Morgunblaðið - 08.12.1999, Blaðsíða 71
MORGUNBLAÐIÐ
MIÐVIKUDAGUR 8. DESEMBER 1999 71/
FÓLK í FRÉTTUM
. ,, . . ... Morgunblaðið/Ásdís
Selma Björnsdottir er em af morgum hstamonnum
sem eiga Iag á teiknimyndadisknum.
Disneygrímur
TÖIVLIST
~JA B A DA15A D C (J (J!!!
Geisladiskur
Jaba Daba Dúúú!!! - Lög úr teikni-
myndum. Flytjendur eru Stefán
Karl Stefánsson, Selma Bj'örnsdótt-
ir, Hreimur Örn Heimisson, Grímur
Gíslason, Atli Rafn Sigurðarson,
Bergsveinn Arilíusson, Margrét Eir
og Páll Rósinkranz. Lög og textar
eru eftir ýmsa erlenda höfunda s.s.
Elton John, Randy Newman, Henry
Mancini og Tim Rice. Textum er
snúið á íslensku af mönnum eins og
Stefáni Hilmarssyni, Þorsteini Egg-
ertssyni, Erni Árnasyni, Ólafi
Hauki Símonarsyni o.fl. Umsjón og
lagaval var í höndum Maríu Bjark-
ar og Eiðs Arnarsonar. Um út-
setningar og upptökur sá Pétur
Hjaltested. 35,51 mín. Spor, Skífan
og Hljóðsmiðjan gefa út.
EÐA „Lög úr treiknimyndum"
(sic) eins og segir á umslaginu. Þetta
er ein versta villa sem ég hef lengi séð
á fullfrágenginni vöru. Svona vinnu-
brögð eiga að sjálfsögðu ekki að líð-
ast, og eru aðstandendum disksins til
lítils sóma. Villan hefm- sem betur fer
verið leiðrétt á síðari tíma eintökum.
Það leiðinlegasta við svona slæmar
villur er að maður fær á tilfinninguna
að menn séu ekki með hugann við
verkið, að diskurinn sé hroðvirknis-
leg hrákasmíð sem hraðað sé í búðir
svona rétt fyrir jólaösina.
Lögin sem hér er að finna koma
nær öll úr teiknimyndaverksmiðju
Walt Disney. Hér kannast maður við
lög eins og „Töfrum slungin kvöld“,
„Hakuna matata“ og „Kóngur klár“
úr meistaraverkinu Konungur ljón-
anna, „Við höldum vörð“ úr Aladdín
og „I grænum sjó“ úr Litlu hafmeyj-
unni. Þrátt fyrir þessar staðreyndir
er hvergi á þetta minnst á sjálfum
disknum. Hreimur Öm Heimisson,
söngvari Lands og sona, og Selma
okkar Bjömsdóttir syngja t.d. hlut-
verk Aladdíns og prinsessunnar í lag-
inu „Við höldum vörð“ eða „A whole
new world“ og er þar minnst á töfra-
teppi og önnur arabísk minni. Upp-
áklædd prýða þau svo umslag disks-
ins ásamt öðrum þeim söngvumm
sem þar eiga innlegg. Maður ætlar
því eðlilega að þau séu klædd á viðlík-
an hátt og hlutverkin sem þau syngja
en í stað þess minna þau fremur á
eitthvert hefðarpar úr Grimms-ævin-
týmm! Eins er farið með hina söng-
varana þar sem ímynd þehTa á um-
slagi stendur víðsijarri þeim
hlutverkum sem maður kannast við
úr þessum Walt Disney teiknimynd-
um. Maður veltir því ósjálfrátt fyrir
sér hvað aðstandendum disksins
gengur til með þessu? Blessuð bömin
þekkja ömgglega flest lögin úr
myndunum en þeim til vonbrigða er
enginn Tímon eða Púmba framan á
umslaginu en hins vegai’ nóg af
myndum af einhverju torkennilegu
kvikindi með pípuhatt! Óskiljanlegt.
Ég man vel úr minni bamæsku
hversu miklu máli umslagið og mynd-
irnar á því skipti. Maður hefði og ætl-
að að það væri söluvænlegt að fram
kæmi að lögin væra úr ofantöldum
teiknimyndum sem notið hafa fá-
dæma vinsælda hjá ungviðinu.
En hvernig er svo tónlistin á þess-
um annars vafasama diski? Tónlistai’-
lega séð er þetta hin vandaðasta plata
enda varla við öðm að búast er sjóað-
ir listamenn eins og Elton John, Ran-
dy Newman og Henry Mancini era
meðal lagahöfunda. „Töfmm slungin
kvöld“ („Can you feel the love to-
night“) er t.d. eitt af betri lögum El-
tons John 1 seinni tíð. Að vísu finnst
mér sum lögin fara heldur mikið inn á
svæði fullorðna fólksins, enda vom
myndir eins og Aladdín og Konungnr
ljónanna ekki síður sniðnar að full-
orðnum en bömum.
