Morgunblaðið - 19.12.1991, Blaðsíða 43
42
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 19. DESEMBER 1991
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 19. DESEMBER 1991
43
ftoripíriMúfofi
Útgefandi
Framkvæmdastjóri
Ritstjórar
Fulltrúar ritstjóra
Fréttastjórar
Ritstjórnarfulltrúi
Árvakur h.f., Reykjavík
Haraldur Sveinsson.
Matthías Johannessen,
Styrmir Gunnarsson.
Þorbjörn Guðmundsson,
Björn Jóhannsson,
Árni Jörgensen.
Freysteinn Jóhannsson,
Magnús Finnsson,
Sigtryggur Sigtryggsson,
Ágúst Ingí Jónsson.
Björn Vignir Sigurpálsson.
Ritstjórn og skrifstofur: Aðalstræti 6, sími 691100. Auglýsingar: Aðal-
stræti 6, sími 691111. Afgreiðsla: Kringlan 1, sími 691122. Áskriftar-
gjald 1200 kr. á mánuði innanlands. í lausasölu 110 kr. eintakið.
Ovissa um
kj amorkuherafla
Sovétríkjanna
ú óvissa, sem hrun miðstjórnar-
0 valdsins í Sovétríkjunum hefur
sitapað um yfirstjórn kjarnorkuher-
aflans sovéska er að sönnu áhyggju-
efni. Ráðamenn í „kjarnorkulýðveld-
unum“ fjórum, Rússlandi, Hvíta-
Rússlandi, Úkraínu og Kazakhstan
hafa á undanfömum dögum og vik-
um ítrekað lýst yfir því, að Vestur-
löndum stafí engín ógn af kjarnorku-
eldflaugum þeim sem er að finna í
lýðveldum þessum. Nú síðast var
þetta ítrekað er James Baker, utan-
ríkisráðherra Bandaríkjanna, sótti
ráðamenn í lýðveldum fjórum heim.
Nú hefur ekkert það komið fram
sem gefur tilefni til þess að efast
um heilindi ráðamanna í lýðveldun-
um, sem ákveðið hafa að stofna
nýtt samveldi á rústum Sovétríkj-
anna. I fyrmefndum lýðveldum er
að finna langdrægar kjarorkueld-
flaugar, öflugustu gereyðingarvopn,
sem smíðuð hafa verið. Astæða er
til að ætla, að þær öryggisráðstafan-
ir, sem gerðar hafa verið vegna þess-
ara vopna haldi. Á hinn bóginn hef-
ur því ekki verið veitt tilhlýðileg
athygli að skammdræg kjarnorku-
vopn, svonefnd vígvallarvopn, eru
geymd í flestum fyrrum lýðveldum
Sovétríkjanna. Hér ræðir m.a. um
kjamaodda, sem unnt er að skjóta
með fallbyssum, og flugskeytum, og
koma má fyrir í jarðsprengjum svo
dæmi séu tekin. Þessi vopn geta
auðveldlega lent í röngum höndum
og tiltölulega einfait væri að beita
þeim, blossuðu upp átök milli fyrmm
lýðvelda Sovétríkjanna.
Fyrr á þessu ári lýstu leiðtogar
risaveldanna, þeir Míkhaíl S. Gorb-
atsjov Sovétforseti og George Bush,
forseti Bandaríkjanna, yfir því, að
öllum skammdrægum kjarnorku-
vopnum í eigu risaveldanna á landi,
svo og dijúgum hluta þeirra sem
geymd eru í skipum og kafbátum
yrði eytt. Hér var um einhliða yfir-
lýsingar að ræða, þ.e.a.s. ekki var
gert ráð fyrir því að samið yrði um
upprætingu þessara vopnakerfa, eða
tryggt yrði eftirlit með henni. Þess-
um yfírlýsingum risaveldanna var
fagnað um heim allan og einnig hér
á landi. Var það einkum fyrirsjáan-
leg fækkun kjamavopna í höfunum
sem varð íslendingum fagnaðarefni.
Nú hafa vaknað spurningar um,
hvort ráðamenn í því sem enn er
hentugast að nefna „Sovétríkin"
standi við skuldbindingar þessar og
þegar hefur komið fram, að þar
eystra eiga menn í mestu erfiðleikum
við að standa við ákvæði sáttmála
þeirra um kjarnorkuafvopnun, sem
gerðir hafa verið á undanförnum
árum. Rök þeirra, sem töldu ástæðu
til að efast um ágæti slíkra einhliða
yfirlýsinga hafa sannað gildi sitt.
