Morgunblaðið - 15.09.2000, Page 25

Morgunblaðið - 15.09.2000, Page 25
MORGUNBLAÐIÐ VIÐSKIPTI FÖSTUDAGUR 15. SEPTEMBER 2000 25 Stofnun starfsgreinahóps í upplýsingatækni- iðnaði innan Samtaka iðnaðarins Eflir hagsmuna- baráttuna og auð- veldar samskipti Morgunblaóið/Þorkell Frá stofnfundi starfsgreinahdps í upplýsingatækniiðnaði innan Samtaka iðnaðarins í gær. Talið frá vinstri: Ari Edwald, framkvíemdastjóri Samtaka atvinnulífsins, Guðmundur Ásmundsson, starfsmaður starfsgreinahópsins, og Sveinn Hannesson, framkvæmdastjóri Samtaka iðnaðarins. STOFNFUNDUR starfsgreina- hóps í upplýsingatækniiðnaði innan Samtaka iðnaðarins var haldinn í gær. Starfsreglur hópsins voru samþykktar á stofnfundinum auk þess sem fimm manna fram- kvæmdastjórn var kosin. Ingvar Kristinsson, framkvæmdastjóri GoPro group og formaður Samtaka íslenskra hugbúnaðarframleiðenda, var kjörinn formaður starfsgreina- hópsins. Ingvar segir að stofnun starfs- greinahóps í upplýsingatækniiðnaði innan Samtaka iðnaðarins efli fyrir- tæki á þessu sviði í allri hagsmuna- baráttu og að öll samskipti þeirra verði auðveldari, við hið opinbera, fjölmiðla og aðra. Hann segir að Samtök íslenskra hugbúnaðarfyrir- tækja hafi stefnt að aðild að Sam- tökum iðnaðarins í tvö ár. Aðild hafi hins vegar ekki verið möguleg fyrr en eftir að Samtök atvinnu- lífsins voru stofnuð og tóku við hlutverki Vinnuveitendasamban- dsins, því ekki hafi verið áhugi inn- an Samtaka íslenskra hugbúnaðar- framleiðenda á að fela Vinnu- veitendasambandinu kjarasamn- ingagerð fyrir þeirra hönd. Með stofnun Samtaka atvinnulífsins hefði hins vegar orðið breyting sem hefði í för með sér að upplýsinga- fyrirtækin gætu verið aðilar að Samtökum iðnaðarins án þess að það fæli í sér að Samtök atvinnu- lífsins færu með kjarasamninga- gerð fyrir þeirra hönd. Mikill vöxtur í upplýsinga- tækniiðnaði hór á landi Guðmundur Ásmundsson, iðnað- arverkfræðingur hjá Samtökum iðnaðarins, sem jafnframt er starfs- maður starfsgreinahópsins, greindi frá því á stofnfundinum, að veltan í upplýsingatækniiðnaðinum hér á landi á síðasta ári hefði numið um 52,6 milljörðum króna og að fjöldi starfa í þessum geira hefði á því ári verið um 4.500. Hann sagði að upp- lýsingatækniiðnaðurinn hefði vaxið verulega að mikilvægi fyrir íslenskt efnahagslíf á undanförnum árum. Bæði Sveinn Hannesson, fram- SAMHLIÐA fjárhagsáætlun norska ríkisins, sem lögð verður fram 4. október nk., leggur ríkisstjórnin til að lagður verði 14% skattur á hagn- að sem eigandi fær af hlutabréfavið- skiptum. Skattlagningin tók gildi á þriðjudag, að því er fram kemur m.a. í Aftenposten, og tekur til einstakl- inga og fyrirtækja. Karl Eirik Schjptt-Pedersen, fjármálaráðherra Noregs, segir að ríkisstjómin vilji betra og réttlátara skattkerfi þar sem meiri skattur leggist á fjármagnstekjur en verið hafi. Heildarhlutabréfavísitala Kauphallarinnar í Osló lækkaði um 0,9% á stundarfjórðungi í fyrradag eftir að tilkynnt var að skattlagning- in tæki gildi samstundis en lækkunin yfir daginn nam aðeins u.þ.b. 0,2%. Nú er talið líklegt að tillagan fái kvæmdastjóri Samtaka iðnaðarins, og Vilmundur Jónsson, formaður Samtakanna, sögðust fagna því að upplýsingatæknifyrirtæki yrðu að- ilar að samtökunum. Fyrir því hefði lengi verið áhugi innan þeirra. Ari Edwald, framkvæmdastjóri Samtaka atvinnulífsins, og Hrafn- hildur Stefánsdóttir, lögfræðingur samtakanna, greindu á stofnfundin- um frá þeirri þjónustu sem upp- lýsingafyrirtækjum stæði til boða hjá Samtökum atvinnulífsins. Þar væri um að ræða þjónustu, aðra en þátttöku í gerð kjarasamninga, svo sem aðstoð við gerð ráðningar- samninga og aðstoð varðandi Evrópumál og fleira. Auk Ingvars