð-
ina,“ sagði Douglas á frétta-
mannafundi í gær og bætti því
við, að hann væri ekki fráhverf-
ur því að beijast við Lange um
formennskuna í Verkamanna-
flokknum.
Lange rak Douglas aðeins
nokkrum mínútum eftir að sá
síðamefndi hafði lýst því yfír
opinberlega, að hann yrði ekki
fjármálaráðherra áfram yrði
Lange endurkjörinn formaður
flokksins á næsta ári. Aður
fyrr voru þeir Lange og Dougl-
as miklir mátar en fyrir ári fór
heldur að kólna með þeim
vegna ágreinings um ákaflega
stranga stefnu Douglas í pen-
ingamálum. Nú eru þeir sagðir
óvinir.
Við fjármálaráðherraemb-
ættinu tekur David Caygill heil-
brigðisráðherra og mun fyrst
um sinn fara með bæði ráðu-
neytin. Hann hefur verið mikill
stuðningsmaður Rogers Dougl-
as og segist ætla að halda
áfram starfí hans.
á breska þinginu á þriðjudag að
ákvörðun írskra stjómvalda væri
„mikil móðgun við íbúa þessa
lands". Af viðbrögðum Thatcher
má ráða að samskipti landanna
hafa beðið mikinn hnekki.
John Murray, helsti ráðunautur
írsku ríkisstjómarinnar í lögfræði-
legum efnum, sagði að samkvæmt
lögum frá 1976 megi höfða mál á
hendur sakbomingi bæði á írlandi
og í Bretlandi fyrir afbrot sem fram-
in eru í öðru hvoru landinu.
Faðir Ryan var handtekinn {
Belgíu í síðasta mánuði og fór í 22
daga hungurverkfall í belgísku
fangelsi. Belgar neituðu að fram-
selja hann breskum yfírvöldum og
sendu hann þess í stað með herflug-
vél til írlands.
Thatcher hefur sakað Charles
Haughey, forsætisráðherra írlands,
um slælega framgöngu í baráttunni
gegfn alþjóðlegri hryðjuverkastarf-
semi á breska þinginu. írskir stjóm-
málamenn hafa vísað ummælum
hennar á bug og sagt að þau jafn-
gildi afskiptum af málefnum full-
valda ríkis.
Bretar vilja sækja föður Ryan til
saka fyrir morð- og sprengjutil-
ræði. Einnig saka þeir hann um að
afla íjár fyrir IRA og að útvega
samtökunum vopn. Faðir Ryan, sem
leitað hefur skjóls í klaustri í írl-
andi, hefur sagst fremur vilja deyja
en fara fyrir rétt í Bretlandi þar
sem eitt dagblaðanna hefur kallað
hann „djöfulinn með prestflibbann".
Reuter
Hermaður kannar skilríki vegfaranda í miðborg Kólombó i gær. 225
pólitískra fanga, sem flýðu úr fangelsi í borginni á þriðjudag, er
nú ákaft leitað.
225 skæruliðar flýja úr fangelsi á Sri Lanka:
Komust undan í árás
vopnaðra öfgamanna
Fangarnir höfðu komist yfir skotvopn og sprengiefhi
Kólombó. Reuter.
SVEITIR öryggislögreglu felldu um 30 manns á aðfaranótt þriðju-
dags er 225 skæruliðum tókst að flýja úr einu traustasta fangelsi
Kólombó, höfúðborgar Sri Lanka. í gær höfðu hermenn og lögregla
haft hendur í hári um 30 manna og leit stóð enn yfir.
