Morgunblaðið - 02.11.1999, Síða 34

Morgunblaðið - 02.11.1999, Síða 34
34 ÞRIÐJUDAGUR 2. NÓVEMBER 1999 MORGUNBLAÐIÐ LISTIR Rannsóknir á sviði félagsráð gjafar og stjórnmálafræði Margt bar á góma þegar sjö konur kynntu rannsóknir sínar á sviði félagsráðgjafar á ráðstefnu um rannsóknir í félagsvísindum í Odda á laugardag. Þá voru kynntar fjórar rannsóknir á sviði stjórnmálafræði. Erla Skúladdttir hlýddi á mál fræðimannanna. Steinunn Hrafnsdóttir Sigrún Júlíusdóttir Jón Ormur Halldórsson Baldur Þórhallsson FJALLAÐ var um fæðing- arorlof og dagvist, stjórn- endur í félagsþjónustu, fá- tækt í Reykjavík, sameig- inlega forsjá og breytta námsskip- an í félagsráðgjafanámi við Háskóla Islands. Guðný Björk Eydal lektor fjallaði um fæðingarorlof og dag- vist, íslenska fjölskyldustefnu í 50 ár og notaðist að hluta við niður- stöður rannsókna sem unnar voru í tengslum við doktorsritgerð hennar um íslenska fjölskyldustefnu í 40 ár, 1944-1994. Hún bar meðal annars saman reglur um dagvist og fæðingaror- lof á öllum Norðurlöndunum og komst að þeirri niðurstöðu að lítill opinber stuðningur sé fyrir for- eldra barna yngi-i en 3 ára hér miðað við hin löndin. Hér sé litið á dagvist fyrst og fremst sem þjón- ustu fyrir börnin en ekki mæðurn- ar og lítil áhersla sé lögð á tengsl við vinnumarkað og atvinnuþátt- töku móður. Það greini Island einnig frá hinum Norðurlöndunum að dagvistarmál heyri undir menntamálaráðuneyti og meginá- hersla sé lögð á vistun hluta úr degi fyrir 3-6 ára gömul börn. Guðný rakti þróun laga og reglna um fæðingarorlof á Islandi sem hefur að hennar mati og í saman- burði við hin Norðurlöndin verið hæg. Hún sagði að há fæðingar- tíðni á Islandi kynni að einhverju leyti að skýra minni umræðu um fæðingarorlof hér en á hinum Norðurlöndunum, en þar hafi þjóð- félagið brugðist við lækkandi fæð- ingartíðni með því að „kaupa“ börn, þ.e. gera fólki auðveldara fyrir að eignast börn. Þá megi einnig rekja hluta skýringarinnar á lægri útgjöldum íslenska ríkisins til félagsmála en annarra Norður- landa til sterkrar hægri stjórnar. Guðný benti á að oftast hefði stjórnarandstaðan knúið á um þær breytingar sem orðið hafa til ríkari réttar til fæðingarorlofs á Islandi. Steinunn Hrafnsdóttir félags- ráðgjafi kynnti rannsóknir er hún vinnur nú að í tengslum við dokt- orsverkefni sitt við háskólann í Kent og ber heitið Stjórnendur í félagsþjónustu á Islandi. Megintil- gáta rannsóknarinnar er að kyn- ferði varpi ljósi á ýmsa þætti í vinnu stjórnenda í félagsþjónustu á Islandi. Steinunn segii' fyrstu niðurstöður benda til þess að kyn- ferði geti varpað ljósi á ýmsa þætti í vinnu í félagsþjónustu; þótt margt sé líkt með konum og körl- um í úrtakinu sé líka tilhneiging til ákveðins munar. Fátækt í Reykjavík Sigríður Jónsdóttii' félagsfræð- ingur gerði grein fyrir rannsókn sem gerð var á fátækt í Reykjavík árið 1997. Spurningar voru lagðar fyrir hóp Reykvíkinga sem notið hafði félagslegrar aðstoðar um nokkuð langan tíma og bentu niður- stöður rannsóknarinnar til þess að innan þess hóps ríkti meiri fátækt en innan sambærilegra hópa í höf- uðborgum hinna Norðurlandanna en hliðstæðar rannsóknir voru framkvæmdar þar. Fátækt fólks var metin út frá því hvort það hefði aðgang að því sem þykir eðlilegt og sjálfsagt í þjóðfélaginu á hverjum tíma. Það