Morgunblaðið - 19.12.1991, Side 41

Morgunblaðið - 19.12.1991, Side 41
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 19. DESEMBER 1991 41 Noregur: Vonast eftir samkomulagi um Barentsnaf Ósló. Frá Jan Gunnar Furulyt fréttaritara Morgunblaðsins. NORÐMENN urðu á mánudag fyrstir vestrænna þjóða til að við- urkenna fullveldi Rússlands og norsk stjórnvöld vonast til að það verði til að flýta fyrir samkomu- lagi um hvernig skipta eigi Bar- entshafinu. Norðmenn hafa reynt að semja við Sovétríkin um skiptingu hafsins frá árinu 1974 en án árangurs. Mik- ilvægt er fyrir Norðmenn að viðræð- ur hefjist við rússnesk stjórnvöld um þetta mál sem fyrst og norska stjórn- in vonast til að samkomulag náist innan nokkurra mánaða. „Við vonum að viðræðurnar hefj- ist þegar utanríkisráðherra Rúss- lands, Andrej Kosyrev, kemur til Noregs í janúar,“ sagði blaðafulltrúi norska utanríkisráðuneytisins, Bjorn Blokhus, í samtali við norsku frétta- stofuna NTB. Viðurkenning Norðmanna á full- veldi Rússlands var fagnað í Moskvu. „Kosyrev utanríkisráðherra þakkaði okkur fyrir þetta sögulega skref og lét þau orð falla að Norðmenn hefðu með viðurkenningunni opnað dyr fyrir Rússa inn í Evrópu," sagði Dagfinn Stenseth, sendiherra Nor- egs í Moskvu. ----------------- Þotueldsneyti á þrotum í Sovét- ríkjunum: Aeroflot aflýsir áætl- unarflugi og flugherinn nær óvirkur Moskvu, Reuter. SOVÉSKA ríkisflugfélagið Aero- flot hefur fellt niður tugi áætlun- arferða að undanförnu og gert tugþúsundir farþega stranda- glópa vegna skorts á flugvélaelds- neyti, að sögn sovéska sjónvarps- ins. Það sagði einnig að sovéski flugherinn væri nánast óvirkur vegna skorts á þotueldsneyti. Að sögn sjónvarpsins eru nú ein- ungis til birgðir í Moskvu sem svara 10 daga notkun flugflota Aeroflots. í morgum borgum, svo sem Tas- hkent í Úzbekístan og Símferopol í Úkraínu, væri ekki til deigur dropi af flugvélaeldsneyti og jafnvel ann- ars konar eldsneyti einnig. Af þeim sökum væri ekki heldur hægt að aka væntanlegum farþegum úr borgun- um og út á flugvöll, að sögn sjón- varpsins. Birgðir væru auk þess á þrotum í víðar í Úkraínu og Kazak- hstan svo og í borgum í norðurhluta Kákasus. Sjónvarpið sagði að flugvélunum væri flogið með hálftóma tanka og væri oft millilent til þess að ná í dropa hér og þar. „Þær hoppa milli valla, stutta leið í einu, eins og engi- sprettur. Þær komast á áfangastað, eins og einn flugumferðarstjórinn orðaði það, með viljastyrknum ein- um,“ sagði fréttamaður stöðvarinn- ar. Sjónvarpið skellti skuldinni á olíu- hreinsistöðvar og sagði afköst þar fara minnkandi. Sum framleiðslu- svæðinu væru reyndar komin inn í vítahring því þau hefðu neyðst til að draga úr framleiðslu þar sem ekki væri hægt að fljúga starfs- mönnum til vinnslusvæðanna vegna skorts á flugvélaeldsneyti. í kjölfar fréttar sjónvarpsins sendi Aeroflot-flugfélagið frá sér yfirlýs- ingu í gær þar sem sagði að elds- neytisskorturinn hefði engin áhrif á ,j millilandaflug félagsins. r ---------------... Reuter Nýtt vopn gegn hraðakstri Lögreglumenn í Norðimbralandi í Norður-Englandi hafá’tekið í notkun nýtt vopn til þess að vinna gegn hraðakstri; eftirlík- ingar af lögreglubílum úr plasti sem komið verður fyrir meðfram vegum. Úr fjarlægð er ekki unnt að greina á milli þeirra og venju- legra lögreglubifreiða og því er talið að notkun plastbílanna