Þá hefur komið í Ijós, að Sovét-
menn hafa ekki upprætt gömul og
úr sér gengin kjarnorkuvopn heldur
haldið þeim til haga. Gildir þetta
raunar um flest þau vopnakerfi, sem
smíðuð hafa verið fyrir Rauða her-
inn. Af þessum sökum er Ijóst, að
eyðing þeirra vopna, sem Sovétmenn
hafa boðað, mun dragast á langinn.
Auk þess sem veruleg hætta er
á, að sovésk kjamorkuvopn verði
seld eða þau lendi í röngum höndum
eftir öðrum leiðum er sú hætta einn-
ig fyrir hendi, að sovéskir kjarnorku-
vísindamenn gerist málaliðar ein-
ræðisherra víða um heim. Vitað er,
að írakar höfðu hleypt af stokkunum
allþróaðri kjarnorkuvopnaáætlun
áður en Persaflóastríðið skall á.
Norður-Kóreumenn eru einnig sagð-
ir sérlega áhugasamir um að koma
sér upp slíkum vígtólum og því fer
fjarri, að með þessu séu ríki þessi
upp talin. Talið er, að um 300.000
manns hafi með einum eða öðrum
hætti unnið að smíði gereyðingar-
vopna í Sovétríkjunum og ljóst er,
að ríki Vesturlanda hafa enga þörf
fyrir þekkingu þeirra. Trúlega er
þetta alvarlegasta afleiðing hruns
miðstjórnarvaldsins í Sovétríkjunum
og sú spurning hlýtur að vakna,
hvort Vesturlöndum og alþjóðastofn-
unum á borð við Sameinuðu þjóðirn-
ar beri ekki skylda til að hafa af-
skipti af vanda þessum.
Kjarnorkuvarnir eru þess eðlis,
að hin minnsta óvissa og efasemdir
geta orðið til þess að skapa spennu
og raska stöðugleika. Ogjörlegt er
með öllu að segja til um, hver verð-
ur þróun mála í Sovétríkjunum og
hvort það samband sem leiðtogar
lýðveldanna hafa myndað með sér
heldur. Við blasir, að þjóðernis-
hyggja er ráðandi afl í lýðveldum
þessum og þess er tæpast að vænta
að lýðræði, samkvæmt hefðbundn-
um skilningi þess hugtaks, festi sig
í sessi í nánustu framtíð.
Hér er þörf á tvíþættri stefnu. í
fyrsta lagi þurfa lýðræðisríkin í
vestri að vera tilbúin til þess að veita
ráðgjöf og íjárhagsaðstoð til að tre-
ysta yfirstjórn sovéska kjarnorku-
heraflans og gera ráðamönnum í
lýðveldunum kleift að standa við
gerða samninga og einhliða yfirlýs-
ingu Gorbatsjovs Sovétleiðtoga. í
annan stað þurfa lýðræðisríkin, og
þá einkum og sér í lagi aðildarríki
Atlantshafsbandalagsins að halda
fast við þá stefnu að viðhalda beri
lágmarksviðbúnaði á sviði kjarn-
orkuvarna.
Raunar hlýtur það að vera sér-
stakt umhugsunarefni hver staða
Vesturlanda væri nú, ef fylgt hefði
verið þeirri stefnu, sem erlendir tals-
menn .Sovétstjórnarinnar boðuðu á
árum áður og kvað á um einhiiða
kjarnorkuafvopnun af hálfu Vestur-
landa. Með hvaða hætti hefðu ráða-
menn í Bandaríkjunum og Evrópu
brugðist við þeirri óvissu, sem nú
ríkir um yfirstjórn sovéska kjarn-
orkuheraflans hefðu þessi sjónarmið
fyrrverandi ráðamanna í Kreml og
fylgismanna þeirra erlendis orðið
ofan á? Eru fyrrum skósveinar sov-
éskra kommúnista hér á landi enn
þeirrar skoðunar, að Atlantshafs-
bandalagið sé tímaskekkja, varnar-
stöðin i Keflavík kraftbirtingarform
bandarískrar útþenslustefnu og
samstaða lýðræðisríkjanna samsæri
hins alþjóðlega auðvalds?
