Morgunblaðið - 08.12.1999, Qupperneq 73

Morgunblaðið - 08.12.1999, Qupperneq 73
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 8. DESEMBER 1999 73* FÓLK í FRÉTTUM Friðrik Karlsson gefur úr Hugar Ró Liggur næst hjartanu FRIÐRIK Karlsson gítarleikari gaf nýlega út sína þriðju slökunarplötu og nefist hún Hugar-Ró. Áður hefur hann gefið út Lífsins fljót og „Into the Light“. „Ég hafði ekki hugmynd um hvernig viðtökurnar yrðu þegar ég gerði fyrstu slökunarplötuna, en hún gekk ótrúlega vel. Þessi tónlist er ekki háð tískubylgjum, hún er frekar tímalaus eins og klassísk tónlist og diskarnir hafa báðir verið að seljast jafnt og þétt frá útgáfu,“ segir Friðrik og glottir þegar hann ljóstrar því upp að 70% kaupenda séu konur. „Eg fékk tölvupóst frá konu sem hlustar mikið á tónlistina mína, og þegar hún var að eiga barn um daginn var aðalmálið hjá henni að tónlistin mín væri spiluð á meðan. Annars eru karlarnir mikið að sækja í sig veðrið og það er mjög per- sónubundið við hvaða aðstæður fólk hlustar á tónlistina. Þetta er mikið notað í hvers konai’ meðferðum, eins og nuddi, og ég veit líka um tann- lækni sem leikur þessa tónlist á stof- unni hjá sér og mér finnst það mjög ánægjulegt. Viðskiptafólk spilar diskinn til að slaka á þegar það kem- ur heim eftir erilsaman dag, eins og sannaðist þegar ég gaf bankastjór- anum mínum í Englandi eintak af Hugar-Ró. Hann hringdi í mig strax daginn eftir og pantaði 50 diska því hann vildi að allir starfsmennirnir í útibúinu hans ættu svona disk.“ Tónlist hefur áhrif á okkur - Þarf að kunna að hugleiða til að nota diskana? „Nei, því hvort sem okkur líkar betur eða verr, hefur öll tónlist áhrif á okkur. Tónlistin mín kallar fram af- slappað og róandi ástand til að auka vellíðan. Ef fólk kýs að ganga lengra en að slappa af, hugleiða eða jafnvel kalla fram ákveðnar breytingar í lífí sínu, þá má líka nota tónlistina í það.“ - Hvað varð um Mezzforte hræð- inginn? „Ég sem reyndar þannig tónlist ennþá, og gerði nýlega disk með enskum píanóleikar sem er í Mezzof- orte stíl, ef svo á segja, svona- „smooth“ djass. Sem gítarleikari er ég í einni og sömu vikunni að gera kántrýplötu, spila undir í lagi með José Carreras eða Boyzone. Þannig að ég er alltaf að vinna við mjög ólík- ar tónlistastefnur og finnst það mjög gaman, en þetta er sú tónlist sem liggur næst hjartanu í dag. Ég hef mikið verið ð stúdera málefni sem tengjast hugleiðslu og jóga, og er að læra NLP fræði, eða Neuro Lingu- istic Programing; skemmtileg fræði sem kenna manni að nýta betur þá eiginleika og þann kraft sem maður hefur til að bæta sig og losa sig við heftandi öfl eins og streytu, lítið sjálfstraust, fælni og vonda ávana. Þetta veitir manni nýjar lausnir og hæfileika til að takast á við mótlæti, og það getur fleytt manni langt í lífs- ins ólgusjó. Þetta er á vissan hátt sálfræði nema að þessi aðferð er fljótvirkari. Allt snýst þetta um að verða betri maður. Mér finnst við- horfið til nýaldarfræða vera að Morgunblaðið/Jim Smart Konunum í Baðhúsinu fannst tónarnir hans Friðriks ljúfir og afslappandi. Friðrik við gosbrunninn í Baðhúsinu. Kári Eyþórsson hjá Skóla lífsins og Ragna Margrét Norðdahl ræða málin. breytast mikið. Erlendis eru bæði sálfræðingar og læknar mikið að kynna sér t.d. þessi NLP fræði, og ég er viss um að þau eigi eftir að hafa áhrif á öll lækna- og sálfræðivísindi í framtíðinni." - Er Hugar-Ró ólík hinum plötun- um? „Mér finnst hún besta platan til þessa. Ég sem tónlistina sem lög þótt hver hljómur vari mun lengur en í hefðbundari tónlist. Ég hef inngang, melódíur, viðlög. Formið er svipað en ég teygi á því.“ - Spilað á gítíir? „Ég nota tölvu mikið, nokkra hljóðgerfla, en gítarinn er aðalatriðið og rafmagnssítar líka sem ég hef miklar mætur á. Svo nota ég líka náttúruhljóð til að kalla fram viss áhrif.“ - Af hverju hélstu útgáfutónleik- ana í fíaðhúsinu? ,,Auk þess sem Linda selur tónlist- ina mína, finnst mér staður þessarar tónlistar vera þar sem fólk er að láta sér líða vel og er að gera eitthvað fyr- ir sjálft sig. Og ég valdi mér besta staðinn í húsinu; við gosbrunninn." - Hvort mun tónlistin eða mann- tæktarmálin eiga stærri sess í lífí þínu í framtíðinni? „Að sjálfsögðu verð ég alltaf í tón- listinni, en þar sem ég hef mikinn áhuga á mannræktarmálum, hef ég í samvinnu við vin minn Kára Eyþórs- son stofnað nýja skóla á íslandi sem heitir Skóli lífsins. Við höfum þegar haldið eitt námskeið, og mörg önnur eru á dagskrá, og mun ég útvega kennara erlendis frá. Þetta verða námskeið fyrir fólk sem vill ná meiri árangri í lífinu hvort sem þar er ? starfi eða einkalífinu.“ S K I P NATTURAN ÞIG MALI? IBtllBfgÍI jt ~ I , ,-S- ■ .. mur - þiálpaöo *''• Tíminn «ósUum vib efúr Vegna mikd nl starfa. SÍálfb0S»HsU^ll8# Frekari upp'ysin& Umhverfisvinir um allt land eru nú í kapphlaupi við tímann. Ef þér finnst að stjórnvöld eigi að fara að lögum og að fyrirhugaðar framkvæmdir á Eyjabökkum skuli í lögformlegt umhverfismat þá segir þu þinn hug best með því að hringja í síma 595 5500 eða skrá nafn þitt á netinu umhverfisvinir.is. Einnig liggja undirskriftalistar frammi víða um land. Láttu þína skoðun um framtfðar ástand umhverfismála á Islandi í Ijós. imÉ&r *** WW 't*%drHÍrÍ' SKRAÐU PIG MEÐ EINU SÍMTALI 595 5500 umhverfisvinii umhvertisvinir(a)mmedia.is Síðumúla 34 • sími 533 1180’ fax 533 1181' www.umhverfisvinir.is UMHVERFIS vinir
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.