vekur athygli að þegar svar- endur voru spurðir að því hvort þeir teldu sig fátæka var Reykjavík eina borgin þar sem færri töldu sig fátæka en mældust fátækir í rann- sókninni. Sigríður upplýsti að til stæði að halda rannsókninni áfram og kanna hvað orðið hefði um þá sem þátt tóku í rannsókninni fyrir tveimur árum. Fimm ára reynsla af sameiginlegri forsjá Sigrún Júlíusdóttir dósent og Nanna K. Sigurðardóttir félagsráð- gjafi kynntu rannsókn sem þær vinna að á reynslu og viðhorfum fráskilinna foreldra á sameiginlegri forsjá sem varð valkostur fyrir fimm árum. Meirihluti þeirra sem þátt tóku í rannsókninni er ánægð- ur með reynsluna af hinni sameig- inlegu forsjá. Hlutfallslega fleiri feður eru þó ánægðir en mæður. Niðurstöður rannsóknarinnar benda til þess að á flestum sviðum hafi staðan á milli feðra og mæðra jafnast út í samanburði við fyrri rannsókn um barnafjölskyldur. Tengsl barna, sem búa við sameig- inlega forsjá, við afa sína og ömmur virðast einnig betri. Þá bendir rannsóknin til þess að heilsufar og líðan barna og foreldra sem búa við fyrirkomulagið sé betra og neyslumunstur öðruvísi. I rann- sókninni kemur fram að algengt virðist vera að foreldrar geri sér óraunhæfar hugmyndir um þýð- ingu sameiginlegrar forsjár og hafi miklar væntingar til hennar. Fáir foreldrar virðast til að mynda eiga von á að fyrirkomulagið leiði til samkeppni þeirra á milli eða að oft- ar verði tilefni tO samskipta milli þeirra en ella. Sigi'ún Júlíusdóttir kynnti einnig ásamt Guðrúnu Þorsteinsdóttur fé- lagsráðgjafa niðurstöður matskönnunar í tengslum við breytta námsskipan í félagsráð- gjafanámi við Háskóla Islands. Rannsóknir á sviði stj órnmálafræði Fjórar rannsóknir á sviði stjórn- málafræði voru líka kynntar á laug- ardag. Jón Ormur Halldórsson stjórnmálafræðingur fjallaði um rætur efnahags- og stjórn- málakreppu Indónesíu, Baldur Þór- hallsson stjórnmálafræðingur ræddi um starfshætti smáríkja í Evrópusambandinu, Stefanía Óskarsdóttir stjórnmálafræðingur ræddi áhrK Evrópusamrunans á samskipti aðila _ íslenska vinnu- markaðarins og Arelía Guðmunds- dóttir lektor fjallaði um umbreyt- ingu vinnumarkaðar á Islandi und- anfarinn áratug. Rætur hrunsins liggja víða Jón Ormur Halldórsson komst að þeirri niðurstöðu í rannsóknum sín- um á rótum hrunsins í Indónesíu í fyrra að rætur stjórnmálakrepp- unnar hefðu verið efnahagslegar og rætur efnahagski'eppunnar stjórn- málalegar. Stjórnmála- og efnahag- skreppan kom sérfræðingum á sviði hag- og stjórnmálafræði í opna skjöldu á sínum tíma. Rannsókn Jóns Orms byggðist á athugun á þróun ríkisvalds í Indónesíu, rannsóknum á langtíma- þróun stéttaskiptingar í landinu, skoðun á hópamyndun í kringum trúarleg og menningarleg „identitet" og athugun á áhrifum al- þjóðlegrar eftirspurnar á aðgangi að indónesíska hagkerfinu. Athug- unin leiddi í ljós efnahagslegar, póli- tískar og menningarlegar ástæður fyrir styrk Suharto-stjórnarinnar um langa hríð og ástæðurnar fyrii' því að ekki varð tU trúverðugur val- kostur í stjórnmálum, sem gat ógn- að stjórninni, þar til hún hrundi af efnahagslegum ástæðum. Þá leiddi hún í ljós pólitískar og efnahagsleg- ar ástæður fyrir styrk hersins í indónesískum stjórnmálum, hvemig grunnurinn undir Suharto-stjóm- inni tók að molna fyrir fáeinum ár- um án þess að menn tækju