Rafmagnslaust á
Suðurlandi:
Búrfells-
virkjun sló
út í nær
45 mínútur
BURFELLSVIRKJUN sló út um
klukkan 18 í gærdag með þeim af-
leiðingum að stór hluti af Suður-
landi, álverið í Straumsvík og járn-
blendiverksmiðjan á Grundartanga
urðu rafmagnslaus. Rafmagnsleysið
stóð í nær 45 mínútur en Ijón hlaust
ekki af þessu í verksmiðjunum.
Ámi Benediktsson, stöðvarstjóri í
Búrfellsvirkjun, segir að óhapp þetta
hafi orðið er verið var að tengja nýja
línu úr Búrfellslínu 2 yfir Sandskeið
og í Hamranes. „Við þessa aðgerð
varð bilun í svokölluðum skilrofa í
Búrfellsvirkjun þannig að virkjunin sló
út og 210 MW afl fór af landskerf-
inu,“ segir Árni. „Við þetta fluttist
álag yfir á aðrar virkjanir og það var
ástæðan fyrir því að ljós borgarbúa
blikkuðu eða dofnuðu um stund.“
Þegar atburður sem þessi gerist
tekur sjálfvirkt kerfi við sem slær út
rafmagnið til álversins og járnblendi-
verksmiðjunnar þannig að hinn al-
menni raforkunotandi haldist áfram
Skylmst fyrir Óthello
Morgunblaðið/Sverrir
Töfraflauta Mozarts víkur á nýju ári fyrir Óthello Verdis í íslensku óperunni. Þegar eru hafnar æfingar á
Óthelló og að ofan má sjá (f.v) Bergþór Pálsson (Montano) og Þorgeir Andrésson (Cassio) æfa skylmingar
undir leiðsögn rússans Nikolai Korpov sem er sérfræðingur í sviðshreyfingum. Með aðalhlutverkin í Óthello
fara Garðar Cortes (Óthello), Ólöf Kolbrún Harðardóttir (Desdemona), Keith Reed (Jago) og Elsa Waage
(Emilía). Siguijón Jóhannsson sér um sviðsmynd, Una Collins er búningahönnuður, Þórhildur Þorleifsdóttir
leikstýrir og æfinga- og hljómsveitarstjórn er í höndum Robins Stapletons.
Útsvarshlutfall Reykvíkinga óbreytt:
Bilið verður brúað með
spamaði og niðurskurði
- segir Markús Öm Antonsson borgarstjóri
MARKÚS Orn Antonsson borgarstjóri segir að Reykjavíkurborg muni
ekki velta þeim kostnaðarauka, sem hlýst af greiðslu hluta löggæzlukostn-
aðar og annarri aðstoð við ríkisvaldið, yfir á skattgreiðendur. Borgar-
stjóri segir að hvorki útsvarsprósenta né aðstöðugjald á fyrirtæki muni
hækka. Utsvar í Reykjavík verði óbreytt, 6,7% af skattstofni. Ekki verði
tekin ný Ián.
„Við höfum ekki séð hver hin end-
anlega niðurstaða verður. Af hálfu
Reykjavíkur höfum við vonað að dreg-
ið verði í land með þessar boðuðu
ráðstafanir," sagði borgarstjóri í sam-
tali við Morgunblaðið. „Mér finnst það
óskiljanleg og einstaklega hallærisleg
ráðstöfun að ætla að senda sveitarfé-
lögunum reikning í eitt ár fyrir rekstri
löggæzlu, til viðbótar því sem fylgir
bandorminum."
Hann sagði að þessar ráðstafanir
ríkisstjórnarinnar myndu væntanlega
hafa 350 til 370 milljóna króna út-
gjaldaauka í för með sér fyrir borg-
ina, umfram það sem fjárhagsáætl-
anir geri ráð fyrir á þessu stigi máls-
ins. Borgarstjóri mælir í dag fyrir
frumvarpi til fjárhagsáætlunar á fundi
borgarstjórnar. „Ef svo fer að við
verðum að brúa þetta 350 til 370
milljóna króna bil, þá er alveg ljóst
að því verður ekki velt yfir á skatt-
greiðendur í Reykjavík. Útsvarspró-
senta verður óbreytt, 6,7% og álagn-
ing aðstöðugjalda á fyrirtæki breytist
ekki. Viðbrögðin verða ekki önnur en
þau að við munum skera niður í rekstri
og framkvæmdum,“ sagði Markús
Örn.
