Morgunblaðið - 15.09.2000, Blaðsíða 63
MORGUNBLAÐIÐ
FÖSTUDAGUR 15. SEPTEMBER 2000 63
UMRÆÐAN
Staðreyndir
aukaatriði?
EINHVERRA hluta
vegna er DV afar annt
um að tortryggja með
öllum hugsanlegum
ráðum vel heppnaða
flutninga Landmæl-
inga íslands til Akra-
ness. Áberandi frétt á
baksíðu blaðsins laug-
ardaginn 9. september
sl. var fylgt eftir með
innleggi ritstjóra
mánudaginn 11. sept-
ember sl.
Það er óumdeilt að
framlög ríkisins til
Landmælinga Islands
hafa hækkað.
DV kærir sig hins
vegar ekki um að greina frá því að
hærri framlög má rekja beint til auk-
inna verkefna. Þannig fær stofnunin
nýtt 40 millj. kr. framlag á ári næstu
fimm árin, gagngert til þess að vinna
stafrænan gagnagrunn af Islandi.
Það framlag hefur ekkert með flutn-
inga Landmælinga íslands að gera.
Sömuleiðis er óumdeilt að tekjur
stofnunarinnar af sölu á kortum,
loft- og gervitunglamyndum drógust
saman á síðasta ári vegna nýtilkom-
innar samkeppni á þessu sviði. Sá
samdráttur hefur því heldur ekkert
með flutningana upp á Akranes að
gera.
Það er hins vegar ánægjulegt að
geta þess að tekjur af sölu stafrænna
grunnkorta og vegna afnota- og birt-
ingagjalda af gögnum stofnunarinn-
ar hafa farið stigvaxandi. Þannig eru
sértekjur Landmælinga íslands
áætlaðar 47 millj. kr. í ár.
Samhliða flutningunum upp á
Akranes í ársbyrjun 1999 var starf-
semi Landmælinga íslands endur-
skipulögð á markvissan hátt með það
að leiðarljósi að treysta innviði stofn-
unarinnar. Þótt flutningurinn hafí
vissulega verið um-
deildur vakti hann at-
hygli á stofnuninni og
starfsemi hennar. Sú
athygli hefur orðið til
þess að henni hafa ver-
ið falin fleiri og fjöl-
breytilegri verkefni
sem brýn þörf er á.
Engin ástæða er til
þess að draga dul á þá
staðreynd að við flutn-
ingana upp á Akranes
kusu margir mætir
starfsmenn að segja
skilið við stofnunina.
Það er aftur á móti mat
undirritaðs að Land-
mælingar íslands hafi á
undraskjótum tíma náð að jafna sig á
brotthvarfí fólks í lykilstöðum.
Starfsemi Landmælinga íslands
Landmælingar
Starfsemi Landmælinga
Islands blómstrar nú
sem aldrei fyrr, segir
Magnús Guðmundsson.
blómstrar nú sem aldrei fyrr. Sam-
hentur hópur dugmikilla starfs-
manna, samfara auknum skilningi
stjórnvalda á starfseminni, ræður
þar auðvitað mestu. Hinu má ekki
gleyma að bæjaryfirvöld á Akranesi
og bæjarbúar allir hafa tekið vel á
móti nýrri stofnun og starfsmönnum
hennar. Umdeildir flutningar sner-
ust upp í farsæl straumhvörf í
rekstri stofnunar sem allt of lengi
hafði verið hornreka.
Höfundur er forstjóri Landmælinga
íslands.
Magnús
Guðmundsson
Vagnhöföa 17
■ 112 Reykjavík
3 Sími: 587 2222
M Fax: 587 2223
Geriö verðsamanburð
£ Tölvupústur: sala@hellusteypa.is
i/>
«
O
Mörkinni 3, sími 588 0640
Opið mán.-fös. frá kl. 12-18
I Vega fæðubótarefnum er hvorki
K matarlím (gelatína) né tilbúin aukefni,
litarefni, bragðefni eða rotvarnarefni.
>?' Ennfremur innihalda þau ekki korn,
hveiti, glúten, sykur, sterkiu, salt, ger
eða mjólkurafurðir.
Barnavitamfn Minnkar sykurþörf
Þroski - Vöxtur dregur úr
Styrkur hungurtilfiinninqu
Orka
Vöðvar. Vefir
Tannhold
Nes apótek
Eiðstorgi
«ÞfíS/YMEQíf
Höfum opnað barnafata- verslun í Krinslunni 8-12, á annarri hæö, með hiö þekkta danska
vörumerki S effbn &•'/
þar sem sæði og gott
verö fer saman. J|S 4' i , ' \ J 'Æmm 1 \\A(j OliTOOI % f'
Opnunartilboö föstudag • JBa&' m •« i.li 1 W f
til sunnudags. vS 'j Mgra&C .**•?• 'i-’íS i 1/ ^ \
20% afsláttur af öllum ͧ|V Jfeöw
vörum verslunarinnar. I I
Ath. tilboöið gildir líka í s ll
versluninni Kátir krakkar fH 1 ,h\ «1 m 1 .km »1 l ( 1 kSý
á Akureyri
Verið velkomin vl||i rtn
Kátir krakkar Sími 568 2700
JT
-ALL.TAf= EITTH\SA£) NÝTT
Handboltinn á Netinu