Morgunblaðið - 15.09.2000, Blaðsíða 78
78 FÖSTUDAGUR 15. SEPTEMBER 2000
MORGUNBLAÐIÐ
FÓLK í FRÉTTUM
HINN LANDSKUNNI þúsundþjala-
smiður Ómar Ragnarsson verður
sextugur á morgun og á sunnudag-
inn gefst landsmönnum öllum tæki-
færi til þess að árna honum heilla í
Broadway þar sem haldin verður
ein allsherjar afmælisskemmtun
honum til heiðurs. Fréttamaður,
skemmtikraftur, söngvari, texta-
smiður, rallakstursmaður, Tþrótta-
fréttamaður, flugmaður, hnefaleika-
sérfræðingur, náttúruunnandi og
allsherjar lífskúnstner - af einu og
öðru þekkir maður kappann. Það
gefur auga leið að Bítlana tekur
hann fram yfir Rollingana enda lét
hann, eins og margir muna eflaust,
hina frábæru fjóra baula á Tarsan.
■ En er þessi óferjandi hrekkjalómur
reiðubúinn að afhjúpa sitt mesta
prakkarastrik?
Hvernig hefur þú það í dag?
Ágætt, þakka þér fyrir.
Hvað ertu með í vösunum í augna-
bllkinu?
Lítið vasaútvarp, tvær litlar lykla-
kippur, áætlun F.Í., tvær minnis-
bækur, þrenn gleraugu, starfs-
mannakort RÚV, tíu penna og
málband.
Ef þú værir ekki fréttamaður hvað
vildirðu þá helst vera?
Stjómmálamaður.
Bítlarnir eða Rolling Stones?
- Bítlarnir! Hvers konar spurning er
þetta?!
Hverjir voru fyrstu tónleikarnir
sem þú fórst á?
Óperettan Leóurblakan I Þjóðleik-
húsinu.
Hvaða hlut myndir þú fyrst bjarga
úr eldsvoða?
Myndaalbúminu og rúmlega aldar-
gamalli húsklukku skáldkonunnar
Asdísar Jónsdóttur frá Rugludal í
Austur- Húnavatnssýslu.
Hláturmildur
hrekkjalómur
SOS
SPURT & SVARAÐ
Omar
Ragnarsson
Hver er þinn helsti velkleiki
Að týna smáhlutum. Sennilega
vantar þá heilastöð.
Hefurðu tárast í bíó?
Já. Á myndinni Titanic, hún snerti
mann sem er kvæntur inn í vest-
firska sjómannaætt.
Finndu fimm orð sem lýsa pers-
ónuleika þínum vel.
Lífsglaður, hláturmildur, kappsam-
ur, sérkennílegur, hrifnæmur.
Hvaða lag kveikir blossann?
„Love You More Than I Can Say" í
upprunalegri útgáfu.
Hvert er þitt mesta prakkara-
strik?
Ég er félagi í Hrekkjalómafélaginu
fyrir þaö að hafa fengið Agnesi
Bragadóttur til liðs við mig í sjón-
varpsþættinum „Á líðandi stundu"
1986 og leitt hana þannig inn á
hvert heimili í landinu. Nei, annars.
Stærsta prakkarastrikið var að
setja, ellefu ára gamall, torfu á
Morgunblaðið/RAX
stromp á torfbæ þar sem bjuggu
þrjár sérkennilegar mæðgur.
Strompurinn (stolið klósettrör) féll
niður í bæinn, lenti á höfði einnar
þeirra og hrekkurinn breyttist í mjög
Ijótt skammarstrik.
Hver er furðulegasti matur sem þú
hefur bragðað?
Kaffi og meölæti Gísla á Uppsöl-
um.
Hvaða plötu keyptirðu síðast?
Hersey’s súkkulaðiplötu og nýjustu
plötu Tom Jones.
Hvaða leikari fer mest í taugarnar
á þér?
Man ekki eftir neinum í augnablik-
inu.
Hverju sérðu mest eftir?
Að hafa ekki skrópaö í þættinum
Kastljósi í Sjónvarpinu vorið 1976
og flogið út á miðin til að taka
fréttamynd aldarinnar af því þegar
Falmouth sigldi á Tý. Annars á
maður ekki að sjá eftir neinu. Kjör-
orð mitt í lífinu er: Það gengur betur
næst! Þaö hefur tvöfalda merkingu:
Viðurkenningu og greiningu á því
sem hefur farið úrskeiöis og ásetn-
ing um aö bæta úr og gera betur.
Trúir þú á líf eftir dauðann?
Já, mér þykir það líklegt. Ég held að
óendanleikinn og eilífðin, tvö svip-
uð hugtök sem eru ofar mannleg-
um skilningi, séu grunnur tilverunn-
ar og alheimsins; að líf og dauöi
séu eins og tvær hliðar á sama
peningi, ekkert líf án dauða og eng-
inn dauöi án lífs og að líf og dauöi
geti þess vegna skipst á til eilíföar.
Þessvegna ekkert fráleitt að það
sé líf eftir dauðann alveg eins og
það er dauði eftir lífið. Mér fannst
Þórunn Magnea Magnúsdóttir, leik-
kona, komast vel að orði þegar hún
sagði í útvarpsviðtali: „Dauðinn er
kóróna lífsins.”
FYRIRSÆTU&FRAMKOMUNÁMSKEIÐ
Fyrirsætu- &
framkomunámskeið 1
Fyrirsætu- &
framkomunámskeið 2
6 vikna kvöldnámskeið
Leiðbeinandi: Lilja Nótt Þórarinsdóttir
• Innsýn í fyrirsætustörf
• Förðun
• Umhirða húðar og hárs
• Undirbúningur fyrir myndatöku
• Tískusýningarganga
• Myndataka (18 myndir s/h)
• Tóbaksvarnarfræðsla
• Vídeomyndir
• Starfandi fyrirsætur koma í heimsókn
• Tjáning
Námskeiðið endar með stórri tískusýningu
Allir þátttakendur fá Eskimo models boli og lykla-
kippur, kynningarmöppu, viðurkenningarskjal og
óvæntan glaðning frá Davinas hárvörur. Auk þess
að komast á skrá fyrir sjónvarpsauglýsingar.
Námskeið fyrir stúlkur sem sótt hafa fyrirsætu-
og framkomunámskeið 1
Leiðbeinandi: Ingibjörg Stefánsdóttir
• Þjálfun í framkomu fyrir framan
sjónvarpsmyndavélar
• Auglýsingaleikur
• Stílisti gefur ráð með fataval
• Réttindi og skyldur á vinnumarkaði /
Fulltrúi frá VR
• Leikstjóri kemur í heimsókn.
• Upptaka á auglýsingu með hverjum og
einum þátttakanda
• Mataræði
• Undirbúningur fyrir áheyrnarprufu
Námskeiðið endar með sýningu á auglýsingum
þátttakenda fyrir foreldra og vini
Allir þátttakendur fá möppu með myndum af sér
og auglýsingu með sér til eignar.
Aðilar frá Eskimo models verða í Kringlunni föstudaginn 15. sept. og
laugardaginn 16. sept. að skrá inn á námskeiðin.
Skráning er hafin í síma 552-8012 eða eskimo@eskimo.is