Borgarstjóri vildi ekki nefna sér-
staka liði, sem kynnu að verða skorn-
ir niður frekar en aðrir. „Þetta kallar
á frekari yfirferð í fjárhagsáætlun-
inni. Við verðum að spara og skera
niður. Það verða engin lán tekin til
að brúa þetta bil,“ sagði hann.
Aðspurður hvort fækkun borgar-
starfsmanna kæmi til greina, sagði
Markús Örn að mikils aðhalds hefði
verið gætt í starfsmannahaldi hjá
borginni undanfarin ár og svo yrði
áfram. Hann sagði að rekstrarút-
gjöld borgarinnar í heild væru
Kaup ríkisins á refahúsum:
Skrifaði undir í góðri trú
- segir Steingrimur J. Sigfússon um kaup ríkisins á refahúsum
STEINGRÍMUR J. Sigfússon, fyrrverandi landbúnaðarráðherra, segist
hafa í góðri trú skrifað undir samninga um kaup ríkisins á níu refahús-
um á jörðunum Kirkjuferju og Kirkjuferjuhjáleigu í Olfushreppi.
Starfsmenn Iandbúnaðarráðuneytisins hafi aldrei hreyft við sig efa-
semdura um að sú gjörð væri að nokkru leyti ólögmæt. Ríkislögmaður
telur kaupin ólögleg, meðal annars"af því að heimildar Alþingis hafi
ekki verið leitað fyrir þeim.
Steingrímur sagði í samtali við
Morgunblaðið að þessi húsakaup
hefðu verið hluti af heildaraðgerðum
til að leysa vanda í loðdýrarækt, og
það hefði komið skýrt fram að hluti
af þeim ráðstöfunum væri að leysa
vanda bænda á ríkisjörðum. Hann
sagðist þekkja mörg fordæmi þessa;
að Jarðasjóður hefði keypt eignir
bænda á ríkisjörðum til að koma í veg
fyrir að þeir yrðu að hrekjast af jörð-
unum. Markmiðið hefði þá oftast ver-
ið að komast hjá enn meiri útgjöldum
vegna ábúðarloka, en Jarðasjóði væri
skylt að kaupa allar eignir fráfarandi
leiguliða. Steingrímur sagðist því telja
að löng hefð væri fyrir kaupum af
þessu tagi.
Ráðherrann fyrrverandi sagðist
minna á að rök og gagnrök væru til
í öllum málum og lögfræðingar í jarða-
deild landbúnaðarráðuneytisins hefðu
enn ekki haft tækifæri til að koma
sínum sjónarmiðum í málinu á fram-
færi. Hann sagði að ekki hefði verið
haft fyrir því að senda sér álit ríkislög-
manns, en af því sem hann hefði
fregnað, sýndist sér að lögmaður hefði
ekki allar upplýsingar í málinu í hönd-
um.
Steingrímur sagðist ekki ætla að
mæla á móti því aö æskilegra kynni
að vera að afla heimilda fyrir útgjöld-
um af þessu tagi sérstaklega. Þess
væru hins vegar líka dæmi að slíkt
væri gert eftir á, til dæmis þegar um
aukafjárveitingar væri að ræða, sem
því miður tíðkuðust ennþá, jafnvel hjá
núverandi ríkisstjórn. Hann sagði að
sér sýndist eðlilegast að Alþingi, sem
hefur nú fengið málið til meðferðar,
samþykkti kaupin og svo yrði tekið
til við að endurskoða starfshætti Jarð-
asjþðs að þessu leyti.
í lögum um ráðherraábyrgð er
ákvæði um að leiti ráðherra ekki heim-
ilda Alþingis, þegar stjómarskráin
býður svo, skuli hann sæta ábyrgð.
