Morgunblaðið - 15.09.2000, Side 72
72 FÖSTUDAGUR 15. SEPTEMBER 2000
MORGUNBLAÐIÐ
BRIDS
limsjón Arnór G.
Ragnarsson
Spilakvöld Bridsfé-
> lags Reykjavíkiir
BR verður áfram með aðalspila-
kvöld sitt á þriðjudagskvöldum í
vetur.
Fyrsta keppni félagsins að
H aust-silfurstigatvímenningnum
loknum er þriðjudaginn 27. septem-
ber. Þá hefst 3ja kvölda Haust-tví-
menningur sem verður spilaður
með Monrad Barómeter-fyrirkomu-
lagi. 17. október hefst 3ja kvölda
Board A Match-sveitakeppni. Síðan
tekur við Butler-tvímenningur og
loks Hraðsveitakeppni. Spila-
. ^mennska byrjar kl. 19.30 og spilað
er í húsnæði BSÍ í Þönglabakka.
Spilarar eru vinsamlegast beðnir að
skrá sig hjá BSÍ í síma 587-9360,
eða í tölvupósti, bridge@bridge.is
BR verður með eins kvölds tví-
menninga á fimmtudags- og föstu-
dagskvöldum í vetur. Spilaðir verða
Monrad Barómeter- og Mitchell-
tvímenningar til skiptis. Fimmtu-
dagsspilamennskan byrjar kl. 19.30
og gefst pörum tækifæri á að taka
þátt í verðlaunapotti sem rennur til
efstu paranna sem lögðu í hann.
Auk þess geta sigurvegarar dregið
sér verðlaun eða fengið frímiða á
eitthvert spilakvölda BR. Föstu-
dagskvöldin byrja hálftíma fyrr en
flmmtudagskvöldin, eða kl. 19. Eft-
ir að tvímenningnum lýkur á föstu-
dögum gefst spilurum kostur á að
bæta allt að átján spilum við í hinni
geysivinsælu Miðnætursveita-
keppni. Skráning fer fram á staðn-
um sama kvöld og spilamennskan
fer fram.
Föstudagsspilamennskan byrjar
föstudaginn 15. september en fyrsti
eins kvölds tvímenningur á fimmtu-
degi er 28. september.
Yfirkeppnisstjóri BR í vetur er
Sveinn Rúnar Eiríksson. Honum til
aðstoðar verður Sigurbjörn Har-
aldsson og auk þess geta Eiríkur
Hjaltason og ísak Örn Sigurðsson
orðið þeim innan handar. Spilastýra
BR í vetur verður Ragnheiður
Ragnarsdóttir.
Aðalstjórn BR veturinn 2000-
2001 skipa Sigtryggur Sigurðsson
formaður, Friðjón Þórhallsson
varaformaður, Guðný Guðjónsdótt-
ir meðstjórnandi, Isak Örn Sigurðs-
son, ritari og blaðafulltrúi, og Bryn-
dís Þorsteinsdóttir meðstjórnandi.
Bikarúrslitin um helgina
Undanúrslitin verða spiluð laugar-
daginn 16. sept. og hefjast kl. 11,
spilaðar eru fjórarl2 spila lotur.
Úrslitin byrja kl. 10 sunnudaginn
17. sept. og eru spilaðar fjórar 16
spila lotur.
Töfluleikir verða í gangi báða dag-
ana og eru áhorfendur hvattir til að
fjölmenna í Þönglabakkann.
