Morgunblaðið - 19.12.1991, Síða 4

Morgunblaðið - 19.12.1991, Síða 4
I 4 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 19. DESEMBER 1991 Sex strokufangar hafa verið sýknaðir Neituðu að hafa sammælst um strokið SEX UNGIR menn hafa í Sakadómi Reykjavíkur verið sýknaðir af ákæru um að hafa sammælst um strok úr Hegningarhúsinu við Skólavörðustíg í júnímánuði síðastliðnum. Samkvæmt hegningar- lögum varðar það eitt að strjúka úr refsivist því aðeins refsingu að fangar sammælist um strok. Slíkt strok getur varðað 6 mánaða til 3 ára fangelsi. Mennimir struku út um þak- glugga, sem spenntur hafði verið upp á Hegningarhúsinu við Skóla- vörðustíg að kvöldi laugardagsins 15. júní síðastliðinn. Dagana eftir handtók lögregla þá einn af öðrum en sá síðasti fannst 27. júní eftir að lýst hafði verið eftir honum í fjölmiðlum. Við yfirheyrslur neituðu allir mennirnir að hafa tekið sig saman um að stijúka. Einn þeirra játaði að liafa losað um rimlana fyrir þakglugga í klefa annars með ,jámi úr þrekhjóli" og hafí hann VEÐUR verið 2-3 daga að því. Sá sem var í klefanum kvaðst ekki hafa tekið eftir neinu. Eins og aðrir fangarn- ir, að þeim undanskildum sem los- aði um rimlana, kvaðst hann hafa komið að glugganum opnum og undir honum hafi staðið stóll uppi á borði. Þar og þá hafí hann ákveð- ið að stijúka. Engin vitni komu fram með framburð um að menn- irnir hefðu undirbúið strokið sam- eiginlega og vom þeir því sýknað- ir af ákæmm. Amgrímur ísberg sakadómari kvað upp dóminn. Drangavík dregin inn til Neskaupstaðar í gær. Morgunblaðið/Ágúst Blöndal Drangavík losnaði af eig- in rammleik af strandstað FISKISKIPIÐ Drangavík ST 71 strandaði út af Húsavík, suður af Glettinganesi, um klukkan 7.30 í gærmorgun. Skipið losnaði af strandstað af sjálfsdáðum, en stýrisbúnaður þess skemmdist talsvert og dró togarinn Hólmadr- angur Drangavík því til Neskaup- staðar í gær. Að sögn Gunnars Felixsonar, að- stoðarforstjóra Tryggingarmið- stöðvarinnar, sem tryggir Dranga- vík, skemmdist stýrishæll, stýrið og stýrisvél þegar skipið tók niðri. Skip- vetjum tókst að losa skipið, en stýr- ið festist í borði og varð því að fá aðstoð. Skemmdir Drangavíkur vom skoðaðar í gær af kafara og reynd- ust þær töluverðar, að sögn Gunn- ars. Var ákveðið að senda dráttar- bátinn Goðann til Neskaupstaðar til að sækja Drangavík og draga skipið til Reykjavíkur til viðgerðar. Ekki fengust upplýsingar um hvað olli strandinu, en Gunnar sagð- ist búast við að sjópróf yrðu í Reykja- vík. Að sögn lögreglumanns í Nes- kaupstað í gærkvöldi hafði þetta mál ekki komið til kasta lögreglunn- ar þar. Sakadómur Reykjavíkur: IDAGkl. 12.00 -t Heímild: VeOurstofa íslands (Byggt á vefturspá kl. 16.15 I gær) VEÐURHORFUR I DAG, 19. DESEMBER YFIRLIT: Milli Jan Mayen og N-Noregs er 955 mb lægð á hreyfingu norðnorðaustur en 968 mb lægð um 400 km vestur af Snæfellsnesi mun fara að þokast suðaustur.þegar líður á nóttina. Mjög vaxandi 972 mb lægð um 700 km suður af Vestmannaeyjum hreyfist austnorð- austur í átt til Færeyja. SPÁ: Norðaustanátt, nokkuð hvöss á Vestfjörðum og einnig framan af degi suðaustanlands. Snjókoma með morgninum á Suðausturlandi og éljagangur um landið norðanvert.- Á Suðvesturlandi verður aftur á móti þurrt að öllum líkindum. Frost um land allt, minnst þó við suðaust- urströndina. VEÐURHORFUR NÆSTU DAGA: HORFUR Á FÖSTUDAG: Austan- eða norðaustanátt, nokkuð hvöss á Vestfjörðum. Víðast dálítil snjókoma eða él, einna síst þó vestan- lands. Talsvert frost um land allt. HORFUR Á LAUGARDAG: Austan- eða suðaustanátt. Slydda eða rigning á Suðausturlandi, en líklega snjókoma einhvern tíma dags- ins í öðrum landshlutum. Hiti um frostmark austantil, en áfram talsvert frost vestantil á landinu. Svarsími Veðurstofu íslands - Veðurfregnir: 990600. TAKNi Heiðskirt Léttskyjað Hálfskýjað Skýjað Alskyjað y, Norðan, 4 vindstig: " Vindörin sýnir vind- stefnu