Steingrímur sagðist ekki sjá að hann
myndi þurfa að taka neina ábyrgð á
málinu, enda teldi hann sig ekki sann-
an að neinni sök í því. Hann vildi taka
fram að hann hefði ekki átt neinna
persónulegra hagsmuna að gæta í
málinu og þekkti ekki ábúendur á
umræddum jörðum..............
lægri en á síðasta ári, eins og íjár-
hagsáætlunaffrumvai’pið stæði
Tillögur heilbrigðisráðherra í málefnum Landakots:
Framlag til spítalans verði
skorið niður um þriðjung
- starfsemin mun koðna niður, segir varaformaður læknaráðs
NIÐURSKURÐUR á rekstrarfjárveitingu til Landakotsspítala sam-
kvæmt tillögu heilbrigðisráðherra nemur talsvert á fjórða hundrað
milljóna kr. Á móti er gert ráð fyrir að spítalinn geti aflað 150 millj.
með sértekjum, að sögn Sigurðar Björnssonar, varaformanns læknar-
áðs Landakots. Framlag til spítalans er því lækkað um tæplega þriðj-
ung af heildarrekstrarfé Landakots. Sigurður segir að þessi tillaga
þýði að ekki verði hægt að reka spítalann í núverandi mynd á næsta
ári verði hún samþykkt á Alþingi. Ekki yrði komist hjá því að segja
upp 150-200 starfsmönnum spítalans fljótlega eftir áramót og borin
von sé að fá aðstoðarlækna og hjúkrunarfólk til starfa við spítalann.
„Hann mun hreinlega koðna niður,“ sagði Sigurður.
21 læknir á Landakoti sendu ráð-
herra í gær viljayfirlýsingu um að
teknar verði upp viðræður á ný um
hugsanlega sameiningu sjúkrahúsa
en jafnframt er farið fram á að ný
viðræðunefnd verði skipuð af hálfu
Landakots.
„Þetta er 600 manna vinnustaður
sem nötrar og skelfur. Ég er hrædd-
ur um að það fari að heyrast í ein-
hveijum þegar farið verður að segja
upp 150 til 200 manns því ég fæ
ekki séð hvernig á að spara 300
milljónir nema með því móti. Og það
er aðeins byijunin,“ sagði Sigurður.
Höskuldur Ólafsson, formaður
stjórnar spítalans, sagðist telja að
niðurskurðurinn hefði mjög alvarleg-
ar afleiðingar fyrir starfsemi Landa-
kotsspítala. Hann sagðist þó ekki
hafa séð endanlegar tillögur en ekki
verði séð hvernig hægt verði að kom-
ast hjá uppsögnum starfsfólks.
„Menn eru ekki farnir að gera sér
grein fyrir hvaða afleiðingar þetta
hefur en þetta er mikið áfall. Það
verður gerbreyting á þjónustu spítal-
ans,“ sagði Höskuldur.
Innan ramma fjárlaga
Sigurður sagði að Landakotsspít-
ali væri eina sjúkrahúsið í borginni
sem hefði ekki farið út fyrir ramma
fjárlaga á síðasta ári og hið sama
virtist verða í ár. „Við höfum mjög
gott starfsfólk hér og þótt mikill
skortur sé á aðstoðarlæknum höfum
við alltaf getað fullmannað hjá okk-
ur. Hjúkrunarmönnunin er í mjög
góðu lagi. Verði þessar tillögur sam-
þykktar verður gjörbreyting á þessu
og staðallinn og öryggi meðferðar
mun gjörbreytast. Nútíma sjúkrahús
er vel smurð vél sem er aldrei betra
en veikasti hlekkurinn. Ég trúi ekki
að þetta verði látið gerast,“ sagði
hann.
Sigurður sagði að vel hefði mátt
framkvæma flatan niðurskurð upp á
3-5% innan spítalans ef ráðherra
hefði viljað fallast á það í stað þessa
stóra niðurskurðar. „Við höfum grip-
ið til mikillar hagræðingar á ýmsum
sviðum, höfum stofnað fimm daga
deildir, erum líka með dagdeildir og
höfum stytt legutímann mikið.
Rekstrarstjórnin hefur að mínu mati
því staðið sig ágætlega við rekstur
spítalans, þó mér finnist hún hafa
brugðist á síðustu dögum vegna
þessara aðgerða að undanförnu og
hreinlega gefist upp. Það finnst
starfsfólkinu hér óskiljanlegt," sagði
hann.
