Morgunblaðið - 08.12.1999, Síða 66
66 MIÐVIKUDAGUR 8. DESEMBER 1999
MORGUNBLAÐIÐ
Dýraglens
AFHVERJU VEIFAR HANN ÖLLUM ÖNGUM ? 1 ÖRU66T6RIP! ^ // // /^ /
7
/ofóc oj /£/ 1 1 9 ^ Odia S^vtoOT. Inc. * 1 l°\) / Q’O All Rights Reserved
Grettir
Hundalíf
HANN JJLLI VAR At) SMIJA VERÖND
t SARÐINUM OKKAR
JA, EN HVERNIG 6EN6UR ME{> LITLU
TJÖRNrNA í 6ARBINUM YKKAR ?
\ NÚ, VIÉ> HÖFUM VERIÐ
) MJÖ6 UPPTEKIN, EN
1 ÞETTA ER At> KOMA
Hún hefur verið ,að koma'
í síðustu þrjú ár !
Ljóska
Þetta er ekki list. Það er vegna þess að Þú tekur of Það eru engin likamieg
Þetta er bara krass þú ert alltaf að reka þig mikið pláss. takmörk í list.
út um allt. f olnbogann á mér.
BRÉF
TIL BLAÐSINS
Kringlunni 1 103 Reykjavík • Sími 569 1100 • Símbréf 569 1329
Til þjónustu reiðubúin
fyrir gróðasjónarmið
Frá Jóni K. Guðbergssyni:
SÚ UNDARLEGA uppákoma sem
nýverið var sett á svið í versluninni
Nýkaup hlýtur að vekja spurningar
um hvort að gróðasjónarmið hafi
yfirbugað virðingu þeirra sem reka
verslunina fyiir landslögum og þeir
séu hættir að sjást fyrir í auglýs-
ingamennskunni.
Islensk lög banna áfengisauglýs-
ingar, en þessi herferð hjá Nýkaup
virkar eins og stór áfengisauglýsing.
Það vekur furðu að nokkur skuli
leggja nafn sitt við uppákomu af
þessu tagi. Fyrirtæki á borð við
Nýkaup ætti að vera vant að virð-
ingu sinni til að skilja hversu óvið-
eigandi það er að athafna sig á gráu
svæði varðandi lög og reglugerðir
eða reyna að fara í kringum reglur
einungis af því maður er ekki sáttur
við þær. Það er heldur ekki virðing-
arvert að segja ósatt eða fara í
kringum sannleikann þegar maður
veit betur og auðvelt er að ná í rétt-
ar upplýsingar. Það er ekki gott að
gleyma sér í sjálfdekri og stundar-
ávinningi ef það kemur niður á börn-
unum okkar og framtíðinni.
Heildaráfengisneysla íslendinga
hefur aukist og nálgast að vera sú
sama og hjá öðrum sem lifa við svip-
að frjálsræði hvað áfengislöggjöf
varðar. Umfangsmikil meðferðar-
starfsemi, góð meðferðarúrræði og
bindindi margra stórdrykkjumanna
síðustu árin hefur komið í veg fyrir
að við næðum nágrannalöndum í
drykkjuskap.
I frétt frá uppákomu þessari er
vitnað orðrétt í fréttavef visir.is:
„Nú fer verulegur hluti íslendinga
reglulega utan þar sem neysluhætt-
ir á áfengi eru allt aðrir. I kjölfarið
hefur vínmenning íslendinga tekið
stakkaskiptum, neysla almennings á
léttu víni og bjór hefur aukist um
leið og neysla á sterku áfengi hefur
dregist saman.“ Þetta er ekki rétt.
Hið rétta er að áfengisneysla hefur
stór aukist hér á landi undanfarin ár
og var þó áfengisvandinn ærinn fyr-
ir. Þegar skoðaðar eru tölur frá
Hagstofu Islands kemur í ljós að
rauðvínssala jókst um 27% á síðasta
ári, koníakssala um 22% og bjórsala
um 11%. Samtals drukku Islending-
ar 13,9 milljónir lítra af áfengi árið
1998 og slógu þar öll sín fyrri met í
áfengisneyslu. Það er ljóst að áfeng-
isvandinn hér er ærinn þó margt
hafi áunnist síðustu árin í baráttunni
við þennan vanda. Aukið aðgengi að
áfengi, áfengisauglýsingar og áfeng-
isdýrkun bætir ekki þennan vanda.