Jí
-þarseni
vinmngarnirfájst
HAPPDRÆTTI
dae
Vinningaskrá
20. útdráttur 14. septembcr 2000
B i f rcið a vinningur
Kr. 2.000.000 Kr. 4.000.000 (tvöfaldur)
7 4 5 3 9 |
Fcrðavinningur
Kr. 100.000 Kr. 200.000 (tvöfaldur)
| 23417 32179 37642 | 67258 1
Ferðavinningur
Kr. 50.000 ____ Kr. 100.000 (tvöfaidur)
3204 23447 46036 56454 74812 77867
8026 40417 50724 65132 77376 79432
ÍDAG
VELVAKANDI
Svarað í síma 569 1100 frá 10-12 og 13-15
frá mánudegi til föstudags
Dýrt að fara
í aðgerð
á íslandi
ÞANNIG er mál með vexti
að ég hef spilað fótboita frá
blautu bamsbeini, þar til
einn góðan veðurdag að ég
meiddist á öðru hnénu. Sem
von var leitaði ég til læknis
og kom í ljós að ég hafði slit-
ið krossbönd. Fyrst svo var
er eðlilegt í þessu landi og
við þetta heilbrigðiskerfí
sem við búum við, að fara í
krossbandaaðgerð. En þá
kom upp úr kafinu að ekki
eru gerðar krossbandaað-
gerðir á Islandi í dag nema
að greiða fyrir það 300 þús.
krónur hjá einkaaðilum.
Þegar þetta kom í ijós leit-
aði ég skýringa hjá heil-
brigðis- og tryggingamála-
ráðuneyti og víðar, en
allsstaðar kom ég að harð-
læstum dyrum. Það eina
sem ég hef fengið að vita er
að samningaviðræður við
lækna hafa staðið frá ára-
mótum, en ekkert þokast í
þeim málum og Ktur út fyrir
að ég þurfi að greiða 300
þús. fyrir þessa aðgerð úr
mínum eigin vasa, þar sem
ég get ekki beðið með hnéð
mikið lengur.
Nú spyr ég sjálfan mig,
eru hinn almenni borgari,
sjómenn, bændur, smiðir,
verkamenn og íþróttamenn
í leik og starfi algerlega
ótryggðir gagnvart þessum
meiðsium í þjóðfélaginu?
Kær kveðja
Ingólfur R. Jónsson,
mælingalandfræðingur
og einu sinni heill
knattspyrnumaður.
Laun á hjúkrunar-
heimilum
ÞAÐ birtist frétt í Morgun-
blaðinu fyrir rúmri viku um
laun starfsmanna á hjúkr-
unarheimilum. Mig langar
að koma á framfæri leiðrétt-
ingu á launum í þessari
frétt. Ég starfa á hjúkrun-
arheimili hér í Reykjavík og
er starfsfóikið innan stétt-
arfélagsins Eflingar.
Lægstu launin á almennri
deild, án menntunar, eru
68.827 kr. miðað við 20 ára
og yngri. Hæstu launin eru
88.144 kr. þegar maðm- hef-
ur tekið öll námskeið á veg-
um Eflingar og miðað er við
36 ára og eldri og 6. þrep,
sem er hæsta þrep. Annars
eru launin 80.957 kr. á mán-
uði. Á hjúkrunardeild eru
launin launaflokk hærri eða
82.413 kr. miðað við 36 ára
og eldri og engin námskeið,
en 70.065 miðað við 20 ára
og yngri og engin námskeið.
Launin komast hæst í
90.347 kr. á mánuði á hjúkr-
unardeild. Efling greiðir
okkur 2.500 kr. eingreiðslu
á mánuði frá 1. janúar 2000-
31. desember 2000, en Fé-
lagsþjónustan greiðir 5 tíma
óunna yfirvinnu á mánuði
frá 1. júní 2000. Leikskól-
amir fá til dæmis frá Fé-
lagsþjónustunni sex tíma
óunna yfirvinnu á mánuði.
Það er nokkuð Ijóst að fólk
lifir ekki á þessum launum
og vinna á hjúkrunarheimili
er mjög erfið, en launin eru
ekki í samræmi við það.
J.B.
Áfram
Stjarnan
NÆSTKOMANDI laugar-
dag fer fram síðasta umferð
Landssímadeildarinnar í
knattspymu og mun Stjarn-
an þá spila á móti KR í
Garðabænum.
