Morgunblaðið - 15.09.2000, Side 29

Morgunblaðið - 15.09.2000, Side 29
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 15. SEPTEMBER 2000 29 ERLENT Bandaríkin hefja aðgerðir gegn hvalveiðum Japana Bill Clinton Bandaríkjaforseti gaf yfír- lýsingu í vikunni, þar sem hann felur ríkisstjórninni að undirbúa refsiaðgerðir gegn Japan fyrir að brjóta bann Alþjóða- hvalveiðiráðsins á veiðum á búrhval og skorureyði. Margrét Bj örgúlfsdóttir kynnti sér ríkjandi hvalaverndunar- sjónarmið í Washington. ALLT frá því að Alþjóðahvalveiðiráðið tók ákvörðun um að banna hval- veiðar árið 1986 hafa Japanar áskilið sér rétt til að stunda veiðar í vísindaskyni. A þessu ári dró til tíðinda þegar Japanar bættu búrhval og skorureyði við veiðar á hrefnu í vísinda- skyni og tilkynntu að þeir ætl- uðu að leyfa veiðar á 600 hvöl- um, þar af440 hrefnum. Bæði búrhvalur og skoru- reyður eru friðaðar í Bandaríkj- unum og búrhvalur er þar að auki á lista yfir tegundir sem taldar eru í útrýmingarhættu. Alþjóðahvalveiðiráðið mótmælti Norman Mineta, viðskiptaráðherra Banda- ríkjanna, og John Podesta, starfsmannastjóri Hvíta hússins, á blaðamannafundi í fyrradag. strax þessari ákvörðun Japana og bandarísk yfirvöld hafa reynt ítrekað að telja Japönum hughvarf. Efitr árangurslausar fortölur, síð- ast á fundi utanríkisráðherra land- anna tveggja, Madeleine Albright og Yohei Kono, í New York, þann 11. september, tóku bandarísk stjómvöld þá ákvörðun að beita Japan refsi- ákvæðum samkvæmt heimild í bandarískum fiskverndunarlögum (frá 1967 og 1978). Þar er kveðið á um refsiaðgerðir gegn ríkjum sem van- virða samþykktir Alþjóðahvalveiði- ráðsins til vemdar hvalastofnum. Þessi lágabreyting er almennt þekkt undir nafninu „Pelly Amendment". Samkvæmt lögunum ber Bandaríkja- forseta að skila skýrslu til þingsins um fyrirhugaðar áætlanir innan 60 daga frá því að umrædd ákvörðun er tekin. Refsiaðgerðir íhugaðar í kjölfar yfirlýsingar Clintons for- seta þann 13. september, kynntu Norman Mineta viðskiptaráðherra Bandaríkjanna og John Podesta starfsmannastjóri Hvíta hússins hugsanlegar aðgerðir gegn Japan. Bandaríkjamenn em almennt á móti hvalveiðum og fulltrúar stjórnvalda spöruðu ekki orðin á blaðamanna- fundinum. Mineta sagði að hvalveiðar Japana í vísindaskyni væm til þess gerðar að sjá veitingastöðum og sæl- kerabúðum fyrir eftirsóttu hvalkjöti og að hann óttaðist að þær væra und- anfari veiða í atvinnuskyni. Mineta bætti því við að samkvæmt tillögum hans hefði Clinton fyrirskipað að Jap- an gæti ekld öðlast réttindi til fisk- veiðiheimilda innan bandarískrar fiskveiðilögsögu. En Bandaríkjamenn ætla, í fyrsta sinn í áratug, að veita erlendum skipum heimild til veiða á makríl og síld í haust. Japan er því komið í þá stöðu að vera eina landið sem ekki getur sótt um slíkan kvóta. Viðkomandi ráð- uneytum hefur ennfremur verið falið að rannsaka hvemig hugsanlegum refsiaðgerðum, þar með taldar við- skiptaþvinganir, verði best háttað. Bandaríkjmenn hafa