Morgunblaðið - 15.09.2000, Blaðsíða 34

Morgunblaðið - 15.09.2000, Blaðsíða 34
34 FÖSTUDAGUR 15. SEPTEMBER 2000 LISTIR MORGUNBLAÐIQ Starfshópur sem undirbýr uppfærslu á óperunni Stúlkan í vitanum. Fremri röð f.v.: Hlín Agnarsdóttir leikstjóii og Þorkell Sigurbjörnsson, höfundur tónlistar og hljómsveitarstjóri. Aftari röð f.v.: Jóhann B. Pálmason ljósa- hönnuður, Stígur Steinþórsson leikmyndahönnuður, Hulda Kristín Magnúsdóttir búningahönnuður, Hólmfríð- ur Kristinsdóttir hárgreiðslumeistari, Sigríður Gylfadóttir saumastofuforstjóri, Geir Óttar Geirsson sviðs- stjóri, Kristín Kristjánsdóttir sýningarstjóri, Stefán Edelstein, skólastjóri Tónmenntaskóla Reykjavíkur, og Bjarni Daníelsson óperustjóri. Margrét litla og önn- ur börn á miðöldum SÝNING fyrir börn verður opnuð í Sjóminjasafni íslands, Vestur- götu 8, Hafnarfirði, í dag, föstu- dag. Sýningin nefnist Margrét litla og önnur börn á miðöldum. Þetta er farandsýning sem gerð er af Börnenes Museum sem er hluti af danska þjóðminjasafninu. Sýningin er fyrst og fremst ætluð fimm til níu ára börnum. Hún byggist á bernsku Margrétar fyrstu drottn- ingar sem réð fyrir ríkjum á öllum Norðurlöndum á dögum Kalmar- sambandsins, sem stofnað var 1397. Einnig er fjallað almennt um líf barna á þeim tíma. A sýning- unni eru endurgerð leikföng og föt frá þessum tíma sem ungir sýning- argestir geta leikið sér að og klætt síg í. Einnig eru til sýnis nokkrir miðaldamunir úr eigu Þjóðminja- safns Islands, sem tengjast börn- um. Skólabekkir og leikskólahópar geta pantað heimsókn á sýninguna hjá Sigurborgu Hilmarsdóttur safnkennara Þjóðminjasafns, sími 530-2286, netfang shilmars@- natmus.is. Norræna ráðherranefndin, Eimskipafélag fslands og menn- ingarmálanefnd Hafnarfjarðar styrktu komu sýningarinnar til ís- lands. Sjóminjasafnið er opið alla daga fram til 30. september kl. 13-17 og ennfremur eftir samkomulagi fyrir skólabörn og aðra hópa. Frá 1. október er opið um helgar kl. 13- 17. Sameiginlegur aðgöngumiði er að safninu og Byggðasafni Hafnar- fjarðar. Sýningin er opin til 15. desember. BÆKUR Leiðarvísir ARKITEKTÚR Á ÍSLANDI eftir Birgit Abrecht. Mál og menning. HENTUG leiðsögurit um íslenzka byggingarlist hafa ekki verið til þar til nú á þessu ári að heldur betur er úr því bætt. í vor kom út á vegum Arki- tektafélags íslands Leiðsögn um ís- lenzka byggingarlist með ljósmynd- um af 250 byggingum, fornum og nýjum. Dennis Jóhannesson og Mál- fh'ður Kristjánsdóttir skrifa þar ágrip af íslenzkri byggingarsögu. í annan stað stóð Lesbók Morgunblaðsins að því á vordögum ásamt nefnd á vegum Arkitektafélagsins að velja 50 athygl- isverð hús og mannvirki og voru myndir af þeim birtar í Lesbókinni. í þriðja lagi hefur það svo gerzt á þessu sumri, að Mál og menning geáir úr hliðstætt kynningarrit: Arkitektúr á íslandi - Leiðarvísir. Athyglisvert er að höfundurinn er þýzk kona og segir svo um hana á bókarkápu: „Birgit Abreeht er arkitekt að mennt og hef- ur rekið eigin teiknistofu í Keltem í Suður-Þýskalandi frá 1989. Hún er tíður gestur á íslandi og hefur aflað sér víðtækrar þekkingar á íslenskri byggingarlist." Ennfremur stendur þar: „Formálsorð ritar Pétur H. Ar- mannsson sem hefur verið faglegur ráðgjafi höfundar við gerð bókarinn- ar.