í viljayfirlýsingu læknanna segir
að þeir séu reiðubúnir til frekari við-
ræðna við fulltrúa ráðuneytisins og
Borgarspítala um aukna samræm-
Vergar þjóðartekjur
1945-1992
Vísitala, árið 1980 er sett á 100
Gildin fyritr árin 1989 og 1990 eru áætlaðar
og gildin fyrir 1991 og 1992 enj byggð á spá
-140
Kaupmáttur 1980-91
Ráðstöfunartekjur á mann
m.v. framfærsluvísitölu
-100
80
Vísitala, árið 1980
ersettá100
Gildið árin 1991
erbyggtáspá
140
60
■ 40
20
100
Breyting (%) frá fyrra ári
iiilE II ill IulJ B
'l’ ■ l| 1 ■-3.4 “■ |
%
20
15
10
5
0
Breyting (%)
frá fyrra ðri
T
Samdráttarskeið frá 1948-1952
Samdráttarskeiö frá 1987 -
Kaupmáttur ráðstöfunartekna hefur tvívegis á síð-
asta áratug rýrnað meira en Þjóðhagsstofnun spá-
ir að hann muni gera á næsta ári samkvæmt endur-
skoðaðri þjóðhagsspá í desember, en þar er gert
ráð fyrir að kaupmátturinn rýrni um 5,5%. Kaup-
máttur ráðstöfunartekna rýrnaði um 13,5% árið
1983 frá árinu á undan, en þá gekk hér yfir mik-
il efnahagslægð. Kaupmáttur ráðstöfunartekna
ingu og hagræðingu í rekstri með
stofnun nýs sjúkrahúss í huga.
Stefnt skuli að því að viðræðum verði
lokið innan þriggja mánaða. Þá vilja
þeir að skipuð verði ný viðræðunefnd
af hálfu Landakots.
Þorkell Helgason, aðstoðarmaður
ráðherra, sagði að viðræður verði
væntanlega hafnar fljótlega en ráðu-
neytið hafi ekki afskipti af því hverj-
ir sitji í viðræðunefndinni af hálfu
Landakots.
Álit nunnanna ræður
úrslitum
St. Jósefssystrum var skýrt frá
viljayfirlýsingu læknanna á þriðju-
dag en að sögn Sigurðar hafa þær
ekki gefið álit sitt á þessum hug-
myndum.
Höskuldur sagði að þegar búið
væri að taka ákvörðun yrði að bera
hana undir St. Jósefssystur en sagði
að þær hefðu farið að gera ályktan-
ir þegar málið var á vinnslustigi í
síðustu viku. „Það lá enginn samn-
ingur fyrir sem þær hefðu þurft að
taka afstöðu til,“ sagði hann.
Ný viðræðunefnd
Sigurður sagði að með viljayfírlýs-
ingu sinni væru Iæknar að leita leiða
til að bjarga spítalanum. Sagði hann
einnig að læknarnir teldu, að þeir
fulltrúar sem sátu í nefnd þeirri, sem
skilaði skýrslu til ráðherra í síðustu
viku um sameiningu spítalanna,
hefðu ekki borið hagsmuni spítalans
fyrir brjósti. Niðurstaða hennar hefði
þýtt að spítalinn yrði lagður niður.
Vilja læknarnir að Haraldur Ólafs-
son, formaður yfirstjórnar Landa-
kots, verði formaður nýrrar viðræðu-
nefndar.
Haraldur var ráðinn starfsmaður
heilbrigðisráðherra í haust vegna
sameiningaráformanna og sat í
nefndinni um sameiningu Landakots
og Borgarspítala. Hann sagði í sam-
tali við Morgunblaðið að hann hefði
hætt störfum í nefndinni um miðjan
nóvember og ekki verið boðið uppá
að skrifa undir tillögur hennar.
Kvaðst hann vera þeim mótfallin þar
sem þær leiddu ekki til sparnaðar
en vildi ekki greina frá ástæðum
þess að hann dró sig út úr nefndinni
í síðasta mánuði og kvaðst ætla að
gera ráðherra grein fyrir málinu.
Sighvatur Björgvinsson heilbrigðis-
ráðherra kannaðist ekki við að Iiar-
aldur hefði hætt störfum í nefndinni
og sagði að Haraldur væri á launa-
skrá í ráðuneytinu vegna þessa verk-
efnis. Vildi hann ekki tjá-sig um það
frekar. Haraldur sagði í samtali við
Morgunblaðið að hann hefði fyrst
og fremst litið á sig sem fulltrúa
Landakots á meðan hann sat í sam-
einingarnefndinni.
Vantraust lækna?
