Morgunblaðið - 08.05.1997, Side 14
14 FIMMTUDAGUR 8. MAÍ 1997
AKUREYRI
MORGUNBLAÐIÐ
Háahlíð, eignarhaldsfélag Vífilfells, eignast meirihluta í Víking hf.
Aukin umsvif og starfsemi
og breyttar áherslur nyrðra
HÁAHLÍÐ ehf. í Reykjavík,
eignarhaldsfélag í eigu Vífilfells,
hefur keypt meirihluta í Víking
hf. á Akureyri og á nú 80% hlut
í félaginu. Vífilfell keypti hlut
Kaupfélags Eyfirðinga sem átti
helming fyrirtækisins og hluta af
hlut Valbæjar. Háahlíð og Val-
bær, hluthafar í Víking, hafa gert
með sér samkomulag um að efla
starfsemi félagsins á Akureyri.
Vífilfell mun færa sig af bjór-
markaðnum og helga starfsemina
afurðum Coca-Cola fyrirtækisins
á drykkjarvörumarkaði. Baldvin
Valdemarsson framkvæmdastjóri
Víking sagði að fyrirtækið myndi
taka við þeim bjórtegundum sem
Vífilfell hafði umboð fyrir, Pripps
og Foster, og myndi framleiðsla
EIN umsókn barst um stöðu lyf-
læknis og hjartasérfræðings á lyf-
lækningadeild Fjórðungssjúkra-
hússins á Akureyri en umsóknar-
frestur rann út um mánaðamótin.
Umsóknin er frá Hirti Oddsyni,
lyflækni og hjartasérfræðingi, sem
nú starfar í Svíþjóð. Hjörtur hefur
auk þess starfað við afleysingar á
FSA.
Aðeins einn hjartasérfræðingur
er starfandi á lyflækningadeild og
segir Halldór Jónsson, fram-
kvæmdastjóri FSA, að álagið á
deildinni hafi verið gífurlegt. „Það
liggur fyrir að verkefni á þessu
sviði á þessu landssvæði eru meiri
en svo að einn maður geti annað
því. Því er jákvætt á allan hátt að
geta bætt við stöðu hér, þannig
þeirra verða í verksmiðjunni á
Akureyri í framtíðinni.
Dreifing og birgðahald Vífil-
fells og Víking verður að hluta
til samnýtt samkvæmt samningi
þar um. Starfsemi Vífilfells á
Akureyri verður færð í húsnæði
Víking og er gert ráð fyrir að
bæta þurfi við húsnæði verksmiðj-
unnar í kjölfarið, en rekstur félag-
anna tveggja verður aðskilinn.
Aukin starfsemi
og umsvif
Baldvin sagði að stofnuð yrði
sérstök sölu- og þjónustuskrif-
stofa í Reykjavík og væri vissu-
lega eftirsjá að góðum samstarfs-
fyrirtækjum syðra, Íslensk-Amer-
íska og Allied Domecq, sem séð
að fólk þurfi ekki að leita annað
og eða bíða of lengi,“ segir Hall-
dór. Þjónustusvæði FSA á sér-
greinasviði er Norðurland allt og
Austurland að hluta.
Við lokaafgreiðslu fjárlaga í lok
síðasta árs, var launaliður FSA
hækkaður um 7 milljónir króna frá
því sem ráðgert var í frumvarpinu.
Innan spítalans var talið forgangs-
verkefni að ráða annan hjarta-
lækni.
Umsóknir um stöður lækna
þurfa að fara í mat hjá sérstakri
stöðunefnd samkvæmt lögum.
Einnig er fjailað um umsóknina
hjá stöðunefnd læknaráðs FSA og
læknaráði, áður en málið kemur
inn á borð stjórnar spítalans til
endanlegrar afgreiðslu.
hefðu um dreifingu fyrir Víking á
svæðinu.
„Þessar breytingar skapa
möguleika á stækkun verksmiðj-
unnar, aukinni framleiðslu og
umsvifum,“ sagði Baldvin. „Sam-
starfið mun styrkja bæði fyrir-
tækin á drykkjarvörumarkaði.
Þetta er mjög jákvæð þróun fyrir
verksmiðjuna, þannig að ég er
mjög ánægður með þessi við-
skipti."
Baldvin vildi ekki gefa upp á
hvaða verði Háahlíð keypti hluta-
bréf i Víking, en sagðist vera
ánægður með það.
Hluthafar eru sammála um að
opna félagið og að hluti þess verði
seldur á almennum markaði þegar
réttar aðstæður séu til þess.
LISTAHÁTÍÐ barnanna hefur
staðið yfir á Akureyri síðustu
daga, en henni lýkur næstkom-
andi sunnudag. Alls taka börn
af þrettán leikskólum á Akur-
eyri og leikskólanum Álfasteini
í Glæsibæjarhreppi þátt í hátíð-
inni. Tilgangur hennar er, að
því er fram kom í setningar-
ræðu Guðnýjar Önnu Annas-
dóttur, forstöðumanns leikskól-
Magnús Gauti Gautason,
kaupfélagsstjóri KEA, sagði að
þijár ástæður hafi skipt mestu
máli þegar ákveðið var að selja
hlut félagsins í Víking hf. „Bjór-
framleiðsla er nokkuð ólík þeirri
starfsemi sem við leggjum meg-
ináherslu á og t.d. eru dreifingar-
kerfið og markaðurinn sér á parti.
