Morgunblaðið - 15.09.2000, Blaðsíða 6
6 FÖSTUDAGUR 15. SEPTEMBER 2000
MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
Haraldur Ólafsson veðurfræðingur rannsakar myndun vindstrengja í landslaginu
Reiknar út
hvernig lands-
lagið stýrir
vindáttinni
HARALDUR Ólafsson veðurfræð-
ingfur, sem starfar við Háskóla Is-
lands og Veðurstofuna, vinnur um
þessar mundir að rannsóknar-
verkefni sem felst í að reikna út
hvar vindstrengir og skjól myndast
í flóknu landslagi.
Á meðfylgjandi korti má sjá
dæmi úr niðurstöðum Haralds og
samstarfsmanns hans Ólafs Rögn-
valdssonar þar sem sýnd er dæmi-
gerð norðaustanátt á höfuðborgar-
svæðinu.
„Það fer ekkert á milli mála að
þessi norðaustanátt er býsna hvöss
sums staðar en mun hægari annars
staðar. Vindáttin er líka nokkuð
breytileg. Sums staðar fer hún yfir
í hreina austanátt en annars staðar
er vindurinn mjög norðlægur," seg-
ir Haraldur í samtali við Morgun-
blaðið.
„Reikningar af þessari ná-
kvæmni á vindi í raunverulegu
landslagi hafa ekki verið gerðir
mér vitanlega hér á Islandi áður og
óvíða í öðrum löndum og þá með
mismunandi árangri,“ segir hann.
Aðferð til að meta vindafar í
flóknu landslagi
Aðspurður hvort einnig væri
hægt að nota svona útreikninga við
veðurspár eða þeir jafnvel komið í
stað veðurspár að einhverju leyti
sagði Haraldur að engir vísindaleg-
ir þröskuldar stæðu í vegi fyrir því
að veður væri reiknað með þessum
hætti nokkra daga fram í tímann.
Tiilit tekið til veðurfars við
skipulag íbúðabyggðar
Hann sagði að ástæða þess að
hann hefði ákveðið að beina athygli
sinni að höfuðborgarsvæðinu í
þessu verkefni væri sú að unnið
væri að skipulagningu byggðar í
Hamrahlíðarlöndum við Ulfarsfell
og áhugi væri á að taka tillit til veð-
urfars við skipulagsvinnu vegna
hverfisins. „Þetta gæti Iíka verið
tæki til að sjá hvar skynsamlegt er
að setja upp vindrafstöðvar,“ segir
hann.
Haraldur var spurður hvort hægt
væri að nota þessa aðferð til að sjá
hvar vindstrengir og veðurskjól
mynduðust í einstökum borgar-
hlutum og hverfum og sagði hann
að það ætti að vera mögulegt með
nokkurri nákvæmni.
niftnTiraíf
nfrmrfíiiiTfjji m'i 11 n'\ iirfi 11 ríi hí '
liujli-lljLP-ljtlí-ljUUýuí-.4DDjú11 ui ii imiimf -
Rannsóknarverkefni Haraldar Ólafssonar veðurfræðings
þar sem reiknað er út hvar vindstrengir og skjól
myndast í flóknu landslagi. Miðvikudaginn 22. mars
1999 var norðaustan kaldi á höfuðborgarsvæðinu.
Á kortinu hér að ofan má sjá dæmi um hvernig
landslagið stýrir vindinum, bæði hvað snertir vindstyrk
og vindstefnu. Mest áberandi er hvað Hvalfjarðar-
strengurinn er sterkur og hvað hann nær langt út úr
fjarðarmynninu. Eins koma fram skjóláhrif bæði af
Akrafjalli og Esjunni.
20% nemenda Korpuskóla fóru í leyfí frá skólanum síðasta vetur
Skólastjórar þurfa að
veita nemendum heimild
Að sögn Haralds er samræmið á
milli þessara útreikninga og veður-
athugana hér á landi býsna gott.
„Hér virðist vera komin aðferð til
að meta vindafar í flóknu lands-
lagi,“ segir hann.
Aðspurður segir Haraldur þó
reikninga af þessu tagi ekki koma í
stað vindmælinga þó að nýta megi
þá í veðurfarsrannsóknum.
„Þetta eru bara reikningar, ekki
raunveruleikinn, og til að hægt sé
að vera nokkuð viss um að reikn-
ingarnir gefi ekki mjög ranga
mynd af raunveruleikanum þarf að
vera hægt að bera þá saman við
mælingar. Reikningarnir geta hins
vegar verið til verulegrar aðstoðar
við að ákveða hvar eigi að mæla.
Það mætti t.d. hugsa sér að ef ætti
að leggja 20 km langan veg og
menn vildu vita hversu hvasst verð-
ur á veginum, þá væri hægt að
reikna vindinn við ýmsar aðstæður,
finna þá staði þar sem hvassast er
og setja vindmæli þar í stað þess að
hafa t.d. 200 vindmæla með 100
metra millibili," segir hann.
GUÐNI Olgeirsson, deildarsér-
fræðingur í grunnskóladeild
menntamálaráðuneytisins, segir að
foreldrar eða forráðamenn geti ekki
tekið barn sitt tímabundið úr grunn-
skóla nema með heimild skólastjóra.
Skýrt sé kveðið á um það í lögum
um grunnskóla og ennfremur segir
hann að sú lagagrein hafí verið
ítrekuð í svörum menntamála-
ráðuneytisins frá apríl sl. við fyrir-
spurn aðstoðarskólastjóra Korpu-
skóla í Reykjavík um þetta efni.
