Morgunblaðið - 19.12.1991, Side 67
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 19. DESEMBER 1991
67
við borðið undir gluggaborunni og
rýndi upp á torræðar skruddurnar.
Sami uppfræðarinn kenndi hnát-
unni að draga til stafs en hvor-
tveggja kennslan dugði telpunni þó
vel og lengi. Og þegar þær stundir
komu, að sjúklingurinn þoldi ekki
barnahópinn yfir sér í baðstofunni,
hraktist hún með systkini sín út í
kúahlöðu þar sem hópurinn mátti
dunda sér við að draga upp myndir
í moldargólfið.
Fáir hefðu freistast til búskapar
í þessum heiðardrógum Þistilfjarð-
ar. Er verst áraði á vetrum voru
börnin látin krafla snjóinn niður í
svörð til að skepnurnar hefðu eitt-
hvað að kroppa. Og marga smala-
ferðina fór smáfólkið á haustin, uns
sólarnir eyddust á sauðskinnsskón-
um og börnin urðu að binda hey-
leppa á fætur sér í þeirra stað.
Slík og þvílík var æska þeirrar
konu sem í dag er borin til grafar.
Ef æsku skyldi kalla; sjálf kvaðst
hún aldrei hafa lifað neitt sltkt
skeið. Þroskaárin urðu henni tæp-
ast heldur neinn dans á rósum: Að
lokinni vinnukonuvistun á Akureyri
giftist hún norður í afskekkta sveit,
opna 'fyrir vindum úr norðri. Þar
hóf hún búskapinn í fornfálegum
torfbæ sem dugði ekki betur en svo
að hann hrundi yfir hana og lítið
barn hennar. Eftir fylgdi þrjátíu ára
búskapur þar sem mikið mæddi á
húsfreyju, einkum þó er bóndi henn-
ar gjörðist heilsutæpur og börnin
flogin úr hreiðrinu.
Þetta er ærin raunasaga og er
þó af ýmsu fleiru að taka sem gekk
þessari konu í móti. En var hún þá
ekki beygð og hnípin af harðræðum
heimsins?
Fjarri fór því. Hér kveður dóttir
þess íslands sem var; þegar enginn
hjálpandi hönd sjóðakerfis og vel-
ferðarstofnana beið handan við
hornið. Slík lífskjör mótuðu nátt-
úruvalið og það fólk, sem inn í þau
fæddist og þroskaðist, sýndi enga
linkind heldur tók öllu sem að hönd-
um bar, lagaði sig að aðstæðum
og hertist við hveija raun. „Maður
á aldrei að gefast upp“ var það
heilræði sem þessi kona lagði mér,
jafnvel löngu eftir að hún hafði glat-
að heilsu sinni og líkamskröftum.
Og hér var manneskja sem kunni
þá list að gleðjast einlæglega yfir
öllumi sólargeislum er á veg hennar
skinu, hvþrsu smáir sem þeir kynnu
að hafa ýirst svo mörgum sem ein-
att metá hamingju eftir verðmiðum.
Lífssýn hennar var sýn kynslóðar-
innar sem nú er óðum að hverfa;
öll önnur en þeirrar sem nú lifir
sitt blómaskeið. Og ekki fæ ég var-
ist þeirri hugsun, að högum þjóðar-
skútunnar hefði verið betur komið
í mörgu, ef fleiri fulltrúar hinnar
fyrri hefðu verið hafðir til ráðuneyt-
is við stjórnvölinn.
Járnbrá Friðriksdóttir var rétt-
sýni og góðum gáfum gædd. Víðles-
in var hún og fjölfróð, enda sjálf-
menntuð í anda þeirra sem líta
menntun sem manngildi en ekki
vegabréf til metorða og efnalegrar
velsældar. Þeir, sem numið hafa af
sjálfsprottnum hvötum, hafa öllu
meiru að miðla öðrum en hinir
stagla af dyggð og skyldu. Kynni
af slíkum fjölfræðingum eru hverj-
um einstaklingi lífslán.
Sú kveður nú sem lifað hafði
langan ævidag og var vel að hvíld-
inni komin. Sé það svo, að orð okk-
ar og gjörðir í þessu lífi séu okkur
veganesti í hinu næsta, örvænti ég
ekki um velfarnað hennar handan
móðunnar miklu.
Það er hamingja mest að hafa kynnst slíkum
konum
kynnst þeirra starfí og fómfysi, öðriim að liði,
þín hugljúfa minning er hamingja dætrum og
sonum
þig heiðríkja Drottins vefji í eilífum friði.
(ÞH)
Jón B. Guðlaugsson.
voru mjög nánar, og færði það hana
alltaf nær okkur. Hún leit á okkur
sem jafningja sína og er það þess
vegna sem við eigum minningar um
góðar stundir með henni og þeim
Bjössa. Þau tvö voru mjög samrýnd
og var oftar talað um Báru og
Bjössa heldur en annað þeirra, og
eru skiptin ekki mörg síðustu árin
sem við höfum hitt þau sitt í hvoru
lagi.
En núna hefur Bára verið tekin
frá okkur öllum eftir stutta sjúkra-
legu. Sorgin er mikil og öllum
spurningunum verður ekki svarað
í þessu lífi, en við vitum að hún
bíður eftir okkur þarna einhvers
staðar hinum megin við móðuna
miklu. Við viljum þakka fyrir að
hafa kynnst þessari yndislegu
manneskju.
Elsku Helga Dögg okkar, Bjössi,
Ester, Björgvin.og Ragnheiður, Guð
styrki ykkur í þessari miklu sorg.
Blessuð sé minning Báru.