Óg nú hefur þvaga þingmanna
rokið upp til handa og fóta til að
styðja þá stétt manna sem helst þarf
á stuðningi að halda, eða hitt þó
heldur, íslensku kaupmannastétt-
ina. Um ræðir þvögu þingmanna
sem gjarnan hafa hamrað á því að
hún vildi jöfnuð og réttlæti, og að
hún væri andsnúin þeim sem safna
auð með augun rauð er aðra brauðið
vantar. Stakk nú úlfurinn hausnum
óvart undan sauðargærunni þegar
hann tók undir kröfu þeirra sem
hafa gróðann fyrir Guð. Þessi þvaga
ætti heldur að vinna í anda Jóns
heitins Baldvinssonar sem hélt vöku
sinni betur en flestir alþingismenn
þegar Spánverjar þvinguðu okkur
til að flytja inn léttvín. Vonandi eiga
þessar hugmyndir þvögunnar ekki
mikinn stuðning á alþingi. Vonandi
eru þar flestir með óskerta dóms-
greind.
JÓN K. GUÐBERGSSON,
Máshólar 6, Reykjavík.
Opið bréf til
Og’mundar Jónassonar
Frá Böðvari Böðvarssyni:
ÉG LAS grein þína, Ögmundur, í
Morgunblaðinu hinn 4. des. 1999 um
þá vá sem spilakassar hafa á heimili í
landinu. Þú kallar þessa kassa „vítis-
vélar“ og er það réttnefni því að
keðjuverkun af völdum þessara
spilavíta er alveg skelfilega mikil,
það verður aldrei vitað með vissu hve
margar fjölskyldur hafa farið for-
görðum af völdum þessa. En nú er
það svo, Ögmundur, með þessa fíkn
sem aðra, að menn hafa misjafnlega
góða stjóm á lífi sínu, sumir virðast
sterkari og komast betur frá þessu
meðan aðrii’ aðrir sökkva æ dýpra í
hyldýpið og þá oft og tíðum búnir að
veðsetja allt í topp hjá sér til að geta
haldið hildarleiknum áfram. Þegar
þeir peningar eru á þrotum hefst sú
keðjuverkun sem ég nefndi hér að
framan. Og hver skyldi hún þá vera?
Jú, bankinn lánar ekki meira og hvað
er þá til ráða, fyrir þetta nánast
gjaldþrota fólk, konur og karia. Það
er þá oft komið í bullandi vanskil og
því úr vöndu að ráða. Bankarnir eru
farnir að knýja dyra og þá er sjálfs-
vitund þessa fólks oftar en ekki í
molum. Þá hefst annars konar spila-
mennska, þ.e.a.s. að spila með ætt-
ingja og vini, og spilafíklunum nán-
ast hrint inn um dyrnar hjá fólki með
oftar en ekki skelfilegum afleiðing-
um. Það dugar fólki skammt að segja
þegar skaðinn er skeður að það sé
mikil ábyrgð að skrifa uppá fyrir
aðra, slík orð í eyru fólks er hreinasti
dónaskapur og ekki sæmandi virtum
bankastjórum að láta slíkt sér um
munn fara, vitandi í langan tíma í
hvert stefndi hjá viðkomandi skuld-
urum. Ég fer nú að ljúka þessu, Ög-
mundur, en tvær spurningar til þín í
lokin. 1. Getur þú séð eitthvert rétt-
læti í því að einstaklingur geti rakað
til sín 45-50 milljónum með ekkert
sýnilegt á bak við sig, það eru mörg
dæmi um slíkt og þykir bara hið fín-
asta mál í kerfinu. 2. Að maður sem
verið hefur í gjaldþrotaskiptum síð-
an í vor og engan endi ætlar að taka
skuli geta keypt sér 200 fm. raðhús á
sama tíma?
Ég styð ykkur heilshugar í þessu,
burt með spilakassana, réttlátara
þjóðfélag og gangi ykkur vel í bar-
áttunni.
BÖÐVAR BÖÐVARSSON,
Suðurvangi 14, Reykjavík.
Allt efni sem birtist í Morgunblaðinu og Lesbók er varðveitt í upplýsinga-
safni þess. Morgunblaðið áskilur sér rétt til að ráðstafa efninu þaðan, hvort
sem er með endurbirtingu eða á annan hátt. Þeir sem afhenda blaðinu efni
til birtingar teljast samþykkja þetta, ef ekki fylgir fyrirvari hér að lútandi.