Morgunblaðið - 08.12.1999, Page 13

Morgunblaðið - 08.12.1999, Page 13
MORGUNBLAÐIÐ FRETTIR MIÐVIKUDAGUR 8. DESEMBER 1999 13 Formaður Læknafélags Islands telur óheppilegt að Is- lensk erfðagreining auki hlut sinn í Gagnalind Hefur í för með sér aukaverkanir FORMAÐUR Læknafélags íslands telur að sú gerð íslenskrar erfða- gi-einingar að kaupa aukinn hlut í hugbúnaðarfyrirtækinu Gagnalind kunni að hafa í för með sér auka- verkanir. ÍE hefur að undanförnu aukið hlut sinn í fyrirtækinu úr um 20% í yfir 55% en Gagnalind hefur sérhæft sig í sjúkraskrárkerfum fyr- ir heilbrigðiskerfið. „Þetta hefur ekki beinar afleiðing- ar í þá átt að Islensk erfðagreining nái tangarhaldi á upplýsingum, sem eru í sjúkraskrám heilbrigðisstofn- ana, enda er meðferð þeirra í ákveðnum farvegi sem lög mæla fyr- ir um,“ sagði Sigurbjörn Sveinsson, formaður Læknafélags íslands. Hann segir að hins vegar geti þetta haft aukaverkanii' í för með sér: „Þær felast annars vegar í því að rekstraraðili gagnagrunns á heil- brigðissviði getur haft bein áhrif á gerð hugbúnaðarins sem á að sjá um sjúkraskrár landsmanna en þær eru að sjálfsögðu fyrst og fremst haldnar í þágu sjúklingsins," segir Sigur- björn. „I annan stað getur eignar- aðilinn haft áhrif á þjónustu hugbún- aðarfyrirtækisins við einstakar heilbrigðisstofnanir. Meðal annars þær sem ekki vilja semja um afhend- ingu gagna úr sjúkraskrám í gagna- grunninn eða aðeins með takmörk- unum sem leyfishafinn sættir sig ekki við.“ Foi-maður Læknafélagsins benti og á að Gagnalind væi'i í reynd ein- okunarfyrirtæki og rökstuddi það. „Það er útilokað fyrir nokkurn aðila að keppa við Gagnalind eða þróa hugbúnað fyrh- sjúkraskrár sem geta keppt við búnað þeirra. Það er vegna þess að Gagnalind hefur verið SIF Konráðsdóttir, lögmaður stúlk- unnar sem kærði föður sinn fyrir kynferðisofbeldi, hefur kært Jón Steinar Gunnlaugsson, lögmann föð- urins, fyrir Lögmannafélagi fslands. Fjallað hefur verið um málið hjá úrskurðarnefnd Lögmannafélagsins og hefur Jón Steinar þriggja vikna falið verkið af heilbrigðisráðuneyt- inu sem sér um nánast alla heilbrigð- isþjónstu landsmanna. Þess vegna finnst mér þetta mjög óheppileg staða og mjög óskynsa- mleg gerð af hálfu íslenskrar erfða- greiningar þar sem hún gæti komið öðrum markmiðum hennar í upp- nám. Af þeim sökum hef ég dregið þá ályktun að hún hafi eitthvað annað á prjónunum,“ sagði formaður LÍ að lokum. frest til að svara kærunni og leggja fram gögn vegna málsins. Málið verður að því loknu tekið fyrir hjá úrskurðarnefndinni. Lögmannafélagið veitir ekki upp- lýsingar um kæruefni Sifjar fyrr en niðurstaða úrskurðarnefndar liggur fyrir. Kærður til fé- lags lögmanna Athugasemd frá höfundum að skýrslu Landsvirkjunar Össuri svarað MORGUNBLAÐINU hefur borist eftirfarandi athugasemd frá Birni Jóhanni Björnssyni, Helga Bjarna- syni, Sigurði Þórðarsyni og Sigur- jóni Páli Isakssyni, en þeir eru höf- undar að skýrslu Landsvirkjunar, Fljótsdalsvirkjim. Umhveríi og um- hverfísáhrif. „Össur Skarphéðinsson alþingis- maður sakar Landsvirkjun í gi-ein í Morgunblaðinu í gær um að leggja fyrir Alþingi rangar upplýsingar í skýrslu sinni, Fljótsdalsvirkjun, um- hverfi og umhverfisáhrif. UndiiTÍt- aðir höfundar skýrslunnar vilja hér með freista þess að leiðrétta þessi orð þingmannsins. Rannsóknir á gróðurfari I upphafi er rétt að vekja athygli á því að skýrsla Landsvirkjunar um umhverfisáhrif virkjunarinnar