Morgunblaðið - 15.09.2000, Side 2

Morgunblaðið - 15.09.2000, Side 2
2 FÖSTUDAGUR 15. SEPTEMBER 2000 MORGUNBLAÐIÐ FRÉTTIR Morgunblaðið/Ámi Sæberg Á einu ári hefur Hreggviður fengið 17,55 kfló af ruslpósti. Sérfróðir dæmi um „prjónið“ HÆSTIRÉTTUR segir að héraðsdómari eigi að kalla til sér- fróða meðdómendur í máli, þar sem deilt er um hvort mótorhjól hafí „prjónað" vegna stórfellds gáleysis ökumannsins. Hæstirétt- ur segir að dómara sé ófært að leysa úr málinu á grunni almennr- ar þekkingar sinnar, menntunar eða lagaþekkingar, og vísar mál- inu aftur heim í hérað. Málavextir voru þeir að öku- maður vélhjóls ók hjóli sínu vestur Háaleitisbraut í Reykjavík. Við gatnamót Kringlumýrarbrautar nam hann staðar á ljósum, en þeg- ar hann fór af stað á ný gaf hann duglega inn. Hann kvaðst hafa runnið við það aftur í sætinu og framhjólið lyftist frá götu. Þar með missti hann stjórn á hjólinu, en hélt sér í stýrið og fór á „prjón- andi“ hjólinu um 100-140 metra upp brekku. Nærri Skipholti tókst honum að ná framhjólinu niður á ný, en hjólið skall þá á umferðar- eyju, með þeim afleiðingum að ökumaðurinn brotnaði á vinstri úlnlið. Tryggingarfélag mannsins taldi hann hafa fyrirgert rétti sínum til bóta í samræmi við ákvæði slysa- tryggingar ökumanns. Félaginu fannst líklegast að hann hefði vilj- andi ekið á afturhjólinu einu og þar með hefði vélhjólið verið stjórnlaust, en slíkt ökulag er ekki með öllu óþekkt. Hann ætti sjálfur að bera skaðann af því. Héraðsdómur Reykjavíkur tók undir sjónarmið tryggingafélags- ins í dómi sínum í febrúar sk, taldi ökulagið hafa verið háskalegt og sýknaði tryggingafélagið af kröf- um hans. Þann dóm þarf nú að endurskoða, þar sem Hæstiréttur segir að sérfróðir meðdómsmenn þurfi m.a. að taka afstöðu til þess hvort það fái staðist að reyndur ökumaður geti hafa misst stjórn á vélhjóli með þessum hætti af van- gá- Stóraukinn útflutn- ingur á óunnum fiski Fékk 17,5 kgaf „ruslpósti“ í heilt ár HREGGVIÐUR Jónsson, fram- kvæmdastjóri og fyrrverandi alþingismaður, hefur í heilt ár safn- að öllum svonefndum ruslpósti sem borist hefur í póstkassa á heimili hans. Samtals fékk hann á þessu heila ári 17,55 kfló af þess konar pósti en Hreggviður hefur reiknað út að þetta jafngildi því að rúmlega 1.110 tonn af „ruslpósti" séu árlega borin í hús á höfuðborgarsvæðinu. Hann hefur skrifað borgarsljórn Reykjavíkur bréf vegna þessa máls þar sem hann spyr m.a. hvort borg- aryfirvöld ætli að beita sér fyrir því að bannað verði að ruslpóstur sé borinn óumbeðið í hús í Reykjavík. Hreggviður sagði í samtali við Morgunblaðið að ástæðan fyrir því að hann hefði farið að safna saman ruslpósti hefði verið sú að það hefði farið óskaplega mikið í taugarnar á sér að fá óumbeðið inn um bréfa- lúguna fullt af bæklingum, bréfum og alls kyns dóti. Merktur póstur kemst ekki í póstkassann „Auk þess hef ég tekið eftir að það hefur komið fyrir að póstkass- arnir hafa verið yfirfylltir af ruslpósti. Þetta gerist þegar fólk er í frn og ástandið er þá jafnvel þann- ig að merktur póstur, sem skiptir það máli, kemst ekki í póstkassann. Allir sem ég þekki kvarta mikið undan þessu,“ sagði Hreggviður. í bréfi Hreggviðs til borgar- stjórnar eru birtar tölur um þyngd ruslpósts frá ágúst 1999 til júlfloka í sumar. Meðalþyngd í hverjum mán- uði er liðlega 1,4 kíló. Mest barst af bæklingum og blöðum í mars en minnst í janúar. Samtals er um að ræða 17,55 kg. í bréfinu bendir Hreggviður á að þetta þýði að í átta íbúða stigagangi séu árlega borin út 140,4 kg af ruslpósti. í Reykjavík sé slíkur póst- ur borinn út til 42.831 heimilis sem þýði að borin séu út samtals 751.684 kg. Sé horft til alls höfuðborgai’- svæðisins sé um að ræða 1.110.809 kg af ruslpósti til 63.294 heimila. S/ðan spyr Hreggviður í bréfinu til borgarstjórnar: „Hvað niunu fljúar Stór-Reykjavíkur þurfa að borga aukalega fyrir þennan óum- beðna ruslpóst þegar tekið verður upp nýtt gjald vegna umfangs og þyngdar á rusli á næsta ári? Ætla ráðamenn í Reykjavíkur- borg að beita sér fyrir því að bann- að verði að setja óumbeðinn ruslpóst í póstkassa og inn um bréfalúgur í Reykjavík?" Hreggviður sagðist ekki hafa gert sér grein fyrir um hversu mik- ið magn væri að ræða. Sú spurning hlyti að vakna hvað kostaði að farga 1.110 tonnum af ruslpósti á ári. ÚTFLUTNINGUR á óunnum fiski var um 23% meiri fyrstu sjö mánuði ársins en á sama tíma í fyrra en verð- mætaaukningin var um 5%. Samfara þessum breytingum var minna fram- boð af óunnum fiski á íslenskum fisk- mörkuðum. Fyrstu sjö mánuði ársins í fyrra voru flutt út 19.162 tonn af óunnum fiski og var verðmætið um 2,5 millj- arðar króna. Samsvarandi tölur á sama tíma í ár eru 23.530 tonn og um 2,6 milljarðar króna, samkvæmt upplýsingum frá Hagstofunni. Samúel Hreinsson, framkvæmda- stjóri fiskmarkaðarins í Bremer- haven í Þýskalandi, segir að árið hafi verið mjög gott „og meðalverðið í mörkum verður miklu hærra en áð- ur.