í öðru lagi fengum við ágætis til-
boð í hlutinn og gátum því vel
hugsað okkur að selja þess vegna.
Þá álítum við að þessi kaupandi
sé heppilegur fyrir fyrirtækið og
Eyjafjarðarsvæðið þar sem hann
hefur hugsað sér að auka umsvif-
in.
Við sjáum því fyrir okkur að
fyrirtækið muni eflast og dafna
í þeirra höndum hér á Akureyri.“
ans Ársólar í Deiglunni við
setningu hátíðarinnar nýlega,
að kynna bæjarbúum hið mikla
skapandi starf sem fram fer á
leikskólunum. Myndir og önnur
verk eftir börnin verða til
sýnis í Deiglunni næstu daga og
einnig verða sýningar einstakra
leikskóla á ýmsum stöðum,
svo sem í kaffihúsum og versl-
unum.
Messur
AKUREYRARKIRKJA: Guð-
þsjónusta kl. 14. Kór aldraðra
syngur undir stjórn Sigríðar
Schiöth. Eldri borgurum boðið
til kaffidrykkju í safnaðar-
heimili eftir messu. Ath.
kirkjubíllinn, sem er í Víði-
lundi kl. 13.40 og í hlíð kl.
13.45. Fer til baka kl. 16.
GLERÁRKIRKJA: Messa
verður í kirkjunni, uppstign-
ingadag kl. 14. KVenfélagið
Baldursbrá annast kaffiveit-
ingar í safnaðarsal kirkjunnar
að athöfn lokinni. Félagar úr
Kór Gelrárkirkju syngja
nokkur lög. Eldri borgarar
sérstaklega hvattir til að
HVÍTASUNNUKIRKJAN:
Almenn samkoma, uppstign-
ingardag 8. maí, kl. 20.30.
ÓLAFSFJARÐAR-
KIRKJA: Messa kl. 14. upp-
stigningardag, kirkjudagur
eldri borgara. Kirkjukaffi í
húsi eldri borgara, Ólafsfirði,
eftir messu til ijáimflunar fyr-
ir starf eldri borgara.
Málstofa í
heimspeki
PÁLL Skúlason, heimspek-
ingur og nýkjörinn rektor
Háskóla Islands, heldur fyrir-
lestra og stýrir málstofu um
heimspeki, rtáttúru tækni og
menningu á vegum Félags
áhugafólks um heimspeki á
Akureyri. Málstofan fer fram
í Deiglunni á laugardag, 10.
maí, og sunnudaginn 11. maí.
Á laugardag kl. 16 flytur
Páll fyrirlestur um heimspeki,
náttúru og menningu og á
sama tíma á sunnudag fj allar
hann um spurninguna Hvað
er tækni? Umvæður um efni
fyrirlestranna fara fram að
þeim loknum.
Harmoníku-
leikur á
Norðurlandi
FINNSKI harmoníkuleikarinn
Tatu Kantomaa heldur harm-
oníkutónleika í samkomuhúsi
Húsavíkur firnmtudaginn 8.
maí kl. 2.30. í félagsheimilinu
Hnitbjörgum, Raufarhöfn,
föstudaginn 9. maí kl. 20.30.
Á Breiðumýri í Reykjadal
laugardaginn 10. maí kl.
20.30 og í Safnaðarheimili
Glerárkirkju, Akureyri,
sunnudaginn 11. maí kl. 16.
HRÍSEYJARHREPPUR
Grunnskóli Hríseyjar
Skólastjóri
Laus er staða skólastjóra Grunnskóla Hrfseyjar frá og með 1. ágúst nk.
Skólastjóri Tónlistarskóla Hríseyjar
Laus er staða skólastjóra Tónlistarskóla Hríseyjar frá og með 1. ágúst
nk.
Kennarar
Lausar eru kennarastöður við Grunnskólann í Hrísey. Um er að ræða
almenna kennslu yngri barna og kennslu á unglingastigi 7.-10.bekk.
Æskilegar kennslugreinar á unglingastigi eru danska, stærðfræði,
raungreinar og íslenska.
Leikskólakennari
Laus er staða leikskólakennara (leikskólastjóra) við leikskólann
Smábæ í Hrísey.
í boði eru flutningsstyrkur og aðstoð við að útvega húsnæði á
hagstæðu verði.
Allar nánari upplýsingar veita sveitastjóri í síma 466 1762, formaður
skólanefndar í síma 466 1770 og skólastjóri í síma 466 1763.
Umsóknarfrestur er til 15.maí nk.
Grunnskólinn í Hrísey er vel búinn einsetinn skóli, með aðstöðu til mynd-, hand- og
heimilisfræðikennslu. Þar er góð starfsaðstaða kennara. Nemendur í skólanum eru
40. Leikskólinn Smábær er í tveimur deildum f.h. og e.h. með u.þ.b. 20 börnum.
Fjórðungssjúkrahúsið á Akureyri
Ein umsókn
um stöðu hjarta
sérfræðings
LIFANDI listaverk, stöllurnar Auður Ásta og Marta sem eru á
Flúðum tóku að sér að mála andlit Elvu og tókst það sérlega vel.
Listahátíð barnanna
Morgunblaðið/Margrét Þóra
BÖRNIN fylgdust spennt með setningarathöfninni í Deiglunni í gær.