Morgunblaðið - 15.12.1988, Síða 83

Morgunblaðið - 15.12.1988, Síða 83
MORGUNBLAÐH) IÞROTTIR FEMMTUDAGUR 15. DESEMBER 1988 83 HANDKNATTLEIKUR / ISLANDSMOTIÐ 1. DEILD Sigurður kom fram hefndum gegn Alfreð Sigurður Sveinsson - vinstrihandarskyttan snjalla úr Vai, kom svo sannarlega fram hefndum gegn Alfreð Gíslasyni, þegar hann lék við hvem sinn fíngur með Valsliðinu. Sigurður skoraði sjö mörk og átti fjórar sendingar sem gáfu mörk gegn KR-ingum. Þetta er nokkuð sem Sigurður gat ekki framkvæmt í V-Þýskalandi þegar hann lék með Lemgo gegn Alfreð Gíslasyni og félögum hans hjá Essen. Alfreð fékk yfirleitt það hlutverk að leika í vöminni gegn. Sigurði - og stöðvaði hann Sigurð, sem skoraði aldrei mörg mörk gegn Essen. Nú kom Sigurður fram hefndum - náði oft að leika Alfreð grátt. M org u nblaöið/Sverrir Gfsll Felix Bjarnason fylgist með félögum sínum, þungur á brún. Óheppnin eltir Gísla Felix Missir af fyrstu leikjunum eftir áramót GÍSLI Felix Bjarnason, mark- vörður KR, horfði á leikinn frá áhorfendapöllunum enda í gipsi eftirað hafa ristarbrotn- að. Reyndar hefði Gísli átt að vera laus úr gipsinu fyrir nokkr- um vikum en síðan þá hefur óheppnin elt hann. ísli ristarbrotnaði í haust og var þá reiknað með að hann missti af fimm fyrstu leikjum móts- ins. En brotið greri ekki og því var hann skorinn upp að nýju og nagli settur til að haída brotunum sam- an. En sjúkrasögu Gísla var ekki lokið því hann fékk blóðeitrun í fótinn og mun missa af tveimur til þremur leilgum eftir áramót. „Ég hafði sett stefnuna á lands- liðið fyrir B-keppnina en nú reikna ég ekki með að fara að æfa fyrr en í mars," sagði Gísli. „Annars hefur Leifur staðið sig mjög vel og var góður í þessum leik. Það verður gaman að keppa við hann þegar ég hef náð mér. Það var vissulega slæmt að tapa þessum leik, en vendipunkturinn var í fyrri hálfleik. í stað þess að dæma línu á Valdimar létu dómar- amir leikinn ganga áfram. Upp úr því fengu Valsmenn hraðaupphlaup og Qögur mörk og tveir brottrekstr- ar fylgdu í kjölfarið. — Annars voru Valsmenn betri og áttu sigurinn skilið," sagði Gísli. Morgunblaöiö/Júlíus Sigurður Svelnsson átti mjög góðjn leik með Valsmönnum. Hér sést hann þruma knettinum fram hjá Konráð Olavsyni og Jóhannesi Stefánssyni - og siðan þandi knötturinn út netamöskvana í KR-markinu. Atfreð rekinn af velli - og Einar lokaði markinu Það var þá sem úrslit leiks KR-inga og Valsmanna réðust. Valsmenn breyttu stöðunni úr 8:7 í 13:7 VALSMENN áttu ekki í erfið- leikum með að leggja KR-inga að velli í Laugardalshöllinni. Þeir gerðu út um leikinn undir lok fyrri hálfleiksins, þegar allt var á suðupunkti. Þegar KR- ingar náðu að minnka forskot Valsmanna úr, 3:7, Í7:8, þoldu þeir ekki spennuna - Valsmenn skoruðu fimm mörk í röð áður en flautað vartil leikshlés og gengu til hvfldar með sex marka forskot í pokahorninu, 13:7. Þýðingamesta augnablik leiks- ins