“ Logi Þomióðsson, stjórnarfor- maður Fiskmai'kaðs Suðurnesja, segir að ástandið sé óviðunandi- Ekki eigi að senda óselda vöru til kaupenda og láta þá verðmeta hana og alvarlegt sé að íslensk fiskvinnsla skuli ekki sitja við sama borð og er- lend fiskvinnsla. ■ Útflutningurinn jókst/27 Fjölsóttur kynningarfundur haldinn vegna skipulagstillagna á Vatnsenda Yilja að fram fari mat á umhverfísáhrifum FUNDUR, sem bæjaryfirvöld í Kópavogi héldu í gær til að kynna íbúum við Vatnsenda fyrirliggjandi skipulagstillögur að byggð á svæð- inu, samþykkti mótatkvæðalaust tvær ályktunartillögur. I annarri er þess krafist að framkvæmdir þær sem fram muni fara á grundvelli skipulags á svæðinu verði látnar sæta lögformlegu umhverfismati en í hinni er skorað á bæjaryfirvöld að gangast fyrir samkeppni meðal arkitekta um framtíðarfyrirkomu- lag byggðar við Elliðavatn og á Vatnsenda. Á annað hundrað manns sátu fundinn í félagsheimili Kópavogs. Að loknum kynningarerindum skipulagsstjóra og bæjarverkfræð- ings þar sem rakinn var ferill skipu- lagsvinnunnar, þar sem gengið er út frá 5000 manna byggð í landi Vatnsenda, tóku við almennar um- ræður þar sem fimmtán manns kvöddu sér hljóðs; flestir hags- munaaðilar sem beindu gagnrýnis- röddum að skipulagshugmyndunum og vinnubrögðum bæjaryfirvalda. Frekari rannsóknir á vatninu Meðal þess sem gagnrýnt var á fundinum var að hann væri ekki haldinn fyrr en degi áður en frestur til að skila inn athugasemdum við skipulagstillögurnar rynni út. Jafn- framt kæmi fyrst í ljós á fundinum að til væri frummatsskýrsla um áhrif byggðar á vatnsbúskap Elliða- vatns sem ekki væri unnt að kynna sér til hlítar fyrir lok athugasemda- frests og aðeins væri ljóst að talin væri þörf á frekari rannsóknum á áhrifum byggðar á vatnsbúskap vatnsins og Elliðaánna. Gunnar I. Birgisson, formaður bæjarráðs, svaraði spurningum sem fram höfðu komið í umræðunum og andmælti því að það hefði ekki löngu verið kynnt íbúum að til stæði að reisa þéttari byggð í vestanverðu Vatnsendalandi en í norðurhlutan- um. Fram kom að um 360 manna byggð yrði á því svæði þar sem gert er ráð fyrir 3-6 hæða fjölbýlishús- um. Gunnar lagði hins vegar áherslu á að einungis væri um að ræða tillögur að deiliskipulagi og fjallað yrði um athugasemdir og af- staða tekin til þeirra allra á vett- vangi sveitarstjórnarinnar. I lok fundarins voru bornar fram tvær ályktanir sem báðar hlutu at- kvæði alls þorra fundarmanna en engin mótatkvæði. Samþykkt var tillaga Stefáns Jóns Hafstein um að álykta að fram skuli fara lögformlegt umhverfis- mat vegna framkvæmda sem fram eiga að fara á grundvelli skipulags á svæðinu og einnig tillaga Sigur- björns Bárðarsonar um að beina því til bæjaryfirvalda að þau efni til samkeppni arkitekta um fyrirkomu- lag framtíðarbyggðar á Vatnsenda þar sem reynt verði að sætta sjón- armið íbúa þar og bæjaryfirvalda. Reykjavíkurborg hefur sent bæjaryfirvöldum í Kópavogi at- hugasemdir sínar við skipulagstil- lögurnar. Þar kemur fram að borgin leggi áherslu á að líta beri á Elliða- vatn í heild sinni og skoða þann kost að nánasta umhverfi vatnsins hald- ist sem mest óbyggt, opið svæði þar sem því verður við komið. Einnig er því lýst yfir að öllu skólpi verði veitt til sjávar og ofanvatn verði með- höndlað með bestu fáanlegum að- ferðum áður en því er veitt út í Ell- iðavatn en í skipulagsforsendum er, að því er fram kom í erindum Birgis Sigurðssonar skipulagsstjóra og Þórarins Hjaltasonar bæjarverk- fræðings, gert ráð f'yi'ir að regn- vatni, frárennslisvatni frá götum og hitaveituvatni verði veitt i settjarnir áður en því er veitt í vatnið. ■ Skoðað verði/18 / / BIOBLAÐIÐ UMi Stórleikur Rúnars og tvö mörk gegn Rússunum /C2 Ólympíuleikarnir hefjast í dag/C1 Fylgstu með nýjustu fréttum www.mbl.is

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.