tvisvar áður gripið til Pelfy lagaákvæðanna gegn Japan, án þess þó að beita landið refsiaðgerðum. Fyrra skiptið var árið 1988, í stjómartíð Ronald Reagans þegar Japanar hófu hvalveiðar í vís- indaskyni og það seinna var 1995, þegar Japanir bættu við fyrirfram ákveðinn kvóta sinn. í báðum tilfell- um vora viðskiptaþvinganir íhugaðar, en fallið frá þeim áætlunum og valið að halda áfram að beita Japana þrýst- ingi til að hætta veiðum. Embættis- menn leggja áherslu á að nú sé full al- vara á bak við ákvörðunina. Podesta sagði á fundinum að þó samskipti Bandaríkjanna við Japan væra áfram mikilvæg, hefðu bandarísk stjórnvöld „tekið þessa ákvörðun af fullri alvöra og að vandlega íhuguðu máli“. Þrýstingnr úr mörgum áttum Háttsettur bandarískur embættis- maður sagði i samtali við Morgun- blaðið að Bandaríkin nytu stuðnings fjölmargra erlendra ríkja í þessu máli. Hann benti á að Alþjóða- hvalveiðiráðið hefði strax mótmælt fyrirhuguðum veiðum í júlí og að í ágúst hefðu 15 sendiherrar erlendra ríkja í Japan, Bandaríkin þar með tal- in, með Irland í fararbroddi opinber- lega mótmælt veiðunum. Áður hafði Clinton tekið höndum saman við for- sætisráðherra Bretlands og Nýja- Sjálands í mótmælaskyni og að lokn- um G-8 leiðtogafundinum í Okinawa í júlí sendi Bandaríkjaforseti skilaboð til Yoshiro Mori forsætisráðherra Japans þar sem hann hvatti hann til að láta af fyrirhuguðum veiðum. Aðspurður um tímasetningu yfir- lýsingar Clintons (kosningar era í nánd og husanlega gæti málið hjálpað A1 Gore varaforseta og forsetafram- bjóðanda Demókrataflokksins) sagði heimildarmaður Morgunblaðsins að þetta ferli hefði hafist fyrir mörgum mánuðum síðan og að stjómvöld hefðu þrýst á Japan að hætta við fyr- irhugaðar veiðar með ýmsu móti. Bandaríkjamenn hafa þegar afboðað þátttöku í tveimur umhverfisvemdar- fundum í Japan og aflýst árlegum fiskveiðisamráðsfundum landanna tveggja. Þar að auki hafa bandarísk stjórnvöld lýst sig mótfallin því að Japan verði gestgjafi fundar Alþjóða- hvalveiðiráðsins í janúar á næsta ári. Embættismaðurinn ítrekaði einnig að aðgerðirnar nytu stuðnings beggja flokka á Bandaríkjaþingi. Hann benti á að Japan hefði tvisvar áður verið beitt þessu lagaákvæði; í fyrra skiptið í stjómartíð repúblikana. Japönsk stjómvöld hafa bragðist hart við og hóta að fara með málið fyr- ir Heimsviðskiptastofnunina (WTO) í Genf, ef Bandaríkin grípa til einhliða viðskiptaþvingana og segja ennfrem- ur að slíkt muni hafa alvarlegar afleið- ingar fyrir milliríkjaviðskipti þjóð- anna. Þó svo að fyrirhugaðar aðgerðir hafi takmörkuð áhrif að svo komnu máli, sendi japanska sendiráðið í Washington út fréttatilkynningu í gær, þar sem Japanar segjast ætla að bregðast við alþjóðlegum mótmælum og takmarka hvalveiðar í vísindaskyni við 100 hvali í ár. Japanar hafa þó ekki breytt afstöðu sinni til Alþjóðahval- veiðiráðsins um að þar séu sjónarmið náttúravemdarsinna ríkjandi og landa eins og Bretlands og Banda- ríkjanna, sem era mótfallin öll- um