geti orðið til þess að ná niður umferðarhraða. Enn óvissa um næstu fundalotu friðarviðræðna Israela og araba Jerúsalem, Washington. Reuter. TALSMAÐUR Yitzhaks Shamirs, forsætisráðherra Israels, sagði í gær að friðarviðræðum Israela og araba í Washington kynni að ljúka án þess að samkomulag næðist um hvar þeim yrði haldið áfram. ■ STOKKHÓLMUR - Sænska þingið hefur samþykkt að afnema hlutafjársjóði launþega, sem verkalýðshreyfingin hefur verið sökuð um að hafa notað til að ná völdum innan stærstu fyrirtækja Svíþjóðar. Skipuð var nefnd til að leggja starfsemi sjóðanna niður fyr- ir mitt árið 1944. ■ LONDON - Rússneskt verk- smiðjuskip varð fyrir brotsjó við vesturströnd Skotlands í gær með þeim afleiðingum að fjórir skip- verjar fórust. 51 skipveija var bjargað með þyrlum og nokkrir þeirra voru illa slasaðir. Friðarviðræðurnar í Washington hafa gengið hægt vegna ágreinings ísraela annars vegar og Sýrlend- inga, Líbana, Jórdana og Palestínu- manna hins vegar um tilhögun þeirra. ísraelska sendinefndin til- kynnti í fyrrinótt að hún færi frá ■ SAN DIEGO - Vegavinnu- menn hafa fundið hauskúpu áður óþekktrar spendýrategundar sem lifði fyrir 47 milljónum ára. Talið er að dýrið hafi verið fjór- fætt, meters langt og 60 sm á hæð. ■ ANTANANARIVO - Þjóð- stjórn verður mynduð á Madagask- ar á næstu dögum til að koma á umbótum á stjórnarskránni og kosningalöggjöfinni fyrir þing- og forsetakosningar, sem eiga að fara fram innan átján mánaða. Atvinnu- lífið í landinu hefur verið í lama- sessi í sjö mánuði vegna allsheijar- verkfalla og fjöldamótmæla. borginni eftir síðasta fundinn í þess- ari lotu, sem var í gær. í gærkvöldi var frá því skýrt að samkomulag hefði orðið um að hefja viðræðumar að nýju 7. janúar en samkomulag hefði ekki tekist um fundarstað. Samninganefndirnar hafa eink- um deilt um hvar viðræðurnar skuli fara fram. Arabar vilja að næsta lota verði í Washington en ísraelar að hún fari fram í Miðausturlönd- um, til dæmis á Kýpur, eða í Evr- ópu. Svo virðist sem George Bush sé óánægður með hversu illa samn- ingaumleitanirnar hafa gengið. „Við höfum verið að kýtast um fundarsali og borð og annað álíka og við viljum hvetja þá til að snúa sér að mikilvægu málunum," sagði talsmaður forsetans, Marlin Fitzw- ater, í gær. Fulltrúar ísraela og sameiginleg samninganefnd Jórd- ana og Palestínumanna gengu aldr- ei inn í fundarsalinn í Washington, heldur deildu þeir í ganginum um þá kröfu Palestínumanna að þeir fengju að ræða sérstaklega við ísra- ela án Jórdana. Því hafa ísraelar neitað þar sem þeir telja slíkt styrkja stöðu Palestínumanna í deil- unni um stofnun Palestínuríkis. Pólska þingið styð- ur Jan Olszewski ■ NIKOSÍA —Frelsissamtök Palestínu (PLO) fordæmdu á þriðjudag þá ákvörðun allsheijar- þings Sameinuðu þjóðanna að fella úr gildi ályktun frá 1947 þar sem sagt er að síonismi, sú stefna að sameina alla gyðinga, jafngildi kyn- þáttamismunun. Samtökin segja að ákvörðunin kunni að hindra frekari friðarviðræður araba við ísraela. Suður-Kórea sögð kjarnavopnalaus Seoul. Reuter. ROH Tae-woo, forseti Suður- Kóreu, lýsti því yfir í sjónvarps- ávarpi í gær að landið væri nú kjarnavopnalaust og hvatti Norð- ur-Kóreumenn til að hætta við áætlun sína um framleiðslu kjarnavopna. að Suður-Kóreumenn myndu standa við hann í hvívetna. Hann lagði ríka áherslu á að leysa þyrfti deiluna um