Stjarnan hefur átt undir
högg að sækja í Landssíma-
deildinni í sumar og er í
mikilli fallhættu en eitthvað
hefur staðið á því að Garð-
bæingar mæti á völlinn til
þess að styðja sína menn.
Töluverður fjöldi Stjömu-
manna mætti á leik Breiða-
bliks og Stjömunnar á
Kópavogsvelli núna í síð-
ustu umferð og varð úr
ágætis stemmning á áhorf-
endapöllunum. Líklegt
verður að teljast að vestur-
bæingar mæti með tölu-
verðan fjölda af áhangend-
um í Garðabæinn og þurfum
við Garðbæingar að sýna
strákunum „okkar“ stuðn-
ing og mæta á völlinn og
öskra „áfram Stjarnan!"
Gísli ívarsson,
Garðaflöt 5.
Moldarsvað
við Gufunes
KRISTINN hafði samband
við Velvakanda og vildi
koma því á framfæri að að-
koman í Gufunesi, þar sem
gæðamoldin er afgreidd, er
til háborinnar skammar.
Svæðið er eitt drullusvað og
þurfti hann að þrífa bílinn
hátt og lágt eftir ferð þang-
að. Einnig vildi hann beina
þeim tilmælum til starfs-
manna Gufuness að þeir
gæíú réttar upplýsingar um
verð á rúmmetra af mold-
inni.
Bönnum
spilakassa
MÉR finnst að það ætti að
banna alla spilakassa á Is-
landi. Ingibjörg Sólrún ætti
að taka af skarið og láta loka
þeim. Best væri að senda
alla þessa kassa til útlanda.
Það væri miklu nær að
halda til dæmis tombólu fyr-
ir líknarfélögin, sem reka
þessa spilakassa, til þess að
afla þeim tekna. Spilakass-
arnir hafa eyðilagt mörg líf
hér á landi.
Björgvin.
Gagn og gaman-
bækurnar
SIGRÚN hafði samband
við Velvakanda og hana
langaði að vita hvort ein-
hver ætti gömlu Gagn og
gaman-bækurnar og vildi
láta þær.
Vinsamlegast hafið sam-
band í síma 557-2682.
Tapad/fundið
Silfurarmband
tapaðist aftur
SILFURARMBAND
merkt Haraldur tapaðist
sennilega á leiðinni Snorra-
braut-Rauðarárstígur-
Gunnarsbraut eða við
Hlemm. Annbandið tapað-
ist í sumar, en kom í leitirn-
ar eftir auglýsingu í Velvak-
anda. Skilvís finnandi hafi
samband í síma 552-5465.
Giftingarhringur
í óskilum
GIFTINGARHRINGUR
fannst í austurbæ Reykja-
víkur í síðustu viku. Upplýs-
ingar í síma 551-9298.
Lítið svart seðlaveski
tapaðist
LITIÐ svart seðlaveski með
lakkáferðtapaðist annað
hvort mánudaginn 11. sept-
ember sl. eða þriðjudaginn
12. september sl. Veskið
gæti hafa týnst í Kringl-
unni, Fossvogskirlqugarði
eða í Barmahlíð. I veskinu
voru engin persónuskilríki,
en í því voru myndir, sem
eigandanum eru kærar.
Upplýsingar í síma 891-
8111 eða 552-3018.
Dúkka í bleikum
galla í óskilum
LÍTIL mjúk dúkka í bleik-
um galla fannst á Skothús-
vegi við Tjörnina Iaugar-
daginn 9. september sl.
Upplýsingar í síma 552-
2264.
Giftingarhringur og
hálsmen í óskilum
GIFTINGARHRINGUR
eða trúlofunarhringur
fannst á skemmtistaðnum
Klaustrinu laugardaginn 9.
september sl. Einnig fannst
hálsmen við Seljalandsfoss
undir Eyjafjöllum í sumar.
