Morgunblaðið - 15.12.1988, Side 72

Morgunblaðið - 15.12.1988, Side 72
72 MORGUNBLAÐID, FIMMTUDAGUR 15. DESEMBER 1988 t Sonur minn, ÁSMUNDUR GUNNARSSON, lést 2. desember. Útförin hefur farið fram. f Þökkum auðsýnda samúð. Fyrir mína hönd og annarra aðstandenda, Hanna S. Hansdóttir. t Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar, tengdafaðir og afi, STEFÁN GUÐMUNDSSON, Lækjarfit 6, Garðabæ, andaðist að morgni miðvikudagsins 14. desember. Kristrún Sveinsdóttir, börn, tengdabörn og barnabörn. t Móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma, MÁLFRÍÐUR KRISTJÁNSDÓTTIR frá Fremri-Hundadal, lést í Borgarspítalanum þriðjudaginn 13. desember. Jarðarförin fer fram Kvennabrekkukirkju mánudaginn 19. desem- ber kl. 14.00. Ferð verður frá BSl kl. 8.00 sama dag. Börn, tengdabörn, barnabörn og barnabarnabörn. t Elskulegur sonur okkar, faðir og unnusti, STEFÁN MAGNÚS STEFÁNSSON, lést af slysförum þann 11. desember. Fyrir hönd ættingja, Esther Ásgeirsdóttir, Stefán Sigursælsson, Ásgeir Arnór Stefánsson, Sigríður Matthiidur Guðjohnsen. t Ástkær eiginkonan mín, STEFANÍA SIGRÚN STEINSDÓTTIR, Hólsvegi 16, andaöist í Landspítalanum 13. desember 1988. Hörður Runólfsson. t Anna Ó. Johnsen fyrrverandi yfirhjúkrunarkona, Túngötu7, andaðist að morgni 14. desember. Fyrir hönd aðstandenda, Guðríður Jónsdóttir. t SIGURÐUR BÁRÐARSON bóndi, Mýrum f Álftaveri, verður jarðsunginn frá Þykkvabæjarkiausturskirkju laugardaginn 17. desember kl. 14.00. Hilmar Ðárðarson, Einar Bárðarson, Sigrfður Bárðardóttir, Ráðhildur Björnsdóttir. t Eiginmaður minn, faðir, tengdafaðir og afi, PÉTURSTEFÁNSSON, Blómvangi 13, verður jarðsunginn frá Vföistaðakirkju, Hafnarfirði föstudaginn 16. desember kl. 13.30. Aðalheiður Dfs Þórðardóttir, Bjarnveig Borg Pótursdóttir, Eyjólfur Halldórsson, Borgþór Ómar Pétursson, Elfsabet Ellerup og barnabörn. Konráð Gauti Finns son — Minning Fæddur 16. ágúst 1988 Dáinn 7. desember 1988 Ó, blíði Jesú, blessa þú það bam, er vér þér færum nú, tak það í faðm og blítt það ber með bömum Guðs á örmum þér. (Vald. Briem) Hann var skírður sunnudaginn 4. desember og var mikið við haft í fjölskyldunni, öllum var boðið til veislu og þar sem fjölskyldan er stór var tekinn salur á leigu og allt gert til að dagurinn yrði sem ánægjulegastur, og tókst vel til. Konráð Gauti, fjölskyldan var ekki farin að venjast nafninu þegar skyndilega, tæpum þremur sólar- hringum síðar, allt var búið. Lítill drengur er lagður til svefns að kvöldi hréss og kátur, að morgni látinn. Vöggudauði. Læknavísindin kunna engin skil á þessu fyrirbæri, enginn veit hver er næstur, hraust- ustu böm hljóta þessi örlög. Þetta er ótrúlegt. Litli drengurinn með rauða hárlubbann sinn, sem ég hélt á í fanginu í saumaklúbbnum um daginn og dáðist að, er farinn. For- eldramir Sólveig Kristjánsdóttir og Finnur Óskarsson og systkinin Ásdís og Óskar Auðunn svo og öll fjölskyldan standa magnvana eftir. Áf hverju? Solla mín og Finnur, við verðum að trú því að allt lífið hafí einhvem tilgang. Þó svo að líf Kon- ráðs Gauta litla hafí verið stutt, þá hafði það tilgang. Þið eigið minn- inguna um lítinn fallegan dreng. Megi Guð styrkja ykkur öll í sorg ykkar. Solla Ax Dáinn, horfinn, harmafrep, hvílíkt orð mig dynur yfir. En ég veit að látinn lifir, það er huggun harmi gegn. (Jónas Hallgrimsson) Aðfaranótt miðvikudagsins 7. desember síðastliðinn andaðist litli frændi minn hann Konráð Gauti, aðeins tæpra fjögurra mánaða gam- all. Þremur dögum áður var hann skírður og gefið nafnið Konráð Gauti. Nafnið höfðu foreldrar hans gefíð sér góðan tíma til að ákveða. Konráðs nafnið er í höfuðið á móð- urbróður hans, Jóni Konráði og langafa hans, Konráði Árnasymi. Sunnudaginn 4. desember þegar Konráð Gauti var skírður ríkti mik- il gleði, fjölskyldan var saman kom- in til að fagna og mikill fjöldi bama í skímarveislunni gerði gleðina enn stærri en skammt er milli gleði og sorgar. Miðvikudagsmorgunninn 7. desember líður mér seint úr minni, þegar Solla systir mín hringdi árla morguns í örvæntingu sinni og bað mig að koma því að litla barnið hennar væri dáið. Kvöldið áður var hann frískur og kátur, engin ástæða til að hafa áhyggjur af honum. Auk þess hafði hann farið í hið