Morgunblaðið - 02.11.1999, Síða 24
24 ÞRIÐJUDAGUR 2. NÓVEMBER 1999
NEYTENDUR
MORGUNBLAÐIÐ
Nýtt
Hannyrða-
verslunin
Mánagull
HANNYRÐAVERSLUNIN
Mánagull var opnuð nýlega í Glæsi-
bæ. Megináhersla er lögð á hann-
yrðir og föndurvörur, en verslunin
hefur sérhæft sig í mynstram og
vill bjóða upp á fjölbreytt úrval
mynstra fyrir púða og myndir af
ýmsum gerðum og stærðum, sem
era tilbúin í pakkningum. Auk
Vinna með tölvumús einhæf
Fjölbreytt og innihaldsrík
vinna gegn álagsmeiðslum
dúka, viskustykkja og handklæða
með kanti til að sauma í era ýmsar
garn- og föndurvörar til sölu í
versluninni ásamt munsturbókum
fyrir útsaum, prjóna- og föndur-
blöðum. Eigendur Mánagulls eru
Helga Z. Gústafsdóttir og Gunnar
Örn Gunnarsson.
SPURT OG SVARAÐ
Spurning: Era til reglur um merk-
ingar um hvað á að vera í gúllasi?
Svar: Hollustuvernd segir enga
staðla eða reglur gilda um merk-
ingar á kjöti í kjötreglugerð þeirri
er gildir á Islandi.
Bónus djús
Spurning: Hvar er Bónus-djús-
inn?
Svar: Að sögn forráðamanna hjá
Bónusi kemur djúsinn í verslanir
Bónuss, Hagkaups og 10-11 á
næstunni í nýjum og betri umbúð-
um, en verður seldur á sama verði
og hann hefur verið seldur á und-
afarið.
Tómar sultukrukkur
dýrari en fullar
Spurning: Af hverju eru tómar
amerískar sultukrakkur dýrari í
Húsasmiðjunni en fullar sultu-
krakkur í matvöruverslunum?
Svar:„Við keyptum inn sultu-
krukkur frá Bandaríkjunum í mjög
litlu magni. Há innflutningsgjöld
leggjast á vörana sem hækka
álagningu á smásöluvöru," sagði
Anna Haraldsdóttir, innkaupast-
jóri Húsasmiðjunnar, og bætti við
að krukkurnar væra búnar en yrðu
ekki pantaðar aftur þar sem þær
væru einfaldlega of dýrar.
Hvar er
jarðarberjajógúrtið?
Spurning: Hvers vegna er ekki
til jarðarberjajógúrt í flöskum í
Hagkaupi?
Svar: Svokallað drykkjar-jarð-
arberjarjógúrt er selt undir heitinu
Tumajógúrt í verslunum Nýkaups
og er væntanlegt í verslanir Hag-
kaups. Að sögn starfsmanns Hag-
kaups tók Nýkaup vörana fyrst í
sölu og var eftirspurnin framar
björtustu vonum og varð til þess að
umbúðir sem framleiddai- era í
Skandinavíu kláruðust á mjög
skömmum tíma, en era nú komnar
til landsins á ný og verið er að fylla
á flöskumar sem koma í búðirnar í
dag eða á morgun.
VINNA við tölvuskjá er oft einhæf
og ýmsir telja að henni fylgir nokk-
ur heilsufarsleg áhætta. „Engir at-
vinnusjúkdómar vegna skjávinnu
era bættir af tryggingakerfinu hér á
landi,“ segir Þórann Sveinsdóttir,
sjúkraþjálfari við atvinnusjúkdóma-
deild Vinnueftirlits ríkisins. Þeir
sem telja sig hafa orðið iyrir heils-
utjóni vegna atvinnu sinnar verða að
sækja mál sitt fyrir dómi. „Þessu er
öðravísi farið í nágrannalöndum
okkar þó að nú þurfi sterkari sann-
anir en áður til að fá bætur.“
Þórunn segir að skjávinna hafi
töluvert verið rædd á ráðstefnu um
vinnuvemd sem hún sótti í Dan-
mörku snemma í haust. Nokkuð
hefur verið skrifað, á danskri vef-
slóð, Ingerniören/net (www.ing.dk),
um mál ungs verkfræðings er varð
að hætta störfum vegna vöðva-
verkja sem hann þjáist af. Telur
hann verkina til komna vegna þess
að tölvumúsin hans þurfti, vegna
plássleysis, að vera í gluggakistu.
Verkfræðingurinn hefur engar bæt-
ur fengið á grandvelli þess að ekki
þyki sannað að vinna með tölvumús
geti valdið heilsuskaða.
Danir eru nú að rannsaka hvort
og þá hvaða samhengi sé milli sjúk-
dóma og þess hversu lengi fólk situr
við tölvuskjá. Er rannsóknin sam-
starfsverkefni þriggja sjúkrahúsa
og Tækniháskóla Danmerkur.