“ Glöggt er gests augað og það hefði verið forvitrálegt ef Birgit Abrecht hefði sjálf valið byggingar í þennan ágæta leiðarvísi. En fyrst hún kaus sér innlenda ráðgjöf gat hún naumast fengið betri ráðgjafa en Pétur H. Ár- mannsson. Vegna Lesbókar hef ég átt gott samstarf við hann; við höfum borið saman bækur okkar um þau hús og mannvirki sem við teljum að séu athyglisverð eða framúrskarandi og erum líklega sammála um langflest þeirra. Pétur er sá fræðimaður á þessu sviði sem til er leitað þegar þarf að setja saman bók eða leiðarvísi um íslenzka byggingarlist og hann á stór- HAFNAR eru hjá íslensku óper- unni æfingar á Stúlkunni í vitan- um, nýrri Islenskri óperu fyrir börn og unglinga. Tónlistin cr eftir Þorkel Sigurbjörnsson við texta eftir Böðvar Guðmundsson, en hann sækir meginefni verksins í sögu Jónasar Hallgrímssonar Stúlkan í turninum. I óperunni er sögusviðið fært til nútímans. Ung stúlka býr ásamt vinnuþjökuðum foreldrum sínum í afskekktu vitavarðarhúsi og er oft ein hcima. I einsemd sinni ráfar hún inn í gamia vita- turninn, en lendir þá í klóm Óhræsisins, sem lagt hefur undir sig vitann ásamt hyski sínu, skuggaböldrum og skrugguvöld- um. Illþýði þetta fer í ránsferðir an hlut í vali á verkum í leiðsögubók Arkitektafélagsins. Ugglaust er það vegna þessara tenginga við Pétur, að mikið til sömu byggingarverk eru kynnt í báðum þessum leiðsöguritum, nema hvað þau eru fleiri í leiðsöguriti Arkitekta- félagsins, 250 á móti 150. Aftur á móti eru öllu ítarlegri myndatextar í bók Birgit Abrecht og þar að auki þýddir á ensku og þýzku. Ekki þarf þó að vera neitt undarlegt við það að sömu verkin verði fyrir valinu í tveimur leiðsöguritum. Meðal arkitekta og þeirra sem teljast áhugamenn á þessu sviði er víðtæk samstaða um ís- lenzk þungaviktarhús. Ahugi Birgit Abrecht á þessum ís- lenzka menningararíi er vissulega lof- sverður. Hún hefui- ásamt ráðgjafa sínum valið eftir tímabilum af kost- gæfni og gætt jafnvægis. Til að mynda eru 13 hús frá árabilinu 1753- 1900 í Reykjavík og næsta nágrenni: Viðeyjarstofa og kirkja, Aðalstræti 10 sem telzt elzta hús Reykjavíkur, Stjómarráðshúsið, Dómkirkjan, Bemhöftstorfa, Menntaskólinn í Reykjavík, Hegningarhúsið við Skólavörðustíg, Alþingishúsið, stein- bæir, Nesstofa, hús kennt við Bjama Sívertsen í Hafnarfirði og Árbæjar- safnið er tekið hér á einu bretti. Svo haldið sé áfram með Reykjavík ásamt með nágrannabæjunum hafa verið valin 27 hús frá fyrriparti 20. aldar og nákvæmlega jafn mörg frá síðari hluta aldarinnar. Frá „magra tímabilinu" sem stundum er nefnt svo; árabilinu frá 1950-1980 eru að- eins 9 hús og kemur kannski ekki á óvart. Hinsvegar er þess að geta að þeirra á meðal vom svo framúrskar- andi einbýlishús, Mávanes 4 og Stúlkan í vitanum á nóttunni og heldur veislur til dýrðar hinum myrku öflum, en sefur á daginn. Öhræsið reynir jafnt með fagurgala sem hótun- um að telja stúlkuna á að slást í hópinn, en hún lætur sér ekki segjast. Með hjálp pilts, sem er einn af þrælum Óhræsisins, tekst henni að yfirbuga Óhræsið og frelsa skuggabaldrana og skrugguvaldana, sem í raun eru krakkar á hennar aldri. Með hlutverk stúlkunnar fara Bakkaflöt 1 í Gai'ðabæ, að margir telja að betur hafi ekki verið gert síð- an. Að sjálfsögðu eru þau bæði í bók Birgit Abrecht. Frá sama tímabili eru og Kjarvalsstaðir, sem er afar veikt val og hefði betur verið sleppt þar sem húsið getur naumast talizt fallegt eða góður arldtektúr og þar að auki meingallaður sýningarstaður. Aftur á móti er ég ánægður með að Pétur ráðgjafí hefur sleppt því að mæla með Háskólabíói sem valið var í leiðsögu- bók Arkitektafélagsins. Hann á heið- urinn af því að hafa bent á glæsilegan virðuleika Listasafns Einars Jóns- sonar, sem