Morgunblaðið - 08.05.1997, Síða 47
MORGUNBLAÐIÐ
FIMMTUDAGUR 8. MAÍ1997 47
MINNINGAR
STEINDOR STEINDORSSON
+ Steindór
Steindórsson
fæddist á Möðru-
völlum í Hörgárdal
í Eyjafirði 12. ág-
úst 1902. Hann lést
á Fjórðungssjúkra-
húsinu á Akureyri
hinn 26. apríl síð-
astliðinn og fór út-
för hans fram frá
Akureyrarkirkju 6.
maí.
Fyrir nokkrum
kvöldum var ég að
blaða í Akureyrarbók
Steindórs Steindórs-
sonar sem ber undir-
titilinn „Höfuðborg
hins bjarta norðurs“.
Það var svo næsta
dag sem ég heyrði
frétt um lát þessa vin-
ar míns.
Einhvem veginn
finnst mér titill bókar-
innar fara svo vel við
nafn Steindórs sem í
mínum huga var
höfðingi úr hinu
bjarta norðri. Hávax-
inn, teinréttur og
glæsilegur stóð hann
fyrir nokkrum árum yfír gröf móð-
ur minnar, Huldu Árdísar Stefáns-
dóttur, í góðri fylgd síns kæra son-
arsonar og nafna. Hann kom með
kveðju frá „Höfuðborg hins bjarta
norðurs“ til Huldu, sem alla tíð
dáði þann stað eins og Steindór.
Þau voru vinir, móðir mín og
hann. í hvert sinn sem þau hittust
var glatt á hjalla enda nóg að tala
um. Rifjaðar voru upp gamlar minn-
ingar frá Akureyri og úr Hörgár-
dal. Sögur um Olöfu frá Hlöðum,
skólann þeirra og alla kunningjana
sem þau áttu sameiginlega. Oft var
talað um veturinn sem mamma
kenndi honum dönsku í Gagnfræða-
skólanum á Akureyri. Steindór var
duglegur við námið, skrifaði svo vel
og svo átti hann líka marga
skemmtilega skólabræður. Man ég
ekki betur en þeirra á meðal hafí
verið Björn Bjarnason magister frá
Steinnesi, Hannibal Valdimarsson
og Finnbogi Rútur bróðir hans,
Hermann Stefánsson, Haukur Þor-
leifsson og þannig mætti áfram
telja. Allir voru þeir í miklu uppá-
haldi hjá mömmu og minningarnar
streymdu fram.
Eftir svona heimsókn fannst
þeim sem á hlýddu að Akureyri
hlyti að vera einhver mesti dýrðar-
staður á jörðinni. Enda fóru afkom-
endur mínir sem á sögumar hlýddu
að hugsa sig um hvort þeir ættu
ekki að fara í skóla til Ákureyrar
og upplifa þetta allt. Sumir þeirra
gerðu jafnvel alvöru úr því.
En nú er einum höfðingjanum
færra á Akureyri. Sá þeirra sem
hér er kvaddur var búinn að skila
löngu og góðu dagsverki til hags-
bóta fyrir land og þjóð.
Ég þakka Steindóri fyrir tryggð
við mitt fólk og kveð hann í þeirri
vissu að hann sé sammála því sem
Halldóra Bjarnadóttir, annar Akur-
eyrarhöfðingi, sagði eitt sinn í mín
eyru: „Ég vil láta jarða mig í kirkju-
garðinum á Akureyri því þar er svo
margt skemmtilegt fólk eins og
Stefán skólameistari og sr. Matt-
hías“. Halldóra var jarðsett á Akur-
eyri í „Höfuðborg hins bjarta norð-
urs“, samkvæmt eigin ósk.
Guðrún Jónsdóttir.
Ármannsfell hf.
Aðalfundur
AðalfundurÁrmannsfell hf. verður haldinn
fimmtudaginn 22. maí nk. kl. 16.00.
Fundurinn fer fram á skrifstofu félagsins, Funa-
höfða 19, Reykjavík.
Dagskrá:
1. Venjuleg aðalfundarstörf.
2. Tillaga stjórnartil hækkunará hlutafé félags-
ins um allt að kr. 100 milljónir.
3. Heimild til stjórnar að gefa út skuldabréf
með kauprétti á nýju hlutafé í félaginu fyrir
allt að kr. 30 milljónir.
4. Önnur mál, löglega fram borin.
Stjórn Ármannsfells hf.
Aðalfundur Veiðifélags
Kjósarhrepps
verður haldinn laugardaginn 10. maí kl. 13.30
í Félagsgarði í Kjós.
