Morgunblaðið - 15.09.2000, Qupperneq 10

Morgunblaðið - 15.09.2000, Qupperneq 10
10 FÖSTUDAGUR 15. SEPTEMBER 2000 MORGUNBLAÐIÐ FRÉTTIR Ráðherra vill að skýrslutökur af yngri börnum fari fram í Barnahúsi Farið fram á viðræður við fulltrúa dómsmálaráðuneytis FÉLAGSMÁLARÁÐUNEYTIÐ hefur óskað eft- ir viðræðum við dómsmálaráðuneytið um fyrir- komulag skýrslutöku yfir bömum, sem orðið hafa fómarlömb kynferðisbrota, en í bréfi sem Páll Pét- ursson félagsmálaráðherra ritaði dómsmálaráð- herra 4. september síðastliðinn vai- stungið upp á því að sá háttur yrði hafður á að allar skýrslutökur yfir börnum yngri en fjórtán ára fæm fram í Barnahúsi. Eins og fram hefur komið staðfesti Hæstiréttur á mánudag úrskurð héraðsdóms Reykjavíkur um að hafna kröfum réttargæslumanns ungi-ar stúlku um að teknar yrðu skýrslur af henni í Barnahúsi en ekki í húsakynnum héraðsdóms Reykjavíkur. Kom fram í úrskurðinum að ekki væri hægt að gera slíka kröfu, og einnig að aðstæður til skýrslu- töku í héraðsdómi Reykjavíkur væm fullnægjandi. Aðspurður sagði Páll að sér þætti miður hversu tregir héraðsdómarar í Reykjavík væra til að nota aðstöðu Bamahússins til skýrslutöku. Hann sagð- ist ekki vita til þess að Hæstiréttur hefði gert sam- anburð á aðstöðunni í héraðsdómi og í Barnahúsi, „sem við teljum með því besta sem gerist í heimin- um.“ Sagði hann að reynslan væri sú, frá því að Bamahús var stofnað, að héraðsdómarar í Reykja- vík vildu heldur taka sínar skýrslur í héraðsdómi sjálfum. Reyknesingar notuðu Bamahúsið hins vegar mikið og reyndar fleiri, t.d. héraðsdómarinn á Norðurlandi eystra. „Fjórðungur af þeim skýrslutökum sem gerðar hafa verið að undan- förnu hefur farið fram í Barnahúsinu. Þó að dóm- arar í Reykjavík kjósi að nota það ekki þá velja margh- aðrir þann kostinn," sagði Páll. Fyrsta tilraunatímabili Bamahúss lýkur 1. nóvember Páll sagði að sér myndi þykja það mjög slæmt ef til þess kæmi að loka þyrfti Barnahúsi. Hér væri hins vegar á ferðinni tilraunaverkefni, og fyrsta til- raunatímabili lyki 1. nóvember næstkomandi. Sagði hann að fyrir þann tíma myndi Bamavemd- arstofa senda honum álitsgerð og tillögur um hvemig framhaldinu skuli háttað. „Og ég bíð með allar ákvarðanir þangað til ég sé þessa álitsgerð,“ sagði hann. Ef til þess kæmi þá væri það í verkahring dóms- málaráðherra að gera breytingar á hegningarlög- um eða lögum um meðferð opinbema mála vegna skýrslutöku yfir börnum. Sagðist Páll fúllviss um að ná mætti samkomulagi um þessi mál og að dómsmálaráðherra væri öll af vilja gerð að tryggja að þolendur kynferðisbrota fengju sem besta og mildilegasta þjónustu. „Hvort hún fer út í það að breyta lögum eða leggur fram tilmæli til dómaranna veit ég ekki,“ sagði hann. „Einfaldast væri auðvitað að hún beitti áhrifum sínum við dómarana, að þeir reyni frekar að beina yfirheyrslum í Barnahúsið, a.m.k. þegar um yngstu bömin er að ræða.