Vopnaðir menn, sem taldir eru vögnum sem biðu þeirra. Árásar-
félagar í marxískum samtökum er mennirnir leituðu hins vegar skjóls
nefnast „Þjóðfrelsisfylkingin",
gerðu árás á Welikade-fangelsið í
höfuðborginni á þriðjudagskvöld. Á
sama tíma sprengdu sakamennimir
gat á fangelsismúrinn og flúðu eft-
ir að hafa skipst á skotum við
fangaverði. Að sögn heimildar-
manna innan hersins komust fang-
amir undan í bifreiðum og strætis-
í pósthúsi og verslunum í nágrenn-
inu og voru um 20 til 30 menn
skotnir til bana á flóttanum. Bryn-
varinn bíll var sendur á vettvang
og hermenn lokuðu svæðinu af eft-
ir að þeim hafði borist liðsauki.
Utgöngubann, sem verið hefur í
gildi að nóttu til undanfama fímm
mánuði í Kólombó var framlengt
Stjórnarmyndun í Færeyjum:
Hvorki gengur né rekur
Þórshöfn. Frá Snorra Halldórssyni, fréttaritara Morgunblaðsins.
ILLA gengur að mynda nýja stjórn í Færeyjum og á skrífandi stundu
eru allar likur á að það takist ekki fyrír jól. Fólkaflokkurinn fékk
umboðið fyrst og um hrið leit út fyrír að honum tækist að mynda
samsteypusfjórn þeirra fiokka sem vilja sjálfstæði. Ekkert varð úr
þvi. Að sögn dagblaðsinS Dimmalætting afhenti Atli Dam, lögmaður
og leiðtogi jafiiaðarmanna, stjórnarmyndunarumboð sitt á mánudag
og tekur nú Pauli Ellefsen, formaður Sambandsflokksins, við umboð-
Jafnaðarmenn hafa átt viðræður
við Sambandsflokkinn og Þjóðveld-
isflokkinn. Lengi var talið að helstu
andstæðingar í færeyskum stjóm-
málum, Sambandsflokkurinn og
Þjóðveldisflokkurinn, hygðust að
þessu sinni mynda sterka sam-
steypustjóm ásamt jafnaðarmönn-
um. Leiðtogar Sambandsflokksins
voru hlynntir hugmyndinni enda
þótt Þjóðveldismenn hafí krafíst
þess að Færeyingar taki við stjóm
nokkurra málaflokka af Dönum.
En eftir að Þjóðveldismenn höfðu
rætt um hugmyndina innbyrðis
urðu þeir sammála um víðtækari
krtöfur og var nú ákveðið að kanna
hug hinna flokkanna í viðræðunum
í von um að málin myndu skýrast.
Atli Dam sagði á mánudag að til-
raunir sínar hefðú strandað á skil-
yrðum Þjóðveldisflokksins.
Samsteypustjóm af ofangreindu
tagi yrði mjög sterk, hefði 20 af
32 þingsætum á Lögþinginu. Mista-
kist Ellefsen að mynda stjóm telja
sumir að nauðsynlegt geti orðið að
efna til nýrra kosninga.
er öryggissveitir hófu leit í borginni
og úthverfum hennar.
Öryggisgæsla öll í Welikade-
fangelsi þykir mjög ströng en að
sögn heimildarmanna voru um 300
fangar hafðir í vörslu þar. „Þjóð-
frelsisfylkingin" er talin hafa skipu-
lagt að minnsta kosti sex flóttatil-
raunir úr fangelsum á Sri Lanka
frá því í októbermánuði og hafa
ekki færri en 100 dæmdir saka-
menn komist undan. í síðasta mán-
uði gerðu fangar í Welikade-fang-
elsi uppreisn og þurfti að kalla til
sérsveitir og hermenn til að koma
á reglu.
Fyrmefndir heimildarmenn
sögðu í gær að enginn vafl léki á
því að einhveijir starfsmanna fang-
elsisins eða hugsanlega ótilgreindir
embættismenn hefðu verið með í
ráðum. Fangamir hefðu verið vopn-
aðir og ráðið yfír sprengiefni auk
þess sem sprengja hefði sprungið í
verslunarhverfí í um þriggja kíló-
metra fjarlægð frá fangelsinu um
líkt leyti og árásin hófst.
