Morgunblaðið - 09.06.2000, Blaðsíða 1

Morgunblaðið - 09.06.2000, Blaðsíða 1
131. TBL. 88. ÁRG. FÖSTUDAGUR 9. JÚNÍ 2000 PRENTSMIÐJA MORGUNBLAÐSINS Obuchi borinn til grafar ÞÚSUNDIR syrgjenda söfnuðust saman í Tókýó í Japan í gær þegar Keizo Obuchi, fyrrverandi forsætis- ráðherra landsins, var borinn til grafar. Obuchi lézt 14. maí í kjölfar heilablóðfalls. Hann var 62 ára. Fulltrúi íslands við athöfnina var Ingibjörg Pálmadóttir, heilbrigðis- ogtryggingamálaráðherra. I eftirmælum var Obuchi hrósað fyrir tryggð við land sitt og þátt hans í að hefja Japan upp úr lang- vinnum efnahagserfiðleikum. Yoshiro Mori, forsætisráðherra landsins og góður vinur Obuchis frá því þeir voru námsmenn við Was- eda-háskóla, sagði að Obuchi hefði hvergi dregið af sér við að lyfta Japan úr efnahagslægðinni. „Á miðri leið að markmiði sínu hvarf hann á braut án þess að fá að sjá ávexti erfiðis síns.“ Útförin hófst með því að eigin- kona Obuchis og sonur báru stórt duftker með ösku hans til sam- komuhússins í miðborg Tókýó, þar sem syrgjendur sátu andspænis mynd af forsætisráðherranum fyrrverandi, sveipaðri svörtum borða, yfir risandi sól japanska þjóðfánans. Frá því hann lézt hefur Obuchi verið hrósað sem vinsælum leiðtoga er kom á laggirnar opinberum út- gjaldaáætlunum og umfangsmikilli aðstoð við bankakerfið til þess að draga efnahagslífið upp úr þeirri lægð sem það hefur verið í um ára- tugaskeið. Árangurinn af stefnu Obuchis hefur orðið misjafn. Efna- hagslífið er smám saman að rétta úr kútnum, en framfarirnar hafa verið ójafnar og ekki er enn ljóst hvort Japanir nái fyllilega að sigr- azt á efnahagsvandanum. Skíða- grímur bannaðar Amsterdam. Reuters. NOTKUN á skíðagrímum og ölvun á almannafæri er bönnuð í Amsterdam frá því á hádegi í dag. Sérstök lög hafa verið sett í borginni í tilefni af Evrópu- keppninni í fótbolta sem hefst á morgun og munu þau gilda til 4. júlí nk. Lögbrjótar eiga á hættu að vera sektaðir um 50 gyllini, eða um 2.500 krónur, en samkvæmt lögunum er einnig bannað að standa á grindverkum og vega- tálmum. Þá heimila lögin borg- arstjóra Amsterdam að gera breytingar á helstu umferðar- leiðum borgarinnar. Þeir sem síðan gerast sekir um kyn- þáttafordóma eða streitast á móti við handtöku verða sekt- aðir um 50.000 kr., en ólögleg sala á miðum á leiki kostar við- komandi 37.000 kr. Evrópu- keppnin er að þessu sinni hald- in í bæði Hollandi og Belgíu. Tvær japanskar konur fylgjast með útför Obuchis á stórum sjónvarps- skjá í Sony Plaza-sýningarsalnum í Tókýó í gær. Bandarflrin boða stefnubreytingu Dregið verði úr þvingunum gegn N-Kóreu Tdkýó, Seoul. Reuters, AP: TALSMAÐUR Bills Clintons Bandaríkjaforseta sagði í gær for- setann senn tilkynna áætlun um að draga úr efnahagsþvingunum gegn Norður-Kóreu vegna batnandi sam- skipta Norður-Kóreu við Suður-Kór- eu og Japan að undanfíirnu. P.J. Crowley, talsmaður forset- ans, sagði á blaðamannafundi í Tókýó í gær að Bandaríkjastjórn hafi undanfarið leitað leiða til að draga úr þvingununum en neitaði því að ákvörðunin væri háð niðurstöðu leiðtogafundar Kóreuríkjanna. Þeir Kim Dae-jung, forseti S-Kór- eu, og Kim Jong-il, forseti N-Kóreu, munu hittast í fyrsta sinn á söguleg- um leiðtogafundi í Pyongyang, höf- uðborg N-Kóreu, 12.-14. þessa mán- aðar. Miklar vonir eru bundnar við að fundurinn bæti samskipti ríkj- anna, sem enn eiga formlega í stríði. Uppskerubrestur í N-Kóreu Ríkisfréttastofa N-Kóreu greindi frá því í gær að þurrkatíð og miklir Höfðingjar á Ffdjí vílja sjálfsstjórnarrettindi Krefjast aukinna valda fyrir héruðin Suva, Canberra. Reuters, AP. ÆTTBÁLKAHÖFÐINGJAR í efna- hagslega mikilvægum héruðum á Fídjí-eyjum kröfðust þess í gær að völd sín yrðu aukin og héruðin fengju sjálfsstjórnarréttindi. Höfðingjarnir eru andvígir upp- reisnannönnum, sem réðust inn í þinghús landsins fyrir þremur vikum, tóku forsætisráðherrann