Morgunblaðið - 08.05.1997, Side 13
MORGUNBLAÐIÐ
FIMMTUDAGUR 8. MAÍ 1997 13
FRÉTTIR
Ályktun aðalfundar VSÍ
Spomað verði við er-
lendri skuldasöfnun
FYRIRSJÁANLEGUR er vaxandi
viðskiptahalli vegna aukinnar
einkaneyslu og almennrar fjárfest-
ingar; það er viðfangsefni stjórn-
valda að sporna við erlendri
skuldasöfnun og hættu á vaxandi
verðbólgu með aðhaldi í ríkisíjár-
málum og örvun sparnaðar al-
mennings, segir m.a. í ályktun
aðalfundar Vinnuveitendasam-
bands íslands.
í ályktuninni segir einnig að eitt
mikilvægasta verkefni stjórnenda
atvinnulífsins sé að draga úr fram-
leiðslukostnaði til að vega á móti
hækkun launa og séu nýjar reglur
um takmarkanir á yfirvinnu sér-
stakt tilefni til að brjótast út úr
viðjum vanans og endurskipu-
leggja störf þannig að draga megi
úr yfirvinnu.
Einnig segir að vegna launa-
hækkana ársins sem séu tvöfaldar
miðað við það sem gerist í ná-
grannalöndum sé hætta á að sam-
keppnisstaða atvinnulífsins versni
og verðbólga aukist ef ekki tekst
að auka framleiðni umfram það
sem öðrum þjóðum tekst. Um
nýgerða kjarasamninga segir að
stigið sé fyrsta skrefið til að þróa
launasamninga úr fari miðstýrðra
kjarasamninga yfir í bein sam-
skipti starfsfólks og stjórnenda.
„Með þessu er stigið stórt skref
til að auðvelda samskipti á vinnu-
markaði og draga úr vægi heildar-
samninga sem lamað geta efna-
hagslífið um lengri eða skemmri
tíma. Jafnframt er skapaður far-
vegur fyrir samvinnu starfsfólks
og stjórnenda um breytingar til
að auka framleiðni, báðum aðilum
til hagsbóta. Aðalfundurinn fagnar
þessari þróun og hvetur til þess
að yfirstandandi samningstímabil
verði nýtt sem best til að þroska
og þróa slíkt samstarf á vinnustöð-
um.
Aðalfundur VSÍ minnir á að
skipulag og starfsreglur almennu
lífeyrissjóðanna eru hluti almennra
kjarasamninga. Lífeyrissjóðakerfið
hefur verið byggt upp í góðri sátt
samtaka á vinnumarkaði. Rekstur
og reglur sjóðanna hafa verið í
stöðugri endurskoðun með það að
markmiði að treysta stöðu þeirra
og getu til að greiða sjóðfélögum
þann lífeyri sem þeim hefur verið
heitið fyrir samningsbundið iðgjald
sitt og atvinnurekenda. VSÍ hvetur
til samráðs og sátta um lífeyris-
málin og varar við hvers kyns ein-
hliða íhlutun ríkisvaldsins um mál-
efni sjóðanna.“
Bæversk þing-
nefnd gefur fé
til skógræktar
FIMMTÁN manna bæversk
þingnefnd, sem var á fjögurra
daga ferð á íslandi, gaf á þriðju-
dag Skógrækt ríkisins peninga,
sem ætlaðir eru til að gróður-
setja tré. Henning Kaul, formað-
ur umhverfismálanefndar bæ-
verska landsþingsins, afhenti
Árna Bragasyni, forstöðumanni
Rannsóknastöðvar Skógræktar
ríkisins að Mógilsá, gjöfina,
ávísun að upphæð 80 þúsund
krónur, fyrir utan þýska sendi-
ráðið við Laufásveg.
Nefndin, sem er skipuð full-
trúum CSU, hins bæverska
systurflokks kristilegra demó-
krata, jafnaðarmanna og græn-
ingja, var hér á ferð til að afla
upplýsinga um stjórnmál á ís-
landi, en þó einkum umhverfis-
og orkumál. Nefndarmenn fóru
meðal annars í Alþingi, um-
hverfisráðuneytið, Hitaveitu
Reykjavíkur, Skógrækt ríkisins
og rannsóknastöðina að Mó-
gilsá.