Kristinssonar voru kjörnir í stjórn starfsgreinahóps í upplýsingatækniiðnaði innan Sam- taka iðnaðarins þeirAgúst Guðmun- dsson, framkvæmdastjóri Tölvu- miðlunar ehf., Guðjón Auðunsson, framkvæmdastjóri Landsteina ís- lands ehf., Páll Freysteinsson, framkvæmdastjóri hugbúnaðar- sviðs EJS hf. og fulltrúi frá Tölvu- myndum hf., sem ekki lá fyrir á fundinum hver yrði. Starfstími þessarar fyrstu stjórn- ar starfsgreinahópsins er eitt ár. meirihluta á norska þinginu. Hægri- flokkarnir eru andvígir tillögunni en kristilegi flokkurinn og miðju- og vinstriflokkar gætu stutt hana, að því er fram kemur á vefsíðu NRK. I Dagens næringsliv er talað við forstjóra Kauphallarinnar í Osló sem segir skattlagninguna hafa skaðleg áhrif á verðmætasköpun og viðskipti í Noregi, m.a. vegna þess að fjár- magn festist inni í fyrirtækjunum fremur en að því verði varið til fjár- festinga í nýjum verkefnum. Að hans mati væri hyggilegra að lækka skatt- ana til að ýta undir jákvæða þróun í atvinnulífinu. Sérfræðingar við við- skiptaháskólana í Noregi segja skattlagninguna ranga leið hjá stjórnvöldum og í ósamræmi við leið ESB-landa eins og Svíþjóðar, Frakklands og Þýskalands. Búnaðarbank- inn kaupir 6% hlut í i7 • BÚNAÐARBANKI íslands hf. hefur fest kaup á rúmlega 6% hlut í hug- búnaðarhúsinu i7 hugbúnaði hf. Fyr- irtækið sérhæfir sig í gerð hugbúnaö- arfyrirsíma- ogfjarskiptageirann og hefur á undanförnum mánuðum starfað náið með mobilestop.com við þróun á heildarlausnum fyrir þann markað, sem mobilestop.com mun sjá um að dreifa og markaðs- setja. Hjá i7 starfa nú um 18 manns í höfustöövum þess í Hlíðarsmára 17 I Kópavogi og gert er ráð fyrir að svip- aöurfjöldi starfsmanna verði hjá dótturfélagi fyrirtækisins á Indlandi í lok næsta mánaðar. Aöalsteinn Jóhannsson hjá Bún- aðarbankanum Verðbréfum segir bankann hafa mikla trú á fyrirtækinu og að framtíöin sé björt. „Við hjá Búnaðarbankanum Verðbréfum sjá- um fram á mjög bjarta framtíö hjá fé- laginu og höfum mikla trú á þeim ein- staklingum sem þarstarfa." Eðalpennar stofnaðir • Stofnað hefur verið nýtt hátækni- fyrirtæki, „Eðalpennarehf.“, sem sérhæfir sig í sölu á merktri auglýs- inga-oggjafavöru. Eðalpennarbjóða upp á auglýsingavörur frá fyrirtækj- um í Bandaríkjunum og Þýskalandi. Helstu vöruflokkar sem fýrirtækið hefurí sölu eru skriffæri, heimilis- verkfæri, sportvörur, búnaðurtil úti- vistar og leikja svo og merktar rekstr- arvörur. I fréttatilkynningu kemur fram að meöal fyrirtækja sem Eöal- pennar ehf. er umboðsaðili fyrir er Schwan Stabilo auglýsingavörur. Ný- lega fengu Eðalpennar einkaumboð sem dreifingaraðili fyrir Pelikan- auglýsingavörur á íslenskum mark- aði, en Pelikan-skriffæri sem fram- leidd eru í Þýskalandi hafa verið til sölu á íslenskum markaði í tugi ára. Eðalpennar ehf. stefnir að því að stofna innan skamms nýtt fyrirtæki og nota sölu- og markaðskerfi sitt sem hannað hefur verið til aö hefja innflutning og sölu á rafmagnsvör- um. PABBI/MAMMA Allt íyrir minnsta bamið Þumalína, Pósthússtræti 13 Hagnaður af hlutabréfum skattlagður í Noregi Hægrimenn and- vígir tillögunni Morgunblaðid. ósld. Í&tuöS www.urvalutsyn.is Þú átt möguleikann ef þú kemur í Kringluna frá 13.-17. sept., SVOrar tveimur laufléttum spurningum og skilar svörunum i kassa vio Úrval Útsýn. Ef þú ert dreginn út ertu á leiðinni í sann- kailaða dekurferð til Mexíkó með Úrval Útsýn, Vi& stjönum viö þig föstudag, laugardag og sunnudag eins og okkur einum er lagið. Verslanir, veitingastaöir og þjónustuaðilar gle&ja þig meó ógleymanlegri þjónustu og göngugöturnar veróa fullar af óvæntum uppákomum. P R R 5 E M ÆW J R R T R Ð 5 L lí R

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.