var á þessum tíma. Þegar Valsmenn voru yfir, 8:7, fengu KR-ingar knöttinn og brunuðu fram í sókn. Mikil stemmning var í Höllinni, enda allt í jámum. Hinir ungu KR-ingar voru ragir í sókninni - treystu á Alfreð Gísla- son. Þegar dómarar leiksins voru að fara að flauta töf á KR-inga, skaut Alfreð úr þröngu færi - knötturinn fór í vamarvegg Vals- manna, sem brunuðu fram í skyndi- sókn. Alfreð hljóp á eftir Jóni Kristj- ánssyni og braut á honum. Hann var rekinn af leikvelli og Sigurður Sveinsson skoraði, 9:7, úr víta- kasti, sem var dæmt á Alfreð. Réft á eftir vár Sigurði Sveins- SigmundurÓ. Steinarsson skrifar syni, KR, vísað af leikvelli og léku KR-ingar þá fjórir gegn sex leik- mönnum Vals. Það var nokkuð sem Valsmenn kunnu að meta og Einar Þorvarðarson varði vel í markinu — þijú skot og kórónaði síðan þátt sinn með að veija vítakast frá Al- KR-Valur 21 : 23 Laugardalshöllin. íslandsmótið í 1. deild, miðvikudagurinn 14. desember 1988. Gangur leiksins: 0:3, 1:3, 1:5, 3:6, 4:8, 7:8, 7:13. 7:14, 9:16, 10:18, 12:19, 14:20, 17:23, 21:23. Valur: Sigurður Sveinsson 7/2, Valdi- mar Grímsson 5, Júlíus Jónasson 3, Geir Sveinsson 3, Jón Kristjánsson 3, Jakob Sigurðsson 2. Þorbjöm Jensson, Theodór Guðfínnsson, Gísli óskarsson og Sigurður Sœvarsson. Varin skot: Einar Þorvarðarson 13/1. Páll Guðnason. Utan vallar: 8 mínútur. KR: Alfreð Gíslason 8/2, Sigurður Sveinsson 5, Páll ólafsson 3, Konráð Olavson 2, Stefán Kristjánsson 2, J6- hannes Stefánsson 1. Páll ólafsson (yngri), Þorsteinn Guðjónsson, Guð- mundur Pálmason, Guðmundur Al- bertsson. Varin skot: Leifur Dagfmnsson 9. Ámi Harðarson. Utan vallar: 8 mínútur. Áhorfendur: 2.410. Dómarar: Sigurður Baldursson og Bjöm Jóhannesson, sem dœmdu ágœt- lega. fireð Gíslasyni. Á þessum tíma skor- aði Sigurður Sveinsson með lang- skoti, Jón Kristjánsson og Geir Sveinsson eftir hraðupphlaup og Július Jónasson með gegnumbroti eftir snjalla sendingu Sigurðar Sveinssonar. Sigurður Sveinsson opnaði seinni hálfleikinn með marki úr vítakasti fyrir Val, 14:7, og síðan var eftir- leikurinn auðveldur. Þó að KR- ingar hafi klórað í bakkann undir lokin og minnkað muninn í tvö mörk, 23:21, gefa þær tölur ekki rétta mynd af gangi leiksins. Yfir- burðir Valsmanna voru miklir - þeir gátu leyft sér ýmis mistök í seinni hálfleiknum. Sigurður Sveinsson, Einar Þor- varðarson og Valdimar Grímsson voru bestu menn Valsliðsins. Sig- urður lék sinn besta leik með Val - skoraði glæsileg mörk og átti snjallar sendingar, sem gáfu mörk. Jakob Sigurðursson og Valdimar lokuðu homunum lengst af í leikn- um, þannig að KR-ingar komust ekki inn. Aifreð Gíslason var yfírburðar- maður hjá KR og þá var Leifur Dagfinnsson friskur í markinu. Sig- urður Sveinsson átti skemmtilegan sprett undir lokin. Páll Ólafsson náði sér ekki á strik í leiknum, enda búinn að vera veikur.
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.