Hugmyndin að því að gefa
skógræktinni fé kviknaði hjá
Henning Kaul þegar nefndar-
menn fóru í Bláa lónið og rák-
ust þar á söfnunarbauk með
áskorun á ensku um að skilja
eftir tré á íslandi. Hver nefndar-
maður ákvað að leggja sitt af
mörkum og hringdi Kaul síðan
í umhverfisráðherra Bæjara-
lands, sem féllst á að leggja
fram jafn háa upphæð og nefnd-
in hygðist gefa úr eigin vasa.
Suðurstrandarvegur
Miklir möguleik-
ar í atvinnu- og
öryggismálum
ARNI Johnsen alþingismaður, sem
verið hefur hvatamaður að því að
svokallaður Suðurstrandarvegur
verði lagður milli Grindavíkur og
Þorlákshafnar, segir að vegurinn
myndi gjörbreyta allri aðstöðu og
nýtingu á Suðurlandi, Reykjanesi
og höfðuðborgarsvæðinu. Vegur-
inn myndi skapa mikla möguleika
í atvinnumálum, t.d. hvað varðar
sjávarútveg og ferðaþjónustu, en
ekki síst hvað varðar öryggisþætti.
„Það er af þessum ástæðum
mjög brýnt held ég og tímabært
að koma þessum vegi á. Þar sem
er byijað að skoða vegarstæðið
má áætla að svona vegur kosti
700-800 milljónir króna, en þetta
er á milli 60-70 kílómetrar, og
hann er hagkvæmur í byggingu
miðað við lengd á verulegum kafla
að minnsta kosti. Ég hef lagt mikla
áherslu á að allri þessari vinnu
verði flýtt og nú er búið að sam-
þykkja þennan veg sem stofn-
braut. Hann gæti flokkast undir
stórverkefni, þannig að um leið
og til að mynda yrði efnt til sér-
stakra átaksverkefna í vegagerð-
inni, sem vonandi líður fljótt að,
er þessi vegur eitt að því sem er
forgangsverkefni að mínu mati,“
segir Árni.
Hann bendir á að allur þorri
ferðamanna hér á landi, bæði inn-
lendra og erlendra, myndi fara
þennan veg, og því sé ekki um að
ræða neina þrönga hagsmuni í
þessu sambandi heldur alhliða
hagsmuni á öllum sviðum.
Framkvæmdasljóri Póstdreifingar ehf.
Segir ráðherra
beita blekkingum
PÓSTDREIFING ehf. hefur sent
samgöngunefnd Alþingis umsögn
um frumvarp samgönguráðherra
um póstþjónustu, en að sögn Jóns
Jarls Þorgrímssonar, fram-
kvæmdastjóra Póstdreifingar ehf.,
er ráðherra með frumvarpinu að
reyna að útvíkka einkaleyfi ríkis-
ins til póstþjónustu með blekking-
um og telur Jón Jarl ráðherrann
auk þess sýna tilburði til að kúga
Póstdreifingu ehf. „Hann reyndi
þetta líka fyrir áramótin en ný lög
tóku gildi í byrjun janúar, og þá
hafnaði samgöngunefnd, en nú
reynir hann þettá aftur,“ segir Jón
Jarl.
„Undir einkaleyfishattinum í dag
er nafnapóstur í lokuðum umslög-
um en ekki í lokuðum umslögum
eins og t.d. kort og markhópasend-
ingar. Með þessum lögum ætlar
samgönguráðherra að færa mörkin
þannig að allur póstur á nafn, op-
inn eða lokaður, undir 350 grömm-
um verði innan einkaleyfisins," seg-
ir Jón Jarl.
Hann segir að Halldór Blöndal
samgönguráðherra skýli sér á bak
við það að frumvarpið verði að
verða að lögum vegna ákvæða í
EES-samningnum, en það sé hins
vegar rangt. Þar sé aðeins um að
ræða ályktun sem sé viðmiðunar-
mörk fyrir þau lönd þar sem frelsi
í póstdreifingu sé mjög takmarkað.
„Síðan eru önnur lönd eins og
Svíþjóð, Finnland og fleiri lönd þar
sem frelsið er miklu meira og jafn-
vel búið að afnema einkaréttinn og
dytti ekki í hug að setja þetta í lög
þótt um það komi einhver ályktun.
Halldór Blöndal ætlar að reyna, vil
ég meina, að gabba þingið. Hann
er að halda því fram að hann verði
að fá samþykkt til að uppfylla samn-
ingana, en það er bara ekki rétt,“
sagði Jón Jarl.