Morgunblaðið - 15.09.2000, Blaðsíða 37
MORGUNBLAÐIÐ
LISTIR
FÖSTUDAGUR 15. SEPTEMBER 2000 37
Morgunblaðið/Golli
Frá Gautaborg.
sér fyrir að vera „erfiður höfundur“,
hámódemískur og táknsær, hann hef-
ur raunar sagt að sá sem vill vera viss
um að geta gleymt honum eigi ekki að
lesa bækumar hans, því „laser man sá
glömmer man aldrig“ (Islándska
Dagar, 1998). „Morgunþula í stráum“
er væntanleg í þýðingu Inge Knuts-
son hjá forlaginu Bra Böcker, nú í
september.
Meistarafundir og nýliðar
„Stjama fæðist" nefnist nýliðadag-
skrá sem Andri Snær Magnason tek-
ur þátt í kl. 12 á laugardaginn ásamt
Christina Brönnestam, Elsie Petrén
og Maria Kuchen. Enn er ekki ljóst
hvað þau eiga sameiginlegt nema
ferska reynslu af því að vekja athygli
með fyrstu bók sinni á ólíkum sviðurn
hvert um sig. Andri Snær sló í gegn á
sviði barnabóka, með verðlaunabók-
inni „Sagan af bláa hnettinum“ sem
kom út í fyrra.
Andri Snær hefur einnig gefið út
ljóð og auk þess bókmenntafræðilegt
verk um ljóð Isaks Harðarsonar.
Leikfélag Menntaskólans við Hamra-
hlíð sýndi „Náttúruóperuna“ eftir
Andra Snæ 1999 og hann átti frum-
kvæði að og ritstýrði „Bók í mannhaf-
ið“ sem kom út í ársbyijun 2000, og
var dreift með hvatningunni: látið
hana ganga.
Einar Kárason verður á dagskrá
sama dag kl. 15 ásamt norska rithöf-
undinum Roy Jacobsen sem sló i gegn
með skáldsögunni „Segerherrama",
og hlaut Ivar Lo-verðlaunin fyrir
hana árið 1994. „Norrænn meistara-
fundur“ er dagskráin nefnd en verk-
efni Einars er að leiða athyglina að
verkum hins norska skáldbróður síns
og þá ekki síst að nýrri bók þar sem
efni er sótt til orrustunnar um Stal-
ingrad. Einar Kárason, sem seinast
gladdi íslenska lesendur sína með
skáldsögunni „Norðurljós", þar sem
Svartur Pétursson segir farir sínar,
ævintýralegar og ógnvekjandi, og
sem kom út í kilju í ár, hefur áðm-
kynnt sig og verk sín á stefnunni.
Sænskur þýðandi hans er John
Swedenmark.
Og það verða fleiri norrænir meist-
arafundir og nýliðadagskrár. Frá
Danmörku kemur Klaus Rifbjerg
sem kaus að fá Per Wastberg á sinn
fund. Jens Christian Gröndal kemur
einnig svo og handhafi Norrænu bók-
menntaverðlaunanna í ár, ljóðskáldið
Henrik Nordbrandt. Pia Tafdmp
kemur, Sören Ulrik Thomsen,
Suzanna Bfögger og Hanne-Vibeke
Holst. Anne Marie Lön kemur einnig
fi-á Danmörku, en hún sló í gegn sem
rithöfundur með „Prinsesserne" árið
1996.
Yngri meistaramir norsku Jostein
Gaarder og Erik Fosnes Hansen hafa
báðir verið kynntir á íslensku, sem og
sakamáladrottningin Anne Holt. Hún
mun hitta Danann Leif Davidsen á
dagskrá um morðin í norðri. Og á
annarri dagskrá hittir hún fyrir
sænsku tryllisagnadrottninguna Liza
Marklund.
Norskur kvartett prósa- og
skáldsagnahöfunda af yngri kynslóð
höfunda hittast á fyrsta degi stefn-
unnar þar sem Tore Renberg ræðir
við skáldbræður og systur, Hanne
Örstavik, Nikolaj Frobenius og vænt-
anlega Linn Ullmann, verði hún kom-
in í tæka tíð frá bókmenntahátíðinni á
Islandi. Öll nema Frobenius sem er
aldursforseti kvartettsins (f. 1965)
hafa sent frá sér fyrstu verkin á ár-
unum 1994 til 1998. Nikolaj Froben-
ius gaf hinsvegar út ljóðabókina
„Virvl“ árið 1986 og hefur síðan skrif-
að fjórar skáldsögur og einnig kvik-
myndahandrit.