„Þjóðfrelsisfylkingin" hefur mjög
látið til sín taka á undanfömum
mánuðum og staðið fyrir fjölmörg-
um hryðjuverkum. Samtökin krefj-
ast þess að stjóm Sri Lanka segi
af sér og að friðargæslusáttmáli
stjómvalda og Indveija verði felldur
úr gildi. Kosningar fara fram á Sri
Lanka á mánudag og hafa félagar
í fylkingunni hótað grimmilegum
ódæðisverkum verði þeim ekki af-
lýst.
Krafa ríkissaksóknara Sovétríkjanna:
Tsjúrbanov í fang-
elsi og vinnubúðir
Moskvu. Reuter.
ALEXANDER Sbojev, ríkissaksóknarí Sovétríkjanna, krafðist á
þriðjudag fangelsisdóms yfir Júrí Tsjúrbanov, tengdasyni Leoníds
Brezhnevs, og að hann yrði að auki dæmdur til vinnubúðavistar.
Sbojev sagði að „sakir einkar
alvarlegra glæpa" krefðist hann
þess að Tsjúrbanov yrði dæmdur í
fímm ára fangelsi og til fimm ára
vinnubúðavistar að því loknu.
Tsjúrbanov er 52 ára, kvæntur
Galínu, dóttur Brezhnevs. Hann var
fyrsti aðstoðarinnanríkisráðherra í
valdatíð Brezhnevs og næstæðsti
yfírmaður sovézku lögreglunnar.
Hann átti einnig sæti í miðstjóm
sovézka kommúnistaflokksins en
hafði þó ekki atkvæðisrétt. Stjómin
mótar stefnu flokksins í veigamikl-
um málum.
Tsjúrbanov sýndi engin svip-
brigði þegar Sbojev las sóknarræðu
sína og lagði mál hans í dóm Hæsta-
réttar Sovétríkjanna. Samkvæmt
refsilöggjöf Rússlands hefði Tsjúr-
banov getað hlotið dauðadóm fyrir
glæpi sína.
Réttarhöld hafa staðið yfir í þtjá
mánuði yfír Tsjúrbanov og átta
sakbomingum öðmm, sem Sbojev
sagði hafa stjómað spillingarsam-
tökum er teygt hefðu arma sína
um Sovétríkin gjörvöll í valdatíð
Brezhnevs. Þyngstrar refsingar
krafðist saksóknari yfír Khaidar
Jakhjajev, fyrmm innanríkisráð-
herra í Mið-Asíulýðveldinu Uzbe-
kistan, eða 15 ára þrælkunarvinnu.
Honum er gefíð að sök að hafa
mútað Tsjúrbanov og þegið sjálfur
mútur frá öðmm. Sbojev sagði að
Tsjúrbanov og Jakhjajev hefðu
hvomgur skilað mútufé, sem þeir
hefðu lagt fyrir. Hann sagði að
þeir verðskulduðu þunga refsingu
vegna þess tjóns, sem þeir hefðu
valdið með framferði sínu. Búist er
vi(J að dómur verði vart upp kvadd-
ur fyrr en í fyrsta lagi um áramót.
„Kartöfluætunum “ stolið
Þrem málverkum eftir hollenska nítjándu aldar málarann Vincent van
Gogh var stolið aðfaranótt þriðjudags af Kroller-Muellersafninu í þjóð-
garði í austurhluta Hollands. Myndimar heita „Kartöfluætumar,"
„Visnandi sólblóm" og „Húsakynni vefara" og er hver þeirra metin á
tugi milljóna Bandaríkjadala. Lögregla lokaði stóm svæði umhverfís
safnið og leitar nú þjófanna ákaft, m.a. úr þyrlum. Brotist var inn
um glugga og enda þótt aðvömnarkerfi virkaði greip lögregla í tómt
er hún kom á staðinn. Myndin er af „Kartöfluætunum" er sýnir fá-
tæka bændur að snæðingi. Reuter