Höskuldur Óiafsson sagði að
stjórn spítalans ætti eftir að fara
yfir málið. „Tillögur nefndarinnar
voru ekki komnar lengra en inn á
borð til ráðherra. Nokkrir aðilar áttu
eftir að fjalla um þessar tillögur og
öll umræða var eftir,“ sagði hann.
Aðspurður hvort viðbrögð lækn-
ann fælu í sér vantraust á fulltrúa
Landakots í nefndinni sagði Hö-
skuldur að læknaráð spítalans væri
ekki aðili að málinu. „Læknar á spít-
alanum unnu að þessari tillögugerð
í vinnuhópum og þeim var því vel
kunnugt um það sem þarna var á
ferðinni," sagði hann. Höskuldur
sagði einnig að tillögur heilbrigðis-
ráðherra myndu reynast spítalanum
mun erfiðari en tillögur nefndarinn-
ar, sem starfsmenn hafi hafnað.
Kaupmáttur minnkaði tví-
vegis mikið á síðasta áratug
rýrnaði aftur um 7,9% árið 1989, en það var í
kjölfarið á mikilli uppsveiflu í efnashagslífinu, sem
varð meðal annars til þess að kaupmáttur ráð-
stöfunartekna jókst um 22,6% árið 1987 frá árinu
á undan. Jafnframt er sýnd þróun þjóðartekna frá
stríðslokum, en þjóðartekjur hafa ekki dregist
jafnmikið saman á einu ári og spáð er 1992 frá
árinu 1950. i
Samkomulagið um rekstur St.
Jósefsspítala í Hafnarfirði:
Okkur var nánast
stillt upp við vegg
*
- segir Ami Sverrisson framkvæmdastjóri
ÁRNI Sverrisson, framkvæmdasljóri St. Jósefsspitala í Hafnar-
firði, segir að stjórnendum spítalans hafi nánast verið stillt upp
við vegg með gerð samkomulagsins við heilbrigðisráðherra um
rekstur spítalans á næsta ári. I því felst að fjárveiting til St. Jó-
sefsspítala verður hækkuð um 60 millj. kr. en upphafleg tillaga
ráðherra gerði ráð fyrir 120 millj. kr. niðurskurði, sem er 48%
af heildarfjárveitingu spítalans. Árni segir að fulltrúar spítalans
hafi gert tillögur til ráðherra og vænst þess að fá 90 millj. kr. en
niðurstaðan sé í algjöru ósamræmi við tillögur spítalans. Hann
segir alveg Ijóst að til einhverra uppsagna muni koma og að niður-
skurðurinn muni bitna að einhverju leyti á þjónustunni.
.Stjórn spítalans vildi fremur allra leiða til sparnaðar,“ sagði
ná þessu samkomulagi við ráð-
herra en að búa áfram við óvissu.
Þegar það var ljóst að við fengjum
ekki meira en 60 milljónir leit
stjórnin svo á, að það væri skyn-
samlegra að vera með samkomu-
lag um þetta en að róa áfram í
óvissunni," sagði hann.
„Við fáum ekki séð í dag hvern-
ig endar eiga að ná saman. Við
verðum að gera gagngerar breyt-
ingar á rekstri spítalans, og mun-
um reyna að láta þær bitna sem
minnst á sjúklingum sem til okkar
leita. Ég geri ráð fyrir að breytt
verði um aðgerðamunstur og að
meira verði um minni aðgerðir.
Við þurfum að nota janúar vel til
að gera áætlanir. Það þarf að taka
til hendinni á hverri deild og leita
Arni.
I gær var haldinn starfsmanna-
fundur í St. Jósefsspítala þar sem
samkomulagið var kynnt.
Árni Mathiesen alþingismaður
sagðist vera ánægður með að sam-
komulag hefði náðst þó niður-
skurður á fjárframlögum til spítal-
ans væri talsverður. Kvaðst hann
vonast til að spítalinn gæti þó í
meginatriðum þjónað því hlutverki
sem hann hefði gert hingað til.
„Það verður ekki sagt annað en
St. Jósefsspítalinn axli sínar byrð-
ar vegna vandans í ríkisfjámiálun-
um en það hefði þó verið hægt
að ná þessari niðurstöðu á þægi-
legri hátt fyrir alla aðila ef fullt
samráð hefði verið haft við for-
svarsmenn spítalans í upphafi,“
sagði hann.