lengi var litið hornauga, en það er nú kynnt í báðum leiðsögu- bókunum. Aftur á móti hefur ekki tekizt að rétta hlut Heilsuvemdai-- stöðvarinnar við Barónsstíg sem ákafir fylgismenn módernismans börðust heiftarlega gegn á sínum tíma. Það stingur í augu að ekkert nýti- legt hús fyrir slíka bók virðst hafa verið byggt I Kópavogi, sem er þó næststærsti kaupstaður landsins. Þar yfirsást bókarhöfundi og ráðgjafa um Gerðarsafn, eitt af þeim húsum lands- ins sem ég tel í hæsta gæðaflokki, og einnig yfirsást þeim um Salinn, eina hljómleikahús okkar sem auk þess er dæmi um afbragðsgóðan nútíma arki- tektúr. Hefði verið nær að sleppa dælustöð við Bolholt og fyrirhuguðu árþúsundahúsi, sem ennþá hefur ekki verið byggt. Meðal verka af landsbyggðinni eru kirkjur í aðalhlutverki, enda era sum- ar þeirra perlur þótt smáar séu, svo sem Víðimýrarkirkja og Auðkúlu- kirkja. Aðrai- eins og Þingeyrar- kii-kja, Grundarkirkja og Húsavíkur- kirkja eru meðal máttarstólpanna í Dóra Steinunn Ármannsdóttir og Guðrún Þ. Gísladóttir og hlutverk piltsins ívar Helgason og Jökull Steinþórsson. Bergþór Pálsson er í hlutverki Óhræsisins. Börn úr Tónmenntaskóla Reykjavíkur syngja, leika og dansa hlutverk skuggabaldra og skrugguvalda. Þorkell Sigurbjörnsson stjórnar hljómsveitinni, en Hlín Agnars- dóttir er leikstjóri. Óperan stúlkan í vitanum er samin og sviðsett í tilefni af 50 ára afmæli Tónmenntaskóla Reykjavíkur. Uppfærsla verksins er samstarfsverkefni Islensku óp- erunnar, Tónmenntaskóla Reykjavíkur, Fræðslumiðstöðvar Reykjavíkurborgar og Reykjavík- ur - menningarborgar 2000. íslenzkum arkitektúr. Hinsvegar skýtur skökku við í leiðarvísi um ís- lenzka byggingarlist, að þar er ekki einn einasti nútíma sveitabær. Varla er svo illa húsað til sveita að engin bæjarhús komi til greina og finnst mér að sum aukaatriði eins og Sjávar- borgarkirkja skammt frá Sauðár- króki, Hillebrandtshús á Blönduósi og Hraunskirkja í Keldudal hefðu mátt víkja fyrir Geitaskarði í Langa- dal, Litla-Hamri í Eyjafjarðarsveit og Þorvaldseyii uridir Eyjaíjöllum. Þessi sami vankantur er einnig á leið- sögubók Arkitektafélagsins. Eitt fegursta hús á Suðurlandi, Is- ólfsskáli Páls Isólfssonar á Stokks- eyri, hefur orðið útundan; önnur dæmi af Suðurlandi eru góð og gild. Vesturland virðist rýrast í roðinu en mér þótti gott að sjá bent á hús Landsbankans á Akranesi og Bifröst í Borgarfirði. Öllu fleira þykir athygl- isvert á Vestfjörðum, þai- á meðal hin merkilegu en niðumníddu hús Sam- úels í Selárdal, en perlurnar eru á ísa- firði: Gamla sjúkrahúsið og Neðsti- kaupstaður. Á Norðurlandi er af mörgu að taka, en furðu lítið af því er úr nútíðinni: Húnavallaskóli, Blöndu- óskirkja og Stórutjamarskóli. Það er ótrúlegt, en á Akureyri kemst ekkert á blað sem byggt hefur verið síðan 1930 nema viðbygging við Mennta- skólann. Á Austurlandi þykir feitast á stykkinu á Seyðisfirði og ekki kemur það á óvart. Leiðarvísirinn bendir þar á fjögur hús frá upphafi aldarinnai', en ekkert nýlegt hús annað en Bjarnaneskirkju í Hornafirði. Áherzlan í leiðarvísi Birgit Abrecht er á söguleg verðmæti í byggingarlist okkar sem er að sjálfsögu réttmætt. Þá verða síðari tímar að víkja og verð- ug dæmi um góðan arkitektúr verða útundan; hús eins og Laugarnes- kirkja, Stjómsýsluhúsið á ísaftrði, nýja kirkjan í Stykkishólmi, eldra verzlunarhús Kaupfélags Árnesinga á Selfossi og Sjóváhúsið í Reykjavík. Það er þó ekki aðalatriði, heldur hitt að við höfum fengið í hendur prýðileg- an