Upplýsingar í síma 896-
9536.
Húsbúnaðaivinningur
Kr. 10.000 Kr. 20.000 (tvöfaldur)
873 10624 22346 31604 43764 55514 63963 75308
1141 10677 22384 33744 44749 55517 64815 76299
1484 11827 23462 33749 45806 55572 65123 76803
1602 1 2039 24978 33865 47374 55613 67245 76993
2221 1 2766 25088 33971 49138 55689 68737 77287
2747 14242 26712 34366 49329 55793 68875 77586
2927 14563 26773 39677 50654 56806 68985 78402
4400 14621 27570 40074 51709 57349 69216 79622
4654 15949 28171 40870 51920 57476 69258 79723
5615 16528 29530 41487 52082 57494 69743
6689 18069 29836 41706 54268 59636 70044
7826 19060 30262 43092 55125 60695 70092
10131 20214 31438 43228 55306 60985 72272
Húsbúnaðarvinningur
Kr. 5.000
12 9242 17631 27950 38015 49471 58929 69245
236 9701 18220 28037 38107 49581 58996 69384
323 9816 18455 28457 38396 49620 59401 69870
912 9847 18491 28610 38696 49864 59458 70015
1072 9921 18698 28911 40274 50094 60168 70121
1386 9936 18749 29014 40346 50218 60534 70385
1661 10084 19340 29223 40736 50708 60757 71360
1686 10387 19397 29700 40784 51107 61523 72006
1970 10550 19436 30288 41790 51184 62178 73042
2041 1 1071 19519 30341 41980 51304 62418 74039
2228 11352 20553 30435 42006 51746 62582 74229
2282 11495 21074 30524 42346 51888 63164 74376
2465 11668 21307 31019 42829 52071 63206 74585
2503 11910 21778 31467 42834 52275 63607 74826
2553 12069 22599 31508 43150 52281 63863 75069
2779 12118 22641 32126 43264 52626 64020 75944
2876 12285 24115 32207 43623 52657 64509 76035
3319 12305 24147 32438 43730 54391 64752 76474
3743 12384 24309 32960 45418 54648 64959 7648 1
4170 13058 24434 33124 45555 54828 65144 76934
4799 13126 24560 33698 45801 54980 65297 76962
5146 13679 24591 33877 4601 1 55153 65939 77557
5249 13792 25016 34235 46042 56270 66075 77872
5645 13968 25108 34453 46320 56963 66090 78106
58 09 14112 25278 34795 46459 57051 67345 79231
584 0 14948 25325 34995 46501 57210 67682 79461
6228 15255 25851 35710 46827 57458 67748
6799 15619 26050 36016 47525 57516 67795
6911 15685 26875 36579 47556 57571 68185
7578 1 5755 26892 36582 48775 58015 68242
8351 16509 27289 36604 48995 58134 68571
8837 16759 27564 36922 49237 58359 68942
Næstu útdrættir fara fram 21. sept., & 28. sept. 2000
Ileimasíða i Interneti: www.das.is
Víkverji skrifar...
VÍKVERJI dagsins hefur áður
kvartað yfir því að einhverjir
(auðvitað aðrir en hann!) skuli ekki
hafa stofnað miðasölufyrirtæki á
Netinu en slík fyrirbæri eru vel-
þekkt í Skandinavíu og víðar. Nú
sér hann sér til mikillar ánægju að
fyrirtæki af því tagi er orðið að
veruleika og er harla ánægður.
Umstangið sem fólk þarf að standa
í við að hanga í biðröðum eftir
miða að vinsælum tónleikum eða
öðrum viðburðum hverfur kannski
ekki endanlega en verður sjald-
gæfara. Tíminn er of dýrmætur til
að verja honum í þess konar hluti,
ævin of stutt.
