Morgunblaðið - 15.09.2000, Qupperneq 60

Morgunblaðið - 15.09.2000, Qupperneq 60
FÖSTUDAGUR 15. SEPTEMBER 2000 UMRÆÐAN MORGUNBLAÐIÐ Aldraðir o g öryrkjar hlunnfarnir 20 MILLJARÐA tekjuafgangui’ hjá rík- issjóði er m.a. fenginn með því að hlunnfara aldraða og öryrkja. ■^annig þyrfti að auka tekjutryggingu og grunnlífeyri um 3-4 milljarða króna til að hlutfallið milli dag- vinnulauna verka- manna og lífeyris- greiðslna væri það sama á sl. ári eins og það var á árinu 1991. A árinu 1991 var grunnlíf- eyrir og tekjutrygging sem hlutfall af dag- vinnulaunum verka- manna 51,7% en var á sl. ári 43,8%. Lífeyrisgreiðslur og lágmarkslaun •*" Lífeyrisþegar voru vissulega ekk- ert of sælir af sínum kjörum á árum niðursveiflu í efnahagslífinu 1988- 1993. Þau voru skammarlega lág. Ríkisstjómin sem þá sat setti sér þó það markmið að láta lífeyri ör- yrkja og aldraðra fylgja lágmarks- launum, þrátt fyrir að raunhækkun á tekjum hins opinbera á þessu 6 ára tímabili niðursveiflu í efnahagslífinu næmi aðeins um 4,3 milljörðum króna. Á sl. 6 ára tímabili hefur hins- vegar orðið 64 milljarða króna raim- hækkun á tekjum hins opinbera. vrátt fyrir um 60 milljarða króna meiri tekjuauka hjá ríkissjóði hefur verulega dregið í sundur með lág- markslaunum og lífeyri. Lífeyris- greiðslur með fullri tekjutryggingu eru í dag um 49 þúsund krónur en lágmarkslaunin tæplega 72 þúsund krónur. Ástæða þessa er einkum sú að fyrsta verk núverandi ríkisstjóm- ar árið 1995 var að slíta tengsl launa og lífeyris. Miðað við það sem lægst gefur lífeyrisþegum Akveðið var með lögum sem tóku gildi í byrjun árs 1998 að bætur al- mannatrygginga ættu að breytast í samræmi við þróun launa, en hækka 'þó aldrei minna en verðlag sam- kvæmt vísitölu neysluverðs. Á þessu tímabili hafa lífeyrisgreiðslurnar nær undantekningarlaust verið mið- aðar við það sem lægst hefur gefið lífeyrisþegum eða vísi- tölu neysluverðs í stað launavísitölu. Þannig hafa lífeyrisgreiðslurn- ar einungis hækkað um 11% á þessu tímabili en launavísitala hefur hækkað mun meira eða um 17%. Ríkisstjómin virðist því nota þann mæli- kvarða sem mælir lægstu þjörin til lífeyr- isþeganna. Hungurlús sem ekki er bjóðandi fólki Það er ömurlegt að horfa upp á hverju mol- arnir skila sem ríkisstjómin af og til kastar til lífeyrisþega. 1. apríl sl. hækkaði grunnlífeyrir og tekju- Lífeyrir 20 milljarða tekju- afgangur ríkissjóðs, segir Jóhanna Signrð- ardóttir, er m.a. fenginn með því að hlunnfara aldraða og öryrkja um marga milljarða króna. trygging um 427 kr. og aftur 1. sept- ember sl. um svipaða fjárhæð. Þessi hungurlús er hreint ekki bjóðandi fólki og líkist íremur ein- hverjum ölmusubótum en eðlilegum greiðslum sem aldrað fólk sem skilað hefur sínu dagsverki eða öryrkjar eiga rétt á eins og aðrir í þjóðfélag- inu. Þessar smánargreiðslur hafa svo verið teknar aftur og gott betur með allt að 37% hækkun lyfja fyrr á árinu og verulegri hækkun á eignaskatti og fasteignagjöldum. Það er eins og þessi ríkisstjórn kunni ekki að skammast sín. Ríkisstjóminni væri hollt að bera meiri virðingu fyrir öldmðum og öryrkjum en hún hefur sýnt með verkum sínum til þessa. Höfundur er alþingismadur. Britax URVA LI£) ef* Vijá okkur BÍLSTÓLAR !l»l Ui ))U G L Æ S I B Æ www.oo.is Vinnubrögð við hæfí? ARI Edwald fer með fleipur í DV mið- vikudaginn 30. ágúst þegar hann heldur því fram að Bifreiða- stjórafélagið Sleipnir hafi gert gervisamn- inga við 18 fyrirtæki í rekstri hópbifreiða. Þessi fyrirtæki séu með örfáa Sleipnis- menn í vinnu. Ef þessi fyrirtæki vom ekki með Sleipnismenn í vinnu, hvers vegna vildu þau gera samn- ing við