leiðarvísi sem ákjósanlegt er að hafa við hendina þegar ferðast er um landið. Hafi Birgit Abrecht þökk fyr- ir. Gísli Sigurðsson I fótspor læri- feðranna BÆKUR S a g n i r Tímarit um söguleg efni. 20. árgangur 1999. Ritstjörar: Eggert Þór Aðalsteinsson, Óli Kári Olason og Rósa Magnúsdóttir, 88 bls. í TVO áratugi hafa sagnfræði- nemar við Háskóla íslands haldið úti veglegu tímariti þar sem birtar em greinar um fræðin. Allajafna em greinarnar að upplagi nám- * skeiðsritgerðir sem hafa síðan verið | búnar í aðgengilegt fonn tímarits- 1 greina. í 20. árgangi Sagna eru f birtar átta greinar um söguleg efni auk viðtala við tvo fræðimenn, þá Andrew Wawn, prófessor við Há- skólann í Leeds, og Guðmund Jóns- son, lektor við Háskóla íslands. Þá er í ritinu efnisflokkun 11.-19. ár- gangs ritsins og ritdómur starfandi sagnfræðings um síðasta árgang blaðsins eins og venja er á síðum l þess. Áherslan í þessum árgangi er á j síðari aldir. Einungis ein grein P snertir lauslega á miðaldafræðilegu efni en það er umfjöllun Benedikts Eyþórssonai' um skoðanaskipti fræðimanna um Vínland. Hagsaga, sem ritið hefur lítt sinnt á undan- förnum árum, virðist nú hafa fengið nokkra uppreisn. Þannig verður Magnúsi Sveini Helgasyni orðróm- ur um gengisfellingu í upphafi árs , 1933 tilefni til umíjöllunar um efna- | hagsmál á kreppuámnum og Pétur j G. Kristjánsson fjallar um laun- f verslun Englendinga á 17. öld. Einnig má segja að grein Gunnars Halldórssonar um byggðastefnu bændasamfélagsins snerti á hag- sögulegum málefnum. Annað efni í blaðinu er grein Braga Þ. Ólafs- sonar um framtíðarsýn Islendinga á 19. öld, gi-einargerð Guðna Tómas- sonar um sakamannalýsingar á Al- i þingi á 17. og 18. öld og umíjöllun 1 Sigurðar Más Jóhannessonar um j aðdraganda áfengisbannsins. Að f auki fjallar eini kvenhöfundur blaðsins, Þóra Margrét Guðmun- dsdóttir, um stjómmálastefnu Milosevics Júgóslavíuforseta. Helsti kostur blaðsins er hversu aðgengilegar greinarnar em. Stutt- ur og hnitmiðaður texti greinanna geiir ritið læsilegt og aðgengilegt. Ætla má að innihald slíkra greina skili sér jafnvel betur til almennra j lesenda en ýtarlegar fræðilegar út- j tektir. Á móti kemur að efnistök og 1 framsetning em með ófrumlegra móti. Stórar myndir af körlum að heilsast og körlum með hatta end- urspegla á vissan hátt innihald og efnistök höfunda. Það sem vekur athygli í þessu hefti Sagna er hversu sagnfræði- nemar virðast lítt gefnir fyrir til- raunastarfsemi í nálgun sinni að fortíðinni. Það er eins og sagn- J fræðinemar séu óhreyfðir af helstu p álitamálum söguspeki nútímans og j kjósa frekar að binda trúss sitt við rótgrónar rannsóknarleiðir sagn- fræðinnar. Mörgum kann að þykja slíkt til vitnis um styrkleika tíma- ritsins - að Háskóla íslands takist það ætlunarverk sitt að kenna nem- endum sínum traust vísindaleg vinnubrögð. Það sem á vantar er hins vegar að hlutverk háskólasam- félagsins sem miðstöðvar gagn- | rýnnar og frjórrar hugsunar um j fræðin fái útrás í sköpunarverkum 1 nemendanna. Þótt nýjungagirni í nálgun ein- kenni ekki síður Sagna að þessu sinni eru hér á ferðinni prýðilegar úttektir. T.d. bætir greining Braga Þ. Ólafssonar á framtíðarsýn 19. aldar manna skemmtilegum vinkli í hugarfarssögu tímabilsins og sam- antekt Guðna Tómassonar á saka- mannalýsingum vekur athygli á j þessu forvitnilega valdatæki yfir- j valda. Ólafur Rastrick ^ Leiðsögurit um íslenzka byggingarlist
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.