og fjaðrirnar vindstyrk, heil fjöður er 2 vindstíg. / / / / / / / Rigning / / / * / * / * / * Slydda / * / * * * * * * * Snjókoma * * * 10 Hftastig: 10 gráður á Celsíus ý Skúrir * V E' = Þoka = Þokumóða ’ , ’ Suld OO Mistur —J- Skafrenningur j"7 Þrumuveður / VEÐUR VÍÐA UM HEIM kl. 12.00 í gær að ísl. tíma hiti veður Akureyri +5 snjóél Reykjavík +4 alskýjað Bergen 6 skýjaö Helsinki 2 þokumóða Kaupmannahöfn 5 rigning Narssarssuaq +13 skýjað Nuuk +10 snjókoma Ósió 1 skýjað Stokkhólmur 3 rigning Þórshöfn 5 skýjað Algarve 16 hefðskirt Amsterdam 7 skýjað Barcelona 9 mistur Berlín 5 rigning Chicago +9 heiðskírt Feneyjar 0 þokumóða Frankfurt 6 skúrásíð. klst. Glasgow 6 skýjað Hamborg 5 skúrásíð. klst. London 8 skýjað Los Angeles 14 þokumóða Lúxemborg 4 skýjað Madríd 4 lágþokublettir - Malaga Mallorca 15 vantar skýjað Montreal +13 snjókoma NewYork 2 heiðskírt Orlando 9 heiðskfrt París 9 skýjað Madeira 19 skýjað Róm 13 þokumóða Vín +3 trostrigning Washington Winnipeg +24 vantar snjókoma Húsnæðisstofnun ríkisins: Tekjur af greiðsluseðlum kringum 40 milljónir á ári SIGURÐUR E. Guðmundsson, forstjóri Húsnæðisstofnunar ríkis- ins, segir að stofnunin hafi haft fyllsta rétt til að innheimta kostn- að vegna greiðsluseðla frá Byggingarsjóði ríkisins og verka- manna. I grein eftir Ragnar Arnason sem birtist í Morgunblaðinu 13. desember segir að byrjað hafi verið að innheimta þennan kostnað um síðustu áramót og nam hann þá 120 krónum fyrir hvern greiðsluseðil. Síðastliðið haust hækkaði gjaldið í 150 kr. sem Ragnar segir vera 56% hækkun. Sigurður taldi líklegt að þessi liður skili alls um 40 milljónum kr. í tekjur á ári. „Okkur er það ekki skylt en okkur er það heimilt." Um ástæður þess að þessi kostnaðaríiður var tekinn inn á greiðsluseðlana um síðustu áramót sagði Sigurður: „Ástæðan er einfaldlega sú að þessari stofn- un eins og öðrum er gert að spjara sig betur og ná inn tekjum fyrir sína starfsemi. Þetta er lítið gjald en það skilar inn talsverðum fjár- munum því gjaldendur eru svo margir. Það þarf líka að skoða hvað samskonar gjaldtaka gefur bönkum og sparisjóðum," sagði Sigurður. Sigurður sagði líklegt að þ’essi einstaki liður skili um 40 milljón- um kr. í tekjur á ársgrundvelli- Gjaldið gerði þó ekki meira en að standa undir kostnaði við kaup á seðlum, prentun á þeim og póst- sendingu. Sigurður sagði að gjaldtakan byggðist á gjaldskrá Landsbanka íslands. Hann sagði að hækkunin hefði ekki verið að frumkvæði Húsnæðisstofnunar heldur í sam- ræmi við þær breytingar sem voru gerðar á gjaldskrá Landsbankans. „Við tökum ekki annað eða meira gjald en Landsbankinn sem við miðum okkur við því að veðdeildin er okkar verktaki," sagði Sigurð- ur. Hann sagði að þessi upphæð rynni beint inn í byggingarsjóðina. Veðdeildin sendi greiðsluseðlana út í sínu nafni en innheimti kostn- að á grundvelli gjaldskrár Lands- bankans, í þeim tilfellum sem það er ákveðið af Húsnæðisstofnun. Aðspurður um hvort Húsnæðis- stofnun væri skylt að starfa á þeim grundvelli sagði Sigurður: Lánskjaravísitala og vextir á niðurleið LÆKKUN á lánskjaravísitölu er nú fyrirsjáanleg annan mánuðinn í röð. Framfærsluvísitalan lækkaði um 0,1% í nóvember meðan bygginga- og launavísitölur stóðu í stað. Jafnframt er líklegt að nafnvaxtalækkun verði ákveðin á fundi bankanna um eða fyrir helgina, að sögn Arnórs Sighvatssonar í Seðlabanka íslands. Á tímabili í sumar voru óverðtryggð útlán bankanna þeim mun óhag- stæðari en verðtryggð og olli þetta taprekstri í mörgum þeirra og í kjölfar þess voru nafnvextir hækkaðir. Að sögn Arnórs hækkuðu bank- arnir nafnvextina til að ná aftur því sem þeir töpuðu í sumar, en nú séu forsendur hins vegar ekki lengur fyrir hendi til að halda hinu háa vaxtastigi. Lækkun lánskjara- vísitölu nú komi einnig til að hafa einhver áhrif í átt til lækkunar nafnvaxta.
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.