Morgunblaðið - 15.09.2000, Blaðsíða 1
STOFNAÐ 1913
211. TBL. 88. ÁBG. FÖSTUDAGUR16. SEPTEMBER 2000 PRENTSMIÐJA MORGUNBLAÐSINS
Aung San
Suu Kyi
frjáls ferða
sinna
Rangoon. AP.
HERFORINGJASTJÓRNIN
í Burma tilkynnti í gær að
Aung San Suu Kyi, helsti leið-
togi lýðræðis-
sinna í land-
inu, væri
frjáls ferða
sinna á ný, en
hún var
hneppt í stofu-
fangelsi fyrir
tveimur vik-
um. Átta aðrir
stjórnarand-
stæðingar,
sem höfðu setið í stofufangelsi
frá því í byrjun þessa mánað-
ar, voru einnig látnir lausir.
Herforingjastjórnin svipti
Aung San Suu Kyi og átt-
menningana ferðafrelsi eftir
að þau reyndu að sækja fund
Lýðræðisfylkingarinnar
(NLD) í bænum Kungyaone
24. ágúst síðastliðinn. Þau
voru stöðvuð á leiðinni og
höfðust við í bílum sínum í níu
daga, áður en þau voru flutt
nauðug aftur til höfuðborgar-
innar Rangoon. I yfirlýsingu
stjórnarinnar í gær segir að
þau „séu ekki lengur skyldug
til að hafast við á heimilum
sínum“. Forsvarsmenn NLD
sögðu að á það myndi reyna í
dag, þegar höfuðstöðvar fylk-
ingarinnar verða opnaðar á
ný, en þeim var lokað af yfir-
völdum 1. september.
Breskir stjórnarerindrekar
sem heimsóttu Aung San Suu
Kyi síðdegis í gær sögðu í
samtali við fréttastofu BBC
að hún hefði verið „létt í
skapi“, þótt nokkuð virtist af
henni dregið.
Mótmælaaðgerðum flutningabflstjóra í Belgíu hætt á miðnætti
Eldsneytisdeilurnar í
Evrópu virðast í rénun
MÓTMÆLIN í Evrópuríkjum gegn háu verði og
sköttum á eldsneyti virðast vera í rénun en flutn-
ingabflstjórar í Belgíu tilkynntu í gærkvöldi að þeir
myndu aflétta aðgerðum sínum á miðnætti. Dreif-
ing eldsneytis hófst að nýju í Bretlandi í gærmorg-
un og í gærkvöldi höfðu flestar birgða- og hreinsi-
stöðvar í landinu verið opnaðar.
Aðgerðir belgískra flutningabflstjóra stóðu í
fimm daga og höfðu lamað umferð í miðborg Bruss-
el og á mörgum helstu þjóðvegum landsins. Guy
Verhofstadt, forsætisráðherra Belgíu, lýsti því yfir
í gær að ríkisstjómin myndi ekld verða við kröfiim
mótmælenda um að lækka skatta á eldsneyti en
bauð flutningabflstjórum þess í stað ýmsar ívilnan-
ir, þar á meðal að vegatollar og skattar á bifreiða-
tryggingar yrðu lækkaðir. í kjölfarið ákváðu þrjú
helstu félög flutningabflstjóra að hætta aðgerðum
sínum en vöruðu við því að þau myndu áfram
þrýsta á stjómvöld um að lækka álögur á eldsneyti.
Samtök olíuútflutningsríkja, OPEC, lýstu sig í
gær reiðubúin að íhuga frekari aukningu á
olíuframleiðslu ef markaðsaðstæður krefðust þess.
En samtökin vísuðu því á bug að þau bæra ábyrgð
á háu bensínverði. „Þær ríkisstjómir sem telja
ástæðu til að leggja gríðarlega skatta á eldsneyti
bera alla sökina á þessu háa verði“, segir í yfir-
lýsingu OPEC.
Friðsamleg mótmæli í Þýskalandi
Flutningabílstjórar og bændur í Þýskalandi
stóðu fyrir friðsamlegum mótmælum í gær og
hyggjast halda þeim áfram næstu daga en mót-
mælafundir hafa verið skipulagðir um allt landið
26. þessa mánaðar. Þýska ríkisstjórnin hefur, eins
og stjórnir annarra Evrópuríkja, útilokað að skatt-
ar á eldsneyti verði lækkaðir.
Mótmæli hafa verið boðuð næstu daga á Spáni,
Ítalíu og írlandi, í Danmörku, Noregi, Hollandi og
Póllandi en nú þykir óvíst að gripið verði til aðgerða
á borð við þær sem skapað hafa öngþveiti í Frakk-
iandi, Bretlandi og Belgíu.