Hljómur plötunnai- er fínn, hún er
lifandi og skemmtileg og munar þar
langmest um söngvarana sem standa
sig allir sem einn með piýði. Að öðr-
um ólöstuðum á Stefán Karl Stefáns-
son, maður hinna þúsund radda,
stjörnuleik á þessari plötu, en lög sín
syngur hann af hreinni innlifun og
gleði. Hreimur Örn Heimisson, sem
sífellt vex í áliti hjá mér, og Selma
Björnsdóttir syngja yndislega í ball-
öðunni „Við höldum vörð“ og Berg-
sveinn Arilíusson og Hreimui- era
einnig mjög skemmtilegir í laginu
„Ég er vinur þinn“ sem er úr mynd-
inni Leikfangasaga („Toy Story“).
Hrjúf og blámaleg rödd Bergsveins
myndar þar skemmtilega andstæðu
við svífandi englarödd Hreims. Verð-
andi konungur íslensks dægurlaga-
söngs, Páll Rósinkranz, lýkur svo
plötunni með „Töfmm slungin kvöld“
og er söngur hans frábær eins og við
mátti búast. Alveg hreint ótrúlega
góður söngvari hann Páll.
„Jaba Daba Dúúú!!!“ er sem sagt
hin ágætasta plata, þótt hún virðist
ekki vera gerð á alveg réttum for-
sendum. Við skulum bara vona að
blessað barnshjartað hljótí ekki
skaðaafþví.
Arnar Eggert Thoroddsen
Fyrirtækið
ÚTGÁFA Á ÍSLENSKU
telur að bókaverð sé of hátt
www.tunga.is
VINSÆLUSTU KVIKMYNDIR Á ÍSLANDF1
Nr.
1.
2.
3.
4.
5.
6.
7.
8.
9.
10.
11.
12.
13.
14.
15.
16.
17.
18.
19.
20.
var vikur
1. 2
2. 3
Ný -
3. 2
6. 5
4. 5
Ný -
7. 8
Ný -
9. 11
Ný 1
10 6
5. 4
8. 3
17. 9
16. 8
12. Ný. 10
24. 13
14. 10
The World is not Enough (Veröldin dugor skommt)!
Tarzan
Life (Lífstíð)
Myrkrahöfðinginn
Fight Club (Bordogaklúbburinn)
Blue Streak (Lygoloupurínn)
Enemy of my Enemy (Óvinur óvinar míns)
The Sixth Sense (Sjötto skilningorvitið)
Virtual Sexuality (Spegill, spegill...)
Ungfrúin góða og Húsið__________________________
An Ideal Husband (Fyrirmyndor eiginmoður)
Runaway Bride (Flóttobrúðurin)
Blair Witch Project (Nornoverkefnið Bloir)
Random Hearts (Róðvillt hjörtu)
The Hounting (Draugagangur)
King and I (Kóngurinn og ég)
Lína Longsokkur 2
The Theory of Flight (Aðfljúga...)
Inspector Gadget (Tæknivæddo leynilöggon)
Americon Pie (Sneið of Bandankjunum)
Framl./Dreifing l Syningarstaður
Wolt Disney Prod. ;
UIP
ísl. kvik.somst. ;
Fox I
Columbia Tri-Stor I
i
Indie
Spydass Entertainment •
Columbia TrFStor ;
Umbi/Pegosus ;
Bíóhöllin, Laugarósbíó, Nýja Bíó Ak.
Bíóh., Bíób., Kringlub., Regnb., Nýja Bíó Ak., Nýja
Hóskólabíó
Hóskólabíó
Regnboginn
Stjörnubíó, Bíóhöllin, Borgarbíó Ak.
Kringlubíó
Laugarósbíó, Regnboginn, Egilsstaðir, Höj
Bíó Kef.
Hóskólabíó
TtVTtiTfTfTriTlTITmTiri
lcon ;
Walt Disney Prod. !
i
Summit !
Columbio IrFStor
UIP j
Indie
Svensk Filmindustrie j
Indie
Wolt Disney Prod. ;
Indie ;
Regnboginn
Bíóhöllin, Kringlubíó, Bíóborgii
Bíóböllin, Kringlubíó, Nýja Bíó
Stjörnubíó, Laugarósbíó
Nýja Bíó Akureyri
Bíóhöllin, Kringlubíó, Nýja Bíó Ak.
Laugarósbíó, ísfjörður
Bíóborgin
Bíóborgin, Sauðórkrókur
Bíóhöllin
ITTITTTTITTTTI
Bond sigrar
á Fróni
HEIMURINN er ekki nóg fyrir James Bond; hann þarf
líka að njóta allra fegurstu kvennanna og heimta efsta
sæti yfir mest sóttu myndir á Fróni. Hann heldur öðr-
um bjargvætti heimsins, Tarzan, fyrir neðan sig aðra
vikuna í röð. Ný gamanmynd með Eddie Murphy og
Martin Lawrence sem nefnist Lífstíð skýst upp í þriðja
sæti og Myrkrahöfðinginn heldur góðri stöðu í þessari
hörðu samkeppni og er x fjórða sæti. Þá lætur Ungfrúin
góða ekki deigan síga og er í tiunda sæti. Nóg er af
nýjum myndum í kvikmyndahúsum þessa dagana og
fjórar nýjar bætast í slaginn um næstu helgi.
Eddie Murphy og Mai-tin Lawrence í Lífstíð.
KRINGLUNNI • SÍMI 588 7230
WWW.LEONARD.IS