yfirleitt sérstaklega eftir því og hvers vegna efnahagskerfið var í hættu með að hrynja um leið og trú á pólitískan styrk helstu valdhafa minnkaði. Einkenni starfshátta smærri ríkja Evrópusambandsins Baldur Þórhallsson fjallaði um það hvernig stjórnsýsla smærri ríkja í Evrópusambandinu vinnur innan stofnana sambandsins, Bald- ur dró þá ályktun af rannsóknum sínum að stærð og einkenni stjórn- kerfis séu mikilvæg breyta sem þarf að skoða þegar reynt er að greina hegðun ríkja í ákvarðana- tökuferli Evrópusambandsins. I rannsóknum sínum komst Baldur að þeirri niðurstöðu að með- al helstu einkenna starfshátta smá- ríkja séu óformleg samskipti, sveigjanleiki, svigrúm starfsmanna til eigin ákvarðana og forgangsröð- un málefna. Þá reyna smærri ríkin að ná fram markmiðum sínum inn- an framkvæmdastjórnar Evrópu- sambandsins. Breyttar aðstæður á vinnumarkaði Stefanía Óskarsdóttii' ræddi um áhrif samrunans í Evrópu á sam- skipti aðila íslenska vinnumarkaðai’- ins; heildarsamtaka launþega, at- vinnurekenda og fulltrúa hins opin- bera. Fram til 1990 segir hún að stjómvöld hafi að mestu framfylgt íslenskri kjai'astefnu einhliða en frá þeim tíma hafi íslensk kjarastefna verið mótuð og henni framfylgt að mestu í samráði við aðila vinnu- markaðarins. Stefanía komst að þeirri niðurstöðu að aukin markaðs- og alþjóðavæðing hafi haft mikil áhrif á þróun íslensks efnahagslífs og stjómun þess, ytri aðstæður hafi í vaxandi mæli takmarkað mögu- leika stjómvalda til þess að fara aðr- ar leiðir en helstu samkeppnislönd í Evrópu. Stefanía segir Evrópusam- mnann hafa stutt við þróun samráðs við aðila vinnumarkaðarins. ASÍ og VSÍ hafi með aðild íslands að evr- ópska efnahagssvæðinu styrkt stöðu sína við stefnumótun í efnahags- og félagsmálum á íslandi. Arelía Guð- mundsdóttir greindi frá rannsókn- um sem hún vinnur að í tengslum við doktorsritgerð sína um umbreyt- ingu á íslenskum vinnumarkaði á ár- unum 1987 til 1995. Hún benti meðal annars á að ýmsar breytingar hefðu orðið í fyrirtækjum með breyttu ytra umhverfi, sveigjanleiki hefði aukist. Þátttaka starfsmanna hefði til að mynda aukist, þeh- tækju nú þátt í gæðastarfi, teymisvinnu o.fl. Þá væri innra skipulag fyi-h-tækja breytt. Árelía vakti einnig athygli á breyttu viðhorfi verkalýðshreyfing- arinnar til sjálfrar sín, markaðsvæð- ing hefði átt sér stað. Hún benti líka á að við þyrftum nú meira en áður að taka ábyrgð á okkar eigin starfs- frama, mikilvægt væri íyrir starfs- menn að viðhalda atvinnuhæfni sinni. í hnotskurn mynduðu íslensk- ir starfsmenn orðið ólíkt samband við vinnuveitendur sína en áður. Sögur af fátæku fólki NÚ NÝLEGA kom út bókin Pálsætt undan Jökli eftir Óskar Guðmundsson. Pálsætt er kennd við Pál Kristjánsson sem fæddist árið 1856 í Þrengslabúð á Hellnum á Snæfellsnesi. Páll lagði gjörva hönd á margt þrátt fyrir erfiðar aðstæður og basl mestan hluta ævi sinnar. Hann var kennari, hokur- bóndi, skáld og verslunarmaður og frá honum eru miklar ættir komn- ar. Páll andaðist í Ólafsvík árið 1921. Bók Óskar skiptist í tvo hluta, fyrri hlutinn nefnist Ævir og aldafar og hinn síðari Niðjatal Páls Kristjánssonar. Frásögnin er fleyguð sagnfræðilegum upplýs- ingum og þáttum af mönnum og málefnum. „Þetta er fyrsta verk mitt af þessum toga,“ segir Óskar Guð- mundsson aðspurður um tilurð