Morgunblaðið - 19.12.1991, Side 51
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 19. DESEMBER 1991
51
Barnakór Seljalandsskóla.
Vestur-Eyjafjöll:
Aðventudagur hjá Eyfelling-
um með Sigfúsi Halldórssyni
AÐVENTUDAGUR var haldinn sunnudaginn 15. desember hjá Eyfell-
ingum sem hófst með fjölskylduguðsþjónustu í Stóra-Dalskirkju þar
sem börn í Seljalandsskóla og Tónlistarskóla Rangæinga, lásu, sungu
og léku á hljóðfæri. Yngstu börnin báru ljósið inn í kirkjuna og að
athöfn lokinni út úr kirkjunni.
Síðan var farið að Heimalandi í
félagsheimili Vestur-Eyfellinga, þar
sem athöfnin hófst með því að sömu
börn báru ljósið inn í félagsheimilið
undir þverflautuleik tveggja nem-
enda.
Að lokinni kaffidrykkju hófst
hátíðardagskrá með tónlist, frásögn
Rósu Aðalsteinsdóttur, skólastjóra,
af bernskujólum, ljóðalestri og að
síðustu með frásögn og hljóðfæra-
leik heiðursgestsins, Sigfúsar Hall-
dórssonar, tónskálds og listamanns.
Minntist hann bernsku sinnar og
uppvaxtarára í Landeyjum og undir
Eyjafjöllum og spilaði fyrsta lagið
sem hann samdi 8 ára gamall. Síð-
an spilaði hann með eftirminnileg-
hætti eigin sálmalög og því
næst spilaði hann sín þekktu lög
sem allir viðstaddir tóku þátt í með
söng. „ , .
- Frettantari
„Að mana til klifs
þroskans fj alli“
— Mitt er þitt er ekki aðeins
metsölubók, heldur líka góð bók.
1
í fyrra varð bók Þorgríms
Tár, bros og takkaskór
metsölubók ársins og hún
hlaut einnig verðlaun sem
besta unglingabók íslensks
höfundar árið 1990. Nú
stefnir í að nýja bókin hans
Þorgríms MITT ER ÞITT
verði metsölubók ársins
1991.
MITT ER ÞITT er
skemmtileg, spennandi og
uppbyggjandi bók.
Sigurður Haukur
Guðjónsson segir m.a. svo í
bókmenntagagnrýni sinni í
Morgunblaðinu 4.
desember sl.:
„Höfundur vinnur ákaflega
vel úr efni bókarinnar.
Hann þarf engar klúrar
myndir, kitlur undir nára
til þess að halda
lesandanum við efnið,
heldur notar hann til þess
smellna fyndni í umbúð
þeirrar virðingar, er hann
ber fyrir ungu fólki,
löngun
Morgunblaðið/Halldór Gunnarsson
Sigfús Halldórsson í ræðustól.
Þorgrímur Þráinsson
til þess að verða því að liði.
Hann rífur múr
barnaskaparins til grunna
'með þessum meitlum
sínum, svo að berstrípaður
stendur ónytjuhátturinn
eftir, í bókstaflegri
merkingu. Að mana til
klifs í þroskans fjalli, það
er aðall þessarar sögu..“
„..Þetta er bráðsnjöll bók
mikils stílista, skálds.“
Myndlist-
arsýning í
menntamála-
ráðuneytinu
MYNDLISTARSÝNING verður
opnuð í menntamálaráðuneytinu
í dag 19. desember og stendur
hún í tvo mánuði eða til 19 febrú-
ar.
Hólmfríður Árnadóttir sýnir þar
pappírsverk, Guðrún Marinósdóttir
sýnir textíllágmyndir og Anna S.
Gunnlaugsdóttir sýnir akrýlmyndir.
Menntamálaráðherra opnar sýning-
una í dag klukkan 15.
Sýningin verður opin á virkum
dögum frá klukkan 09 til 17.
PYRIT
GULLSMIÐJA
ÖNNU MARIU
Vesturgötu 3 sími 20376
'ORYGG!--\
h'mbo
Barnabílstólar
ÖRUGGIR - GLÆSILEGIR
ÖRYGGI:
Uppfyllir ströngustu
evrópustaðla.
ÞÆGINDI:
Sjö stillingar.
ALDUR:
8 mán.-4 ára.
ÚRVAL:
Fjórtán fallegar
litasamsetningar.
ÞRIF:
Auðvelt að taka
áklæði af
og þvo.
bimbcv
barnabílpúðar
fyrir 3ja - 12 ára.
ÍTÖLSK SÆTAÁKLÆÐI f ÚRVALI
OPIÐ: LAUGARDAG OG
SUNNUDAG
ÁLÍMINGAR SÍMI 81418l'
--ÖRYGGf