Morgunblaðið - 02.11.1999, Síða 47
í
2.-9. nóvember
Höfundur er skólameistari
Fjölbrautaskólans við Ármúla
- Heilbrigðisskólans.
Losaðu þig við leifarnar og náttúran launar þér ríkulega!
Jarðgerðartankur
— einfold heintajarðgerð
MORGUNBLAÐIÐ
ÞRÍÐJUDAGUR 2. NÓVEMBER 1999
UMRÆÐAN
:©-5
afsláttur
| af nokkrum geróum
fuglabúra á meóan
birgóir endast
DYRARIKIÐ
...fyrir dýravini!
víó Grensásveg - sfmí: 568 66 68
Starfsmenntun
og stúdentspróf
Hugbúnaður er verndaður af lögum um höfundarétt.
Margir tölvunotendur skáka í því skjólinu að þeir viti
ekki hvort forrit eru afrituð eða ósvikin. Þetta er ekki
gild afsökun. Nú er verið er að skera upp herör gegn
hugbúnaðarstuldi — ert þú með hreina samvisku?
Fengi tölvan þín hreint sakavottorð?
©
550-4000
...hringdu núna
Þjónusturáðgjafar Tæknivals veita öll svör við
spurningum um hugbúnað og þau leyfi sem
nauðsynleg eru fyrir löghlýðna tölvunotendur.
Tæknival
" ------------------------1
Microsoft NovelL^mw88 Adobe
Eru hugbúnaðarmál í lagi
...hjá þínu fyrirtæki?
Green Line Master er nýr jarðgerðartankur þar sem þú getur
búið til verðmætan áburð úr matarleifum heimilisins og þeim
garðaúrgangi sem fellur til. Þannig sparast verðmæti um leið
og náttúrunni er hlíft.
Tankurinn rúmar 375 lítra, ákaflega einfaldur
í uppsetningu og er búinn til úr
endurunnu plasti. Lífrænn
rotnunarhvati, niðurbrjót-
anlegir bréfpokar og
ílát fyrir matarleifar
tryggja hratt og
hreinlegt ferli.
Sölvi
Sveinsson
þessu móti er starfsnámi gert
jafnhátt undir höfði og bóklegum
greinum; lokapróf veitir tiltekin
réttindi til háskólanáms. Það er
líka mjög óvenjulegt að fólk með
nám á framhaldsskólastigi fái
hliðstæð starfsréttindi og fólk
með háskólagráðu.
Þessi tilráun - því að tilraun er
þetta - getur verið lærdómsrík
fyrir starfsgreinaráð þessa lands,
því að hér koma saman yfirvöld
menntamála, atvinnulíf og skólar
og búa til menntun sem er tíma-
bær.
Það er líka tímanna tákn að
boðið skuli upp á þessa menntun í
fjarkennslu. Ég óttast að þar
séum við að heltast úr lestinni
þótt menn séu að vinna ágætt
brautryðjendastarf í VMA. Stað-
reyndin er sú að námsframboð er
orðið alþjóðlegt í vissum mæli, og
þeir sem kunna erlend tungumál
geta aflað sér ýmiss konar rétt-
inda í fjarnámi við erlenda skóla.
Hér megum við ekki láta okkar
hlut eftir liggja. Brýnt er að yfir-
völd og atvinnulíf á hverjum stað
leggi sitt af mörkum, ekki sízt í
starfsmenntun í fjarnámi; nem-
endur verða að geta kynnzt fram-
tíðarstarfi sínu á vettvangi.
í FRAMHALDS-
SKÓLALÖGUM er
kveðið á um starfs-
greinaráð sem skipuð
eru fulltrúum at-
vinnulífs auk fulltrúa
ráðherra; í hverju
ráði sitja sjö manns.
Starfsgreinaráð gera
tillögur til menna-
málaráðuneytisins
sem ber ábyrgð á
starfsmenntun í land-
inu sem og annarri
menntun. Starfs-
greinaráðin eru 14
talsins og hvert með
sitt svið. Um þessar
mundir eru þau að
móta hugmyndir sínar um alls
konar brautir sem næstu ár verð-
ur boðið upp á í framhaldsskólum
landsins. Margvíslegt nám stend-
ur á gömlum merg, annað er nýtt,
og er þá brýnt að takist góð sam-
vinna við atvinnulífið. Þar erum
við eftirbátar nágrannalandanna
sem krefjast formlegrar mennt-
unar til mun fleiri starfa en hér
tíðkast. Með því vinnst einkum,
að menn eru ánægðari í starfi og
þjálfunarkostnaður er í lágmarki
- og betri laun.
I þeim skóla sem ég veiti for-
stöðu er námsbraut fyrir lyfja-
tækna. Það er fjögurra ára nám,
blanda af almennum greinum og
sérhæfðum fögum sem þjóna
markmiðum námsins. Margir
hefja nám að loknu stúdentsprófí
og fá þá almennar greinar metn-
ar, aðrir byrja þegar að loknu
grunnskólaprófí. Starfsheitið er
lögverndað og atvinna er næg.
Sumir halda síðan til háskólan-
áms í lyfjafræði, aðrir bæta við
sig starfsréttindum á öðrum heil-
brigðisbrautum.
Því tek ég dæmi af þessu hér að
mér barst í hendur tímarit
sænska lyfjafræðingafélagsins, en
þar er verið að brjóta blað í
menntunarmálum. Fyrir nokkuð
mörgum árum var hætt að
mennta lyfjatækna (apoteksass-
istenter) og allt nám í lyfjafræði
var flutt á háskólastig. Af-
greiðslufólk í sænskum lyfjabúð-
um hefur háskólamenntun og titil
sem kalla mætti aðstoðarlyfja-
starfsnámi gert jafnhátt
undir höfði og bóklegum
greinum, segir Sölvi
Sveinsson, lokapróf
veitir tiltekin réttindi til
háskólanáms.
hér tíðkast, blanda almennra
greina og sérfræði, og 23 ungl-
ingar hófu nám í haust. Og það
sem meira er: í janúar árið 2000
mun skólinn bjóða upp á fjarnám
á þessu sviði.
Þetta er eftirtektarvert. Með
fræðingur. Þetta er
hins vegar dýrt, og
því brugðust menn
við, ekki sízt vegna
þess að Svíar sjá nú
fram á stóraukna
þörf fyrir þjónustu
lyfjabúða vegna þess
að rosknu fólki fjölg-
ar ört. Borgarstjórn
Uppsala, apótekarar
og lyfjafræðingafé-
lagið tóku höndum
saman og komu á fót
námi fyrir lyfjatækna
í framhaldsskóla í
Uppsölum. Námið
tekur þrjú ár eins og
almennt menntaskól-
anám, og lokapróf veitir starfs-
réttindi í lyfjabúðum og aðgang
að lyfjafræðinámi í háskóla. Nám-
ið er skipulagt með sama hætti og
Meðþessumóti er
ori/lame
Náttúrulegar sænskar snyrtivörur
Gæða snyrtivörur
; á góðu verði
30 ár á íslandi
Sími 567 7838 - fax 557 3499
e-mailraha@islandia.is
www.oriflame.com
Menntun