“ Benti hann á að þetta væri fyrst og fremst spursmál um vilja dómara, þeim væri í sjálfsvald sett hvort þeir létu framkvæma allar yfirheyrslur í Barnahúsinu eða ekki. Allsherjarnefnd tekur málið væntanlega til umræðu Þær Arnbjörg Sveinsdóttir, formaður félagsmálanefndar Alþingis, og Þorgerður K. Gunnarsdóttir, formaður allsherjarnefndar, vom sammála um það, þegar Morgunblaðið hafði sam- band við þær í gær, að þessi mál þyrfti að skoða of- an í kjölinn. Kváðust þær báðar almennt heldur hlynntar því að skýrslutökur fæm fram í Barna- húsi en Þorgerður sagði að mat dómara hlyti hins vegar alltaf að ráða. Það væri ekki löggjafans að grípa fram fyrir hendur dómsvaldsins. Dómara- stéttin væri að gera það sem henni væri heimilt miðað við lagabókstafinn en það þýddi þó ekki að ekki væri hægt að breyta lögum til að festa í sessi þá reglu að skýrslutökur yfir börnum færu fram í Barnahúsi. Sagði hún líklegt að farið yrði yfir þessi mál í allsheijarnefnd þegar Alþingi kemur saman að nýju nú í haust. Norðurárdalur Sveig'ði frá kind- um og valt útaf ÖKUMAÐUR jeppabifreiðar missti í fyrrinótt stjórn á bíl sínum eftir að hafa sveigt frá kindahóp sem var á þjóðveg- inum. Jeppinn lenti í lausamöl og valt nokkrar veltur niður um 50 m snarbrattan vegkant og hafnaði í árfarvegi Norðurár. Ökumaðurinn, sem var í bíl- belti, komst út úr bílnum og upp á veg. Bflar óku framhjá Þar náði hann að gera vart við sig en áður höfðu nokkrir bílar ekið fram hjá honum en niðamyrkur var á staðnum. Slysið varð skammt ofan Sveinatungu í Norðurárdal en maðurinn var á Norðurleið. Ökumaðurinn kenndi til eymsla í hálsi og baki og var fluttur á sjúkrahúsið á Akra- nesi. Sjúkrahús Suðurlands Verkfall myndi raska starfseminni MAGNÚS Stefánsson, fram- kvæmdastjóri Sjúkrahúss Suður- lands, kveðst vonast til þess að vinnudeila ófaglærðra starfsmanna við Heilbrigðisstofnun Suðurlands leysist áður en til verkfalls kemur. Þama er um að ræða um fimmtíu starfsmenn. Magnús segir að verk- fall myndi raska starfsemi sjúkra- hússins. Vinnudeila sé alfarið í hönd- um ríkissáttasemjara. Magnús vildi ekki tjá sig um hvort grípa yrði til lokana á deildum spítalans ef til verkfalls kæmi. Morgunblaðið/Kristín Geirsdóttir Frétt bandaríska furðufréttablaðsins Weekly World News N eanderthalmenn búa á Akureyri NEANDERTHAL-maðurinn dó alls ekkert út fyrir þrjátíu og fimm þúsund áram eins og vísindamenn hafa fram að þessu talið. í helli í nágrenni Akureyrar býr nefnilega ellefu manna fjölskylda og hefur það bara býsna gott, a.m.k. ef eitt- hvað er að marka nýlega frétt bandaríska furðufregnablaðsins Weekly World News sem nálgast má á Netinu. í „frétt“ blaðsins frá 10. septem- ber síðastliðnum er greint frá því að íslenskt dagblað hafi flutt fregn- ir af því í júní að eftirlitssveit úr ís- lenska hemum hafi vegna veðurs leitað skjóls í afskekktum helli í norðurhluta íslands en fundið þar fyrir ellefu manna Neanderthalfjöl- skyldu. Er hellirinn sagður fjarri öllum mannabyggðum, umlukinn næstum ófærri íshellu. Neanderthal-fjölskyldan er sögð samanstanda af tveimur fullvöxn- um karlmönnum, fjóram konum og fimm börnum og mun heimili þeirra, þ.e. hellirinn, hafa verið furðu hlýtt enda staðsett í ná- grenni eldfjalls. Fram kemur einn- Fjölskyldan sem á að