bókarinnar. „Ástæða þess að ég hóf að skrifa bókina er sjálfsagt sá landlægi áhugi sem hér ríkir á ættfræði og þjóðlegum fróðleik. Ég hef lengi verið áhugamaður um þjóðlegan fróðleik, ættfræði og sagnfræði. Annars vegar er þetta saga eins manns Páls Kristjánsson- ar, og hins vegar og ekki síður, saga fátæks fólks á síðustu öld og fram á þessa sem nú er að líða. Páll var baslmaður og ólst upp við ömurlegar aðstæður. Hann missti föður sinn á unga aldri og ólst upp við kröpp kjör. Páll eignaðist aldrei nein óðul og festi hvergi rætur á bletti sem hægt væri að kenna hann við. Hann bjó aldrei lengur en fimm ár í sama húsi, en ól mestan sinn aldur undir Jökli. Páll var smábóndi, tómthúsmaður, kennari og erfiðismaður eftir því sem heilsan leyfði, far- lama fyrir aldur fram og náði ekki sérlega háum aldri. En á sinni tíð var hann vel þekkt- ur á Snæfellsnesi og það fóru af honum sögur.“ Og sagan sem rakin er í bókinni er fyrst og fremst saga þessa manns? „Þetta er Einsaga sem svo er kölluð, saga eins manns og móður hans í Iciðinni. Ég fylgi lífi hans frá ári til árs og birti efni sem varpar ljósi á lífíð undir Jökli á þessum árum. Þarna kemur fleira fram en snertir þau tvö beinlínis. Byggðin undir Jökli var afar einangruð í upphafi þess- arar aldar. Þar munaði mest um hafnleysið sem þarna var og erfíð- ar samgöngur á landi. Landshlut- inn var á eftir í margvíslegu tilliti. Bæði hvað varðaði avinnulíf og menningu. Þetta verk mitt er nokkuð langur vegur frá mínum fyrri ritstörfum og kemur úr annarri átt en það sem ég hef verið að vinna að til þessa. Þetta byrjaði sem tóm- stundagaman, en nú orðið hef ég nokkra atvinnu af ýmsu fræði- legu grúski. Meðan ég vann að bókinni lagði ég stund á rannsóknir á söfnum, og hef verið að athuga eitt og ann- að sem fróðlegt væri að skoða nánar. Það eru ótrúlega margir sem festa yndi við þjóðleg fræði þegar þeir taka að kynna sér þau. Ef til vill er þetta svar við ys og þys nútimans! Það er andleg næring að vinna að svona fræðum, bæði við ritun og lestur. Þetta er gefandi samtal við fortfðina. Menn ættu að huga að rótum sfnum og grafast fyrir um fortíðina af kappi. Því ef okkur auðnast að þekkja fortíðina vel, aukum við líkur okkar á bjartari framtíð.“ í Öndverðarnesi þjuggu löngum Guðrún Jónsdóttir, móðir Páls Kristjánssonar, og ástmaður hennar og barnsfaðir, Andrés Jónsson. Sérkennilegt bréf hefi ég fundið sem snertir þetta fólk. Það er frá Andrési sambýlismanni Guðrúnar, orðrétt og stafrétt svohljóðandi: eyðraði oddviti Þareð bæði að ég er slæmur í fótum og síðan við fundustum lagð- ist Guðrún og liggur enn í rúminu verð jeg að fá Sigríði Magnúsdóttir til að fynna þig uppá það sem við töl- uðum umm og eru mín vina samleg tilmæli til þín að gjöra sem greiðast fyrir með það og líka ef mögulegt væri að jeg þirfti ekki að gera fleiri ferðir enn þessa - jeg þarf ekki að taka því fram að þú sjáir umm að það verði í sem þjenan legustum munum (þar Guðrún liggur og við erum bæði vökvunar laus og kaffi laus í þuru húsi) því ég veit að þú gjörir það uppá það besta sem þjer er mögulegt enda treisti jeg þjer til hins besta í þessu ofanskrifuðu vinsamlegast Ondverðamesi 13. febrúar 1887 Andrjes Jónsson Brot úr Pálsætt undan Jökli Óskar Guðmundsson

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.