Morgunblaðið - 15.09.2000, Qupperneq 35

Morgunblaðið - 15.09.2000, Qupperneq 35
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 15. SEPTEMBER 2000 35 LISTIR Blæbrigði og syngjandi tónlínur TOJVLIST Háskólabfú SINFÓNÍUTÓNLEIKAR Á efnisskrá voru tvö verk: Píanókonsert eftir Brahms, sin- fónía eftir Sibelíus og sem auka- lög Ice-rapp eftir Atla Heimi Sveinsson og Vókalísa eftir Rachmaninov. Einleikari; Andrea Lucchesini. Stjórnandi var Rico Saccani. Fimmtudagur- inn 14. september, 2000. TÓNLEIKARNIR hófust á aukalagi í tilefni vesturfarar hljómsveitarinnar og var það Ice- rapp eftir Atla Heimi Sveinsson, sniðuglega samið gamanverk, þar sem víða er komið við, líkt eftir íslenskum rímnalögum og hljóð- falli þeirra, bandarískir slagarar leiknir og jafnvel nótu fyrir nótu, vitnað í fræga tónhendingu úr Vorblóti eftir Stravinsky. Þetta gamanverk var skemmtilegt áheyrnar og því vel tekið af áheyrendum. Eiginleg efnisskrá hófst með píanókonsert í d-moll, op. 15, eft- ir Brahms og var einleikari ung- ur Itali, Andrea Lucchesini, frá- bær píanisti, er gerði margt fallega í þessu glæsilega meist- araverki. Fyrsti kaflinn var í heild nokkuð hægur, báðar kad- ensurnar fallega fluttar en það vantaði á köflum „krumlugrip" Brahms, þar sem leikið er í átt- undum í miðhlutanum og undir lokin. Hægi kaflinn var sérlega fallega leikinn og var töluverður kraftur í lokakaflanum en þar gætti þess um of að hljómsveitin var á köflum of sterk. Sem auka- lag lék Lucchesini sónötu eftir D. Scarlatti af einstökum glæsileik. Sinfónían nr. 1 eftir Sibelíus var í heild einum of yfirdrifin í flutningi. Sinfóníurnar hjá Sibel- íusi eru að miklu leyti leikur að blæbrigðum og framvindan því oft röð af hljómum og jafnvel stefbrotin eru bundin við hljóm- blæ og t.d. gegnir pákan mikil- vægu hlutverki, ekki aðeins til að magna upp sterk tilþrif, heldur einnig sem hluti af fmgerðum og jafnvel dulúðlegum blæbrigðum. Stefið í upphafi, sem leikið er á klarinett við undirleik páku, er í raun fyrirmynd lokastefsins en Sibelíus var sífellt að móta tón- hugmyndir sínar gegnum verkið og í síðasta kaflanum birtist svo stefið fullmótað. Þessi aðferð að fitja upp á stuttum tónhugmynd- um, oft í formi leiks með tónbil, og birta svo niðurstöðuna full- mótaða í þessum óræða stefjaleik undir lokin, er eitt af úrvinnslu- einkennum Sibelíusar. Rico Saccani lagði of mikla áherslu á hið dramatíska svo að lúðrahljómurinn, sem oft er sér- lega áhrifamikill hjá Sibeh'usi, var allt of þrumandi. Sú mýkt, sem lúðrar eiga gjarnan til og lýst hefur verið sem hinum gullna hljómi, var því miður oft fjarri og þar er aðeins um að kenna kröfu stjórnandans, um dramatísk átök og hvellsterkar áherslur. Sterkur leikur blásarasveitarinnar yfir- gnæfði oft þýðingarmikið tónferli í strengjunum og hefði hinn mjúki hljómur lúðranna gefið strengjahljómnum annað inntak. Þrátt fyrir að hljómsveitin léki á köflum vel var Sibelíus allt of grófur, t.d. í skersóinu og loka- kaflanum og það vantaði auk þess í verkið hina rómantísku mýkt og finleika blæbrigðanna sem eru aðall „Andante" kaflans og eru einnig oft ráðandi í hröðu köflun- um, þar sem höfundurinn hægir á tónmálinu og jafnvel staðnæmist við liggjandi hljóma. Skáldskapur Sibelíusar er ofinn í blæbrigði og syngjandi tónlínur og í raun and- stætt slíkum fagurkera, sem Sib- elíus var, að vera með læti. Það er fátítt að Sinfóníuhljóm- sveitin leiki aukalag en það var gert að þessu sinni með flutningi á Vókalísunni eftir Rachmaninov. Var þetta vinsæla verk mjög fal- lega flutt, enda fengu strengirnir að njóta sín til fulls í hljómfallegu samspili við horn og tréblásara. Jón Ásgeirsson Tvær kortasýningar í Þjóðarbókhlöðu í TILEFNI af alþjóðlegri ráðstefnu félags kortasafnara, IMCoS, sem stendur yfir dagana 15.-18. septem- ber í Landsbókasafni Islands - Há- skólabókasafni verða opnaðar á morgun, laugardag, kl. 11.30, tvær kortasýningar: Forn Islandskort og Kortagerðarmaðurinn Samúel Egg- ertsson. Sýningin er styrkt af menningar- borg Reykjavíkur árið 2000. Forseti Islands hr. Ólafur Ragnar Grímsson opnar sýninguna. Sýningin Forn Islandskort er á annarri hæð safnsins og er gott úr- val af íslandskortum eftir alla helstu kortagerðarmenn fyrri alda. Elstu kortin eru frá um 1540. Nýlega voru þau færð yfir á stafrænt form og gerð aðgengileg á Netinu. Einnig verða á sýningunni myndii- af kor- tagerðarmönnum og kortabækur sem eru í eigu safnsins. Sýningin Kortagerðarmaðurinn Samúel Eggertsson er í forsal þjóð- deildar á fyrstu hæð. Ævistarf Sam- úels (1864-1949) var kennsla, en kor- tagerð, skrautskrift og annað því tengt var hans helsta áhugamál. Hann fékk m.a. styrk til að teikna íslandskort sem nota átti við kennslu menntaskólanema. A hverju sumri um tíu ára skeið (1909-1919) vann Samúel við landmælingar og teikningar korta og uppdrátta. 1930 setti hann saman ritið Saga Islands með annálum, línuritum og kortum sem sýna mikla sögu. Flest þessara korta voru gefin út sem póstkort og eru mörg þeirra á sýningunni. Sýningarnar standa út árið 2000. -------------------- Sinfóníu- tónleikar í Stykkishólmi SINFÓNÍUHLJÓMSVEIT íslands heldur tónleika í Stykkishólmskirkju í kvöld kl. 20. Á efnisskránni er Píanókonsert nr. 1 eftir Johannes Brahms og Sinfónía nr. 1 eftir Jean Sibelius. Sama efnisskrá var flutt á tónleikum Sinfóníuhljómsveitarinn- ar í Háskólabíói í gærkvöldi. Einleikari með hljómsveitinni er Andrea Lucchesini, sem talinn er einn fremsti píanóleikari Itala af yngri kynslóðinni. Stjórnandi er Rico Saccani. Með hverri seldri vél er boðið út að borða á Café Óperu Frír flutningur á seldum vélum til allra áfangastaða Landflutninga Helgason hf. Véladeild - Sœvarhöjða 2 Sími 525 8000 - www.ih.is Netfang: tss@ih.is
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80
Qupperneq 81
Qupperneq 82
Qupperneq 83
Qupperneq 84

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.