Sólrún og Allý
Gíslína Kristjáns-
dóttir - Kveðja
Fædd 10. september 1914
Dáin 8. desember 1991
Ég man þegar ég sá hana Gillu
i fyrsta skipti. Ég var 3-4 ára.og
fór með langömmu í heimsókn, en
hún og Gilla voru góðar vinkonur.
Þær urðu nú ansi margar heim-
sóknirnar og ég man hvað ég hlakk-
aði alltaf til því ég fékk alltaf
pönnukökur, og þegar við lang-
amma vorum að fara gaf Gilla mér
alltaf eina flösku af Freska og eitt
epli í nesti.
Gilla var alltaf í mjög vel pússuð-
um skóm og ég gleymi aldrei þegar
hún hélt yfir mér ræðu um það
hvemig skórnir lýsa persónuleika
mannsins og ég skyldi nú passa
mig á því að vera alltaf í vel pússuð-
um skóm.
Góður guð fylgi henni.
Vertu yfir og allt um kring
með eilífri blessun þinni,
sitji Guðs englar saman í hring
sænginni yfir minni.
(S. Jónsson)
Adda Rúna
ZANUSSI uppþvottavélar eru til í
tveimur gerðum ZW 106 m/4
valk. og ID-5020 til innb. m/7
valkerfum. Báðar f. borðb. f. 12.
Hljóðlátar — einfaldari notkun.
Jólatilboð kr. 52790,-
á ID-5020W
JÓLATILBOÐIÐ
STENDUR TIL
20. DESEMBER
Gufugleypar frá ZANUSSI,
CASTOR, FUTURUM og
KUPPERBUSCH eru bæöi fyrir
útblástur eöa gegnum kolsíu.
Jólatilboð kr. 8.888,-
á C-306
RAFHA, BEHA og
KUPPERSBUSCH eldavélar eru
bæöi meö eða án blæstri.- Með
glerborði og blæstri. 4 hellur og
góður ofn. 2ja ára ábyrgð á
RAFHA vélinni — frí uppsetning.
Jólatilboð kr. 41.669,-
á EH-640WN
Um er að ræða mjög margar
gerðir af helluborðum:
Glerhelluborð m/halogen,
helluborð 2, gas/2rafm. eða 4
rafm., hellur með eða án rofa.
Jólatilboð kr. 15.633,
á EM-600.04W
ZANUSSI og KUPPERBUSCH
steikar/bökunarofnar í fjölbreyttu
úrvali og litum. Með eða án
blæstri — með grillmótor
m/kjöthitamæli — m/katalískum
hreinsibúnaði og fl.
Jólatilboð kr. 37.116,-
á EEH-601WN
ZANUSSI örbylgjuofnar í
stærðum 14, 20 og 23 Itr. Ljós í
ofni, bylgjudeyfir, gefur frá sér
hljóðmerki.
Verð trá kr. 22.083,-
á MG-656.QW 14 Itr.
Verð er miðað við staðgreiðslu
Okkar frábæru greiðslukjör!
Útborgun aðeins 25%
og eftirstöðvar
á alit að 12 mánuöum.
Bjóðum upp á 5 gerðir þvottavéia.
700-800-1000-1100 sn./mín.
Með/án valrofa á
hitasparnaðarrofa. Hraðvél, sem
sparar orku, sápu og tíma.
Þvottavél með þurrkara og
rakaþéttingu. 3ja ára ábyrgð —
uppsetning.
Jólatilboð kr. 49.758,
á ZF-700XG
Þurrkarar 3 gerðir hefðbundnir með
rakaskynjara eða með rakaþéttingu
(barki óþarfurj.Hentar ofan á
þvottavélina.
Jólatilboð kr. 28.518,-
á ZD-100C
7 gerðir kæliskápa: 85,106,124,
185 cm hæð. Með eða án frystihólfi.
Sjálfv. afhríming. Hægt að snúa
hurðum. Eyðslugrannir — hljóðlátir.
Jólatilboð kr. 28.130,-
á Z-6141 140 I.
Bjóðum upp á 9 gerðir
kæli/frystiskápa. Mjög margir
möguleikarí stærðum: Hæð 122,
142,175 og 185 cm. Frystir alltaf
4 stjörnu. Sjón er sögu ríkari.
Fjarlægjum gamla skápinn.
Jólatilboð kr. 39.406,-
á Z-614/4 140/40 I.
Jólatilboð kr. 44.570,-
á Z-619/4 190/40 I.
Jóiatilboð kr. 49.989,-
á Z-618/8 180/80 I.
Frystiskápar: 50,125, 200 og 250 Itr.
Lokaðir með plastlokum —
eyðslugrannir — 4 stjörnur.
Jólatilboð kr. 50.980,-
á Z-620VF
ZANUSSI frystikistur 270 og 396 Itr.
Dönsk gæðavara. Mikil frystigeta.
Ljós í loki. Læsing. 4 stjörnur.
Verð kr. 41.060,- 270 I.
Verð kr. 49.276,- 396 I.
MIKIÐ ÚRVAL SMÁ-RAFMAGNSTÆKJA, HAGTÆTT VERÐ.
tii ki ifí nn nr.
LÆKJARGÖTU 22, HAFNARFIRÐI, SÍMI50022 OG BORGARTÚNI 26, REYKJAVÍK, SÍMI 620100
Desembervert li Storno forsímum
POSTUR OG SIMI
Söludeildir í Ármúla 27, Kirkjustræti, Kringlunni
og á póst- og símstöðvum um land allt
Verðið er hreint ótrúlegt.
Storno bílasími kr. 79.580 stgr. með vsk.
Storno burðarsími kr. 84.280 stgr. með vsk.
Bíla- og burðarsími kr. 94.760 stgr. með vsk.
Burðarsíma íylgir 4 Ah rafhlaða.
Takmarkað magn.