Skjávinna rofin reglulega
Að sögn Þórannar hafa menn ver-
ið að reyna að skilgreina áhættuna
Morgunblaðið/Asdís
Best er ef fólk getur haft tölvumúsina til skiptis hægra og vinstra
megin við lyklaborðið.
sem hlýst af skjávinnu. „Vinnuað-
staðan sem slík skiptir miklu máli
en sá tími sem fólk situr við tölvuna
skiptir ekki minna máli,“ segir hún
og leggur áherslu á mál sitt. Miklu
máli skiptir einnig að fá starfsfólk
og atvinnuveitendur til að huga að
fjölbreytni vinnunnar, „vegna þess
að þá fær fólk tækifæri til að þrosk-
ast í starfi og nota það sem í því býr
og atvinnuveitandinn eignast verð-
mætara starfsfólk sem kann og veit
meira,“ segir hún enn fremur og
bætir við að með því móti minnki lík-
ur á að einhæfar hreyfingar valdi
verkjum og heilsutjóni.
Um þessi mál er m.a. fjallað í
reglugerð um skjávinnu nr. 498 frá
1994 en þar segir að skipuleggja
skuli vinnu starfsmanna á þann hátt
að dagleg skjávinna sé rofin reglu-
lega með hléum eða vinnu af öðra
tagi. Reglumar ná til þeirra starfs-
manna sem vinna umtalsverðan
hluta vinnu sinnar við tölvu en það
hefur verið túlkað sem tveir tímar á
dag eða lengur við tölvuna, að sögn
Þórunnar. Reglugerðina er hægt að
nálgast á Netinu með þvi að slá inn
slóðina: www.ver.is.
Vinnuvemd í skólum
Best væri, segir Þórunn, ef kennt
væri um vinnuvemd í skólum þann-
ig að fólk átti sig strax á að það þarf
að hugsa um þessa hluti. „Þetta
snýst nefnilega líka um að fólk end-
ist í starfi," segir hún.
Samkvæmt sömu reglum er at-
vinnuveitendum skylt að sjá til þess
að gerð sé úttekt á vinnuaðstæðum
vinnustaða. Meta þarf líkamlegt
álag vegna vinnunnar, andlegt álag
sem og álag á sjón. Uttekt og mat á
vinnuaðstæðum er oft gert í sam-
vinnu við fagaðila t.d. sjúkraþjálfara
eða iðjuþjálfa. Vinnueftirlitinu ber
hins vegar að fylgjast með því að
skyldum atvinnurekenda, sem fram
koma í reglunum, sé fullnægt.
Launþegum er auk þess heimilt að
hafa samband við eftirlitið ef þeim
þykir að þessum ákvæðum sé ekki
iylgt. „Atvinnuveitendur hafa líka
skyldur til að upplýsa starfsfólk sitt
um þá áhættu sem fylgir starfinu,"
bendir Þórunn á og segir að þeir eigi
einnig að sjá til þess að starfsfólk fái
tíma til að læra á nýjar vinnuað-
stæður. Þar með talið er hvemig
skuli vinna við tölvuna.
„Við leggjum mesta áherslu á fyr-
irkomulag vinnunnar, að hún sé fjöl-
breytt og innihaldsrík. Tölvuvinna
er einhæf og músavinna ekki síst.
Við ráðleggjum fólki t.d. að skiptast
á að nota hægri og vinstri hönd á
músina. Ef músin er vinstra megin
er handleggurinn nær líkamanum
en ef hún er höfð hægra megin við
lyklaborðið. Þá verðui' líka minni
snúningur í öxlinni og stuðningur-
inn undir framhandlegginn er
meiri.“ Þá segir Þórann að varast
verði að láta þunga hvfla á úlnliðn-
um en á því svæði liggja taugar og
æðar utarlega og langvarandi þrýst-
ingur getur valdið óþægindum.
„Fólk verður hlusta á þau skila-
boð sem líkaminn gefur og læra að
túlka þau,“ segir hún enn fremur og
minnir á að allt mæli með því að fólk
standi reglulega upp frá tölvuvinnu
og hvfli sig í svolitla stund. I því
sambandi minnir hún á að fyrir utan
það hversu einhæf músarvinna og
önnur skjávinna geti verið séu aug-
un alltaf í nærvinnu þegar setið er
við skjáinn. Gott sé fyrir augun að
hvíla þau með því að horfa af og til á
fjarlæga hluti.
„Best væri ef kröftum væri sem
mest beint að forvörnum," segir
hún, „hafa vinnuaðstæður góðar,
vinnuna fjölbreytta og fólk vel upp-
lýst um hvað beri að varast."
MÖGNUÐ NÝJUNG í
BlOflex segulmeðferð hefur slegið í gegn í Danmörku og er nú
fáanleg á íslandi. Um er að ræða segulþynnur í 5 stærðum sem
festar eru á líkamann með húðvænum plástri.
l l
SCANDINAVIA
Kynningar þessa viku
frá kl.
)
Dæmi þar sem
BlOflex
seculþynnan hefur
sýnt frabær áhrif
• Höfuðverkur
• Hnakki
• Axlir
• Tennisolnbogi
• Bakverkir
• Liðaverkir
• Þursabit
• Hné
• Æðahnútar
• Ökklar
Lb LYFJA
í dag þriðjud.
Lyfja, Lágmúla 5 - S. 533 2300
Miðvikud. 3.nóv.
Lyfia, Setbergi - Hafnarfirði
S. 555 2306
Fimmtud. 4.nóv.
Lyfja, Hamraborg - Kópavogi
S. 5540102