Venjuleg aðalfundarstörf.
Stjórnin.
Aðalfundur
Svalanna
verður haldinn 15. maí á Hótel Borg og hefst
kl. 19.30. Vinsamlegast tilkynnið þátttöku fyrir
12. maí.
Dagskrá: Venjuleg aðalfundarstörf.
Stjórnin.
FERÐIR / FERÐALÖG
Frá félögunum
á Suðurlandsbraut 30
Vorferðin er á laugardaginn kl. 13.00.
Farið frá Suðurlandsbraut 30. Fjölmennum.
Trésmiðafélag Reykjavíkur,
Bíliðnafélagið,
Félag járniðnaðarmanna,
Félag garðyrkjumanna,
Félag blikksmiða.
FÉLAGSSTARF
Garðbæingar
— opinn
stjórnmálafundur
Huginn, félag ungra sjálfstæöismanna, heldur op-
inn fund um ungt fólk og stjórnmál i Garðabæ í
húsnæði Sjálfstæðisflokksins, Lyngási 12, fimmtu-
daginn 8. maí kl. 20.00.
Frummælandi: Ásdis Halla Bragadóttir, aðstoðar-
maður menntamálaráðherra. Heitt á könnunni. Allir velkomnir.
Huginn, félag ungra sjálfstæðismanna í Garðabæ.
ATVIIMIMUHÚSNÆÐI
Til leigu
Garðastræti - laust strax
Höfumtil leigu rúml. 80 fm skrifstofuhúsnæði
á jarðhæð í góðu húsi. Húsnæðið skiptist í 4-5
herb., sem skipt er með léttum veggjum auk
eldhúss og snyrtingar. Góð staðsetning og
aðstaða fyrir heildsölur, teiknistofur o.þ.h.
Upplýsingar veitir Stefán Árni í síma 588 9090.
SMÁAUGLVSINGAR
FÉLAGSLÍF
I.O.O.F. 1 = 178598’/2
Lf.
Aðalsafnaðarfundur
Digranesprestakalls verður
haldinn í safnaðarheimili Digra-
neskirkju, sunnudaginn 11. maí
kl. 13.00. Á dagskrá auk venju-
legra aðalfundarstarfa:
1. Breyting á sóknarmörkum.
2. Kosning í sóknarnefnd.
3. Önnur mál.
Sóknarnefnd.
Dagsferðir fimmtudaginn
8. maí - ferðir við allra hæfi.
Útivist stendur fyrir tveimur
gönguferðum í dag. Þátttakend-
ur hafa val um að ganga frá
Höskuldarvöllum að Hvernum
eina eða að ganga á Keili. Brott-
för er frá BSÍ kl. 10.30. Verð er kr.
1.000.-
Fjallasyrpa Útivistar —
spennandi dagsferðir sunnu-
daginn 11. maí.
Eins og undanfarin ár býður Úti-
vist upp á hinar geysivinsælu
fjallasyrpur. í sumar er boðið
upp á tvenns konar göngur í
tengslum við fjallasyrpu. Bæði er
gengið á valin fjöll og jafnframt
er boðið upp á láglendisgöngur
meðfram á í nágrenninu. Ferð-
irnar eru að jafnaði farnar annan
hvern sunnudag, fyrsta gangan
er 11. maí. Veitt verða þátttöku-
verðlaun þeim sem fer í flestar
fjallgöngur.
Sunnudagur 11. maf Id. 1030.
Fjallganga: Gengiö er á Mó-
skarðshnjúka 787 m.y.s. upp
frá Hrafnhólum og farið yfir
Haukafjöll. Komið niður á
sama stað. Gangað tekur 5 til 6
tima. Verð er kr. 1.000.- og brott-
för frá BSI kl. 10.30.
Árganga: Gengið er frá Leir-
vogsvatni og niður með Leir-
vogsá fram hjá Tröllafossi og
Tröllagljúfrum og áfram niður að
þjóðvegi eitt við Mógilsá. Verð
er kr. 1.000.- og brottför frá BS(
kl. 10.30.
Helgarferðir
Helgarferð 9.-11. maí, Básar -
Eyjafjallajökull - Seljavalla-
laug. Spennandi gönguskiða-
ferð. Bókanir á skrifstofu Útivist-
ar.
Helgarferð 9.-11. maí, Básar.
Ekið í Bása á föstudagskvöldi.
Bókanir á skrifstofu Útivistar.
Hvítasunnuferðir
Jeppaferð í Bása 17.-19. maf.
Spennandi jeppaferð í Bása,
gönguferðir og kvöldvaka. Farar-
stjóri Haukur Þ. Finnsson.