er ekki rannsóknarskýrsla heldur eru þar saman dregnar helstu niður- stöður rannsókna, sem gerðar hafa verið á undanförnum áratugum. Upphaf markvissra gróðurrann- sókna á Eyjabakkasvæðinu telst vei'a árið 1975 með rannsóknum Hjörleifs Guttormssonar o.fl., en áð- ur höfðu Steindór Steindórsson og P. Falk stundað þar rannsóknir sumrin 1935-1937. Árið 1976 vann Rann- sóknastofnun landbúnaðarins að gróðurkortagerð á svæðinu og á ár- unum 1975-1979 var unnið að við- amiklum rannsóknum á fyrirhuguð- um virkjunai'svæðum Jökulsár í Fljótsdal og Jökulsár á Brú. Samtals voru famir sjö rannsóknarleiðan- grar um svæðið á þessum árum, þar af tveir um Eyjabakkasvæðið. I skýi-slu Hjörleifs Guttormssonar o. fl. (1981) segir: „Rannsóknir á Eyja- bakkasvæðinu vom mun ítarlegri og gerð betri skil en á öðrum svæðum. I nágrenni Eyjabakkasvæðisins voru gerðai' viðbótarrannsóknir á gróðri á árunum 1992-94 vegna hugsanlegra veitumannvirkja. Ofangreindar rannsóknir og úrvinnsla þeirra voru skipulagðar og unnar af færustu sérfræðingum." Á árinu 1998 fól Landsvirkjun Ágústi H. Bjarnasyni að vinna að skýrslu um gróðurfar á virkjunar- svæðinu í ljósi fyrri kannana til að fá yfirsýn yfir eldri rannsóknir og fylla þar í ef þörf væri talin á. Ágúst fór víða um virkjunarsvæðið og var skýrsla hans um rannsóknirnar gef- in út í mars 1999.1 hana er margoft vitnað í skýrslunni um umhverfis- áhrif Fljótsdalsvirkjunar og hennar getið í heimildum. Þó svo að Ágúst hafi ekki sökum vatnavaxta komist út í Þóriseyjar, þá fór hann um lón- stæðið vestan Jökulsár, alveg frá stíflustæði og inn undir jökul. Hann kannaði gróður á Hafursárufs, í Snæfellsnesi, undir Hálsi og í Þjófa- gilsflóa til samanburðar við eldri at- huganir. Skýrsla hans ber nafnið Flóra og gi'óður á fyrirhuguðu virkj- unarsvæði upp af Fljótsdal í ljósi fyrri kannana. Þar er m.a. skilmerki- lega greint frá fyrri gróðurrann- sóknum á svæðinu, og kemur fram að flóra svæðisins er talin vel þekkt. Rannsóknir á dýralíil Össur heldur því fram að rann- sóknir á dýralífi hafi staðið yfir í 3 sumur árin 1979-1981 auk parts úr degi á sumri hverju og vísar þar í bréf Náttúrufræðistofnunar til um- hverfísnefndar Alþingis. Hér er einnig ekki rétt með farið. Ái'ið 1968 kannaði Arnþór Garðar- sson prófessor svæðið frá Snæfelli og í Grágæsadal og fann þá einungis smáhópa af heiðagæsum. Árið 1971 kostaði Orkustofnun talningu á heiðagæs á hugsanlegum fellistöðv- um hér á landi þar á meðal Fljóts- dalsheiði og á Eyjabökkum. Heiða- gæsir í fjaðrafelli á Eyjabökkum hafa verið taldai' með flugtalningu frá árinu 1979. Landsvirkjun kostaði flugtalningu á hugsanlegum fellist- öðvum heiðagæsa á öllu landinu árið 1992 og annaðist Náttúrufræðistofn- un þá talningu. Sú skýrsla er enn í vinnslu og sýnir það öðra fremur að úrvinnsla rannsókna getur tekið langan tíma þó svo að vettvangsr- annsóknir taki stuttan tíma og ætti þingmanninum að vera kunnugt um slíkt. Allviðamiklar rannsóknir vora gerðar á hreindýrastofninum og beitilöndum þeirra á áranum 1978- 1982 á vegum Orkustofnunar og Náttúrafræðistofnunar og vora nið- urstöður þeirra birtar í þremur skýrslum 1983. Frá þeim tíma hefur verið fylgst með stofninum með reglubundinni flugtalningu á vegum Veiðistjóraembættisins m.a. vegna ákvörðunar um veiði úr stofninum. Frá árinu 1993 hefur Landsvii'kjun að eigin framkvæði látið telja hreindýr á Vesturöræfum, nú síð- ustu árin að