Morgunblaðið - 19.12.1991, Blaðsíða 69

Morgunblaðið - 19.12.1991, Blaðsíða 69
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 19. DESEMBER 1991 69 Kveðjuorð: Gísli Vilmundarson máltæki. Guðrún fór hins vegar til Egyptalands sl. haust, skoðaði pýramídana, Sfinxinn og undur eyðimerkurinnar. E.t.v. var það lífs- þorstinn sem knúði hana til þeirrar ferðar, hún vildi ekki missa af því að ganga um á bökkum Nílar. Fljót- lega eftir að hún kom heim gerði sjúkdómurinn atlögu á ný og nú í síðasta sinn. Við erum þakklát fyrir að hafa átt Guðrúnu Þorbergsdóttur að vinnufélaga öll þessi ár. Við munum búa lengi að því sem hún veitti okkur. Hún kenndi okkur ekki ein- ungis dans. Hún verður okkur alltaf fyrirmynd í því hvernig taka ber andstreymi lífsins, hvernig æðru- leysi, jákvæður hugur og lífslöngun gefur mönnum styrk og reisn hvað sem á móti blæs. Við getum treyst því að lífsgleðin og alúðin sem hún gaf börnum sínum tveimur verði þeim giftudijúgt veganesti í lífinu. Aðstandendum öllum vottum við dýpstu samúð. Samstarfsfólk á Orkustofnun Við viljum með fáum orðum minnast vinkonu okkar Guðrúnar Margrétar. Kynni okkar hófust fyr- ir all mörgum árum og þá í gegnum dansinn sem var eitt af sameigin- legum áhugamálum okkar. En í blóma lífsins veiktist hún. Það hlýtur óneitanlega að vera erfitt fyrir unga konu að takast á við sjúkdóm þann sem að lokum sigraði hana. En hún var ótrauð í baráttunni og með lífsgleði sinni og þrautseigju leit svo út um tíma að hún myndi hafa betur. Hún mætti í dansinn þegar hún gat, var hress og kát og lét engan bilbug á sér finna. Nú er horfin á braut góður félagi og frábær dansari, en minningin um hana mun lifa. Með þessum orðum viljum við votta Páli, börnunum, svo og öðrum vandamönnum okkar innilegustu samúðarkveðjur. Örvar, Ólöf og Ragnheiður. 2. desember lést ástkær afi minn og vinur, Gísli Vilmundarson, eftir þriggja mánaða baráttu við hræði- legan sjúkdóm. Ég á mjög erfitt með að trúa því að hann sé farinn frá okkur. Söknuðurinn er mikill. Hann afi minn var sá maður er ég leit mest upp til af öllum mönnum. Ég hlustaði vel á allt sem hann sagði mér til, því það reyndist alltaf vera rétt. Afi var sterkur persónu- leiki. Hann var mjög rólegur og hógvær maður og féll aldrei verk úr hendi. Aldrei heyrði ég hann kvarta yfir nokkrum hlut eða tala illa um nokkurn mann. Afi minn var spar á hrósið, en þegar hann hrósaði, þá fannst manni sjálfum það eiga fyllilega við, en ef eitthvað bjátaði á, þá leit hann alltaf á björtu hliðarnar. Ég tel það vera mikil forréttindi fyrir mig að hafa átt hann afa að vini í 17 ár. Ég vildi óska þess að þau hefðu verið fleiri. Afi er svo stór hluti af björtum minningum mínum úr Brekkuselinu hjá ömmu Siggu, Guðnýju frænku og kettin- um Bjarti. Brekkuselið verður aldr- ei það sama á ný. Þegar afi veiktist, trúði því eng- inn að hann ætti eftir að fara frá okkur svo fljótt. Hann sem hafði alltaf verið svo sterkur og hraust- ur. Ég trúði því alltaf að hann mundi læknast og gat aldrei horfst í augu við veikindi hans. Það var ekki fyrr en ég sat hjá honum í síðasta sinn á spítalanum rétt áður en hann dó að ég gerði mér grein fyrir hversu veikur hann var. Það er gott að hann fékk hvíldina því hann var orðinn svo kvalinn, hann hefði heldur ekki viljað lifa áfram án þess að geta bjargað sér sjálfur. Þrátt fyrir söknuðinn líður mér betur að vita af honum þar sem honum líður vel. Það er mér léttir að hafa getað kvatt hann svona vel. Láttu nú ljósið þitt loga við rúmið mitt. Hafðu þar sess og sæti Signaði í Jesús mæti. Ég bið góðan Guð að gefa henni ömmu minni styrk í sorginni. Birna Bragadóttir Birting afmælis- og minningargreina Morgunblaðið tekur afmæl- is- og minningargreinar til birtingar endurgjaldslaust. Tekið er við greinum á rit- stjórn blaðsins á 2. hæð í Aðal- stræti 6, Reykjavík og á skrif- stofu blaðsins í Hafnarstræti 85, Akureyri. i ! I I 8 I i 1 / | f 8 I | \ 1 / I I 1 I I \ . \ / I v i, v / I v / v y _V. y j JL \-1 y sprengiiilbod Útsölustaður: Bílaborgarhúsið, Fosshálsi 1. Til styrktar íþróttafélagi fatlaðra Útsölustaður: Við Fríkirkjuna í Reykjavík Til styrktar Safnaðarheimili Fríkirkjunnar Verðlisti: Almennt verð 1990 Tilboð 1991: 126—150 m +30% 1.850 151—175 m 3*«25 +30% 2.320 176—200 m +30% 2.970 201—250 m &rf$5 +30% 3.630 Aðeins 1. flokks Normansþinur Styðjum gott málefíii L LUTHA skfðasamfestingar Lutha er finnskt gæðamerki sem hefur verið leiðandi í skíðafatnaði í mörg ár. Lutha skíðasamfestingar eru einstaklega þjálir og eru úr microfiber efni, sem hef- ur þann eiginleika að vera vatnsfráhrindandi, vind- helt, hlýtt og jafnframt hleypir það frá sér raka. V/SA® Margar gerðir • Margar stærðir • Margir litir ] Nýtt kortatímabil er hafið. 1 JE„ Opið laugardag kl. 10-22 og sunnudag kl. 13-18. »hUNNMl^P SPORTBÚÐIN Ármúla 40, sími 813555
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.