Öræfajökull 16.-19. maí. Farið
á skíðum eða gangandi upp
Sandfellsheiði og á Hvannadals-
hnúk, hæsta tind landsins.
Skaftafell—jakaskoðun 16.-
19. maí. Boðið upp á lengri og
styttri gönguferðir við allra hæfi.
Ummerki eftir Skeiðarárhlaup
skoðuð. Gist er á Litla Hofi.
Básar 16.-19. maí. Ferð fyrir
alla fjölskylduna i Bása.
Fimmvörðuháls 17.-19. maí.
Fyrsta ferð sumarsins yfir Fimm-
vörðuháls.
Snæfellsjökull 16.-19. maí.
Gist á Arnarstapa, þátttakendur
ganga á jökulinn eða þiggja far
með snjóbíl.
Flatey á Breiðafirði 16.-19.
maf. Skemmtileg ferð um Breiða-
fjörð fyrir alla fjölskylduna.
Netslóð:
http://www.centrum.is/
utivist
I.O.O.F. 12 = 178598/2 « LF
í kvöld kl. 20.30: Lotgjörðarsamkoma.
Miriam Óskarsdóttir talar.
Allir hjartaniega velkomnir.
Hvítasunnukirkjan Fíladelfía
Árlegir vortónleikar safnaðar
ins í kvöld kl. 20.00.
Á tónleikinum leikur Lofgjörðar-
hópurinn, undir stjórn Óskars
Einarssonar, stórt hlutverk og
með þeim spilar fimm manna
hljómsveit. Hópurinn hefur ein-
beitt sér að gospelsöng sem hef-
ur einmitt notið mikilla vinsælda
undanfarið, og mun m.a. syngja
nokkur lög eftir hinn heimskunna
Andraé Crouch sem er væntan-
legur til landsins seinna í
mánuðinum. Einnig koma fram
Guðný og drengirnir og íris Guð-
mundsdóttir frá Vestmannaeyj-
um. Nú er verið að endurnýja
hljóðkerfi kirkjunnar og er þetta
tækifæri notað til að safna fyrir
þeim kaupum.
Aðgangseyrir er kr. 500 og miðar
seldir við innganginn.
Dagsferð fimmtudaginn
8. maí — ferðir við allra hæfi
Útivist stendur fyrir tveimur
gönguferðum á uppstigningar-
dag. Þátttakendur hafa val um að
ganga frá Höskuldarvöllum að
Hvernum eina eða að ganga á
Keili. Brottför er frá BSI kl.
10.30. Verð er kr. 1.000.
Fjallasyrpa Útivistar - spenn-
andi dagsferðir sunnudaginn
11. maí.
Sunnudagur 11. maí
kl. 10.30.
Fjallganga: Gengið er á Mó-
skarðshnjúka 787 m.y.s. upp
frá Hrafnhólum og farið yfir
Haukafjöll. Komið niður á
sama stað. Gangan tekur 5 til 6
tíma. Verð er kr. 1.000 og brott-
för frá BSÍ kl. 10.30.
Árganga: Gengið er frá Leir-
vogsvatni og niður með Leír-
vogsá fram hjá Tröllafossi og
Tröllagljúfrum og áfram niður að
þjóðvegi eitt við Mógilsá.
Svæði sem er mjög nálægt
Reykjavík, en ótrúlega margir
hafa ekki séð. Verð er kr. 1.000
og brottför frá BSÍ kl. 10.30.
Helgarferð 9.-11. maí Básar •
Eyjafjallajökull - Seljavalla-
laug. Gengið á skiðum á Há-
mund og niður að Seljavallalaug.
Farið með rútu aftur í Bása. Bók-
anir á skrifstofu Útivistar.
Helgarferð 9.-11. maí Básar.
Ekið i Bása á föstudagskvöld.
Bókanir á skrifstofu Útivistar.
Netslóð:
http://www.centrum.is/
utivist
FERÐAFÉLAG
# ÍSLANDS
MÖRKINNI6 - SlMI 568-2533
fomhjólp
Almenn samkoma í Þríbúð-
um, Hverfísgötu 42, í dag
Fræðsluferðir/skíðaganga
Fimmtudagur 8. maí
kl. 10.30 Jarðfræðiferð
á Reykjanesskaga.
Leiðbeinandi: Haukur Jóhann-
esson, jarðfræðingur. Njarðvik-
Hafnir-Reykjanes-Grindavík-Blá-
fjallavegur. Gengið að eldstöðv-
um. Tilboðsverð, aðeins 1.000 kr.