og 30 aðra ráðamenn í gíslingu og sögðust hafa tekið völdin í sínar hendur. Ekkert benti til þess í gær að gíslunum yrði sleppt á næstunni og neita yfirmenn hersins að semja við uppreisnarmenn. Höfðingjamir eru frá fimm héruð- um í vesturhluta stærstu eyju Fídjí, Viti Levu, þar sem flestar sykur- reyrsplantekrur landsins og margir ferðamannastaðir eru. Þeir telja sig ekki hafa næg pólitísk áhrif í höfuð- borginni Suva, sem er í suðaustur- hluta eyjunnar, miðað við höfðingja austurhlutans. Höfðingjamir lýstu ekki yfir sjálf- stæði héraðanna en sögðu að þau ættu að fara með stjóm eigin mála. Þeir sögðust einnig hafa stofnað nýtt ráð sem ætti að taka við hlutverki höfð- ingjaráðs, sem hefur haft mikil menn- ingarleg og pólitísk áhrif á eyjunum, meðal annars átt fulltrúa í efri deild þingsins og ráðið miklu um skipun forseta landsins. Óttast er að myndi vesturhéruð Viti Levu eigin stjóm kunni fleiri hémð að fylgja í kjölfarið sem gæti orðið til þess að ríkið leystist upp. Reuters Erlendir borgarar safnast saman á strönd í Honiara, höfuðborg Salómonseyja, og bíða eftir því að verða fluttir í ástralskt herskip sem á að flytja þá til Ástralíu vegna átakanna á eyjunum. Blóðug átök á Salómonseyjum Blóðug átök hafa blossað upp í grannríkinu Salómonseyjum þar sem uppreisnarmenn tóku forsætisráð- herrann í gíslingu og reyndu að taka völdin í sínar hendur. Utanríkisráð- herra Nýja-Sjálands sagði í gær að forsætisráðherra eyjanna væri í stofu- fangelsi þótt uppreisnarmennimir hefðu samþykkt að láta hann lausan gegn því að hann kæmi fyrir þingið til að það gæti greitt atkvæði um hvort hann ætti að láta af embætti. hitar undanfarið hefðu hijáð lands- menn og ástandið valdi þvi að upp- skerubrestur sé fyrirsjáanlegur. Til- kynningin kemur rúmri viku fyrir leiðtogafundinn þar sem talið er að forsetar ríkjanna muni ræða fjár- hagsaðstoð S-Kóreu til handa grann- ríkinu. N-Kórea hefur undanfarin ár reitt sig á erlenda matvælaaðstoð vegna erfiðleika í landbúnaðariðnaði. Andrew Nori, leiðtogi uppreisnar- mannanna, léði máls á því að þeir hættu árásum á andstæðinga sína, sem hafa kostað allt að hundrað manns lífið, meðan sendinefnd frá Samveldislöndunum reyndi að stilla til friðar á eyjunum. Hundruð útlendinga, aðallega kon- ur og böm, vom í gær flutt í ástralskt herskip nálægt höfuðborginni Honi- ara. Ráðgert er að skipið sigli með allt að 800 útlendinga til Ástralíu í dag. 1.300 útlendingar búa á Salómonseyj- um, þar af um 700 Ástralar. Evrópski seðlabank- inn hækkar vexti Evran dregur á dollar- ann Frankfurt, Bcrlín. AP, AFP. EVRÓPSKI seðlabankinn hækkaði í gær vexti um hálft prósentustig og varð það til þess að gengi evrunnar hækk- aði einnig. Evran fór í tæplega 0,97 gagnvart dollara en lækk- aði á ný er leið á daginn og var 0,955 er markaðir voru lokaðir. Var vaxtahækkunin hálfu meiri en við hafði verið búist. Wim Duisenberg, yfirmaður Evrópska seðlabankans, sagði er hann tilkynnti vaxtahækk- unina, úr 3,75% í 4,25%, að hún hefði verið nauðsynleg til að halda aftur af verðbólgunni. Tilgangurinn hefði ekki verið að styrkja gengi evrunnar, sem Duisenberg kvað vanmetna, og ekki endurspegla jákvæða efnahagsþróun í Evrópu. Fjórmálasérfræðingar segja, að hækkunin á gengi evrunnar að undanförnu stafi af áhyggj- um af þróuninni í Bandaríkjun- um en þarlendar hagtöiur, sem birtar vom sl. þriðjudag, og ýmis önnur teikn benda til, að farið sé að draga úr hagvextin- um. Óttast sumir að koma kunni til „harðrar lendingar" í bandarísku efnahagslífi. Michael Schubert, hagfræð- ingur hjá Commerzbank, sagði í gær, að hagvöxtur í Evrópu- sambandsríkjunum væri að aukast en líklega færi hann minnkandi vestan hafs. Spáði hann því, að evran myndi ná dollaranum fyrr en búist hefði verið við. MORGUNBLAÐH) 9. JÚNÍ 2000 6909C 090000
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.