Morgunblaðið - 15.09.2000, Blaðsíða 84
MORGUNBLAÐIÐ, KRINGLUNNI1,103 REYKJAVÍK, SÍMI5691100, SÍMBRÉF5691181, PÓSTHÓLF3040,
ÁSKRIFT-AFGREIÐSLA 5691122, NETFANG: RITSTJ@MBL.IS, AKUREYRI: KAUPVANGSSTRÆTI1
FÖSTUDAGUR 15. SEPTEMBER 2000
VERÐ í LAUSASÖLU 150 KR. MEÐ VSK.
Tæplega sjötug kona úrskurðuð í gæsluvarðhald
Grunuð um tugmillj -
óna króna fjársvik
HÉRAÐSDÓMUR Reykjavíkur
úrskurðaði í gær tæplega sjötíu
ára gamla konu í gæsluvarðhald til
mánudagsins 25. september næst-
komandi að kröfu efnahagsbrota-
deildar ríkislögreglustjórans en
konan er grunuð um stórfelld fjár-
svik gagnvart nokkrum einstakl-
ingum. Eru þessi fjársvik talin
nema tugum milljóna króna og
munu hafa staðið í nokkur misseri.
Rannsókn málsins stendur enn
^vfir og teygir anga sína um allt
land. Konan er grunuð um að hafa
beitt nokkra einstaklinga blekking-
um og þannig haft af þeim tugi
milljóna króna. Samkvæmt heim-
ildum Morgunblaðsins mun heimild
og skylda peningastofnana til þess
að tilkynna um óeðlilegar peninga-
greiðslur hafa haft verulega þýð-
ingu við rannsókn málsins en enn
er verið að taka skýrslur af hugs-
anlegum fórnarlömbum konunnar.
Liggur því endanlegur fjöldi þeirra
ekki fyrir á þessari stundu né
heildarupphæð fjársvikanna.
Konan hefur áður komið
við sögn lögreglunnar
Konan, sem er búsett í Reykja-
vík, hefur áður verið dæmd fyrir
fjársvik og gengur rannsókn efna-
hagsbrotadeildar ríkislögreglu-
stjórans m.a. út á það að athuga
hvort þar hafi verið um sambæri-
leg brot að ræða. Hún er grunuð
um brot gegn 248. grein almennra
hegningarlaga en greinin fjallar
um fjársvik og getur brot varðað
fangelsisvist, allt að sex árum.
Fyrir um tveimur árum féll dómur
yfir leigubílstjóra í Reykjavík sem
blekkt hafði hóp fólks til að taka
fyrir sig lán, eða skrifa upp á lán
fyrir sig, og námu upphæðirnar
samtals tugum milljóna króna. Var
hann sakfelldur fyrir fjársvik og
dæmdur í tveggja ára fangelsisvist
enda þótti sannað að fólkið hefði
ekki vitað hvað af öðru og að það
hefði staðið í þeirri trú að maður-
inn væri borgunarmaður fyrir
þeirri skuld sem það hafði ábyrgst
fyrir hann. Hann hefði hins vegar
vitað sem var að hann gæti aldrei
greitt öllum fórnarlömbum sínum
þá fjármuni sem hann hafði haft af
þeim eða látið þau ganga í ábyrgð
fyrir.
Pokemon ekki með í skólann
Skiptin koma börn
um úr jafnvægi
í FRÉTTABRÉFI Mýrar-
hdsaskóla eru foreldrar minnt-
ir á að skólinn geti ekki tekið
ábyrgð á Pokemon-spilum sem
nemendur koma með í skólann.
Skólastjórinn beinir þeim til-
mælum til foreldra að spilin
verði helst geymd heima.
Fríða Regína Höskuldsdóttir,
skólastjóri Mýrarhdsaskóla,
segir að Pokemon-spilin skipti
gjarnan um eigendur í frímín-
dtum.
Ekki séu þó allir sáttir við
viðskiptin og nokkuð ber á því
að yngri nemendur telji sig
hlunnfarna í viðskiptum við
efribekkinga. Þetta hefur vald-
ið börnunum hugarangri og
Regína segir að börnin séu
stundum miður sin það sem
eftir lifir dags.
í Mýrarhdsaskóla eru hátt í
500 nemendur og því erfitt um
vik fyrir starfsmenn skólans að
leysa öll álitamál sem koma
upp í Pokemon-viðskiptum.
Regína minnti því foreldra á að
skólinn gæti ekki tekið ábyrgð
á þeim leikföngum sem börnin
koma með í skólann, þ.m.t.
Pokemon-spil og því séu þau
e.t.v. best geymd heima.
Nemendur eru oft van-
svefta eftir helgarfrí
I fréttabréfinu hvetur
Regína foreldra einnig til þess
að sýna festu og gæta þess að
börnin fái nægan svefn. Hdn
segir að nemendur séu oft illa
sofnir eftir helgarfrí eða lengri
skólaleyfi. Vansvefta börn
reynist gjarnan taugastrekkt
og það taki þau langan ti'ma að
jafna sig á svefnleysinu.
Safnið
. rekiðtil
byggða
UM ÞESS AR mundir standa yfir
göngur um allt land. Smölun hefur
víðast hvar gengið þokkalega en
veður hefur þó verið nokkuð vætu-
samt. Gangnamenn hafa því margir
komið bæði blautir og þreyttir til
byggða.
Þessi mynd var tekin austan við
Gullfoss af fjallsafni Hrunamanna
en réttað verður í Hrunarétt í dag.