Greint var frá því í Morgunblað-
inu í gær að formaður Skjólastjóra-
félags Islands, Þorsteinn Sæberg,
líti svo á að með svörum ráðuneytis-
ins sé verið að heimila foreldrum
eða forráðamönnum að taka börn
sín úr skóla án sérstakrar heimildar
skólastjóra. Hafa skólastjórar bent
á að vetrarleyfi nemenda hafi færst
mjög í vöxt á undanförnum árum og
tekið sem dæmi að um 20% nem-
enda í Korpuskóla hafi verið í fríi
síðasta vetur frá einum degi upp í
fimmtán daga vegna ferðalaga.
Þar af hafi þrjú börn verið fjar-
verandi í samræmdum prófum í 4.
bekk. Af þeim ástæðum sendi að-
stoðarskólastjóri Korpuskóla, Auð-
ur Stefánsdóttir, erindi til mennta-
málaráðherra, Björns Bjarnasonar,
síðasta vetur þar sem hún spurði
hver réttur skólastjórnenda væri til
að neita foreldrum eða forráða-
mönnum um frí fyrir nemendur á
starfstíma skóla.
I svörum menntamálaráðuneytis-
ins við fyrirspurn skólastjórnanda
Korpuskóla segir m.a.: „Samkvæmt"
8. gr. [grunnskólalagaj getur for-
ráðamaður skólaskylds barns tekið
það tímabundið úr skóla og skóla-
stjóri, að höfðu samráði við umsjón-
arkennara, heimilað það ef gildar
ástæður eru til þess. I greinargerð
með frumvarpinu eru tilfærð sem
dæmi um gildar ástæður keppnis-
ferðir í íþróttum, aðstoð við bændur
á álagstímum og aðrar tímabundnar
fjarvistir sem skólastjóri metur
gildar.“
Síðan segir í svari ráðuneytisins:
„Menntamálaráðuneytið lítur svo á
að fjölskylduferðir geti verið gildar
ástæður í þessu sambandi enda hef-
ur sú hefð skapast að foreldrar geti
tekið börn sín með t.d. í skíðaferðir
eða aðrar skemmtiferðir til út-
landa.“ Þá er þess getið að í 8. gr.
grunnskólalaganna komi skýrt fram
að foreldrar eða forráðamenn séu
ábyrgir fyrir því að nemandinn
vinni upp það sem hann missi úr
námi á meðan á undanþágu frá
skólasókn stendur.
Guðni Olgeirsson ítrekar að ráðu-
neytið líti á fjölskylduferðir eins og
þær sem að ofan er getið um sem
gildar ástæður fyrir því að barn sé
tekið úr skóla um tíma en að öðru
leyti sé það skólastjóranna að meta
gildi ástæðnanna.
Deilan snýst um
gildu ástæðuna
Þegar rætt er við skólastjórnend-
ur kemur í ljós að það er einmitt
þessi nýja túlkun ráðuneytisins á
gildum ástæðum sem veldur því að
þeir líti svo á að þeir hafi í raun ekk-
ert um það að segja að börnum sé
kippt tímabundið úr skóla. „Það er
ekki hægt að túlka úrskurðinn öðru-
vísi en svo að hann gefi leyfi fyrir
því að foreldrar geti tekið börnin sín
úr skóla til að fara í skemmtiferðir
að vetri til,“ segir Auður Stefáns-
dóttir, aðstoðarskólastjóri Korpu-
skóla.
í sama streng tekur Þorsteinn
Sæberg, formaður Skólastjórafé-
lags íslands. En þegar honum er
bent á að í svörum ráðuneytisins sé
tekið fram að fjölskylduferðir geti
verið gildar ástæður en ekki að þær
séu gildar ástæður segir hann að
skólastjórar geti ekki farið að túlka
„loðin svör“ ráðuneytisins. Foreldr-
ar muni án efa líta svo á að fjöl-
skylduferðir séu gildar ástæður fyr-
ir tímabundnu leyfi frá skóla. „Við
getum ekki farið að meta það hvort
það sé gild ástæða að fara til Kan-
aríeyja en ekki gild ástæða að fara
til Mallorca,“ útskýrir hann.
„Við getum því ekki hafnað ósk-
um foreldra þegar um slíkar ferðir
er að ræða enda hefur ráðuneytið
viðurkennt þær sem hefð.“ Þor-
steinn segir að skólastjórar hafi
með öðrum orðum ekkert um það
segja hvort börn fari tímabundið úr
skóla vegna slíkra ferða eða ekki.
Þegar foreldrar biðja um skriflegt
leyfi fyrir börnin í slíkum tilvikum
þurfi skólastjórar því aðeins að rita
móttekið á pappírana sem þýði að
vinnustaður barnanna hafi vitn-
eskju um fjarveru barnsins næstu
vikurnar.
Þeir skólastjórnendur sem Morg-
unblaðið ræddi við af þessu tilefni
segjast ekki í vafa um að vetrarleyfi
nemenda hafi færst í vöxt á undan-
förnum árum. Einkum á haustin og í
kringum páskafríin en þá sé, svo
dæmi sé tekið, verið að framlengja
páskaleyfið um einhverja daga
vegna ferðalaga. Ástæðan sé senni-
lega breyttur frítími fjölskyldunnar.
Fólk sé farið að færa hluta af orlof-
inu yfir á vetrartímann og þá spili
einnig inn í að margra mati hagstæð
verðtilboð á utanlandsferðum á vet-
urna.
é Oxfordsteinn
BM'VALLÁ Breskur stíll í steinlögnum. Kynntu þér spennandi
Söludeild í Fornalundi hugmyndir fyrir garðinn þinn
Breiðhöfða 3 • Sími 585 5050 á www.bmvalla.is
www.bmvalla.is