vorlagi og tvisvar að sumarlagi. Haustið 1993 vora hreindýr einnig talin á Eyjabakka- svæðinu. Merkjafræðistofa Háskól- ans hefur annast þessa talningu. Annað í blaðagreininni fullyi'ðir Össur að „Landsvirkjun hafi talið meirihluta Alþingis trú um að það sé í lagi að sökkva Eyjabökkum því niðurstöður áratuga langra rannsókna sýni að það sé verjandi frá vísindalegu sjón- armiði." I skýrslu Landsvirkjunar er tekið fram að ekki liggi fyrir óyggjandi svör um það hvaða áhrif myndun Eyjabakkalóns hafí á dýralíf. Hvergi er í skýrslunni minnst á að vísinda- legar rannsóknir sýni að í lagi sé að sökkva Eyjabökkum. Skýrsluhöf- undar harma þessi skrif Össurar Skarphéðinssonar sem hljóta að vera gerð gegn betri vitund." Bókin MIKILVÆGUSTU TUNGUMÁL JARÐAR svarar: Hvert er einfaldasta tungumál heims? www.tunga.is Yfirlýsing lög- reglu vegna Espi- gerðismálsins LÖGREGLAN í Reykjavík hefur sent frá sér eftirfarandi yfirlýs- ingu: „Vegna fréttaflutnings af máli sem til rannsóknar er hjá lög- reglunni í Reykjavík er varðar lát aldraðrar konu á heimili hennar í Espigerði 4 sl. föstudag vill lög- reglan taka eftirfarandi fram: Við rannókn málsins hefur ekkert komið fram um að brotist hafi verið inn í íbúð gömlu kon- unnar áður en atvikið átti sér stað. Þá hefur ekkert komið fram um að tilgangur meints geranda hafi verið að ræna hana áður. en henni var veittur áverki sá er leiddi til dauða hennar. Vegna umfjöllunar um þetta mál er það tekið fram að engin tengsl eru á milli þess og breyt- inga á fíkniefnamarkaðnum s.s. minnkandi framboðs og verð- hækkana. Meintur gerandi hefur ekki komið við sögu fíkniefnabrota hjá lögreglunni á þessu ári. Á árinu hefur verið tilkynnt um eitt innbrot í íbúð í Espigerði 4, þ.e. í marsmánuði sl. Lög- reglan handtók þrjá menn í fram- haldi af því. Meintur gerandi nú var ekki einn af þeim. Niðurstaða DNA-sýnis, er tekið var á vett- vangi og sent var til Noregs til greiningar, bendir til þess að einn hinna handteknu hafi verið þar á vettvangi. Hann hefur verið í varðhaldi um sinn. Málið bíður nú ákæra. Rannsókn þessa máls heldur áfrarn." SH leggur Sæmark niður STJÓRNENDUR Sölumiðstöðvar hraðfrystihúsanna hafa lagt niður rekstur Sæmarks ehf. og auglýst hús- næði fyrirtækisins við Aðalstræti til sölu. Sæmark starfaði að mestu sem milligönguaðili í kaupum á fiski frá framleiðendum sem ekki vora svo- kallaðir SH-framleiðendur, en jafn- framt starfaði fyrirtækið í útflutningi á ferskum fiski með flugi. Að sögn Gunnars Svavarssonar, forstjóra SH, hefur einn af fyrrver- andi starfsmönnum Sæmarks tekið þann þátt yfir og rekur það áfram. Aðrir rekstrarþættir vora í sjálfu sér aflagðir þegar SH tók upp bein viðskipti milli markaðsfyrirtækj- anna erlendis og íslenskra framleið- enda, samkvæmt endurskipulag- ningaráætlunum fyrirtækisins. Þegar ákvörðun var tekin um að leggja Sæmark niður störfuðu 8 manns þar, en voru fleiri áður. RERTTI PALMROTH® %r. 14.900 ‘Eftiið í stývéíunum er vatnsfráfirincíandi og potir regn, snjó, saít og kuíáa. <Pœgi[egt að prífa, ein strokg með röíqim ffút og stígvétin verðagíjáandi fafíeg. Svíargar tegundir aftiinum vinscefu finnsku stigvétiim- einnig pessirgötuspór. %r. 12300 PÓSTSENDUM SAMDÆGURS • 5% STAÐGREIÐSLUAFSLÁTTUR DOMUS MEDICA viö Snorrabraut - Reykjavík Símí 551 8519 STEINAR WAAGE SKÓVERSLUN KRINGLAN Kringlunni 8-12 • Reykjavík Sími 568 9212

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.