Sleipni? Samn- ingar þeir sem gerðir voru við umrædd fyr- irtæki hafa fullt gildi og hefur rík- issáttasemjara verið afhent afrit af þessum samningum og ætti em- bættið að geta staðfest að um er að ræða fullkomlega eðlilega samninga. Þessi fyrirtæki reka um það bil 140 hópbifreiðar og má spyrja hve marga bifreiðastjóra þarf til að aka þeim. Ari heldur því einnig fram í DV, að kjarasamningur Sleipnis frá 1997 sé enn í gildi, og muni halda gildi sínu við Samtök atvinnulífsins þar til annar hefur verið gerður. Þetta er ennfremur algjör firra og ótrúlegt að maður í stöðu fram- kvæmdastjóra SA skuli láta slíka endemis vitleysu frá sér fara. í samningi Sleipnis frá 1997 seg- ir í grein 15.1. um gildistíma: „All- ir síðast gildandi kjarasamningar aðila framlengjast til 15. febrúar 2000 með þeim breytingum og fyr- irvörum sem í samningi þessum felast og falla þá úr gildi án sér- stakrar uppsagnar." Eins og flestum ætti að vera ljóst eftir allan fréttaflutninginn af Sleipnisdeilunni, ætluðu Samtök atvinnulífsins aldrei að gera kjara- samning við Sleipni og því fór sem fór. Þetta gerðu nokkur hópferða- fyrirtæki sér ljóst og klufu sig úr samtökunum. Þau gerðu því sjálf kjarasamning við Sleipni. Með þessu brutu fyrirtæk- in lög samtakanna. Eru fyrirtækin ekki þar með að lýsa van- trausti á SA og Ara Edwald? Ætli SA sér ekki gera samning við Sleipni og halda að þar með muni eldri samningur halda gildi sínu til eilífðarnóns eru þeir á alvarlegum villigötum. Hvað varðar samn- ing sem VMSÍ gerði við SA síðastliðið vor Óskar um kjör bifreiðastjóra Stefánsson hópbifreiða, mætti ef til vill kalla þann samning gervisamning, en sá samningur nær einungis til örfárra einstaklinga og íyrirtækja. Að halda því fram að sá samningur geti orðið leiðandi á þessu sviði er algjör firra, vegna þess að starf- andi formaður VMSI hefur lýst því yfir, að gildissvið kjarasamnings VMSÍ takmarkist við þau félög sem eru utan félagssvæðis Sleipnis Samtök atvinnulífsins hafa á öllu „samningaferlinu" sýnt ótrúlega óbilgirni, enda augljóst markmið þeirra að ganga af Bifreiðastjóra- félaginu Sleipni dauðu. Ástæða þess er augljós. Samtökin óttast greinilega að fjölmargir bifreiða- stjórar sem hafa verið dreifðir í hinum ýmsu félögum, hafa á síð- astliðnum tveimur árum kosið að ganga í Sleipni. Félagið sé því að verða hættulega stórt og öflugt og nauðsynlegt að mati SA að koma í veg fyrir stækkun þess með öilum hugsanlegum ráðum. Hér er um að ræða bifreiðastjóra starfandi hjá SVR og ennfremur flutningabíl- stjóra af landsbyggðinni. Ekki er spurt um leikreglur í þessum slag. Trúnaðarmaður bif- reiðastjóra Hagvagna, sem er fyr- irtæki innan SA var nýlega kallað- ur á fund framkvæmdastjóra þess og honum sýndir sérstakir kjara- samningar sem fyrirtækið gerði Vinnudeila Samtök atvinnulífsins ætluðu aldrei, segir Oskar Stefánsson, að gera kjarasamning við Sleipni og því fór sem fór. við einstaka starfsmenn. Samning- ar þessir kveða á um verulega lægri laun en Sleipnir hefur samið um við önnur fyrirtæki, en þó ör- lítið hærri en síðastgildandi samn- ingur kvað á um. Forsenda þess að fyrirtækið geri slíkan samning við starfsmenn er að þeir gangi úr Sleipni og er bifreiðastjórum fyrir- tækisins greidd sérstök þóknun fyrir að ganga úr félaginu. Enn- fremur var trúnaðarmanninum sýnt bréf til fyrirtækisins frá Sam- tökum atvinnulífsins þar sem fyr- irtækinu er tilkynnt að geri fyrir- tækið samning við Sleipni, hafi það fyrirgert rétti sýnum til fjárhags- legs stuðnings frá SA vegna verk- falls Sleipnis. Eins og kunnugt er af fréttum, segjast fyrirtækin hafa tapað hundruðum