kjarnavopnin sem allra fyrst til að tryggja frið í Kóreu, sem var skipt í tvö ríki árið 1945. Varsjá. Reuter. PÓLSKA þingið hafnaði í gær afsagnarbeiðni Jans Olszewski forsætisráðherra og fól honum að halda áfram stjórnarmyndun með því að samþykkja sérstaka traustsyfirlýsingu við hann. Olszewski gafst í fyrradag upp á að mynda ríkisstjórn og sagði Lech Walesa forseta hafna allri samvinnu. Baðst hann því lausnar sem þingið féllst síðar ekki á. Sam- þykkti það traustsyfirlýsingu með 214 atkvæðum gegn 132 en 73 þingmenn sátu hjá. Réð afstaða Bændaflokksins (PSL) úrslitum en hann lýsti óvænt stuðningi við Olszewski í umræðum um afsagn- arbeiðni hans. Óljóst þykir hvers kyns stjórn Olszewski reynir að mynda en hann sagði í gær að nauð- synlegt væri að hafa snör handtök við stjórnarmyndunina. Samþykkt þingsins er túlkuð sem áfall fyrir Walesa sem lagðist hafði gegn bæði skipan og 'stefnu fyrir- hugaðrar stjórnar Olszewski. Taldi forsetinn áform hans ganga í aber- högg við umbótastefnu Samstöðu. Líbýskir liðhlaupar undir- búa aðgerðir gegn Gaddafi Kairó. Reuter. FJÖGUR hundruð fyrrum liðsmenn hersveita Muammars Gaddafis Líbýuleiðtoga eru nú við æfingar í þjálfunarbúðum skammt frá Washington, höfuðborg Bandaríkjanna, þar sem þeir búa sig undir Yfirlýsing forsetans er fórmleg staðfesting á að Bandaríkjamenn hafi flutt öll kjarnavopn sín frá Suður-Kóreu. Roh sagði að Nörður- Kóreumenn hefðu nú enga „ástæðu eða afsökun" til að framleiða kjarnavopn eða hafna alþjóðlegu eftirliti með kjarn- orkustöðvum þeirra. Stjórnvöld í Suður-Kóreu telja að Norður-Kóreumenn stefni að því að framleiða kjarnavopn innan tveggja ára. Norður-Kóreustjórn hefur hins vegar vísað því á bug og sagt að eftirlit með kjarnorkutil- raunum þeirra komi ekki til greina fyrr en Bandaríkjamenn flytji kjarnavopn sín frá Suður-Kóreu. Kóreuríkin undirrituðu griða- samning í síðustu viku og Roh sagði að steypa fyrrum foringja sínum. Þessu er haldið fram í blaðinu al-Hayat sem út kemur í London og heimsótti blaðamaður þess þjálf- unarbúðirnar. Ræddi hann við liðs- menn sveitanna og sagði þá hafa þjónað í hersveitum Gaddafis í Chad en hlaupist undan merkjum og gengið til liðs við sveitir stjórnar- andstæðinga, Þjóðfrelsisfylkingu Líbýu, áður en þeir fóru til Banda- ríkjanna. „í upphafi fannst okkur það hálf- partinn niðurlægjandi að fara til Bandaríkjanna. Yið þekktum þau og stuðning þeirra við ísraela. En það viljum við að komi vel fram að hingað fórum við ekki fyrr en öll arabaríkin höfðu neitað að skjóta yfir okkur skjólshúsi,“ sagði Abd- ulla al-Sheikhi, ofursti, í viðtalinu, en ásamt honum eru 28 fyrrum foringjar í her Gaddafis í útlaga- sveitinni í Bandaríkjunum. Líbýsku hermennirnir komu til Bandaríkjanna í febrúar sl. og sögðu að þar hefði þeim staðið til reiðu allt sem þeir þyrftu án þess að til einhvers hefði verið ætlast í staðinn. „Biðji þeir okkur að grípa til hernaðaraðgerða [á hendur Gaddafi] gerum við það ekki nema það sé í samræmi við stefnu okkar og markmið," sagði al-Sheiki. Bandaríkjamenn og Bretar sögðu nýlega að líbýsk yfirvöld bæru ábyrgð á sprengingu um borð í bandarískri breiðþotu yfir bænum Lockerbie í Skotlandi fyrir þremur árum. Bandarískir embættismenn hafa ekki viljað útiloka að Líbýu- mönnum yrði refsað fyrir það með hernaðaraðgerð.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.