XXX
MARGAR stéttir velta því fyrir
sér hvort þær eigi að reyna
að fara eftir ákveðnum siðareglum
í starfi sínu. Fjölmiðlamenn eru oft
í vanda vegna slíkra hluta. Al-
menningur vill geta treyst því að
fréttir séu fluttar vegna þess að
fréttamaðurinn og fjölmiðillinn tel-
ur að efnið eigi erindi við alþjóð en
ekki sé einfaldlega verið að lokka
fólk til að kaupa vöru eða þjón-
ustu.
Víkverji sá að sagnfræðingar
settu sér nýlega siðareglur og var
satt að segja dálítið undrandi á
sumu sem þar var sett á blað.
„Þótt sagnfræðingur sé á laun-
um eða þiggi styrk við vinnslu
rannsóknar er frumskylda hans
ávallt sú að hafa það sem sannara
reynist og nota fagleg vinnubrögð.
Sú skylda skal ætíð tekin fram yfir
hagsmuni styrktaraðila eða verk-
kaupa.“
Er ekki verið að setja fram sjálf-
sagða hluti með svona klausum?
Ef fólk, fræðingar eða fjölmiðlung-
ar, ætlar sér ekki að fara eftir
þessum grundvallarreglum Ara
fróða við störf sín er varla hægt að
stöðva það með siðareglum nema
ákvæði séu um refsingar, viðurlög
eins og lögfræðingar orða það.
Sagnfræðingur sem skrökvar
kemst oft upp með það í bili ef
hann fer klókindalega að því en
síðar kemst upp um hann. Frétta-
maður getur líka reynt að fela
vandlega að hann er að auglýsa en
ekki segja frétt. Dómarinn er al-
menningur og aðeins hægt að vona
að hann sé á varðbergi gagnvart
óheiðarleika.
Þetta fannst Víkverja fyrst í
stað en hann sá nýlega bréf frá
tímariti sem sent var fyrirtækjum
í ferðaþjónustu og nú finnst honum
að skriflegar reglur séu bráðnauð-
synlegar fyrir fjölmiðla. Einhver
föst viðmiðun verður að vera til,
annars rennur allt saman í einn
graut, fréttir og auglýsingar.
Tímaritið bauð íslenskum ferða-
þjónustufyrirtækjum kynningu í
blaðauka í tilefni af kaupstefnu.
Sagt var að aðallega myndi blaða-
ukinn byggjast á „greinarskrifum í
stað auglýsinga". Sagt var að
blaðamenn ritsins myndu „sjá um
greinarskrifin í nánu samstarfi við
hvert fyrirtæki" og ljósmyndari
þess annast ljósmyndir. Gefið var
upp nákvæmt verð á kynningar-
síðu í ritinu og tekið fram að allur
kostnaður við greinarskrif, hönn-
un, ljósmyndun og litgreiningu
væri innifalinn í verðinu.
Víkverji er ekki hrifinn og finnst
að skrif af því tagi sem þarna er
verið að lýsa eigi einfaldlega að
kalla sínu rétta nafni: Auglýsingar.
XXX
NÚ er að hefjast hefðbundið
tímabil haustvandræða vegna
skorts á leikskólaplássi. Þótt Vík-
verji eigi ekki beinna hagsmuna að
gæta hefur hann fulla samúð með
þeim foreldrum sem vita nú ekki
sitt rjúkandi ráð. Sumir leita á
náðir ættingja en ekki eru allir svo
heppnir að geta það. Enn vantar
um 80 starfsmenn á leikskólana en
ástandið er þó sagt ívið skárra en
það var á sama tíma í fyrra.
Vandinn er sagður að kaupið sé
of Iágt, fólk vilji gjarnan starfa á
leikskólum en hafi ekki efni á þeim
munaði. Sums staðar hafa engar
umsóknir borist. Keðjuverkun er í
gangi, að sögn eins leikskólastjór-
ans; þeir sem sækja um stöður eru
oft sjálfir með börn sem þeir koma
ekki inn á leikskóla og geta því
ekki hafið störf.