Morgunblaðið - 08.12.1999, Qupperneq 22
22 MIÐVIKUDAGUR 8. DESEMBER 1999
MORGUNBLAÐIÐ
VIÐSKIPTI
Astra Zen-
eca sker nið-
ur í Svíþjóð
Kaupmannahöfn. Morgunblaðið.
SAMRUNI sænska lyfjafyrirtækis-
ins Astra og hins breska Zeneca í
fyrra er nú farinn að segja til sín
Svíþjóðarmegin. I vikunni voru birt-
ar samlegðar- og niðurskurðaráætl-
anir rannsóknar- og þróunarsviðs
fyrirtækisins, sem bitna á 450 af
4.000 starfsmönnum þessa sviðs í
Svíþjóð. Um leið hafa heyrst von-
brigðaraddir um að fyrri fyrirheit
um öflugt starf í Svíþjóð standist
ekki og Svíar megi nú sjá á eftir enn
einu fyrirtæki sínu út fyrir land-
steinana.
Ætlun Astra Zeneca er að ná sam-
legðaráhrifum upp á 1,1 milljarð
Bandaríkjadala, meðal annars með
því að skera niður sex þúsund störf í
fyrirtækinu. Endurskipulagning
rannsóknar- og þróunarsviðs, þar
sem alls tíu þúsund manns vinna,
miðar að því að fækka störfum þar
um þúsund. Af þeim eru 450 í Sví-
þjóð, þar sem Zeneca er með rann-
sóknarstöðar á fjórum stöðum, en
mestur verður samdrátturinn í
Lundi, þar sem 200 stöður verða
lagðar niður. Claes Wilhelmsson yf-
irmaður rannsókna hjá Astra Zen-
eca segir að fyrirtækið leitist við að
verða alþjóðafyrirtæki, sem einbeiti
sér að einstökum tegundum sjúk-
dóma. í stað þess að vera með sams
konar rannsóknir á allt að fimm
stöðum verði staðirnir ekki fleiri en
tveir. Til að ná því og koma í veg fyr-
ir tvíverknað þurfi að færa til og
leggja niður störf. Aðgerðin nú er
liður í því.
I Svenska Dagbladet í vikunni er
bent á að þegar Astra og Zeneca
hafi runnið saman hafi það valdið
sænskum áhyggjum að höfuðstöðv-
arnar yrðu fluttar til London. A móti
hafi hins vegar verið bent á að það
væri aðeins smáatriði, því þunga-
miðja rannsóknar og þróunar yrði í
Svíþjóð og þetta svið ætti að stækka.
Ráðstöfunin nú sýni hins vegar að
líklega fari fyrir Astra Zeneca eins
og ABB á sínum tíma. Fyrirtækið
vaxi og verði alþjóðlegt, en flytjist í
raun í meginatriðum frá Svíþjóð.
Tekst að
verja góð-
ærið?
SAMTÖK atvinnulífsins halda
morgunverðarfund á Hótel Sögu,
Sunnusal, á
fimmtudag, morgun, frá 8:15 til
10:00. Spurt verður hvort takist að
verja góðærið í komandi kjarasamn-
ingum, hvernig samkeppnishæfni ís-
lensks atvinnulífs verði best tryggð
og hver reynsla grannþjóðanna sé af
gerð
kjarasamninga að undanförnu.
Bent er á mikilvægi þess að kostn-
aðarþróun innanlands sé í takt við
viðskiptalöndin. Öðruvísi sé ekki
hægt að verja hlut þeirra fyrirtækja
sem búa við alþjóðlega samkeppni.
Frummælendur eru þrír: Ingólfur
Bender, hagfræðingur Samtaka iðn-
aðarins, kynnir könnun sem gerð var
meðal fyrirtækja um það hvaða áhrif
þenslan hefur á rekstrargrundvöll
innlendra fyrirtækja í erlendri
samkeppni. Hannes G. Sigurðsson,
hagfræðingur Samtaka atvinnulífs-
ins, fjallar um „Norsku leiðina",
samstöðu atvinnurekenda og laun-
þega um samkeppnisstöðu, atvinnu-
stigog
lífskjör. Tryggvi Þór Herbertsson
hagfræðingur fjallar um kjarasamn-
inga
í umhverfi frjálsra fjármagns-
flutninga.
-----------------
Afkomuviðvörun hjá
Þormóði ramma -
Sæbergi
Búist við
betri af-
komu
ÞORMÓÐUR rammi - Sæberg hf.
hefur sent frá sér afkomuviðvörun,
þar sem fram kemur að ljóst sé að af-
koma félagsins af reglulegri starf-
semi fyrir skatta á árinu 1999 muni
verða betri en ráð var fyrir gert í
rekstraráætlun sem lögð var fyrir
semasta aðalfund félagsins.
I rekstraráætluninni kemur fram
að gert var ráð fyrir að hagnaður af
reglulegri starfsemi 237,3 milljónir
króna og endanlegur hagnaður yrði
sama tala.
Gert var ráð fyrir að rekstrartekj-
ur félagsins yrðu 3.452,8 milljónir
króna, þar af yrði söluverðmæti
framleiðslu 1.157,8 milljónir og afla-
verðmæti skipa 2.761,1 milljón króna
en frá drægist afli til eigin vinnslu
sem gert var ráð fyrir að næmi 466,1
milljón króna.
Samkvæmt áætluninni var gert
ráð fyrir að rekstrargjöld yrðu sam-
tals 2.705,5 milljónir króna og af-
skriftir og fjármagnsgjöld yrðu
510,0 milljónir króna.
Norðurljós
kaupa hlut í
Framtíðar-
miðlun
NORÐURLJÓS hafa keypt rúman
helming hlutafjár í Framtíðarmiðlun
hf. sem rekur PoppTíví.
Sjónvarpsstöðin PoppTíví hóf út-
sendingar 18. september sl. PoppTí-
ví sendir út innlend og erlend tónlist-
armyndbönd allan sólarhringinn,
með sérstaka áherslu á innlend tón-
listarmjmdbönd. Útsendingar stöðv-
arinnar nást á örbylgjukerfi ís-
lenska útvarpsfélagsins og á
Breiðbandi Landssímans. Hjá fyrir-
tækinu starfa tíu manns og fram-
kvæmdastjóri er Jón Jarl Þorgríms-
son. Ekki eru fyrirhugaðar neinar
breytingar á rekstri PoppTíví að svo
stöddu.