Bændur eru almennt sammála um
að féð komi í góðum holdum af
fjalli. Sauðfjárslátrun er þegar haf-
< Jtn og má nd finna í kjötborðum
verslana drvals dilkakjöt af nýslátr-
uðu.
Morgunblaðið/Sigurður Sigmundsson
Salmonellubaktería hefur valdið faraldri á höfuðborgarsvæðinu
50 manns hafa sýkst
NÆRRI 50 manns hafa veikst af
salmonellusýkingu síðustu daga og
líklegt er talið að allmargir til viðbót-
ar hafi sýkst að sögn Haralds Briem
sóttvarnalæknis. Sumir hafa þurft að
leggjast á sjúkrahús. Hann segir
þetta faraldur og nauðsynlegt sé að
komast að uppruna sýkingarinnar.
Sýkingamar eru að mestu bundn-
ar við höfuðborgarsvæðið og greind-
ust 26 sjúklingar frá mánudegi og þar
til síðdegis í gær og sagði Haraldur í
gærkvöldi að um 20 til viðbótar væru
nokkuð örugglega sýktir. Þeir eru
flestir á aldrinum 20 til 30 ára og hafa
sumir þurft á sjúkrahúsvist að halda.
Hann segir suma hafa legið nokkra
daga á spítala. Flestir hafa snúið sér
til bráðamóttöku og nokkrir verið
lagðir inn í framhaldi af því.
Haraldur Briem segir að margir
þeirra sem veiktust hafi sótt veitinga-
og skyndibitastaði en aðrir ekki.
Bendir flest til þess að sýkt matvara
sé í umferð og segir hann menn yfir-
leitt ekki sýkjast öðruvísi en gegnum
matvæli eða drykki. Spuming væri
hvort seld hefðu verið einhver mat-
væli sem sýking stafaði af, hvort ein-
hver efni eða fæða sem blandaðist
annarri gæti borið bakteríur.
Neysla sjúklinga kortlögð
Hann sagði geta orðið snúið að
finna upprunann og allt kapp væri
lagt á að leita hans. Það er einkum
gert með því að kanna hvar sjúkling-
ar hafa verið, hvað og hvar þeir hafa
snætt og hugsanleg tengsl við aðra
sjúklinga. Þá eru fengnar upplýsing-
ar hjá samanburðarhópi. „Þannig
reynum við að sjá hvort sjúklingar
eiga eitthvað sameiginlegt og hvort
upplýsingar geta beint okkur á
ákveðna braut,“ sagði Haraldur.
Sýkingin er af völdum salmonella
typhimurium, sem Haraldur segir að
sé af öðram stofni en sú salmonella
typhimurium sem valdið hafi salmon-
ellusýkingu hér undanfarið ár. Þá
segir hann það sérstakt áhyggjuefni
að bakterían sé ónæm fyrir mörgum
algengum sýklalyfjum en þó hafi
fundist lyf sem gagnist. Haraldur
segir að þeir sem veikjast illa séu
settir í sýklalyfjameðferð en annars
sé reynt að gefa aðeins vökva í æð ef
sjúklingar eiga erfitt með að halda
niðri fæðu. Einkenni era ógleði, upp-
köst, magaherpingur og jafnvel blóð í
hægðum. Hann segir marga hafa haft
þessi einkenni í viku til tíu daga.
Auk sóttvamalæknis standa sýkla-
fræðideild Landspítalans, Hollustu-
vernd ríkisins, Heilbrigðiseftirlit
Reykjavíkur og yfirdýralæknir að
rannsókn á upprana faraldursins.
Einnig veita læknar sjúklinganna
mikilvægar upplýsingar. Haraldur
sagði að þetta væri slæm baktería
sem menn vildu ekki sjá hérlendis.
Hún hefur herjað í Evrópu. Brýnt sé
að fólk vandi meðferð matvæla og
þeir sem finni einkenni um matarsýk-
ingu leiti læknis. Hafi menn gran-
samlegar matarleifar undir höndum
geta þeir snúið sér til Heilbrigðiseft-
irlitsins vegna nánari rannsókna.
Setti upp vef um
þýska kafbáta
Þúsundir
heimsókna
ádag
EITT stærsta vefsetur í eigu
Islendings er einkaframtak
Guðmundar Helgasonar,
uboat.net. Það er efst á blaði
hjá Yahoo!, AltaVista og öðram
leitarvélum ef spurt er um
þýska kafbáta og kafbátahern-
að í heimsstyrjöldinni síðari.
Á fimm árum hefur vefurinn
stækkað jafnt og þétt og er nú
orðinn sjö þúsund síður með
krosstengingum og tilvísunum
hvar sem borið er niður.
Vefurinn er keyrður frá
Bandaríkjunum og skoða hann
um sex þúsund manns á dag,
þar af er aðeins 1% heimsóknir
frá íslandi. Að sögn Guðmund-
ar ráða gróðasjónarmið ekki
ferðinni í rekstri uboat.net
enda hefur vefurinn aldrei skil-
að arði.
■ Gerir út á þýska
kafbáta/6D
¥
OSTUR ER GÓÐUR
FYRIR TENNURNAR
Ostur er kalkríkur og kalkiS styrkir tennur og bein.
fi.uk þess er gott að enda hverja máltíð með osti
því hann skapar ákjósanlegt sýrustig ( munninum
og ver tennumar þannig fyrir skemmdum.
OSTURINN A ALLTAF VIÐ
ISLENSKIR Xf
OSTAg / ■
„0INME, I ú/
^ J