milljóna króna á verkfallinu, en Samtök atvinnulífs- ins borga brúsann að verulegu leyti. Félaginu hafa ennfremur borist fregnir af því að önnur fyrirtæki innan SA leiki þennan sama leik. Einnig hefur félagsmönnum Sleipnis verið synjað um starf hjá Strætisvögnum Reykjavíkur, vegna félagsaðildar, þrátt fyrir skort á bifreiðastjórum. Bifreiðastjórafélagið Sleipnir spyr hvort almenningur telji þetta vinnubrögð við hæfi? Höfundur er formaður Bifreiða- stjórafélagsins Sleipnis. Stúdentadagurinn - dagur allra stúdenta í DAG halda stúd- entar hátíð í Háskóla Islands. Hátíðin nefn- ist Stúdentadagurinn og er samstarfsverk- efni stúdentaráðs og nemendafélaga háskól- ans. Megintilgangur- inn er að skapa sameig- inlegan dag allra stúdenta HÍ, efla þann- ig samkennd háskóla- stúdenta og lífga upp á háskólasamfélagið. Samkennd stúdenta Háskóli íslands hef- ur vaxið mikið á undan- fömum árum og nemendur orðnir vel á sjöunda þúsund. I stórum skóla er hætt við að hinar einstöku deildir einangrist og að nemendur úr ólík- um deildum hafí lítil samskipti sín á milli. Jafnframt vinna sífellt fleiri nemendur með námi sem virðist hafa leitt til þess að það er ekki lengur jafn mikill lífstíll að vera stúdent og áður. Til að vinna gegn því að sam- ÞUMALÍNA Allt fyrir mömmu og barnið Póstsendum, s.: 551 2136 MYNDASÖGUBLAÐIÐ ZETA www.nordiccomic. com kennd stúdenta glatist og til að gera háskóla- lífið skemmtilegra hafa stúdentaráð og nem- endafélögin undirbúið fyrsta Stúdentadaginn þar sem allir nemendur háskólans gera sér glaðan dag. Stúdentar gera sér glaðan dag Utskrifuðum nem- endum frá Háskóla Is- lands verður oft tíðrætt um það mikla fjör sem ríkti í kringum 1. des- ember, þegar meira eða minna allir stúd- entar gerðu sér glaðan dag. Síðan fluttust vetrarprófin frá janúar til desember sem leiddi til þess að 1. desember fékk yfir sig annan og há- tíðlegri brag. Hugmyndin með Stúd- entadeginum er einmitt að reyna að endurvekja þessa gömlu stemmn- ingu. Fjölbreytt dagskrá Yfirvöld háskólans hafa sýnt hug- myndum um Stúdentadaginn mikinn skilning og í dag verður gefið frí frá kennslu eftir kl. 11. Stúdentum og starfsfólki háskólans verður þá boðið í grillveislu fyrir framan Aðalbygg- ingu. Síðan hefst margvísleg skemmtidagskrá þar sem jafnt landsþekktir skemmtikraftar sem efnilegir nemendur innan Háskólans troða upp. Samhliða dagskránni fer fram innanskólamót í knattspyrnu og fyrirlestraröð í Aðalbyggingu, Stúdentar í dag halda stúdentar, segir Þyri Stein- grímsdóttir, hátíð í 7 Háskóla Islands. þar sem fulltrúar frá deildunum flytja margvísleg erindi. Deginum lýkur síðan með gleðskap og dans- leik í umsjá nemendafélaganna. Samstarf SHÍ og nemendafélaganna Samstarf stúdentaráðs og nem- endafélaganna í tengslum við daginn hefur verið einkar ánægjulegt. Skip- aður var starfshópur í apríl sem hóf þegar í stað undirbúning og síðan hafa reglulega verið haldnir sam- ráðsfundir með formönnum nem- endafélaganna. Það er mjög mikil- vægt að samstarf stúdentaráðs og nemendafélaganna sé gott, enda tengja slíkir samráðsfundir háskóla- samfélagið saman. Eftirminnilegur viðburður I dag er hátíð í Háskóla Islands. Það er eindregin von allra þeirra sem að Stúdentadeginum standa að nemendur taki virkan þátt í hátíðinni og geri hana þannig að eftirminni- legum viðburði sem verður árviss í framtíðinni. Höfundur er ístjórn Röskvu og situr i starfshópi um Stúdentadaginn. Þyri Steingrímsdóttir
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80
Qupperneq 81
Qupperneq 82
Qupperneq 83
Qupperneq 84

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.