■ Mótmælaaðgerðum/28
AP
Ibúar Brussel gátu ótruflaðir spilað knattspymu á auðum götum í miðborginni í gær, því mót-
mælaaðgerðir flutningabflsljóra höfðu lamað bflaumferð.
Forseti S-Afríku efast um að
HlV-veiran valdi alnæmi
Hvattur til að
skipta um skoðun
Höfðaborg.AFP.
FORSETI Suður-Afríku, Thabo
Mbeki, hefur á síðustu mánuðum
legið undir ámæli fyrir að halda því
fram að HIV-veiran sé ekki eina or-
sök alnæmis, gagnstætt því sem al-
mennt er talið. Nú er svo komið að
samflokksmenn forsetans hafa séð
sig knúna til að fara þess á leit við
Mbeki að hann falli frá þessari af-
stöðu sinni.
Dagblaðið The Cape Timcs birti í
gær útdrátt úr trúnaðarskjali frá
heilbrigðismálanefnd Afríska þjóð-
arráðsins, þar sem Mbeki og heil-
brigðisráðherrann, Manto Tshabal-
ala-Msimang, eru hvattir til að
viðurkenna opinberlega að HIV-
veiran valdi alnæmi. Að sögn dag-
blaðsins var skjalinu dreift til
flokksfélaga fyrr í vikunni og mun
efni þess hafa valdið nokkurri ólgu
innan flokksins.
Mbeki hefur verið harðlega
gagnrýndur fyrir
að skipa um-
deilda vísinda-
menn í ráð sem
fjallar um varnir
gegn alnæmi, en
þeir telja að ýms-
ir aðrir þættir en
HlV-veiran valdi
sjúkdómnum, til
dæmis fátækt,
vannæring og ítrekaðar sýkingar á
borð við malaríu eða kynsjúkdóma.
Talið er að þeir hafi haft áhrif á þá
ákvörðun stjómvalda í október á
síðasta ári að neita að veita barns-
hafandi konum, sem smitaðar eru
af HlV-veirunni, lyfið AZT, sem
rannsóknir sýna að minnki líkurnar
á að veiran berist frá móður til
bams. Einn af hveijum tíu Suður-
Afríkubúum er smitaður af HIV-
veirunni.
Japanar fordæma
refsiaðgerðirnar
Tökýö. AFP, AP.
JAPÖNSK stjómvöld fordæmdu í
gær fyrirhugaðar refsiaðgerðir
Bandaríkjastjómar gegn hvalveið-
um Japana. Sjávarútvegsráðherra
Japans, Yoichi Tani, varaði Banda-
ríkjastjórn við því að gera alvöra úr
því að banna veiðar japanskra skipa í
bandarískri landhelgi og sagði það
stangast á við alþjóðalög.
Tani sakaði bandarísk stjómvöld
um að byggja afstöðu sína til hval-
veiða á tilfinningasemi og hvatti tfl
þess að Qölþjóða viðræður yrðu hafn-
ar um hvalveiðar, þar sem gengið
yrði út frá alþjóðalögum. Hann lagði
áherslu á að hvalveiðar Japana væra
eingöngu stundaðar í vísindaskyni og
væra því í fullu samræmi við sam-
þykktir Alþjóðahvalveiðiráðsins.
Japanskir embættismenn hafa
hótað að taka málið upp við Heims-
viðskiptastofnunina ef Bandaríkja-
stjórn grípur til efnahagslegra refsi-
Vara Banda-
ríkjastjórn við að
gera alvöru úr
hótunum sínum
aðgerða vegna hvalveiðanna.
Lögfræðingar hafa bent á að miklar
líkur séu á að Japanar vinni sigur í
slíku máli, því Bandaríkjamenn flytji
ekkert hvalkjöt inn frá Japan og
þeim sé því ekki heimilt að taka upp
viðskiptaþvinganir.
Aðgerðum yrði svarað
Embættismenn hafa jafnframt lát-
ið að því liggja að hugsanlegum að-
gerðum Bandaríkjamanna verði
svarað og benda á að Japanar flytji
mikið af fiskafurðum inn frá Banda-
ríkjunum.
Japanar hófu veiðar á búrhval og
skorureyði í vísindaskyni í sumar, til
viðbótar við hrefnuveiðar, en Banda-
ríkjastjórn telur að þeir hafi þar með
brotið samþykktir Álþjóðahvalveiði-
ráðsins. Bill Clinton Bandai-íkjafor-
seti tilkynnti á miðvikudag að hann
hefði falið ríkisstjórn sinni að undir-
búa refsiaðgerðir gegn Japan vegna
þessa og tiltók sérstaklega að jap-
önsk skip yi-ðu útilokuð frá veiðum í
bandarískri lögsögu, en víðtækari
aðgerðum var einnig hótað.
■ Bandarikin hefja/29
MORGUNBLAÐH) 15. SEPTEMBER 2000