Kl. 10.30 Skíðaganga á Esju.
Gengið á Þverfellshorn Esju,
farið á skíðum inn á fjallið.
Verð 1.200 kr.
Laugardagur 10. maf
kl. 10.00. Fuglaskoðunarferð
á Suðurnes.
Samvinna við HIN. Ágætt að
hafa með sjónauka og fuglabók.
Verð 1.800 kr., frítt f. börn 15 ára
og yngri. Leiðbeinendur: Gunn-
laugur Þráinsson og Gunnlaugur
Pétursson. Farið um Álftanes,
Garðskaga, Sandgerði, Hafna-
berg og víðar. Fuglategundir
taldar.
Sunnudagur 11. maí
kl. 10.30 Þingvallavatn,
lífrfki, fuglar, fiskar.
Ekið kringum vatnið, stansað á
vel völdum stöðum. Leiðbein-
andi: Sigurður Snorrason, líf-
fræðingur. Verð 1.500 kr. Brott-
för í ferðirnar frá BSI, austan-
megin og Mörkinni 6.
Áttavitanámskeið á mánu-
dags- og þriðjudagskvöld.
Skráning á skrifstofu.
Gerist félagar í F.l.
á afmælisári!
kl. 16.00.
Söfnuðurinn í Kirkjulækjar-
koti kemur í sína árlegu
heimsókn og annast sam-
komuna með fjölbreyttum
söng og vitnisburðum.
Stjórnandi Hinrik Þorsteins-
son.
Allir velkomnir.
Samhjálp.
Aglow Reykjavík
Konur athugið! Aglow fundur-
inn verður föstudaginn 9. maí
kl. 20 á Háaleitisbraut 58—60,
3. hæð. Vilborg Schram talar.
Allar konur velkomnar.
Stjórn Aglow Reykjavik.
Frá Sálar-
rannsóknar-
félagi
fslands
Opið hús verður í Garðastræti 8
laugardaginn 10. maí kl. 14.30.
Velski miðillinn og kennarinn
Colin Kingshot verður með
skyggniiýsingar. Allir vel-
komnir á meðan húsrúm leyfir.
SRFl.
Ekki láta þetta fram hjá þér
fara!
Síðasta námskeið vetrarins
* Ertu viðkvæm(ur) fyrir athuga-
semdum annarra og tekur mikið
inn á þig?
* Áttu erfitt með að svara fyrir þig?
* Finnst þér þú oft fara í „vöm“ f
samskiptum þínum við annað
fólk?
* Ertu oft uppstökk(ur), pirruð (að-
ur), reið(ur) og næstum því þung-
lynd(ur)?
Ef þú kannast við eitthv. af ofan-
greindu hefðir þú kannski áhuga á
að sækja námskeið í Sjálfefli sem
gæti hjálpað þér að takast á við of-
angreint. Þú þyrftir þó að fóma
einni heigi af lífi þínu því nám-
skeiðið er tveir dagar, en efni nám-
skeiðsins hefur hjálpað mörgum að
ná stjóm á eigin líðan í daglegu iífi
og hjálpað þeim til að vera ósnortin
af tilraunum annarra til yfirgangs
og valdníðslu. Kennari: Kristín Þor-
steins. Námsk. 10,—11. maí kl.
10:00 - 15:30. Verðkr. 8.000 (inni-
falið í námsk.gjaldi eru veitingar í
hádegi báða dagana).
Nánari uppl. og skrán. í síma
554 1107 kl. 09:00 - 12:00.
> Frá Sálar-
rannsóknar-
félagi
íslands
Aðalfundur Sálarrannsóknarfé-
lags íslands verður haldinn í
Norræna húsinu mánudaginn
12. maí kl. 20.30.
Dagskrá: Skyggnilýsingar,
Bjarni Kristjánsson.
Venjuleg aðalfundarstörf.
Félagar velkomnir á meðan hús-
rúm leyfir.
SRFl.
TILKYNNINGAR
Auglýsendur athugið
breyttan skilafrest!
Auglýsingatexta og/eða tilbún-
um atvinnu-, rað- og smáauglýs-
ingum sem eiga að birtast í
sunnudagsblaðinu, þarf að skila
fyrir kl. 12 á föstudag.
Lærið ensku í sumarfríinu
Bournemouth International
School. Viðurkenndur skóli —
dægilegt umhverfi.
Upplýsingar hjá Sölva Eysteins-
syni i síma 551 4029.
Augiýsingadeild
Sími 569 1111
símbréf 569 1110
netfang: augl@mbl.is
- kjarni málsins!