Finnskir höfundar munu m.a. ræða
um femínisma og „kvennabókmennt-
h-“ sem skammaryrði á dagskrá þai-
sem brautryðjendur áttunda áratug-
arins, Márta Tikkanen og Birgitta
Boucht, ræða við hinar yngri stöllur
sínar Anja Snellman, Tiina Pystynen
og Sanna Thvanainen. Anja Snellman
er höfundur bókar sem á sænsku
nefnist „Radslans geografi" eða
„Landafræði óttans“.
„Allt mun hverfa þegar texti
lestrarins máist út“
(14. október 1994, Marguerite
Duras, úr C’est tout)
Meistaramót væri örugglega rétt-
nefni þegar Ijóðskáld frá Eystrasalts-
löndunum flytja Ijóð sín á dagskrá
seint á föstudag. Þar verður sænska
skáldið Tomas Tranströmer ásamt
Vizma Belsevica frá Lettlandi, Jaan
Kaplinski frá Eistlandi og Tomas
Venclova frá Litháen.
Og Görans Tunström vérður
minnst, bæði á dagskrá þar sem verk
hans verða til umfjöllunar og fyrsta
kvöld stefnunnar verður heiðruð
minning vermlenska sagnaskáldsins
með kvölddagskrá á Artisten.
Cletus Nelson Nwadike er meðal
þeirra sem þar koma fram. Ljóðabók-
in „med ord kan jeg inte lángre be“,
sem kom út hjá Heidrun-forlaginu í
VeiTnlandi í ágúst, er önnur ljóðabók-
in á sænsku eftir nígeríska skáldið
sem kom til Svíþjóðar fyrir tíu árum
og býr og starfar í Nássjö. Fyrir fjór-
um árum sagðist Cletus helst þurfa að
skrifa þrjú ljóð á dag til að vera með
sjálfum sér. Og þegar hann kom á
bókastefnu að kynna fyrstu bók sína,
„En kort svart dikt“ (1998) heillaði
hann þá sem á hlýddu með frásögnum
úr heimalandinu ekki síður en með
ljóðum sínum. Gautaborgarskáldið og
greinahöfundurinn Ragnai- Ström-
berg, sem einnig verðui' á dagskrá
stefnunnar með nýútkomna ljóðabók,
skrifar í gagmýni um bókina „med
ord kan jag inte lángre be“ að oft
heppnist Cletus Nwadike að ná fram
„þeim mikla ótamda einfaldleika sem
er aðal frumlegs ljóðs“.
égfinnmigheima
milli þess er ég skynja og þess er égveit
segja ljóðlínur úr bókinni „med ord
kan jag inte lángre be“, þegar ég ís-
lenska þær.
A minningardagskránni mun ekkja
Görans Tunströms, listakonan Lena
Granhagen, einnig koma fram, skáld-
in Sara Lidman og Staffan Söderblom
o.fl. ásamt kammerkór Gautaborgar
undfr stjórn Gunnars Erikssonar.
Agneta Pleijel fær ærið verkefni á
vegum lestrarhreyfingaiinnar við að
stjórna umræðum um helga texta
síðla föstudags. Þar mæta rithöfund-
ar úr hópi gyðinga, múslíma og krist-
inna á pallborðsumræður um skil-
greiningu á hvað er „heilög
skrift“,hvemig slíkir textai- hafa orðið
til, hvemig þeir hafa verið notaðir
o.s.frv. Og í hverju gæðin liggja í
talmud-hefð gyðinga annars vegar og
súfismanum í Islam hins vegar. Agn-
eta Plejjel á orðið langa sögu sem
menningarpersónuleiki í Svíþjóð og
starfaði m.a. sem prófessor við
Dramatiska Institutet 1992-1996. En
frá og með 1981 hefur hún sent frá sér
Ijóð, leikrit og skáldsögur og undan-
famar vikur hefur hún vakið athygli
með sögulegri skáldsögu að nafni
„Lord Newermore", sem hún mun
tala um á annarri dagskrá. Majgull
Axelsson og Theodor Kallifatides em
einnig meðal fjölmargra sænskra höf-
unda sem ber að nefna. Majgull hlaut
fagui-bókmenntalegu August-verð-
launin árið 1997 fyrir „Aprilháxan",
um hina lömuðu Desirée sem nær
sambandi við umheiminn með plast-
röri og tölvu. I haust kemur skáldsag-
an „Slumpvandring". Theodor Kall-
ifatides flutti frá Grikklandi á sjöunda
áratugnum, þá 25 ára skáld, sem
hugðist flytja heim við fyrsta tæki-
færi. Nú liggja eftir hann tugir bóka á
sænsku sem er orðin hans tungumál,
skáldsögur með bemskubæinn sem
sögusvið, verk um innflytjendur í Sví-
þjóð og svo margt annað. Einnig leið-
beiningar fyrir þá sem skreppa til
Aþenu um hvernig komast má á
magnaða stíga og annað sem ekki er
að finna í venjulegum túristabókum.