hafa fund- ist í hellinum. ig að skv. frétt hins íslenska dag- blaðs hafi svo virst sem fólkið veiddi sér hreindýr til matar og að þau hafi í fyrstu verið óttaslegin vegna heimsóknar hinna óboðnu gesta en síðan sýnt þeim mikla gestrisni. Haft er eftir mannfræðingi sem ber nafnið Olaf Norrkopinger að skýringin á því hvers vegna þessi hópur Neanderthalmanna hafi lifað af án þess að nokkur hefði um það grun geti falist í því hversu gífur- lega strjálbýlt ísland er. Kveðst hann hlakka til að komast nú að hinu sanna um tengsl nútímannsins við Neanderthal-manninn með rannsóknum á erfðaefni fjölskyld- unnar frá Akureyri. Á hinn bóginn kemur fram í frétt Weekly World News að íslenska ríkisstjórnin hafi gert sitt besta til að þagga niður þessi merku tíðindi. Stjórnvöld hafi jafnvel neitað að staðfesta fréttir íslenska ritmiðils- ins. Afstaða stjórnvalda sé sú að vernda verði fornmannafjölskyld- una til að valda ekki lífsháttum þeirra varanlegum skaða. Félagslíf ungs fólks á Höfn í brennidepli Hornafirði. Morgunblaðið. „FÉLAGSLEGUR stuðningur við unglinga og þá sem hans þurfa geldur þess að við erum fyrsta kynslóðin sem við hann glímir,“ sagði Þórólfur Þórlindsson pró- fessor á ráðstefnu sem haldin var á Hornafirði í gær um félagsstarf unglinga. Þórólfur sagði einnig að íslend- ingar væru að fást við alþjóðaunglingamenningu, fyrir- tæki sem velta tugum milljarða á því að selja unglingum og mark- aðssetja fyrir unglinga. Iþróttafé- lögin í landinu og tónlistarskólar þurfi að endurskipuleggja starf sitt með uppeldisleg viðmið í huga. 8% íslenskra barna hafi ekki efni á að taka þátt í íþrótta- starfi. Áhersla íþróttafélaganna sé á keppnisíþróttir og peningun- um sé varið í þær. Skólinn gegni orðið lykilhlutverki í félagsstarfí og uppeldi barna og unglinga og það hafí skaðað ímynd unglinga hve fjölmiðlar hafa brugðið upp neikvæðri mynd af þeim. Gjör- samlega hafi brugðist að greina frá því sem sé jákvætt. Ráðstefnan var í alla staði fróð- leg og gagnleg og á eftir að hreyfa við þeim sem láta sig mál- efni unglinga varða. Ráðstefnan var haldin í Mána- garði og var vel sótt af ung- mennum og öðrum sem láta sig unglingana varða. Ráðstefnu- stjóri var Stefán Ólafsson fram- kvæmdastjóri fræðslu- og félags- sviðs. Fjölmargir tóku til máls Meðal þeirra sem fluttu erindi voru Anna Margrét Ólafsdóttir, sem fjallaði um þátttöku foreldra í félagsstarfi, Erlendur Kristjáns- son deildarstjóri í menntamála- ráðuneytinu sem ræddi almenna stöðu æskulýðsmála, Gísli Sverrir Árnason forseti bæjarstjórnar Hornafjarðar sem ræddi hlutverk sveitarfélagsins gagnvai-t félags- starfí unglinga, Jón Garðar Bjarnason lögreglumaður, Birgir Kjartansson félagsmálastjóri, Guðmann Þorvaldsson kennari á Eskifirði, Margrét Kristinsdóttir nemi í Framhaldsskóla Austur- Skaftafellssýslu, Hulda Laxdal kennari, Hólmfríður Þrúðmars- dóttir nemandi í Heppuskóla og 8 ára nemendur í Nesjaskóla.
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80
Qupperneq 81
Qupperneq 82
Qupperneq 83
Qupperneq 84

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.