hefð- bundna ungbamaeftirlit föstudag- inn 2. desember og heilbrigði ihans staðfest. Konráð Gauti dó svoköll- uðum vöggudauða sem er algeng- asta dánarorsök ungbama á fyrsta ári, að undanskildum komabama- sjúkdómum. Læknar kunna engar skýringar. Ýmsar kenningar hafa litið dagsins ljós en fyrr en síðar .hafa þær allar verið afsannaðar. Konráð Gauti var sonur systur minnar Sólveigar Kristjánsdóttur kennara og Finns Óskarssonar húsasmiðs. Auk Konráðs Gauta eiga þau Ásdísi f. 13. janúar 1984 og Óskar Auðunn f. 6. janúar 1986. Sorgin og söknuðurinn er mikill, allir búast við að missa foreldra eða aðra ástvini einhvem tímann en aldrei böm sín. Hugurinn myrkvast og spuming- in um lífíð, tilvemna og tilgang þess verður áleitin. Hvers vegna? Lítið verður um svör en við verðum að trúa að allt hafí sinn tilgang og efla vonina, því sanngimin er engin. Góður Guð, gef þú frið huggunar þinnar og styrk til að standast þessa þolraun, foreldrum Konráðs Gauta, ömmum, öfum og öðmm syrgjend- um. Minningin um Konráð Gauta á ævarandi sess í huga mínum. Minn- ingin um litla rauðhærða frænda Enn einn einstæðingurinn, sem ég kannast við, Halldór Benjamín Sæmundsson, er farinn yfir móðuna miklu. Hann var Akumesingur. Um ætt hans og upmna er mér ekki kunnugt. Okkar fundum bar fyrst saman er hann gekk í Ffladelfíu- söfnuðinn árið 1959. Var hann áhugasamur um hið kristilega starf sem þar er unnið og sótti samkom- umar í kirkjunni mjög reglulega, eftir því sem hann kom því við. Han'n leigði hjá ágætu fólki í Brú við Suðurgötu hér í bænum. Hall- dór heitinn var hægfara maður, huglíf hans var hreint. Hann gerði ekki miklar kröfur til lífsins og var ekki margmenni að skapi. Frekar leitaði hann eftir fámenninu. Nokkrir vinir hans í Fíladelfíusöfn- uði önnuðust útför hans. Hans nánustu ættingjum og vin- minn sem reif svo kröftuglega í hár mitt í skímarveislunni þremur dög- um áður en hann dó. Fyrir hönd systkina minna og fjölskyldna okkar kveðjum við litla frænda okkar og þökkum honum þær gleðistundir er hann veitti okk- ur og bömum okkar á sinni stuttu ævi. Að eilífðar ljósi bjarma ber sem brautina þungu greiðir. Vort líf, sem svo stutt og stopult er það stefnir á æðri leiðir. Og upphiminn fegri en augað sér mót öllum oss faðminn breiðir. (Einar Ben.) um votta ég samúð mína og hlut- tekningu og bið honum Guðsbless- unar. Þorgeir Kr. Magnússon Birting afmælis- og minningargreina Morgunblaðið tekur af- mælis- og minningargreinar til birtingar endurgjaldslaust. Tekið er við greinum á rit- stjórn blaðsins á 2. hæð í Aðal- stræti 6, Reykjavík og á skrif- stofu blaðsins í Hafharstræti 85, Akureyri. Athygli skal á því vakin, að greinar verða að berast með góðum fyrirvara. Þannig verður grein, sem birtast á í miðviku- dagsblaði að berast síðdegis á mánudegi og hliðstætt er með greinar aðra daga. í minningargreinum skal hinn látni ekki ávarpaður. Ekki em tekin til birtingar frumort ljóð um hinn látna. Leyfilegt er að birta ljóð eftir þekkt skáld, 1—3 erindi og skal þá höfundar get- ið. Sama gildir ef sálmur er birt- ur. Meginregla er sú, að minn- ingargreinar birtist undir fullu nafni höfundar. Við birtingu afmælisgreina gildir sú regla, að aðeins eru birtar greinar um fólk sem er 70 ára eða eldra. Hins vegar eru birtar afmælisfréttir með mynd í dagbók um fólk sem er 50 ára eða eldra. Mikil áhersla er á það lögð að handrit séu vel frá gengin, vélrituð og með góðu línubili. XJöfðar til Xlfólks í öllum starfsgreinum! t Útför fósturmóður minnar, BRITT STEINDÓRSSON, sem lést í Landakotsspítala 9. þ.m., verður gerö frá Dómkirkjunni í Reykjavík föstudaginn 16. þ.m. kl. 13.30. Steinn E. Steinsson. t Útför eiginmanns míns, föður, sonar, bróður og tengdasonar, GUÐMUNDAR LÁRUSSONAR, Suðurgötu 71, fer fram frá Hveragerðiskirkju laugardaginn 17. desember kl. 14.00. Þeir sem vildu minnast hans eru beönir að láta Krabba- meinsfélagiö njóta þess. Dagný Sigurbjörg Jónsdóttir, Hera Guðmundsdóttir, Sonja Andrésdóttlr, Lárus Kristjánsson, Kristján Lárusson, Jón Guðbjörnsson, Kristín Kristjánsdóttir. Sigríður Kristjánsdóttir Halldór B. Sæmunds- son — Kveðjuorð Fæddur 14. mars 1916 Dáinn 14. nóvember 1988

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.