N æsta verk hans er sjálfsævisögulegt
og mun bera nafnið Ett nytt land ut-
anför mitt fönster".
Öll virðast Norðurlöndin vel kynnt
á stefnunni, nema hvað ég kem ekki
auga á færeysku og grænlensku höf-
undana í dagskrárblaðinu, hvemig
sem á því stendur. Ymsir dagskrár-
liðfr em þó hugsaðir sem samnorræn-
ir og til að styðja lestrarhreyfinguna
hafa ekki aðeins verið kallaðir til höf-
undar heldur einnig Ijóðelski mark-
vörðui-inn Thomas Ravelli og brokk-
þjálfarinn Helen Johannesson. En
rithöfundarnir mæta líka og Per Olof
Enquist er raunar fyrrverandi há-
stökkvari og skáldsagnahöfundurinn
Bjöm Ranelid á sína fótboltafortíð.
Meðal skálda sem lestrarhreyfingin
fær til liðs við sig er ókrýndur SLAM-
konungur Svía, Bob Hansson, en
hann hefm- unnið hverja keppnina á
fætur annarri og þykir bæði drama-
tískur og hugljúfur. Bob Hansson er
fæddur 1970, á sjónum, og komst á
land í brauðkörfú, samkvæmt texta
aftan á hans fyrstu bók, „Heja várld-
en“. Sonur verkamannafjölskyldu á
Skáni, og vill að eigin sögn frekar
troða upp á sviði rokktónleika en
bókasafna. Hann er sagður gegna
álíka hlutverki á sviði ljóðlistar og Di
Leva á sviði sænskrar tónlistar: Hann
þorii’ að vera jákvæður í uppreisn
sinni, nota hið naíva en sleppa háðinu
og skrifa lífsglatt og kímið. Þeir sem
sjá Bob Hansson á sviði halda
kannski að hann sé að spinna. En sjái
þeir aftui' og heyri kann hann að
„spinna“ sama ljóð. í haust koma út
tvær bækur frá hans hendi, ný ljóða-
bók og safnrit sem hann ritstýrir með
munnvænum textum eftfr ólíka höf-
unda. Bob Hansson mun troða upp á
bókastefnunni oftai’ en einusinni
ásamt fleh'um sem helst fremja verk
sín á sviði og skrifa Ijóð ætluð til að
flytja upphátt (estradpoeter).
„Rum för poesi“, þar sem ljóðskáld
lesa upp eða flytja skáldskap sinn öll-
um þeim er eiga leið um, er löngu orð-
in hefð á bókastefnunni, og stendm-
þá yfirleitt í fleiri daga. I ár er slík
dagskrá þó aðeins á döfinni síðasta
daginn, þ.e. sunnudaginn 17. Það er
skánska bókaforlagið Ellerströms
sem hefur tekið við umsjóninni af
tímaritinu 90-tal. í ljóðaherberginu
munu alls fimmtán skáld frá fimm af
Norðurlöndunum koma fram á dag-
skrá sem hefst kl. 9.30 og stendur
fram eftir degi, þar á meðal áður-
nefndur Mai-tin Enckell og hinn
sænski Bob Hansson.
Þess má geta að Ellerströms hafa
sérhæft sig í að gefa út þýdd klassísk
verk og alþjóðleg skáld í lipru vasa-
bókarbroti, í ár má nefna sem dæmi
„The Soul of Man under Socialism"
eftir Oscar Wilde og „C’est Tout“ eft-
ir Marguerite Duras.
Klassískt, alþjóðlegt og tryllt
Önnur hefð á bókastefnunni er að
fjalla um nokkra sænska höfunda sem
ekki tala lengur nema gegnum verk
sín. Meðal þeirra er skánska skáld-
konan Victoria Benedictsson (1850-
1888) sem birti ævinlega eftir sig und-
ir nafninu Emst Ahlgren. Dagskrá
um verk hennar er í umsjá Carin
Mannheimer, leikrita- og sjónvarps-
myndahöfundi m.m. og prófessor
Ebba Witt-Brattström. Victoria
Benedictsson er talin einn athyglis-
verðasti höfundur Strindberg-kyn-
slóðarinnar og kvikmyndun skáld-
sögu hennai', „Fni Marianne", sem
upphaflega kom út 1887, er á döfinni
hjá sænska sjónvarpinu og verður
sýnd sem framhaldsmynd í náinni
framtíð.
