Morgunblaðið - 08.05.1997, Blaðsíða 28
OP -»
28 FIMMTUDAGUR 8. MAÍ 1997
MORGUNBLAÐIÐ
ÚŒípiff er kröftugur drykkur sem býr yfir
miklu og hressandi ávaxtabragði og er ríkur
að kalki og C-vítamíni. Uppistaðan er mysa
en í henni eru öll helstu bætiefni mjólkurinnar.
Garpw er góður á íþróttaæfinguna,
í skólann, fjallið, bíltúrinn og bústaðinn.
FAÐU ÞER EINN - DAGLEGA
Bæjarskrifstofur
Garðabæjar ö
Bæjarskrifstofur Garðabæjar hafa opnað í nýju
húsnæði við Garðatorg.
A hinum nýju skrifstofum sameinast öll stjómsýsla
bæjarins, en þar er um að ræða eftirfarandi
meginsvið:
Félags- og heilbrigðissvið
Fjármála- og stjómsýslusvið
Fræðslu- og menningarsvið
Tækni- og umhverfissvið
Vegna verkfalls símvirkja hjá Pósti og síma hf.
ma fyrst um sinn búast við að það getí verið
erfiðleikum háð að ná símasambandi við
skrifstofuna.
Bæjarstjóri
LISTIR__
Operuvandi
í Madríd
TEATRO Real í Madríd, sem átti
að opna að nýju sem óperuhús í
haust, 72 árum eftir að það gegndi
því hlutverki síðast, stendur nú
frammi fyrir enn einum vandanum
í kjölfar uppsagnar listræns stjórn-
anda þess, Stéphane Lissners. Hann
hafði aðeins starfað i nokkra mán-
uði en hafði gert samning við húsið
út árið 2002. Lissner var um átta
ára skeið stjórnandi Théatre du
Chatelet í París og hefur hann neit-
að að gefa upp ástæður brottfarar
sinnar.
Þegar Lissner tók við Teatro
Real í september sl. var ætlunin að
endurreisa húsið sem eitt af bestu
óperuhúsum heims. Áætlun hans
hljóðaði upp á níutíu sýningar á
fyrsta sýningartímabilinu, þar á
meðal uppsetningu á Parsifal, sem
Placido Domingo hefur verið ráðinn
til að synguja aðalhlutverkið í. Auk
þess má nefnda Porgy og Bess eft-
ir Gerswin, La vida breve eftir Falla
og Peter Grimes eftir Britten.
Undanfarin átta ár hefur verið
unnið að endurbótum á húsinu og
er gert ráð fyrir að það kosti um
10 milljarða ísl. króna en árlegir
ríkisstyrkir munu nema um 1 millj-
arði ísl. króna. Hins vegar kom
bakslag í seglin þegar í ljós kom
upp úr áramótum að ekki höfðu
verið gerðar neinar ráðstafanir til
að ráða hljómsveit til hússins. Þá
höfðu margir áhyggjur af áætlun-
um Lissners um að setja upp nú-
tímaverk og þvarr traust manna á
Lissner. Hann lét sig hverfa, skýr-
ingarlaust og í kjölfarið hafa fylgt
margir þeirra sem hann hafði ráðið
til að koma fram á fyrsta leikárinu,
m.a. Lorin Maazel, Réne Jacobs og
Eva Wagner. Domingo hyggst hins
vegar standa við samning sinn.
Morgunblaðið/Þórarinn Stefánsson.
JOHANN P. Tannen, útgáfustjóri Die Horen, f.v. og
Wolfgang Schiffer þýðandi.
Býr íslending-
ur hér? gefin
út í Þýskalandi
Hannover. Morgunblaðið
SAGA fanga númer 68138 er saga
bjartsýnismannsins sem hélt út í
heim til að afla sér þekkingar en
lenti í klónum á grimmum
Gestapo-mönnum. Saga mannsins
sem hataði Þýskaland svo mikið
að hann gat ekki einu sinni hugsað
sér að heyra ljóð lesin á þýsku
hefur nú verið þýdd á það mál.
Sagan er byggð á minningum Leifs
Miillers kaupmannssonar frá
Reykjavík og ber titilinn Býr ís-
lendingur hér (Wohnt hier ein
Islánder?). Garðar Sverrisson
skráði söguna sem kom út hjá Ið-
unni árið 1988. Franz Gíslason og
Wolfgang Schiffer þýddu á þýsku.
Útgáfufyrrtækið Edition die Horen
gefur söguna út innbundna og var
þýðingin kynnt á sérstakri bókar-
kynningu á fundi Þýsk-íslenska
verslunarráðsins sem fram fór í
Bremerhaven 24. apríl.
Nákvæmlega tveimur árum áð-
ur, 24. apríl 1995, var leikverk
byggt á sögunni sett upp í Gorki-
leikhúsinu í Berlín. Sviðsverkið
vakti athygli almennings sem og
blaðamanna en á því ári voru liðin
50 ár frá stríðslokum. Leifur
Miiller var leystur úr haldi 15.
mars 1945 eftir fræga björgunar-
aðgerð sænska Rauða krossins.
Ingimundur Sigfússon sendiherra
í Bonn sagði m.a. við frumsýningu
Ieikverksins og ítrekaði orð sín við
útkomu bókarinnar: „Það sem ger-
ir ævisögu Leifs Mullers svo áhrifa-
mikla er ekki aðeins frásögnin af
verunni í fangabúðunum Sachsen-
hausen, heldur einnig viðbrögð ís-
lendinga er hann snéri aftur heim
þegar friður komst á.“ Ingimundur
sagði einnig að „bilið á milli sið-
menningar og siðleysis er stutt ...
Með minningum getum við komið
í veg fyrir að sagan endurtaki sig,
einvern tímann, einhvers staðar.“
Auk þess að gefa út bækur
stendur útgáfufyrirtækið Die Hor-
en aðallega að útgáfu samnefnds
tímarits um bókmenntir og listir
og er í mörgu sambærilegt við
Tímarit Máls og menningar. Fyrir-
tækið leggur aðallega áherslu á
að gefa út erlendar bókmenntir og
verk lítið þekktra eða gleymdra
þýskra höfunda. Tímartið De Hor-
en nýtur mikillar virðingar og það
sem birtist á síðum þess vekur jafn-
an mikla athygli. Nýjasta útgáfa
tímaritsins fjallar um norrænan
samtímaskáldskap og er þar m.a.
að finna ljóð og aðra texta eftir
Gyrði Elíasson, Steinunni Sigurð-
ardóttur, Vigdísi Grímsdóttur,
Diddu og Einar Má Guðmundsson.
Þá var ein útgáfa af Die Horen
tileinkuð bókmenntum frá Íslandi,
en hún er nú uppseld í annað sinn
og eru uppi bollaleggingar um
þriðju prentun útgáfunnar.