hvalveiðum, algjörlega óháð því hvort hvalategundir séu í útrýmingarhættu eður ei. í samtali við Morgunblaðið, sagðist fulltrúi í sendiráði Jap- ana harma aðgerðir Banda- ríkjamanna, sem væra byggð- ar á misskilningi. Hann sagði að tO hefði staðið að veiða 100 hrefnur, 50 skorureyðar og 10 búrhvali í ár, en nú yrði veiði- tíminn styttur og einungis 100 hvalir veiddir í allt. Japanar hafa veitt í eigin fiskveiðOög- sögu og á alþjóðlegum haf- svæðum suður af Kamtsjatka. Ö0 veiðin er nýtt í samræmi við ákvarðanir Álþjóðahvalveiðir- áðsins og seld á markað. SendifuU- trúinn vildi koma því á framfæri að samkvæmt upplýsingum frá Alþjóða- hvalveiðiráðinu væri hrefnustofninn 225.000 dýr, búrhvalir era áætlaðir 102.000 og skorareyðar 22.000, hér væri því engin hætta á ferðum. Jap- anar telja ennfremur að athæfi Bandaríkjastjómar muni ekki hjálpa við lausn málsins, til þess þurfi upp- byggilegar viðræður á opnum grand- velli. Hugsanleg áhrif á hvalveiðar annarra rflya Bandarísk yfirvöld taka það skýrt fram að Bandaríkin hafi ekki í hótun- um við Japan, heldur sé ríkisstjórnin að íhuga aðgerðir sem kveðið er á um í bandarískum lögum. Clinton sagði tO að mynda í yfir- lýsingu sinni að hann „vonaðist tO að þau skref sem stigin era í dag [13.september] verði tO þess að Japan endurskoði afstöðu sína“. Embættismenn segja að á þessu stigi málsins sé ótímabært að ræða um viðbrögð Heimsviðskiptastofnun- arinnar og yfirlýsingar Japana um ólögmæti hugsanlegra viðskipta- þvinganna (á grandvelli þess að Bandarfldn flytji ekki inn hvalkjöt) séu tfl þess fallnar að dreifa athygli frá kjama málsins. En talsmenn stjómai-innar leggja áherslu á að skOaboðin séu skýr, stjómvöld munu grípa tO aðgerða gegn löndum sem bijóta alþjóðlegar samþykktir gegn hvalveiðum. Utanrfldsráðuneyti Bandaríkjanna hefur lýst yfir ánægju með nýlegar fréttir um að ísland kunni að sækja um aðfld að Alþjóðahvalveiðiráðinu, eftir áratugar fjarvera. Bandaríkja- menn hafa enda hvatt íslendinga tU að taka aftur sæti í ráðinu áður en þeir taki endanlega ákvörðun um að aflétta banninu við hvalveiðum. Embættismaður ráðuneytisins staðfesti í samtali við Morgunblaðið að Bandaríkin líti svo á að Alþjóða- hvalveiðiráðið sé eina alþjóðlega stofnunin sem hafi yfirráð og umsjón með hvalveiðum. Við þetta er að bæta, að bandarísk yfirvöld ætlast tfl að öll lönd sem séu að íhuga hvalveið- ar geri svo innan vébanda ráðsins og þau vonast tU að Islendingar muni fara að ráðleggingum Alþjóðahval- veiðiráðsins ef þeir ætla sér að hefja veiðar á ný. - Gildir til fimmtudagsins 22. september grillborgarar BURFEIiS 198 ka Hálfur lambaskrokkur bestu kaupin kg kryddaö kinda Innralæri 26871598; nautabuff H&B9. 0B3z fluiko Oven Superstring m k franskar... 219? Colombia kaffi 305°: Colgate Actibrush rafmagns -ðonn tannbursti itsa,-1099 Colgate Actibrush tannbursta fyllingar 499; Cote D'or fflakaramellur 229: LfarfírM* 1 hi|iTiáisiiÍjai

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.