Þótt danski gagnrýnandinn og
John S. Mill-aðdáandinn Georg
Brandes væri lítt hrifinn af hinni
skánsku hjónabandssögu með gesti
sem sundrar og sameinar, og gæfi
Fi-u Marianne neikvæðan dóm, héldu
Svíar áfram að lesa hana.
Victoria Benediktsson stytti sér
aldur á hótelherbergi í Kaupmanna-
höfn árið 1888, þá aðeins 38 ára göm-
ul. Dagbækur hennar frá 1882-1888
(Stora Boken I—III) sem geyma per-
sónulegar og menningarsögulegar
heimildir kom út á árunum 1978-1985.
Utgáfa Bonniers-forlagsins á verk-
um „Emsts Ahlgrens" í byrjun aldar
segja sitt um vinsældir verka hennar,
því Fru Marianne kom í sjöttu útgáfu
1918. Bonniers gaf einnig út „Saml-
ede Skrifter av Emst Ahlgren" í sex
bindum.
Eftir því sem ég best veit hefur
enginn ski-ifað nútímaverðlauna-
skáldsögu um hinstu stund „Emsts
Ahlgrens".
I bókinni „The Hours“ sækir hinn
kalífomíski Michael Gunningham
hinsvegar, eins og kunnugt er, efnivið
til Virginiu Woolf (1882-1941), henn-
ar verka og hinstu daga. Fyrfr þá bók
hefur Gunningham ekki aðeins hlotið
Pulitzer-verðlaunin heldur einnig
PEN/Faulkner-verðlaunin og bókin
hefur nú komið út í 500.000 eintökum,
sem höfundurinn segir að sé sér alger
ráðgáta, því að í bókinni sé ekki að
finna eina einustu kynlífslýsingu né
heldur bflaeltingaleik. Hún fjallar
nánast um það að skrifa og lesa, er
haft eftir Gunningham í viðtali í hinu
danska Politiken. Á bókastefnunni
kemur hann við og verður með eigin
dagskrá en bókin kemur út bæði í
danskri og sænskri þýðingu nú í
haust. Michael Gunningham sem er
fæddur 1952 og er nú búsettur í New
York hefur fengið athygli og viður-
kenningar í heimalandi sínu allt frá
árinu 1990 þegar skáldsaga hans )rA
Home at the End of the World“ kom
út. Sjálfur segist hann eingöngu hafa
áhuga á bókum sem bera vott um að
höfundurinn reyni eitthvað annað og
meira en hann eða hún í rauninni er
fær um.
Og að lokum: Lítil saga um kanad-
íska konu sem kyssti Elvis Presley og
varð tryllisagnahöfundur.
Joy Fielding er höfundur sem sló í
gegn í heimalandinu Kanada árið
1980 með bókinni „Kissing Mommy
Goodbye". Hún kemur og kynnir nýj-
ustu sögu sína sem hefst á þessa leið:
„Hún var að spá í hvernig hún ætti að
drepa manninn sinn.“ Joy Fielding
sem einnig er handritshöfundur kvik-
og sjónvarpsmynda segir að sér hafi
alltaf þótt gaman að skrifa: „Ég sendi
fyrstu frásögn mína til tímarits þegar
ég var átta ára. Henni var hafnað.
Tólf ára skrifaði ég fyrsta sjónvarps-
leikritið mitt. Það fjallaði um tólf ára
stúlku sem myrðir foreldra sína. Því
var líka hafnað. En tilhugsunin ein
um yrkisefnið olli foreldrum mínum
miklum andvökum. Síðasta árið í
„high school“ tilkynnti kennari minn
öllum bekknum að ég ætlaði að verða
rithöfundur, sjálf var ég óákveðin."
Joy Fielding las síðan bókmenntir við
háskólann í Toronto og ákvað að
verða leikkona. Hún flutti til Los
Angeles og hóf sinn feril í Hollywood.
Þar fékk hún lítið hlutverk í „Gun-
smoke“ og í hlutverkinu fólst að hún
kyssti Elvis Presley. Hún kyssti Elvis
Presley og eftii- það var enginn efi:
Rithöfundarhlutverkið tók yfirhönd-
ina. Sögur hennar gerast yfirleitt í út-
hverfum eða nágrenni stórborga og
eru skilgreindar sem sálfræðilegir
tryllar eða jafnvel hryllingssögur, æv-
inlega með konur í aðalhlutverkum.
AZINC
^ ^ Menopause
Sérstök blanda bætiefna:
• • Þorskalýsi
• Kvöldvorrósarolía
Arkopharma . Soja lecitin
• Kalk
Fæst í apótekum -Betakarotin
• E-vítamín
• Zink
Faest í stórmörkuðum og apótekum » Niko heildverslun hf, sími 568 0945